Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1989, Blaðsíða 4
20
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989.
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 1989.
21
Messur
Guðsþjónustur sunnudaginn 21. mai
1989
Árbæjarkirkja
Guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Sr. Ólafur
Jens Sigurösson messar. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
Áskirkja
Guðsþjónusta ld. 11. Ath. breyttan
messutíma. Sr. Árni Bergur Sigurbjöms-
son.
Breióhol tsk irkj a
Guösþjónusta kl. 11. Organisti Sigríður
Jónsdóttir. Þriðjudagur: Bænaguðsþjón-
usta kl. 18.15. Sr. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja
Guösþjónusta kl. 14. Organisti Guðni Þ.
Guðmundsson. Félagsstarf aldraðra mið-
vikudag kl. 13.30-17. Eldri borgarar á
Seltjamamesi koma í heimsókn. Sr. Ólaf-
ur Skúlason.
Dómkirkjan
Messa kl. 11. Dómkórinn syngur. Organ-
leikari Jónas Þórir. Sr. Hjalti Guðmunds-
son.
Elliheimilið Grund
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Grímur Gríms-
son prédikar og þjónar fyrir altari. Félag
fyrrverandi sóknarpresta.
Fella- og Hólakirkja
Guðsþjónustan feUur niöur vegna ferða-
lags starfsfólks kirkjunnar. Sóknarprest-
ar.
Fríkirkjan í Reykjavík
Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Pavel
Smid. Sr. CecU Haraldsson.
Grensáskirkja
Messa kl. 11. Altarisganga. Þriðjudagur:
BibUulestur fyrir aldraða kl. 14. Sam-
verustund með kaffi og meðlæti á eftir.
Fimmtudagur: Almenn samkoma hjá
ungu fólki með hlutverk kl. 20.30. Prest-
amir.
Hallgrímskirkja
Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson. Matur seldur eftir messu.
Þriðjudagur: Fyrirbænaguðsþjónusta kl.
10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Landspítalinn
Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar Lámsson.
Háteigskirkja
Messa kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson. Kvöld-
bænir og fyrirbænir em í kirkjunni á
miðvikudögum kl. 18. Prestamir.
Kópavogskirkja
Messa í Kópavogskirkju kl. 11 (altaris-
ganga). Næstkomandi þriðjudagskvöld
verður samvera samstarfshópsins um
sorg og sorgarviðbrögð í safnaðarheimil-
inu Borgum kl. 20-22. Allir velkomnir.
Sr. Ámi Pálsson.
Langhol tskirkj a
Kirkja Guðbrands biskups. Guðsþjón-
usta kl. 11. Hestamenn koma á gæðingum
sínum til messunnar. Ræðu flytur Þor-
geir Ingvason, frkvstj. Fáks. Lesarar:
Gunnar Eyjólfsson og Klemens Jónsson
leikarar. Listamenn úr röðum hesta-
manna sjá um tónlistarflutning ásamt
kór LangholtskirHju. Prestur Sigurður
Haukur Guðjónsson. Organisti Jón Stef-
ánsson. Máltíð hestamanna að messu
lokinni. Sóknamefndin.
Laugarnessókn
Kirkjan er lokuð vegna viðgerða. Safnað-
arfólki er bent á helgihaldið í Áskirkju.
Sóknarprestur.
Neskirkja
Messa kl. 11. Félagar i Æskulýðsfélagi
Neskirkju taka þátt í messunni og selja
léttar kafflveitingar að henni lokinni.
Orgel- og kórstjóm Reynir Jónasson. Sr.
Ólafur Jóhannsson. Miðvikudagur: Bæ-
naguðsþjónusta kl. 18.20. Sr. Ólafur Jó-
hannsson. Þriðjudagur og fimmtudagur:
Opið hps fyrir aldraða kl. 13-17. Ferð í
Skálholt 28. maí. Nánari upplýsingar og
innritun hjá kirlguverði í síðasta lagi 23.
mai.
Seljakirkja
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Sveinbjöm
Bjamason frá Skotlandi prédikar. Organ-
isti Kjartan Siguijónsson. Aðalsafnaðar-
fundur Seljasafnaöar er að lokinni guðs-
þjónustu. Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirja
Messa kl. 11. Organisti Sighvatur Jónas-
son. Prestur Solveig Lára Guðmunds-
dóttir.
