Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1989, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.1989, Qupperneq 29
FÖSTUDAGUR 17. MARS 1989. 37 Lífsstm Hátíðar- fiskur um páska Eins og fram hefur komið á neyt- endasíðu DV eru nokkuð góð kaup í laxi þessa dagana, miöað við annan sparimat. Að nota gómsætan fisk í hátíðarmat í stað kjöts er góð til- breyting. Hér á eftir fara nókkrar uppskriftir að laxaréttum. Lfix á kartöfluböku 1 kg laxaflök salt og sítrónusafi 2 laukar hvítvín og rjómi smjör Kartöflubaka 1 kg soðnar, afhýddar kartöflur, 2 msk. smjör, 1-2 dl mjólk, 3 eggjarauð- ur, 1 dl ijómi, salt, hvítur pipar og múskat. Niðursoðinn krækiingur og rækjur. Roðdragið fiskinn og beinhreinsið með flísatöng. Skerið laxinn í hæfi- iega bita og setjið í lágan, víðan pott. •Stráið salti yfir og smáttsöxuðum lauk. Hellið hvítvíni yfir fiskinn og sjóðið við vægan hita í tæpar 10 mín- útur. í stað hvítvíns má nota mysu. Merjið kartöflumar, blandið smjöri og mjólk saman við og hrærið vel. Hrærið eggjarauðunum saman við og kryddið. Setjið kartöflumauk- ið í eldfast mót og bakið við 250° í 10 mínútur. Sigtið soðið og jafnið með rjóma. Bragðbætið sósuna meö salti og nokkrum dropum af sítrónusafa. Raðið heitum fiskinum á kartöflu- jafninginn og stráið lauknum yfir. Skreytið með kræklingi, rækjum og steinselju. Berið laxabökuna fram með grænmetissalati og sítrónu. Rétturinn er ætlaður fjórum. Laxmeö rækiumauki va ^iax- míðstykki J 1 laxhaus, má sleppa Þessi laxaréttur er töluvert finni io dillkvistir enda meira borið í hann. Rétturinn sag ar /2 sítrónu er borinn fram kaldur og því má elda /2 rauðlaukur hann að mestu daginn áður en hann i utri sjóðandi vatn er borinn fram. 3 fisksoðsteningar Lax á kartöfluböku með kræklingi og lauk. Kaldur lax með rækjumauki sem auðvelt er að matbúa daginn áður. 3 dl þurrt hvitvín (eða mysa) 200 g frosinn grænn spergill (eða úr dós) 250 g frosinn smálaukur 200 g gulrót, skorin í fína strimla Tómatsoð: Fisksoðið sem grænmetið er soðið í ‘á dós niðursoðnir tómatar 2 msk. tómatmauk úr dós Rækjumaukið: 3-400 g rækjur 2 dl ijómi 2 msk. majones örhtið af cayennepipar 1 msk. koníak (má sleppa) 1 kryddmál salt (tæpl. !4 tsk. 1-2 msk. fmsaxaður graslaukur 1 dl sýrður ijómi Skohð fiskinn vel og hreinsið. Setj- ið dillkvistina í botninn á stórum, víðum potti. Setjið laxastykkið yfir og hausinn til hhðar. Setjið sítrónu- safa, vínið, laukinn og fisksoðtening- ana í pottinn. Helhð sjóðandi vatni yfir og sjóðið laxinn við mjög vægan hita í ca 20 mínútur. Látið fiskinn kólna í soðinu. Helliö frá 5 dl af soði og sjóðið grænmetið meyrt í því. Sigtið soðið frá grænmetinu og látið grænmetið kólna. Merjið tómatana aðeins og setjið í soðið. Látið sjóða þar th % hlutar eru eftir. Sigtið soðið og setjið aftur í pottinn. Setjið tómatmaukið saman við og sjóðið í nokkrar mínútur. Kæhð sósuna. Leggið fiskstykkið á disk og takið roðið af