Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1989, Blaðsíða 26
34
FÖSTUDAGUR 17. MARS 1989.
Andlát
Memiing
Sinfóníutónleikar
Þeir voru í gærkvöldi í Háskóla-
bíói. Stjómandi var Moshe Atzmon
frá Ungverjalandi. Hann hefur
stjómað mörgum heimsfrægum
hljómsveitum sem gestastjórnandi.
Og mikið fór hann snoturlega með
þá ágætu Lilju eftir Jón Ásgeirsson.
Gísli Magnússon lék einleik í
fjórða píanókonsert Beethovens.
Hann spilaði mjög lýrískt og fall-
ega. En líka af krafti og hita. Og
dró vel fram dýptina undir niðri í
músíkinni. Hljómsveitin var líka
ágæt en kannski full íín og fáguö.
Loks var fjóröa sinfónía Schum-
anns. Hún er æði. Svo mikill
Schumann. Hann er svo fallegur.
Jafnvel villur hans og yfirsjónir
em ljómandi dyggðir. Ég las um
daginn ritgerð um Schumann í
bókmenntatímaritinu Teningi.
Hún var þýdd. Og er reyndar eitt-
hvert mesta orðaklúður sem ég hef
lesið á íslensku. En höfundurinn
heldur því fram að Schumann hafi
kannski veriö sá besti. Ég held að
minnsta kosti að hann hafi verið
vanmetinn. Hann er alltaf góður.
Líka í hljómsveitarverkunum sem
margir hafa þó hneykslast á ekki
svo lítið. En er til mikið betra í
Gisli Magnússon píanóleikari.
Tónlist
Sigurður Þór Guðjónsson
músík en t.d. inngangurinn að
lokakaflanum í þessari sinfóníu?
Eða lokakaflinn sjálfur? Þessi lífs-
gleði. Þessi sæla. Mann langar til
að hverfa inn í hana. Verða þessi
hamingja.
Moshe Atzmon stjórnaði vel og
vandlega. Állt tipp topp, svona spil-
unarlega séð. En varð þó aldrei frá-
bær. Það vantaði herslumuninn.
Sigurður Þór Guðjónsson.
Arndís Stefánsdóttir, Stóragerði 38,
andaðist í Borgarspítalanum að
morgni 15. mars.
Jarðarfarir
Páll Danielsson lést 8. mars. Hann
fæddist á Örlygsstöðum í Helgafells-
sveit, Snæfellsnesi, 5. apríl 1926, son-
ur Guðrúnar Matthíasdóttur og Þor-
leifs Einarssonar. Síðustu árin vann
Páll í verksmiðju Álafoss. Eftirlif-
andi eiginkona hans er Ebba Þor-
geirsdóttir. Útfor Páls verður gerð
frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30.
Eru nashyrningar í MH?
fyrir ári síðan aö halda svokallaðan osta-
dag í veitingahúsinu Glæsibæ í samvinnu
við Osta- og smjörsöluna og Grensás-
bakarí. Þá var boðið upp á osta og flsk-
rétti í hádegi á laugardegi, auk ýmissa
skemmtiatriða. Að þessu sinni hefur af-
urðasala Sambandsins bæst í hópinn og
verða það gimilegir ostar, brauð og kjöt-
réttir sem gestum gefst kostur á að njóta
í góðu yfirlæti. Ámi Elvar seiðir fram
ljúfa tóna eins og honum er einum lagið.
Þórhallur Sigurösson (Laddi) kemur og
fræðir um osta og kjöt með sínu lagi, auk
annarra skemmtiatriða sem á dagskrá
em. Áðumefnd fyrirtæki leggja endur-
gjaldslaust fram hráefni og tilbúna rétti
í þennan fjáröflunarmiödag. Kiwanis-
klúbburinn Esja sér um undirbúning og
sölu miða. Allur ágóði rennur til líknar-
mála. Miðaverð er kr. 2000 og er hægt
að panta miða í dag í veitingahúsinu
Glæsibæ s. 686220.
Stuðningur við byggingu
tónlistarhúss stóreykst
Samtök um byggingu tónlistarhúss
sendu nýlega bréf til ýmissa tónlistar-
manna og tónlistamnnenda, þar sem
þeim var gefið tækifæri á að lýsa yfir
stuðningi við byggingu þessa langþráða
húss. Nú þegar hafa um 2 þúsund manns
bæst við þau 2000 sem verið hafa í sam-
tökunum frá upphafi og daglega streyma
nýir listar á skrifstofú samtakanna að
Garðastræti 17. Frestur til að skila Usttm-
um var miðaður við hinn umtalaða dag
1. mars, en vegna fjölda áskorana hafa
samtökin ákveðið að framlengja þennan
frest til marslöka. Dagana 17.-22. mars
munu samtökin standa fyrir hlutaveltu
í Kringlunni, „Kringlukasti" sem reynd-
ist mjög vinsælt fyrir jóUn, og alveg á
næstunni munu samtökin efna til gíró-
happdrættis þar sem vinningar em ferðir
tU allra heimshoma, einkum þangað sem
tónhstarviðburða af ýmsu tagi má vænta.