Hafnarfjarðarkirkja
Guðsþjónusta kl. 11. Ath. breyttan tíma.
Organisti Helgi Bragason. Sr. Gunnþór
Ingason.
Tilkyimiiigar
Flóamarkaður FEF
Félag einstæðra foreldra heldur flóa-,
markaö í Skeljanesi 6, Skerjafirði, næstu
laugardaga kl. 14-17. Fatnaður á böm og
unglinga í sveitina. Komið og gerið góð
kaup.
Húnvetningafélagið
Félagsvist á laugardagúm kl. 14 í Húna-
búð, Skeifunni 17. Síðasti spiladagur árs-
ins. Parakeppni. Allir velkomnir.
Félag eldri borgara
Opið hús á laugardag í Tónabæ. Kl. 13.30.
Fijáls spilamennska og tafl. Kl. 15 hefst
bingó.
Flóamarkaður
Uppeldis- og meðferðarheimilið Sólheim-
um 7, Reykjavík, er heimili fyrir unglinga
á aldrinum 12-16 ára sem þurfa á aðstoð
aö halda. Heimiliö, sem er ein deild innan
Hafsteinn Austmann.
Nýhöfn:
Hafsteinn Austmann sýnir
málverk og vatnslitamyndir
Hafsteinn Austmann opnar mál-
verkasýningu í listasalnum Nýhöfn,
Hafnarstræti 18, á morgun kl. 14. Á
sýningunni eru málverk og vatns-
litamyndir sem málaöar eru á síö-
ustu tveimur árum.
Hafsteinn er fæddur 1934 á Ljóts-
stööum í Vopnafiröi. 1951 innritaðist
hann í Myndlistarskólann í Reykja-
vík og á árunum 1952-1954 stundaði
hann nám við Handíða- og mynd-
hstaskólann. Að því loknu hélt hann
til Parísar í framhaldsnám við Aca-
demie de la Grande Chaumier þar
sem hann dvaldi eitt ár.
Sýning þessi er tólfta einkasýning
Hafsteins en hann hefur einnig tekið
þátt í fjölda samsýninga hér heima
og erlendis. Sýningin, sem er sölu-
sýning, er opin virka daga frá kl.
10-18 og um helgar frá kl. 14-18.
Henni lýkur 7. júní.
listasafn Sigurjóns Ólafssonar:
Tónverk eftir
Jónas Tómasson
Víðistaðakirkja:
Tónleikar Kórs
Víðistaðasóknar
Jónas Tómasson tónskáld.
Tónleikar með verkum Jónasar
Tómassonar verða haldnir í Lista-
safni Siguijóns Ólafssonar á sunnu-
daginn kl. 17. Flutt veröa verkin Són-
ata XVIII fyrir horn, Sónata XIX fyr-
ir bassaklarinett og píanó og Cantata
II fyrir söngrödd, selló, altílautu,
bassaklarinett og horn.
Flytjendur verða Hrefna Eggerts-
dóttir, píanó, Inga Rós Ingólfsdóttir,
selló, John Speight, söngur, Kjartan
Óskarsson, bassaklarinett, Þorkell
Jóelsson, horn, og Jónas Tómasson,
altflauta.
Cantata II var samin 1973 viö fimm
ljóð eftir kínverska skáldið Lí Pó i
enskri þýðingu Arthurs Cooper. Són-
ötumar eru hins vegar nýrri af nál-
inni. Hornsónatan frá 1986 og Sónata
XIX frá síðastliðnu ári. Sú sónata er
í sjö þáttum.
Kór Víðistaðasóknar og Siguröur
S. Steingrímsson barítónsöngvari
halda tónleika í Víðistaðakirkju á
morgun kl. 17. Á efnisskránni eru
meðal annars kafli úr Sálumessu eft-
ir Fauré, Fangakórinn úr Nabucco
eftir Verdi, Barcarole úr Ævintýrum
Hoffmanns eftir Offenbach og The
Holy City eftir Stephen Adams.
Kór Víöistaðakirkju var stofnaður
1977. Auk þess að syngja við guðs-
þjónustur og aðrar samkomur á veg-
um sóknarinnar hefur hann haldið
tónleika og meðal annars frumflutt
hér á landi Tékkneska jólamessu eft-
ir J.J. Ryba. Kórinn hefur þrívegis
farið í söngferðalag til útlanda. Krist-
ín Jóhannesdóttir hefur verið söng-
stjóri kórsins frá stofnun hans.
