Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1989, Page 6
30
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1989.
Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir
Bíóborgin:
Hættuleg sambönd
Þaö heföi þótt saga til næsta
bæjar fyrir nokkrum árum að að-
eins rúmum mánuöi eftir óskars-
verölaunaafhendingu skyldi vera
búiö aö taka til sýningar í Reykja-
vík allar þær fimm kvikmyndir
sem kepptu um titilinn besta
myndin. Þetta er nú samt staö-
reyndin. Sú síðasta þeirra fimm,
Hættuleg sambönd (Dangerous
Liasons), verður frumsýnd í Bíó-
borginni á morgun.
Mynd þessi hefur alls staöar vak-
iö mikla athygli og þykir hafa vel
tekist aö koma góðu leikriti í kvik-
mynd. Myndin gerist í Frakklandi
rétt fyrir byltinguna og segir frá
spilltum og lævísum aðli sem
skemmtir sér við aö koma saklaus-
um á kaldan klaka. Vopnin snúast
þó í höndum þeirra þegar fer aö
líða á myndina.
Aðalhlutverkin ieika John
Malkovich, Glenn Close og Mich-
elle Pfeiffer. Leikstjóri er Stephen
Frears sem hefur á undanfornum
árum leikstýrt þremUr breskum
úrvalsmyndum, My Beautifui
Laundrette, Prick up Your Ears og
Sammi and Rosie Get Laid. Allt
miklar gæöamyndir.
Hættuleg sambönd er fyrsta kvik-
mynd Frears fyrir risana í 'Holly-
wood og þykir honum hafa tekist
meistaralega vel upp og gert ein-
staka kvikmynd sem er langt frá
að vera hin almenna Hollywood-
framleiösla.
-HK
Tveir ólíkir grínistar: Sally Field og Tom Hanks í hlutverkum sínum.
Stjömubíó:
Hlátrasköll
Tom Hanks sannaði eftirminni-
lega í Big að hann er mjög góður
leikari. Hann staðfestir það í
Hlátrasköllum (Punchline) þar sem
hann fer á kostum í hlutverki grín-
ista sem dreymir um að verða fræg-
ur. Á móti honum leikur Sally Field
og leikur hún annan grínista. Leið-
ir þeirra liggja saman og þótt lífs-
viðhorfin séu ólík þá myndast á
milli þeirra sterkt samband.
Hlátrasköll eru um gamanleikara
og þótt ekki sé langt í hláturinn hjá
áhorfendum þá er þetta einnig
mynd um brostnar vonir og trú á
lífið þótt baráttan sé hörð. Leik-
.stjóri er David Seltzer. Þá má geta
þess að tveir góðkunnir leikstjórar,
Mark Rydell og Paul Mazursky,
koma fram í myndinni.
-HK
Aðalhlutverkin í myndinni Hættuleg sambönd eru I höndum Glenn Close,
Johns Malkovich og Michelle Pfeiffer.
Laugarásbíó:
Martröð áÁlmstræti
Hér hefur Freddy Krueger (Robert
Englund) orðið sér úti um fórnar-
lamb.
Þá er Freddy Krueger kominn
aftur á kreik og er eins gott að
verða ekki á vegi hans í drauma-
landinu. Martröð á Álmstræti er
fjórða myndin um Freddy sem er á
góðri leið með að verða ein allra
þekktasta hrylhngspersóna kvik-
myndanna.
Geysifullkomnar tæknibrellur
einkenna fjórðu myndina sem
hlaut geysimikla aðsókn í Banda-
ríkjunum á síðasta ári og endaði í
sextánda sæti í röðinni yfir mest
sóttu kvikmyndir á síðasta ári.
Það sem gerir myndirnar um
Freddy Krueger sérstakar er að
þrátt fyrir að hann birtist í draum-
um er ekki langt í veruleikann og
eru oft engin skil milli drauma og
veruleika. Nokkuð sem áhorfendur
fá aldeilis að kynnast í nýjustu
martraöarmyndinni. -HK
Sýningar
Art-Hún
Stangarhyl 7,
Reykjavik
Sýningarsalur og vinnustofur að Stang-
arahyl 7. Þar eru til sýnis og sölu olíumál-
verk, pastelmyndir, graíik og ýmsir leir-
munir efbr myndlistarmennina Erlu B.
Axelsdóttur, Helgu Ármanns, Elínborgu
Guðmundsdóttur, Margréti Salome
Gunnarsdóttur og Sigrúnu Gunnarsdótt-
ur. Opið alla virka daga kl. 13-18.
Árbæjarsafn,
simi 84412
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 10-18.
