Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1989, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1989, Blaðsíða 8
32 FÖSTUDAGUR 5. MAl 1989. Þar varö Krókódíla Dundee aö gefa eftir 1. sæti eftir að hafa dvalist þar fimm vikur í röð. Það eru tvær hörkumyndir sem skjótast fram fyrir Ástralann. Draugaspaugið í Bjöllu- djúsi og mynd um ljósvíking í Víet- nam ætla að gera það gott og má nánast varla á milli sjá hvor hefur fyrsta sætið. Fátt er um nýjar myndir á listanum en mynd eftir sögu Agöthu Christie nær 5. sæti enda kunnur stjörnufans þar á ferð með tilheyrandi spennu. Þá er dansmynd komin í 7. sæti og ekki úr vegi fyrir vídeóglápara að læra nokkur dansspor fyrir sumarið. DV-LISTINN 1. (2) Beetlejuice 2. (6) Good Morning Vietnam 3. (1) Krókódíla Dundee II 4. (3) A Prayer for Dying 5. (-) Apointment with Death 6. (4) Little Nikita 7. (-) Salsa 8. (7) Broadcast News 9. (8) Saigon 10. (5) Cop Njósnir og nasistar THE HOUSE ON CAROLL STREET Útgefandi: Háskólabió Leikstjóri: Peter Yates Aöalhlutverk: Keliy McGillis og Jeff Daniels Bandarisk 1988. 100 min. Bönnuð yngri en 12 ára Það er ljótt að sjá hér tvær upp- rennandi stjörnur daga uppi í sljóu handriti í mynd sem við fyrstu sýn ætti að geta orðið góð. Myndin segir frá ungri konu sem verður fyrir barðinu á McCarty- ofsóknunum í Bandaríkjunum. Hún missti vinnuna í kjölfar þess. Skömmu síðar vekur hús eitt at- hygh hennar og þá sérstaklega þeg- ar hún sér að maöur sá sem hvað harðast ofsótti hana er þar með eitthvert leynibrugg. Fljótlega dregst hún inn í atburöarás þar sem njósnir og nasistar blandast saman. Myndin er fallega tekin og öll umgerðin er faglega unnin. Því miður er handritið bitlaust og fullt af óskiljanlegum og allt að því kjánalegum atburöum. Það er t.d. þreytandi að sjá aðalpersónuna í sífellu haga sér kjánalega við að reyna að upplýsa mál sem er í senn óskiljanlegt og óspennandi. Njósn- afléttan fer því fyrir lítið. -SMJ | í ★★ f Putalandi DARBY O’GILL AND THE LITTLE PEOPLE Útgefandi: Bergvik. Leikstjóri: Robert Stevenson. Aóalhlutverk. Albert Sharpe, Janet Munro og Sean Connery. Bresk, 1959 - sýningartimi 93 min. Það eru margar myndir frá Disney sem eldast einstaklega vel. Meðal þeirra er Darby O’Gill and the Litde People sem er ævintýra- mynd í besta skilningi þess orös. Meira'að segja gætu tæknibrellu- menn nútímans verið hreyknir af sumum atriðunum sem gerð voru fyrir þrjátíu árum. Myndin fjallar annars um gaml- an írskan húsvörð sem er orðinn svo margsaga í ótrúlegum sögum sínum að enginn trúir honum þeg- ar hann segist hafa hitt kónginn í Putalandi. Það er ekki fyrr en gamh bragðarefurinn nær kónginum í poka sinn að fólk trúir honum... Mörg atriði í myndinni eru stór- skemmtileg, sérstaklega atriðin þar sem þeir einir þreyta þrauta- kóng,- gamh írinn og kóngurinn. Rómantíkin fær sinn skammt og í hlutverki ungs og myndarlegs manns er enginn annar en Sean Connery sem hér var að stíga sín fyrstu skref á leikhstarbrautinni. Mynd fyrir alla fjölskylduna. -HK Talsmaður verkamanna BOUND FOR GLORY Útgefandi: Steinar hf. Leikstjóri: Hal Ashby. Aöalhlutverk: David Carradine, Ronny Cox og Melinda Dillon. Bandarisk, 1976-sýningartimi 143 mín. Líf verkamanna í Bandaríkjun- um á fjóröa áratugnum þegar kreppan var í algleymingi var dap- urlegt. Framboðið af vinnuafli var gífurlegt og atvinnurekendur gátu ráðið hvað þeir borguðu í laun og það var nánast ekki neitt. Fjöl- skyldur flosnuðu upp og leituðu til draumalandsins sem í flestum til- fellum var Kalifornía. Þjóðsagnapersónan Woddy Gut- hrie var einn þeirra. Hann skildi eftir konu og börn í Texas og hélt á vit drauma um betra líf. Hann, sem flestir aðrir, komst að því að Kahfornía var ekkert draumaland, heldur heimkynni þrælahaldara sem gjörnýttu sér verkafólkið í sína þágu. Guthrie var samt með vopn sem átti eftir að fara fyrir brjóstið á atvinnurek- endum, gítarinn og eldheitan bar- áttuvhja fyrir hönd verkamann- anna. Með gitarinn að vopni blés hann lífi í veikburða vilja fólks sem löngu var búið að gefast upp. Bound For Glory segir frá nokkr- um árum í lífi þessa merkilega manns, aht frá því hann fer frá •Texas til Kaliforníu og þar til hann yfirgefur borg englanna til að þjóna köhun sinni að syngja fyrir minni- máttar þjóðfélagsverur. Hæfheikarnir eru mikhr og það fer ekki fram hjá eiganda útvarps- stöðvar. Hann býður honum að vera með eigin þátt. Gæfan fer að brosa við honum og hann sendir eftir konu og börnum. Lagaval hans fer þó í taugarnar á þeim sem auglýsa, enda söngvar Svart og hvítt stríð THE KITCHEN TOTO Útgefandi: Myndbox Leikstjóri og handritshöfundur: Harry Hook. Framleióendur: Golan/Globus. Aðalhlutverk: Bob Peck og Phyllis Log- an. Bresk/bandarisk 1987. 