Sigurður S. Steingrímsson er Skag-
firðingur. Hann hefur stundað
söngnám við Söngskólann í Reykja-
vík og Nýja tónlistarskólann. Hann
hefur sungið einsöng við f'ölda tæki-
færa. Undirleikari á tónleikunum
verður Bjarni Þ. Jónatansson.
M-hátíð á Egilsstöðum:
Pilturogstúlka
Sigrún Björgvinsdóttir, Egilsstöðum:
Nokkrir unglingar, sem hafa unnið
saman í leiklistarklúbbi í vetur, hafa
tekið fyrir leikritið Pilt og stúlku og
ætla að sýna það á M-hátíð sem
stendur yfir á Egilsstöðum. Verður
sýning þeirra á sunnudaginn í Vala-
skjálf.
Starf unglinganna byijaði þegar
nokkrir krakkar sýndu leikrit á árs-
hátíð í fyrra undir stjórn Kristínar
Jónsdóttur og héldu áfram aö vinna
að leiklist fram á vor.
Þegar M-hátíö hafði verið ákveöin
var hópnum boðiö að sýna þar. Þau
hafa að undanfórnu verið að æfa Pilt
og stúlku í styttri útgáfu og geta íbú-
ar á Egilsstöðum og í nágrenni séð
árangurinn á sunnudaginn.
Gallerí Gijót:
Finnsk málm-
listarsýning
Opnuð veröur sýning tíu finnskra
málmlistarmanna í GaUerí Grjóti við
Skólavörðustíg 4a í dag. Sýningin ber
yfirskriftina Intimate Pieces. Verkin
á sýningunni eru afrakstur vinnu
nemenda á málmhstarbraut Listiðn-
aðarháskólans í Helsinki á nýhðnu
vormisseri.
í hópnum eru guh-, silfur- og stein-
smiðir og efniviðurinn því marg-
breythegur. Að auki er ein veflistar-
kona í hópnum. í thefni af sýning-
unni eru allir listamennirnir nú
staddir hér á landi.
Sýningin, sem er opin virka daga
kl. 12-18 og um helgar frá kl. 14-18,
stendur th 4. júní.
í Óvitum leik börn fullorðna en fullorðnir leika börn.
Síðustu sýningar á Óvitum
Bamaleikritið Óvitar eftir Guð-
rúnu Helgadóttur hefur notið
óhemju vinsælda á stóra sviði Þjóð-
leikhússins. Uppselt hefur verið á
flestar sýningar en 38. og síðasta sýn-
ing er á sunnudaginn.
Böm leika fullorðna en fuhorðnir
leika börn. Níu fuhorðnir leikarar
taka þátt í sýningunni og tuttugu
börn. Þór Tulinius og Halldór
Björnsson leika söguhetjurnar,
strákana Guðmund og Finn. Finnur
strýkur að heiman og leitar skjóls á
heimih Guðmundar án vitundar for-
eldranna. Leikritið fjallar um þessa
stroksögu og þá einkum samskipti
barna og fullorðinna, hverjir eru
börn og hverjir óvitar.
Leikstjóri er Brynja Benediktsdótt-
ir en hún var einnig leikstjóri Óvita
fyrir tíu árum þegar leikritiö var
frumflutt í Þjóðleikhúsinu.
Kjarvalsstaöir:
Helgi Þorgils heldur fyrir-
lestur um list Helga Þorgils
Nú fer að ljúka sýningum á verk-
um eftir Helga Þorghs Friðjónsson
sem nú stendur yfir á Kjarvalsstöð-
um. Helgi sýnir þar 27 málverk sem
hann hefur unnið á síðustu tveimur
ámm. Sýningin hefur fengið góðar
viðtökur og hafa öll helstu listasöfn
í landinu fest kaup á verkum eftir
hstamanninn.
Helgi Þorgils Friðjónsson er einn
af fáum íslenskum listamönnum sem
náð hafa athygli erlendra listasafna
og gahería. Verður þessi sýning nú
send th Listamiðstöðvarinnar í Svea-
borg, Borgarhstasafnsins í Ecken-
fórde í Þýskalandi og síðan th lista-
safnsins í Rovaniemi í Finnlandi.