Síðustu sýningar
Nú em síðustu forvöð að sjá sýningu
Herranætur á leikritinu „Tóm ást“ eftir
Sjón. Lokasýningar hafa verið ákveðnar
fóstudaginn 17. og laugardaginn 18. mars
kl. 20.30 í Tjarnarbíói. Miðapantanir í
síma 15470 frá kl. 14.30-16.30 eða við inn-
ganginn.
ITC Melkorka 7 ára
AfmæUsfagnaður ITC Melkorku verður
haldin fóstudagskvöldiö 17. mars kl. 20 á
loftinu við Vesturgötu í Reykjavík. Þrí-
réttuð máltíð með léttri dagskrá án hefð-
bundinna félagsmála. Skráningu annast
Helga í s. 78441 og Guðrún í s. 46751. Stef
fundarins er: í samkvæmislífmu kemst
enginn hetjuskapur í hálfkvisti við gott
kjaftæði.
Leikfélag Menntaskólans viö Hamra-
hlíð:
NASHYRNINGAR
Höfundur: Eugene lonesco
Þýöing: Erna Geirdal
Leikstjóri: Andrés Sigurvinsson
Búningar:Rósberg G. Snædal
Leikmynd: Magnús Loftsson
Ljós: Alfreö S. Böðvarsson
Tónlist: Hilmar örn Hilmarsson, Óli Jón
Jónsson
í nóvember síðastliönum gafst
kostur á að sjá franskan leikara,
Eric Eycenne, flytja Nashyrninga
Ionescos við mikinn fögnuð áhorf-
enda í Iðnó. Eychenne var hér á
landi í boði AÚiance Francais og
hélt eina sýningu á leikgerð sinni
á þessu margfræga verki. Hann
byggði sýninguna á smásögunni,
sem er undirstaða samnefnds leik-
rits, og lék einn öll hlutverkin.
Sýning nemenda Menntaskólans
við Hamrahlíð verður eins konar
framhald á eftirminnilegri túlkun
Eychennes. Hann flutti verkiö án
leikmuna eða búninga en búninga-
hönnuðir MH-inga bregða heldur
betur á leik. Hugmyndaflugið ræð-
ur ferð rétt eins og hjá félögum
þeirra í Herranótt MR. Rósberg G.
Snædal er skrifaður fyrir furðuföt-
um og framúrstefnulegum gervum
og hann undirstrikar karakter per-
sónanna með þessum ýkta fatnaði.
Efni Nashyrninganna er vel
þekkt. Þar fjallar Ionesco um
venjulegt fólk í heldur hversdags-
legu umhverfí sem verður fyrir
þeirri hremmingu að skyndilega
birtast nashyrningar í friðsælum
bænum og fara þeir mikinn.
Til að byija með eru þeir aðeins
einn eða tveir. En smám saman
fjölgar þeim og að sama skapi eykst
atgangur þeirra. Brátt rennur það
upp fyrir mönnum að nashyming-
Ur uppfærslu MH á Nashyrningunum eftir lonesco.
amir em vinir og vandamenn sem
hafa umbreyst í þessar ófélegu
skepnur.
Þegar verkið var samið á sjötta
áratugnum duldist engum að höf-
undur beindi skeytum sínum fyrst
og fremst að nasismanum og þeim
ógnum sem hann hafði valdið. En
verkið stendur engu að síður alveg
fyrir sínu sem miklu víðtækari
ádeila og aðvörun og er listavel
skrifað.
í flutningi MH-inga verður ádeila
Ionescos almenns eðlis og hvers
kyns hugarmengun og múgsefjun
á öllum tímum er það sem skeytum
er beint að.
Frammistaða einstakra leikara
var með miklum ágætum, sérstak-
lega aöalleikendanna, Sigurðar H.
Pálssonar og Benedikts Erlings-
sonar, en óneitanlega mæðir lang-
Leiklist
Auður Eydal
mest á þeim. Sigurður leikur aðal-
persónuna, Berenger, en hann er
sá eini í leikritinu sem er „bara
venjulegur" í útliti og klæðaburði.
Honum tekst að sýna letilega af-
stöðu Berengers til lífsins og tilver-
unnar, hann vill aðeins njóta líð-
andi stundar og gerir sér ekki
óþarfa rellu út af hlutunum.
En þar kemur að Berenger er
neyddur til að taka afstöðu og þá
er það einmitt hann sem lengst
stendur af sér múgæsinguna. Sig-
urður hefur góða framsögn og túlk-
aði sívaxandi örvæntingu persón-
unnar sannfærandi.