Ásgrímssafn,
Bergstaðastræti 74
í safni Ásgríms Jónssonar hefur verið
opnuð sýning á vatnslitamyndum Ás-
gríms og stendur hún til 28. maí. Á sýn-
ingunni eru 27 myndir frá ýmsum skeið-
um á hinum langa listferli Ásgríms. Sýn-
ingin er opin alla daga nema mánudaga
kl. 13.30-16.
Ásmundarsalur,
Freyjugötu 41
Pétur Bjarnason sýnir verk sín í Ás-
mundarsal. Sýningin er opin kl. 14-20.
FÍM-salurinn,
Garðastræti 6
Daði Guðbjömsson sýnir málverk í FÍM-
salnum. Hann hefur haldið fjölda einka-
sýninga hér heima og erlendis og tekið
þátt í mörgum samsýningum. FÍM-salur-
inn er opinn virka daga kl. 13-18 og 14-18
um helgar. Sýningin stendur til 16. mai.
Sölugallerí FIM er í kjallaranum.
Gallerí Borg,
Pósthússtræti 9
Kjallarinn í Pósthússtræti 9, þar sem er
úrval smámynda og margt góðra verka
eldri meistara, er ávallt opinn á sýningar-
tíma. Grafík-galleríið í Austurstræti 10
(uppi á lofti í Pennanum) er hins vegar
opið á sama tíma og Penninn.
Listasafn Einars Jónssonar
er opið alla laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega kl. 11-17.
Gallerí Grjót,
Skólavörðustíg
Sigurður Þórir Sigurðsson og Kristberg-
ur Pétursson sýna nú verk sin í Gallerí
Gijóti. Hafa þeir bæst í þann hóp lista-
manna sem fyrir var, að undanskildum
þeim Gesti og Rúnu sem hætt eru þátt-
töku. Verk Sigurðar Þóris og Kristbergs
munu verða í forgrunni í galleríinu um
hríð en verk annarra aðstendenda
Gijótsins eru einnig til sýnis og sölu sem
fyrr. Opið er alla virka daga frá kl. 12-18.
Gallerí Langbrók,
Bókhlöðustíg 2,
textílgallerí, er opið þriðjudaga til tostu-
daga kl. 12-18 og laugardaga kl. 11-14.
Gallerí List,
Skipholti 50B
Arthur Ragnarsson sýnir í Gallerí List.
Flestar myndanna eru til sölu. Opið virka
daga kl. 10.30-18 og 10.30-14 á laugardög-
um.
Hafnarborg,
menningar- og listastofnun
Hafnarfiarðar
Þar stendur nú yfir málverkasýning Jóns
Gunnarssonar. Sýningin er opin kl. 14-19
alla daga nema þriðjudaga. Sýningin
stendur til 7. maí.
Katel,
Laugavegi 20b
(Klapparstígsmegin)
Til sölu eru verk eftir innlenda og er-
lenda listamenn, málverk, grafík og leir-
munir.
Kjarvalsstaðir
v/Miklatún
Laugardaginn 6. maí kl. 16 verður opnuð
sýning á nýjum verkum eftir Helga Þorg-
ils Friðjónsson, 1 boði Menningarmála-
nefndar Reykjavíkurborgar. Sýningin
verður opin daglega kl. 11-18.
Listasafn ASI,
Grensásvegi 16
Halldór Árni Sveinsson sýnir málverk.
Þetta er önnur einkasýning Halldórs en
hann hefur einnig tekið þátt í samsýning-
um. Á sýningunni eru landslags- og mód-
elmyndir unnar í olíu, vatnshti og past-
el. Sýningin er opin virka daga kl. 16-20
og um helgar kl. 14-20.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur,
Borgartúni 1
Nú um helgina veröur opnuð í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur sýning á ljós-
myndum er voru sýndar á kvennaráð-
stefnunni í Osló sumarið 1988. Sýningin
verður opin virka daga frá kl. 8.30-18 og
um helgar kl. 13-18. Sýningunni lýkur
21. maí.
Sýning í Odda,
nýja hugvísindahúsinu,
er opin daglega kl. 13.30-17. Þar eru til
sýnis 90 verk í eigu safnsins, aðallega
eftir yngri listamenn þjóðarinnar. Að-
gahgur að safninu er ókeypis.