í tengslum við sýninguna heldur
Helgi Þorgils Friðjónsson fyrirlestur
á Kjarvalsstöðum um list sína
sunnudaginn kl. 16 í fundarsal safns-
ins. Er þetta einstakt tækifæri th að
kynnast hugmyndum listamannsins
um eigin listsköpun.
Frú Emelía:
Hamskiptin
Leikhúsið Frú Emelía sýnir ham-
skiptin eftir Franz Kafka í nýju að-
setri í Skeifunni 3c nú um helgina.
Verður 6. sýning á verkinu í kvöld
kl. 20.30 og 7. sýning á sunnudag kl.
20.30.
Hamskiptin er einfóld og þó
margslungin lýsing á óvenjulegu og
mögnuðu sálarlifi, mikilh ógæfu sem
fólgin er í því aö ungur maður er
ekki lengur hlutverki sínu vaxinn.
Litið er á Franz Kafka sem einn af
brautryðjendum í bókmenntum nú-
tímans. Hann fæddist í Prag 1883 og
lést 1924. Hann var óþekktur er hann
lést en á næstu áratugum eftir dauða
hans urðu verk hans þekkt um gjör-
vahan heim.
Aðstandendur sýningarinnar eru
Ellert A. Ingimundarson, Ámi Pétur
Guðjónsson, Margrét Árnadóttir,
Bryndís Petra Bragadóttir, Einar Jón
Briem og Erla B. Skúladóttir. Leik-
stjóri er Guðjón Pedersen. Miðapant-
anir em í síma 678360 allan sólar-
hringinn.
Unglingaheimilis ríkisins, tók til starfa
1. september 1985 og geta 7 unglingar
búið þar á hverjum tíma. Á heimilinu er
lögð mikil áhersla á tómstundastarf og
skipa ferðalög, bæði innanlands og utan,
stóran sess í því starfi. í sumar er fyrir-
hugað ferðalag hér innanlands og er nú
unnið að fjáröflun til þeirrar ferðar. Einn
þáttur í fjáröfluninni er hinn árlegi flóa-
markaður sem verður haldinn laugar-
daginn 20. maí kl. 14-17 í safnaðarheimili
Langholtskirkju. Þar verða til sölu mjög
ódýr fót, búsáhöld og skrautmunir. Upp-
boð verður á húsgögnum og góðum mun-
um kl. 14.30. Einnig verður tombóla og
grænmetis- og blómamai-kaður.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun, laugardag-
inn 20. maí. Lagt af stað frá Digranesvegi
12 kl. 10. Á meðan maístjaman skín rölt-
um við um bæinn. Markmið göngunnar
er: samvera, súrefni og hreyfing. Nýlagað
molakaffl.
40 ára afmæli Sambands-
lýðveldisins Þýskalands
í tilefni 40 ára afmælis Sambandslýð-
veldsins Þýskalands verður haldið mál-
þing föstudaginn 19. mai nk., undir yfir-
skriftinni „Tengsl í 40 ár“, um samskipti
landsins við ísland undanfama fjóra ára-
tugi. Fjögur félög, ásamt vestur-þýska
sendiráðinu í Reykjavík, standa að mál-
þinginu, en þau eru Alexander von Hum-
boldt-félagið á íslandi, Daad-félagið á ís-
landi, Germania og Goethe-Institut. Mál-
þingið hefst kl. 13. Á föstudagskvöldið
standa þessir sömu aðilar fyrir afmælis-
hófi Sambandslýðveldsins í Viðeyjar-
stofu, sem hefst með kvöldverði kl. 20,
en veislustjórar verða Úlfar Þórðarson
læknir og Þorvarður Alfonsson fram-
kvæmdastjóri. Nánari upplýsingar fást
þjá Goethe-Institut 1 síma 16061.
100 áraafmæli
Lágafellskirkju
í sambandi við 100 ára afmæli Lágafells-
kirkju í Mosfellsbæ er lýst eftir gömlum
myndum af kirkjunni, utan eða innan.
Einkum er sóst eftir myndum sem teknar
em fyrir 1979. Mosfellingar og aðrir þeir
sem eiga þannig myndir em beðnir að
hafa samband við einhvem eftirtalinna
aöila: Sigurður Hreiðar, hs. 666272, vs.
27022, sr. Birgir Ásgeirsson, hs. 675340,
vs. 667113, og Svanhildur Þorkelsdóttir,
hs. 666377 og vs. 66218.
