Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1989, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1989, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1989. 13 Lesendur ,Er önnur viömiðun i íþróttum fatlaðra en ófatlaðra?" er spurt í bréfinu, Aðeins íþróttir ófatlaðra? S. skrifar: Með því að búa til flokkun á íþrótt- um sem hentar útnefningu á titimum íþróttamaður ársins virðist ekki vera reiknað með að til séu aörir íþrótta- menn en ófatlaðir karlmenn. Það er verið aö útiloka konur jafnt sem fati- aða frá því að hljóta þennan titil ef það eina sem miðað er við eru afrek ófatiaðra karlmanna - konur geta heldur ekki náð eins góðum árangri og karlmenn. Er önnur viðmiðun í íþróttum fati- aðra en ófatlaðra? Eru íþróttir fatl- aðra ekki jafnréttháar íþróttmn ófatlaðra? Formaöur samtaka íþróttafrétta- manna segir að Haukur Gunnarsson hafi ekki mætt neinni samkeppni í Seoul. Haukur Gunnarsson var 1. af 17 keppendum í 100 metra hlaupi, 3. af 22 keppendum í 200 metra hlaupi og 3. af 21 keppanda í 400 metra hlaupi. Einar Vilhjálmsson var 13. af 27 keppendum í spjótkasti. Formaður samtaka íþróttafrétta- manna sagði í hádegisveröarboði Flugleiða 28. des. sl. að Haukur stundaði íþrótt sína af sömu elju og íþróttamenn í fremstu röð og hefði náð frábærum árangri á sínu sviði. Með þessu er verið að segja að íþrótt- ir fatlaðra séu ekki sambærilegar við íþróttir ófatiaðra og íþróttamenn þeirra geti náð góðum árangri „á sínu sviði“ - en íþróttir þeirra séu skör neðar en íþróttamanna í fremstu röð. Formaðurinn segir í Þjóðviljanum að fatiaðir íþróttamenn geti keppt í íþróttum ófatiaðra og hafi náð þar viðunandi árangri. Það er alveg rétt, enda hefur það verið í greinum þar sem fótiun þeirra hefur ekki háð þeim. Komiö hefur veriö á hérlendis keppnum, þar sem ófatiaðir íþrótta- menn hafa keppt á móti fötluðum í greinum þar sem fatiaðir standa jafnt að vígi ófótluðum, eins og í hjóla- stólaakstri, og hafa fatlaðir ávallt farið þar með sigur. Það vantar mikið á að íþróttir fatl- aðra séu sjálfsagðir hlutir í íþrótta- þáttum fjölmiðla. Ef íþróttafrétta- menn gera ekki upp á milli íþrótta fatlaðra og ófatlaðra þá ættu þeir að sýna þaö í verki - en það kom t.d. ekki fram í sjónvarpinu í nýárssundi fatlaðra, bama og unghnga hinn 8. jan. sl. Fatlaöir íþróttamenn hafa sett heimsmet og unnið guflverðlaun á ólympíuleikum. - Ef þaö besta er ekki nógu gott, hvað er þá hægt að miða við? Kosningar hjá Fríkirkjusöfhuði: Einn í kjöri! Reykvikingur skrifar: Nú standa fyrir dyram einkenni- legar prestskosningar hjá Fríkirkju- söfnuðinum í Reykjavík. Starf safn- aðarprests hefur ekki verið auglýst laust heldur dynja allt í einu yfir prestskosningar þar sem aðeins einn er í kjöri! Þessi ráðstöfun er í stíl viö fyrri gerðir þessarar svokölluðu stjórnar Fríkirkjusafnaðarins. Vel metinn kennimaður er rekinn án gildra saka. Stjómin neitar að halda lög- boðna safnaðarfundi þrátt fyrir ít- rekaðar áskoranir. Loks er svo haid- inn fundur í Gamia bíói þar sem uppsögn prestsins er ógilt og auk heldur lýst vantrausti á stjómina. Henni dettur hins vegar ekki í hug að taka neitt af þessu til greina held- ur blæs til allsherjaratkvæða- greiðslu í Álftamýrarskóla þar sem framkvæmdin er öll í hennar eigin höndum og bamaleikur að blekkja í niðurstöðum. Nú síðast gerast svo þau tíðindi að boðað er til aðalfundar safnaöarins í Háskólabíói. En viti menn: um leið og fundur var settur var bíóinu harðlæst og kjörgögn lokuð niðri. Hópar fólks komust ekki inn í bíóið. Öðmm var neitað um kjörseðla og sú athuga- semd látin fylgja að þeim væri ekki treystandi til þess að kjósa rétt! Hvað ætii prestastéttinni finnist mn það að embætti Fríkirkjuprests skufl ekki auglýst svo að öllum prest- um, sem hug hafa á starfmu, gefist kostur á að sækja um það, þar á meðal prestinum sem við höfum haft síðustu sex árin? Væri ekki rétt að bregðast við þessari vaidníðslu með þeim hætti að fjölmenna á kjörstað og skila auðu? KENNARA VANTAR Kennara vantar við grunnskólann Djúpa- vogi. Meðal kennslugreina: íslenska, sam- félagsfræði og íþróttir. Upplýsingar í síma 97-88970 og 97-88822. ÍSAFJÖRÐUR Blaðberi óskast fyrir Seljalandsveg - Miðtún frá 1. júní. Uppl. hjá umboðsmanni í síma 94-3653 Flensborgarskólinn i Hafnarfirði FRÁ FLENSBORGARSKÓLA Innritun nýnema í dagskóla fer fram í Flensborgar- skólanum fimmtudaginn 1. júní og föstudaginn 2. júní kl. 13-18 báða dagana. Við innritun þurfa nem- endur að skila útfylltu umsóknareyðublaði og afriti af grunnskólaprófi. Starfsmenn skólans veita aðstoð og leiðbeiningar við námsval innritunardagana og eru nemendur hvattir til að notfæra ser þá þjónustu. Innritun í öldungadeild fer fram í ágúst og verður nánar auglýst síðar. Skólameistari MENNTASKOLINN í KÓPAVOGI Innritun fyrir næsta skólaár, 1989-1990, fer fram í Menntaskólanum í Kópavogi dagana 1.-5. júní (að báðum dögum meðtöldum). Við skólann eru eftirtaldar námsbrautir: Eðlisfræðibraut Félagsfræðibraut Ferðabraut Hagfræðibraut Málabraut Náttúrufræðibraut Tölvubraut Tónlistarbraut Fornám ^ Innritun í fornám fer fram á sama tíma. Námsráðgjafi verður til viðtals innritunardagana og eru nemendur hvattir til að notfæra sér þessa þjón- ustu. Öllum umsóknum fylgi staðfest afrit prófskírteinis auk Ijósmyndar. Þeir sem sækja um eftir tilskilinn umsóknarfrest geta ekki búist við að fá skólavist. Skólameistari FERÐATILBOÐ SUMAFSINS! AMSTERDAM 1-3 víkna Evrópuferðír frá kr. 12.670* Nánari upplýsingar hjá söluskrif- stofum Arnarflugs, umboðsmönnum og ferðaskrif- stofum. ^fARNARFLUG TitfnuÝfa 7 otf ^||v. Lágmúla 7 og Austarstrætí 22 Síðastí söltidagur Símar 84477 623060 * Staðgreiðsluverð fyrir 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, og bil í A-flokki i viku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.