Jón er vinur Berengers, meðvit-
aður maður með allt á hreinu.
Hann er skoðanafastur og vandur
að virðingu sinni, kannske eilítið
fordómafullur, enda fellur hann
fljótlega fyrir sjarma hinna rymj-
andi og þungstígu nashyminga og
breytist 1 einn slíkan fyrir augum
furðu lostins vinar síns, Berengers.
Benedikt Erlingsson túlkaði Jón af
miklu öryggi og gaf Jóni skýr per-
sónueinkenni. Hann lék fyrirhafn-
arlaust og hafði framsögnina alveg
á valdi sínu. Atriðið, þegar Jón
breytist í nashyming, var sterkt
og margur reyndari leikari hefði
verið fullsæmdur af frammistöð-
unni.
Af annarri áhöfn verksins má
nefna þau Önnu Sóleyju Þorsteins-
dóttur, sem lék Daisy, Breka Karls-
son, Dudard og Magnús Jóhann
Guðmundsson, Botard. Páll Óskar
Hjámtýsson var rökfræðingur og
Rúnar Páll Gestsson lék herra-
mann. Þau og aðrir í smærri hlut-
verkum stóðu sig að vonum og leik-
stjórinn Andrés Sigurvinsson á
sinn heiður af því hversu góð heild-
armyndin var.
Enda þótt höfundur vari með
þessu verki við bhndri þjónkun við
öfgaskoðanir og letilegri afstöðu
nútímamannsins til umhverfis síns
er enginn grafalvarlegur prédikun-
artónn í þessu verki. Óðru nær.
Textinn er ísmeygilega fyndinn og
oft bráðsnjall. Þetta skilaði sér all-
vel í þýðingu Ernu Geirdal.
Leikfélag MH hefur oftlega staðið
fyrir eftirminnilegum sýningum og
enda þótt ótrúlegur tími og fyrir-
höfn fari í undirbúning er til ein-
hvers unnið þegar svona vel tekst
til. Þessi sýning finnst mér vera
Leikfélagi MH og öðrum aðstand-
endum til sóma. AE
, ÞJÓÐRÁÐ
I HALKUNNI
Tjara á hjólböröum minnkar
veggrip þeirra verulega.
Ef þú skrúbbar eöa úðar
þá meö olíuhreinsiefni
(white spirit / terpentína)
stórbatna aksturs-
eiginleikar í hálku.
n| UMFERÐAR
Skarphéðinn Rúnar Ólafsson,
Bakkastíg 10, Bolungarvík, veröur
jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkur-
kirkju laugardaginn 18. mars kl. 14.
Ólafur Gíslason frá Vesturholtum,
Sólvallagötu 29, Keflavík, verður
jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju
laugardaginn 18. mars kl. 14.
Þórdís Eiríksdóttir, Grænugötu 10,
Akureyri, sem andaðist í Fiórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri sunnudag-
inn 12. mars, verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju mánudaginn 20.
mars kl. 13.30.
Tilkyrmingar
Ostadagur Kiwanis-
klúbbsins Esju
verður í annað sinn laugardaginn 18.
mars. Esjufélagar tóku upp þá nýbreytni
Haukur Jóhannsson lést 10. mars.
Hann var fæddur í Reykjavík 6. ágúst
1916. Foreldrar hans voru Guölaug
Árnadóttir og Jóhann H. Jóhanns-
son. Haukur vann lengst af sem
verkamaður og verkstjóri við ýmis
störf. Um langa hríð vann hann hjá
Skipaútgerð ríkisins. Haim kvæntist
Sigurbjörgu G. Guðjónsdóttur og
eignuðust þau þijú böm. Þau hjónin
slitu samvistum. Útfór Hauks verður
gerð frá Kapellunni í Fossvogi í dag
kl. 15.
Hanna Brynjólfsdóttir ljósmyndari,
Skeiðarvogi 91, andaðist í Vífils-
staðaspítala að morgni miðvikudags
8. mars. ÚtfÖrin hefur farið fram.
Bárður Magnússon frá Steinum,
Norðurgarði 13, Hvolsvelh, verður
jarðsunginn frá Eyvindarhólakirkju
laugardaginn 18. mars kl. 14. Bílferð
verður frá BSÍ kl. 10.30 með viðkomu
á Selfossi og Hvolsvelh.
Kristján Gíslason frá Snæfelh,
Hveragerði, sem lést 13. mars, verður
jarðsunginn frá Hveragerðiskirkju
18. mars kl. 14.
Pálmi Halldórsson smiður, Bjarma-
stig 6, Akureyri, sem lést fimmtudag-
inn 9. mars, verður jarösunginn frá
Akureyrarkirkju fóstudaginn 17.
mars kl. 13.30.