þeim hiuta sem snýr upp. Losið efri laxhelminginn varlega frá og leggið á fat með roðhhðina niður. Losið beinin varlega frá hinu stykk- inu og leggið það síðan yfir hitt á fatinu. Takið þá roðið varlega af og öh laus bein sem kunna að vera eftir. Helhð sósunni yfir iaxinn og með- fram á fatið. Breiðið plast yfir og kæhð. Þeytið ijómann vel og blandið sam- an við sýrða ijómann og majonesið. Bragðbætið með kryddinu og setjið rækjurnar síðast saman við. Jafnið rækjumaukinu yfir laxinn. Skreytið með grásleppuhrognum og dilh. Rað- iö grænmetinu að síðustu á fatið. Berið fram kalt með góðu hvítvíni, efvih. -JJ TVær gómsætar súkkulaðitertur Báðar eru þessar tertur sannkah- aðar páskatertur - með miklu súkkulaði eins og vera ber. Þær eru gómsætar með kaffi og sem eftir- réttur eru þær ekki síðri. Súkkulaðiterta með marsípani 200 g hakkaðar möndlur 200 g flórsykur 3 egg l'A msk. hveiti Kremið: 75 g flórsykur 1 dl vatn 3 eggjarauður 150 g mjúkt smjör 1 msk. kakó Súkkulaðibráð: 150 g suðusúkkulaði 2 msk. plöntufeiti Skraut: 100 g marsípan (páskagulur) Blandið saman öllum hráefnum í botninn og hrærið vel. Jafnið deiginu í smurt, pappírsklætt smehuform (28 cm). Bakið kökuna við 170-180° í 30 mínútur. Kæhð kökuna aðeins áður en henni er hvolft á rist. Blandið saman í pott flórsykri og vatni. Hitið við vægan hita í 7-8 mínútur þar til blandan þykknar. Kæhð flórsykurþykknið. Þeytið eggjarauðumar vel saman og hehið flórsykurblöndunni í mjórri bunu saman við og þeytið vel í á meðan. Brytjið smjörið í htla bita og setjið einn og einn saman við og hrærið vel á mihi. Að lokum er kakóduftinu hrært saman við. Smyijið kreminu á botninn. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og setjið plöntufeitina saman við. Hræriö ekki í súkkulaðinu fyrr en það er næstum fuhbráðnað. Súkk- ulaðið er aðeins kæit áöur en því er smurt yfir tertuna. Skreytið kök- una síðan eftir smekk með gulu marsípaninu. Þessi kaka geymist ágætlega. Súkkulaði- hnetuterta 7 eggjahvítur 300 g fínt saxaðar hnetur 300 g flórsykur ca 250 g marsípan Smjörkrem: 150 g ósalt smjör örlítið af sterku kaffi 75 g flórsykur 1 eggjarauða 100 g suðusúkkulaði Stífþeytið eggjahvítumar og hrærið flórsykri og möndlum var- lega saman við. Helhð hrærunni í vel smurt, pappírsklætt smehu- form (24 cm). Bakið kökuna við 175° í 45 mínútur. Kæhð kökuna áður en hún er losuð úr forminu. Blandið saman smjöri, flórsykri, eggjarauðu, kaffi og súkkulaði í pott og sjóðiðþar tíl kremið þykkn- ar. Kæhð blönduna og þeytið síðan vel. Fletjið marsípanið út í sama þvermál og kökuna. Leggið marsípanið síðan vel yfir kökuna. Jafnið súkkulaðinu yfir kökuna og á hliðamar. Sprautið nokkrum topþum af súkkulaði á kökuna. Skreytið með möndluspæni og jafnvel marsípanblómum. Berið gjarnan maukuð jarðarber með. Súkkulaðlterta með marsipanskreytingu. Hnetusúkkulaðiterta með jarðarberjamauki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.