90 min. Bönnuó yngri en 16 ára. Einn af blóðugri þáttum í sögu breska heimsveldisins er Mau- Mauuppreisnin í Kenya eftir heimsstyrjöldina síðari. Hér er reynt að bregða upp mynd af því hvemig stríðið leit út í augum þeirra Kenyamanna sem ekki vildu átök. Hlutleysi er reynt að ástunda hér en því er ekki að neita að hlut- ur uppreisnarmanna er svartur. Myndin er í sjálfu sér þægileg á að horfa þó aö hún rísi ekki upp í neinar epískar hæðir. Reynt er að fara vel með efnið og unnið af fag- mennsku. Það er varla við því að búast að efnið falli öllum í geð en þeir sem nenna að sitja yfir mynd- inni ættu að fá eitthvað fyrir sinn snúð. -SMJ liiin ffUil um verkalýðsfélög og hvemig verkamenn eru nánast hafðir sem þrælar. Hann er skikkaður til að koma meö lista yflr þau lög sem hann ætlar að leika. Þetta fyrirkomulag hentar ekki Guthrie og er hann því fljótur að koma sér út úr húsi. Þessa ákvörð- un skhur ekki eiginkonan sem tel- ur sig loksins hafa fundið öruggt skjól og yflrgefur hann. Við skhjum svo við Guthrie þar sem hann syng- ur sitt frægasta lag, This Land Is Your Land, uppi á þaki vöruflutn- ingalestar sem er á leið austur. Bound For Glory er um Woddy Guthrie sem var þjóðsögn í lifanda lífi um leið og hún lýsir á raunsæj- an hátt þeim hörmungum sem hinn óbreytti verkamaður þurfti að búa viö á þessum árum. David Carrad- ine leikur Guthrie og tekst nokkuð vel að lýsa kostum og göllum hans. Enginn stórleikur en sannfærandi. Sjálfsagt er Bound For Glory há- punktur feril hans. í dag sést hann yfirleitt ekki nema í aukahlutverk- um í ómerkilegum kvikmyndum. -HK Hnignun APPOINTMENT WITH DEATH Útgefandi: Myndbox. Leikstjóri: Michael Winner. Handrit: Anthony Shaffer, Peter Buchman og Michael Winner. Framleiðendur: Gol- an/Globus. Aðalhlutverk: Peter Ustinov, Lauren Bacall, Carrie Fisher, John Giel- gud, Jenny Seagrove. Bandarisk 1988. 102 mín. Öllum leyfð. Hnignun er það orð sem lýsir best þeim árum breska heimsveld- isins sem hér er lýst. Því miður á það einnig við þessa stjörnum prýddu mynd. Enn einu sinni legg- ur einvalalið af stað með sögu Agöthu Christie í farteskinu. Flest- ir hafa komið nálægt henni áður en þó enginn eins oft og Ustinov í hlutverki Hercule Poirot. Því miður vantar neistann í myndina og lokin eru óvenju fyrir- sjáanleg miðað við Agöthu Christie. Eigi að síður er vel þess virði að setjast niður eins og eina kvöldstimd yfir henni. Það fylgir nefnilega skemmtileg fágun hnign- uninni. -SMJ Ödrepandi leigubílstjóri l-MAN Útgefandi: Bergvík. Leikstjóri: Corey Allen. Aðalhlutverk: Scott Bakula, Ellen Brye og Joey Cramer. Bandarísk, 1986 -Sýningartími 100 min. I-Man er forveri sjónvarpsseríu. Ekki veit ég hvernig sjónvarps- seríunni hefur reitt af. Mynd þessi er aftur á móti ágæt aiþreying, hröð og spennandi. Fjallar hún um leigubílstjórann Jeff Wilder sem verður vitni að bílslysi. Hann reynir að koma bíl- stjóranum til hjálpar en fær þriðja stigs bruna þegar bíllinn springur í loft upp. Wilder er ekki hugað líf. Það eru því undrandi læknar sem sjá lík- ama Wilders lækna sig sjálfan. Það sem Wilder veit ekki er að bíllinn, sem sprakk í loft upp, var frá NASA, geimferðastofnun Banda- ríkjanna, og innanborðs var kútur með gasi utan úr geimnum. Þegar leki kom að kútnum andaði Wilder að sér gasinu og hefur það gert hann ódauðlegan. Þegar þetta uppgötvast sér leyni- þjónustan að hér er maður sem hún getur notað og þýðir lítið fyrir Wilder að malda í móinn... Gallinn við persónusköpun á borð við ódauðlegan mann er að erfitt er að halda áhuga áhorfand- ans við efnið. Það nægir ekki að sýna bara einu sinni banvænt skotsár sem læknast af sjálfu sér. Aðstandendur I-Man eru nokkuð hugmyndasnauöir að þessu leyti, því er varla hægt að telja myndina vísindaskáldsögu. í heild er hér um að ræða dæmigerða spennumynd með skýrt dreginni línu milli góös og ills og illmennið er enn einn brjálæðingurinn sem vill leggja undir sig heiminn. Hvað sem að öllum annmörkum lýtur er I-Man ekki verri né betri en álíka sjónvarpsmyndir. Hraðinn er mikill, fáir daufir kaflar og tæknibrellur vel leystar. Endirinn snubbóttur af þeirri ástæöu að framhald kemur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.