Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1989, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1989, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1989. 25 Fréttir Stærsta loð- dýrabú lands- ins gjaldþrota - skuldir Pólarpels á Dalvík um 190 miUjónir króna Geir A. Guösteinsson, DV, Dalvik: Stærsta loödýrabú landsins, Pól- arpels að Böggvisstöðum á Dalvík, var lýst gjaldþrota sl. miðvikudag en skuldir búsins munu vera um 190 milljónir króna. Pólarpels er eitt af þremur minkabúum sem fyrst voru sett á stofn árið 1971, þegar minka- rækt var leyfð á ný hér á landi. Búið hefur haft greiðslustöðvun undanfarna mánuði en talsverðar þreifingar hafa fariö fram, m.a. hefur verið skoðaður sá möguleiki að stærstu kröfuhafarnir, sem eru Landsbanki íslands, Byggðastofnun, Framkvæmdasjóður og Fóðurstöðin á Dalvík, breyttu kröfum sínum í hlutafé. Það hefur þó greinilega ekki þótt fýsilegur kostur. Sl. haust var allur refastofninn á Pólarpels pelsaður (slátrað) en tals- vert sett á af minkum. Áætlað sölu- verðmæti skinna þeirra er um 60 milljónir króna í haust. Þó ber þess að geta að nokkurt verðfall varð á minkaskinnum á síðasta skinnaupp- boði í Kaupmannahöfn. Refabúið af Böggvisstöðum. Menntamálaráðherra, bæjarstjóri, Bera Nordal og gestir skoða málverkin frá Listasafninu. DV-mynd Sigrún M-hátíð á Austurlandi: Glæsileg menningarveisla Sigrún Björgvinsdóttir, Egflsstööum: Lokið er fyrsta hluta menningar- hátíðar á Austurlandi, þeim hluta sem fram fór í tali og tónum, en sýn- ingar munu standa enn um sinn. Hátíðin stóð í þrjá daga á Egilsstöð- um 19.-21. maí. Viðbrögð fólks hafa verið á einn veg, sannkölluð menn- ingarveisla, glæsileg hátíð. En mikið er eftir enn. Öll stærri þorp og bæir á Austurlandi munu halda sína hátíð nú í sumar og hringnum lokað með hátíð á Skriðuklaustri 20. ágúst. Menntamálaráöherra, Svavar Gestsson, setti hátiðina í íþróttahús- inu og opnaði um leið sýningu þar á málverkum frá Listasafni íslands sem síðar fer um Austurland. Þá var ljóðakvöld, flutt ljóð austfirskra höf- una. Á laugardag var opnuð í FeUa- skóla samsýning austfirskra hsta- manna og hátíðardagskrá var í Vala- skjálf. Um kvöldiö var þar sýning á vegum Þjóðleikhússins. 21. maí var opnuð sýning í Minja- safni Austurlands sem verður opin í sumar, nemendur EgUsstaðaskóla sýndu PUt og stúlku í leikstjóm Kristrúnar Jónsdóttur og um kvöldiö var dagskrá í tilefni af 100 ára af- mæh Gunnars Gunnarssonar. Að- sókn var með ágætum aUs staðar og munu gestir að auglýstum dagskrám hafa orðið um 2000. Sigurður Símon- arson, bæjarstjóri á Egilsstöðum og formaður M-hátiðarnefndar, var mjög ánægður með hve vel tókst tU. Hafnarstjóm Sauöárkróks lítt hrifin af hafhaáætlim 1989-1992: ■ ■ Ongþveiti ef hafna- áætlun gengur eftir Þórhallur Asmundssan, DV, Sauðárkróki: Hafnarstjóm Sauðárkróks er ekki hrifin af hafnaáætlun fyrir árið 1989-1992 sem nú Uggur fyrir Al- þingi. Á fundi nýlega samþykkti nefndin áskorun tU þingmanna kjör- dæmisins, hafnaráðs, Hafnamála- stofnunar og samgönguráðuneytis um að gera nauðsynlegar breytingar á áætluninni þannig aö Sauðár- krókshöfn geti þjónað því lágmarks- hlutverki sem henni er æUað. í bókun hafnarstjórnar er bent á að í framkvæmdaáætlun, sem send var Hafnamálastofnun fyrir réttu ári, var tUgreindur fyrsti áfangi stál- þils á norðurgarði. í framvarpinu er þessi framkvæmd feUd út. Svo virðist sem ekki hafi tekist aö koma stjórn- völdum í skilning um hversu brýnar framkvæmdir við Sauðárkrókshöfn era. Framkvæmdir era engar við höfnina á þessu ári en farið var fram á tæpar 30 miUjónir sem hlut ríkisins í heildarframkvæmdum að upphæð tæpar 35 miUjónir. Áætlun fyrir næsta ár gerir ráð fyrir 18,4 miUjón- um úr ríkissjóði sem hvergi nálgast þær þarfir sem bráðnauðsynlegt er að leysa við Sauðárkrókshöfn. Skipakomur síðasta ár voru um 600 og einn togari hefur bæst í skipaflota Skagfirðinga, svo og stórt rækjuskip. Þá mun og koma nýr bátur tU Sauð- árkróks í sumar. Fyrirsjáanlegt sé að öngþveiti skapist við Sauðár- krókshöfn á næstu árum miðað við þær framkvæmdir sem ríkið ætlar sér að fjármagna. DV-mynd Ægir Skólakrakkarnir 44 við listaverk sitt á gafli skólans. Búðahreppur: Vinabæjatengsl við Gravelines Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfiröi: Búðahreppur og GraveUnes í Frakklandi era að stofna til form- legra vinabæjatengsla og í tUefni þess era 14 nemendur 8. bekkjar Grunnskóla Fáskrúðsflarðar nú í GraveUnes ásamt kennara sínum og fararstjóra, Gunnari Þ. Halldórssyni. Með í forinni eru einnig oddviti og sveitarstjóri ásamt hreppsnefndar- manni og eiginkonur tveggja hrepps- nefndarmanna. Nemendur 8. bekkjar söfnuðu fyrir ferð sinni með ýmsu móti, m.a. blómasölu og rekstri sjoppu í æsku- lýðsheimiUnu. Nýstárlegast í fjáröfl- uninni var að þau söfnuðu áheitum meðai fyrirtækja og bæjarbúa tU að mála stórt Ustaverk á austurgafl skólans. Á þann hátt söfnuðust á annað hundrað þúsund krónur sem þau notuðu tU greiðslu á ferðinni til Frakklands. Þess má geta að þau fengu aðstoð kennara viö að mála Ustaverkið sem prýðir skólann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.