Listasafn íslands,
Fríkirkjuvegi 7
Sérfræðingur segir gestum frá „mynd
mánaðarins" á fimmtudögum kl. 13.30-
13.45 og er það ókeypis. Þá stendur yfir
sýning á oliumyndum sænsku listakon-
unnar Hilmu af Klint. Þetta er farandsýn-
ing sem farið er með um Norðurlöndin
og Bandaríkin. í sal 2 hefur verið opnuð
sýning á ■ málverkum átta íslenskra
myndlistarmanna og eru öll verkin í eigu
Listasafnsins. Listamennimir eru Björg
Þorsteinsdóttir, Bragi Ásgeirsson, Einar
Hákonarson, Erró, Guðbergur Auðuns-
son, Gunnar Öm Gunnarsson, Tryggvi
Ólafsson og Vilhjálmur Bergsson. Lista-
safn íslands er opið alla daga nema
mánudaga kl. 11-17 og er veitingastofa
hússins opin á sama tíma.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar,
Laugarnestanga 70
í tilefni af opnun safnsins og 80 ára af-
mæli listamannsins er haldin yfírlitssýn-
ing á 50 verkum Siguijóns. Þar á meðal
em myndir sem aldrei hafa áöur verið
sýndar á íslandi. Safnið og kaffistofan em
opin laugardaga og sunnudaga kl. 14-17.
Tekið er á móti hópum eftir samkomu-
lagi.
Norræna húsið
Laugardaginn 6. maí kl. 15 verður opnuð
sýning í andyri Nomæna hússins á
myndum eftir sænsku listakonuna Siri
Derkert sem hún geröi við sögu Halldórs
Laxness, Ungfrúin góða og húsið. Auk
þess em á sýningunni tíu litlar myndir
í lit, sem teiknaðar vom á íslandi 1949.
Sýningin stendur til 4. júni og er opin kl.
9-19 nema sunnudaga kl. 12-19. Aðgang-
ur er ókeypis.
Nýhöfn,
Hafnarstræti 18
Jón Axel sýnir 10 nýjar, stórar kolateikn-
ingar á pappír sem em settar á striga.
Þetta er 8. einkasýning Jóns Axels en
hann hefur einnig tekið þátt í fjölda sam-
sýninga hér heima og erlendis. Sýningin,
sem er sölusýning, er opin virka daga frá
kl. 10-18 og um helgar frá kl. 14-18. Henni
lýkur 17. maí.
Stofnun Árna Magnússonar
Handrftasýning .Stofnunar Áma Magn-
ússonar er í Árnagarði við Suðurgötu á
þriðjudögum, fímmtudögum og laugar-
dögum kl. 14-16.
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Vinnustofa Ríkeyjar,
Hverfisgötu
Þar em til sýnis og sölu postulínslág-
myndir, málverk og ýmsir litlir hlutir.
Opið er á verslunartíma þriðjudaga, mið-
vikudaga, fimmtudaga og föstudaga og á
laugardögum kl. 10-16.
Þjóðminjasafnið
Opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugar-
daga og sunnudaga kl. 11-16.
Myndlistarsýning í SPRON
I Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis,
útibúinu að Álfabakka 14, Breiðholti,
stendur yfir sýning á verkum eftir Bene-
dikt Gunnarsson listmálara. Sýningin
mun standa yfir til 26. mai nk. og er opin
frá mánudegi til fimmtudags frá kl.
9.15-16 og fóstudaga kl. 9.15-18. Sýningin
er sölusýning.
Sýning í Myndlista-
og handíðaskóla íslands
Nemendur á barna- ög unglinganám-
skeiðum Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands sýna verk sín 6. og 7. maí. Sýningin
verður í skólanum, Skipholti 1, frá kl.
14-22 báða dagana. I vetur hafa u.þ.b. 160
nemendur stundað þar nám á tveimur
önnum. Nemendur eru á aldrinum 6-16
ára í 7 flokkum. Kennari á námskeiðun-
um er Hrafnhildur Gunnlaugsdóttir.
Málverkasýning í Hlégarði,
Mosfellsbæ
Fyrsta mai var opnuö sýning á verkum
Sólveigar Eggerz Pétursdóttur. Efni
myndanna er frá Mosfellsbæ og ná-
grenni, umhverfi Tjarnarinnar í Reykja-
vík og fantasíur. Sýningin stendur í eina
viku og er opin daglega kl. 16-22. Henni
lýkur mánudaginn 8. maí.
Safnahúsið,
Sauðárkróki
Myndlistarhópurinn Áfram veginn sýnir
í Safnahúsinu á Sauðárkróki. Sýningin
er opin alla daga kl. 15-18. Henni lýkur
7. maí.
VEISTU ...
að aftursætið
fer jafnhratt
og framsætið.
SPENNUM BELTIN
hvar sem við sitjum
í bílnum.
UUMFERÐAR
RAÐ