„Sumarstarf fyrir börn
og unglinga 1989“
Bæklingurinn „Sumarstarf fyrir böm og
unglinga 1989“ er kominn út og er honum
dreift til allra aldurshópa í skólum
Reykjavikurborgar um þessar mundir. í
bæklingi þessum er að finna upplýsingar
um framboð félaga og borgarstofnana á
starfi og leik fyrir böm og unglinga í
borginni sumarið 1989. Starfsþættir þeir
sem getur í bæklingnum era fyrir aldur-
inn 2-16 ára. Flest atriði snerta íþróttir
og útivist en einnig em kynntar regluleg-
ar skemmtisamkomur ungs fólks. Utgjöld
þátttakenda vegna starfþáttanna em
mjög mismunandi. Foreldrar, sem hug
hafa á að hagnýta sér framboð borgarinn-
ar og félaganna fyrir böm sín, em hvatt-
ir til þess að draga ekki innritun þeirra.
Innritun í starfsþætti á vegum íþrótta-
og tómstundaráðs fer ffarn í Laugardals-
höllinni laugardaginn 20. maí kl. 13-17.
Myndakvöld Útivistar
Síðasta myndakvöld vetrarins verður í
Fóstbræðraheimilinu, Langholtsvegi 109,
fimmtudagskvöldiö 18. maí kl. 20.30. Dag-
skrá: 1. myndir úr ferðum síðari hluta
vetrar og í vor, m.a. frá Þórsmörk,
SkaftafeUi og jöklaferðum ásamt mynd-
um frá síðustu hvitasunnuferð í Öræfa-
sveit. 2. Ferðakynning. Kynntar verða
margar og spennandi helgar- og sumar-
leyfisferðir sem em á ferðaáætlun Úti-
vistar. Allir era velkomnir á meðan hús-
rúm leyfir. Góðar kaffiveitingar kvenna-
nefndar í hléi.
Nýtt blað í bænum
Nk. föstudag, þann 19. maí, birtist nýtt
blað í bænum, íslenskt myndmál. í blað-
inu em nærri eingöngu myndir af fólki
á fömum vegi og við vinnu. íslenskt
myndmál verður selt í lausasölu á stræt-
um borgarinnar og gengið í hús. Blaðiö
er sérstakt að þvi leyti að nánast ekkert
lesmál er í blaðinu, en nær eingöngu ljós-
myndir af fólki sem venjulega prýðir
ekki síður dagblaðanna. Blaðið mun
kosta 100 krónur og er gefið út í mjög
takmörkuðu upplagi.
Ferðalög
Félag eldri borgara
Farin verður 12 daga hringferð um landið
og til Færeyja 30. mai nk. Upplýsingar
og pantanir hjá Félagi eldri borgara.
Opið hús á morgun í Goðheimum, Sigt-
úni 3. Kl. 14 frjáls spilamennska, kl. 19.30
félagsvist, kl. 21 dansaö.
Útivistarferðir
Sunnudagur 21. maí kl. 13
Landnámsgangan 12. ferð
H vítanes-Bry nj udals vogur-Bry nj udal-
ur. Létt og fjölbreytt ganga um strönd
og dal. Kræklingatínsla. Takið þátt í þess-
ari ágætu ferðasyrpu þar sem ætlunin
er aö ganga á mörkum landnáms Ingólfs
í 21 ferð. Skoðaöar rústir í Hvitanesi o.fl.
Verð 900 kr„ frítt fyrir böm með fullorön-
um. Brottför frá BSÍ, bensínsölu. Göngu-
ferð á Fagradalsfjall og fuglaskoðun á
Hafnarberg 28. maí.
• Skagafjörður-Drangey 26. 28. maí og
helgarferðir i Þórsmörk um hverja
helgi. Kvöldganga á miðvikudags-
kvöldið 24. mai kl. 20. Elliðaárdalur-
Fossvogsdalur.
Ferðafélag íslands
Dagsferðir Ferðafélagsins:
Sunnudaginn 21. maí
Skarðsheiði (1053 m) kl. 09. Ekið inn i
-+
Svínadal og gengið þaðan. Verð kr. 1.000.
Kl. 13 Úlfarsfell (295 m). Létt ganga, ótrú-
legt útsýni. Verð kr. 500. Ath. breytt
ferðatilhögun frá prentaðri áætlun 1989.
Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, aust-
anmegin. Farmiðar við bíl. Fritt f. böm
í fylgd fullorðinna. Helgarferð 16.-18.
júní: Mýrdalur-Heiðardalur-Dyrhóla-
ey-Reynishverfi.
Ráðstefnur
Friðarömmur
halda ráðstefnu um friðarfræðslu/friðar-
uppeldi að Hótel Sögu laugardaginn 20.
mai kl. 13.30. Ráðstefnan er opin öllu
áhugafólki um málefnið.
Fundir
Safnaðarfélag Frí-
kirkjunnar í Reykjavík
heldur fund í Hressingarskálanum við
Austurstræti mánudagskvöldið 22. maí
nk. kl. 20.30. Á dagskrá fundarins em
væntanlegar prestskosningar í Fríkirkj-
unni og önnur mál.
Fundur um borgara-
legar athafnir
Þann 9. apríl sl. fór fram fyrsta borgara-
lega fermingin á íslandi. Aðstandendur
hennar boða til fundar um áframhald-
andi starf. Rætt verður um borgaralegar
athafhir við helstu tímamót á mannsæv-
inrú, svo sem nafngiftir, fermingar og
jarðarfarir, og hugað að stofnun sam-
taka, sem m.a. heföu að leiðarljósi lífsvið-
horf óháð trúarsetningum þar sem trúar-
leg efni em utan mannlegs þekkingar-
sviðs. Megináhugamál samtakanna væm
mannkynið og þau verðmæti sem það
hefur skapað. Allir sem áhuga hafa á að
kynna sér starfið eða undirbúa og móta
samtök á þessum gmndvelli em hvattir
til að mæta á fundinn sem haldinn verð-
ur í húsi Félags bókagerðarmanna að
Hveríisgötu 21 (við hliðina á Þjóðleik-
húsinu) laugardaginn 20. maí og hefst kl.
14.
Leikhús
Þjóðleikhúsið
Síðustu sýningar á Óvitanum á laugar-
dag og sunnudag kl. 14. Sýning á Haust-
brúður verður í kvöld kl. 20. Sýning á
ballettunum Hvörfum verður á laugar-
dags- og sunnudagskvöld kl. 20.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir Sveitasinfóníu í kvöld, á laugar-
dagskvöld og sunnudagskvöld kl. 20.30.
Gríniðjan hf.
sýnir í Islensku óperunni, Gamla bíói,
Brávallagötuna í kvöld kl. 23.30.
Nemendaleikhúsið
sýrúr Hundheppinn í Lindarbæ á laugar-
dags- og sunnudagskvöld kl. 20.30.
Frú Emilía
Leikhús, Skeifúnni 3c, sýnir Gregor í
kvöld kl. 20.30.
Leikfélag Hveragerðis
sýnir Dýrin i Hálsaskógi í Bæjarbíói,
Hafnarfirði, á laugardag kl. 14 og á
sunnudag kl. 14 og 17.
Leikfélag Akureyrar
Allra síðustu sýningar á Sólarferð verða
í kvöld, föstudagskvöld, laugardagskvöld
og á þriðjudagskvöld kl. 20.30.
Námskeið
Námskeið í dulspeki
3. júni verður haldið námskeiö í dulspeki
á Hótel Lind. Felst námskeiðið aðallega
í að móttaka tilfinrúngar, skap og per-
sónuleika frá ámm fólks. Námskeiðið er
fyrir alla, hvort sem það sé næmt eða
ekki. Námskeiðið er samtals 8 tímar að
lengd, tveir laugardagar og tveir mið-
vikudagar. Leiðbeinandi á námskeiðinu
er Friðrik P. Ágústson dulspekingur.
Hægt er að innrita sig hjá honum í síma
622273 fyrir 1. júni
Sýningar
Árni Rúnar sýnir
á Mokka
Nýlega opnaði Ámi Rúnar Sverrisson
sýningu á málverkum, klippimyndum og
teikningum á Mokkakaffi við Skóla-
vörðustíg. Sýningin, sem er sölusýning,.
stendur út maímánuð.
Tónleikar
Söngfélag Skaftfellinga
í Reykjavík
efnir til vortónleika í Skaftfellingabúð,
Laugavegi 178, sunnudaginn 21. maí kl.
17. Stjómandi er Violeta Smid.
TVOFALDUR
L MNNINGUR
á laugardag
handa þér, ef þú hittír
á réttu tölumar.
Láttu þínar tölur ekki
vanta í þetta sinn!