Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1989, Qupperneq 17
16
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1989.
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ 1989.
17
íþróttir
Stigamót Golfsambands íslands:
Ragnar efstur
- sigraöi á þriðja mótinu í Hafnarfírði
Stufar úr
t deild
100. ieikur Júlíusar
Hinn reyndi leikmaöur Skaga-
liösins Július Pétur Ingólfsson
lék sinn 100. leik í 1. deildinni
þegar ÍA sótti Val heim sl.
fimmtudagskvöld.
150. mark KA
Þriðja mark KA gegn Fram á
föstudagskvöldiö var 150. mark
félagsins í 1. deildar keppninni
frá upphafi. Þaö var Erlingur
Kristjánsson sem skoraöi mariáö
og fer vel á því þar sem hann er
leikjahaestur KA-manna í 1. deild
frá byrjun, hefur veriö meö í 86
af þeim 128 leikjum sem félagiö
hefur leikið í deildinni.
25. maiit Kristjáns
Kristján Kristjánsson úr Þór
skoraði sitt 25. mark í 1. deild
þegar liö hans tapaði fyrir Fylki.
Hann er annar markahæsti leik-
maöur Þórs i 1. deild frá upphafi,
aðeins Halldór Áskelsson hefur
skorað meira eða 31 mark.
Fimm nýiiðar
Fimm leikmenn léku f fyrsta
skipti i 1. deild í 2. umferð. Það
voru Jón Þór Andrésson, Val,
Ólafur Pétursson, ÍBK, Steinar
Guögeirsson, Fram, Öm Torfa-
son, VQdngi, og Óskar Theodórs-
son, Fylki
Þrir með fyrsta marfcið
Þrír leikmenn skoruðu sitt fyrsta
1. deildar mark í 2. umferð. Þaö
voru Jóhann Lapas, fyrir KR
gegn VSkingi, Kjartan Einarsson,
fyrir ÍBK gegn FH, og Öm Valdi-
marsson, iyrir Fylki gegn Þór.
ÍA slakt á Hiiðarenda
ÍA hefur enn ekki tekist að sigra
Val á Hlíðarenda og hefur reynd-
ar aðeins hlotið eitt stig í sex við-
ureignum félaganna síöan Vals-
menn fluttu heimavöll sinn þang-
að árið 1984.
Loks vann KA
Framarar töpuöu í fyrsta skipti
fyrir KA á Akureyri í deilda-
keppninni í ellefu ár eða siöan
Uðin mættust þar fyrst áriö 1978
og KA vann, 3-0. Síöan hafði
Fram unnið fjórum sinnum og
þrisvar orðið jafntefU þar til á
föstudagskvöldiö að KA sigraði,
3-1.
Ragnar Ólafsson úr Golfklúbbi
Reykjavíkur sigraöi á þriöja stiga-
móti Golfsambands íslands sem fram
fór í Hafnarfirði um helgina. Mikill
vindur og kalt veður var meðan á
mótinu stóð.
Ragnar Ólafsson lék hringina fjóra
á 217 höggum, Sveinn Sigurbergsson,
GK, kom næstur á 221 höggi. Hannes
Eyvindsson, GR, og Sigurjón Arnars-
son, GR, urðu jafnir í þriðja til fjórða
sæti á 222 höggum. Sigurður Sigurðs-
son, GS, hafnaði í fímmta sæti á 223
höggum.
Að loknum þremur stigamótum er
Ragnar Ólafsson í efsta sæti með 163
stig, Sigurður Sigurðsson, GS, er í
öðru sæti með 153 stig, Guðmundur
Sveinbjömsson, GK, í þriðja sæti
með 138 stig, Sigurjón Arnarsson,
GR, í fjórða sæti með 137 stig og í
fimmta sæti er Hannes Eyvindsson,
GR, með 136 stig.
IBV varð í gærkvöldi fyrsta liðið
til að komast í 2. umferð bikarkeppni
KSÍ. Eyjamenn sóttu Gróttu heim á
Seltjamamesið og höfðu sigur, 1-5,
eftir að staðan hafði veriö 0-0 í leik-
hléi.
Tómas Ingi Tómasson skoraði 3
marka ÍBV og hin tvö gerði þjálfar-
inn, Sigurlás Þorleifsson, sem er að
verða heill af meiðslunum sem hafa
þjakað hann í vor. Eyjamaðurinn
Sighvatur Bjamason skoraði mark
Gróttu.
í kvöld em leiknir 12 leikir í 1.
Knattspymuskóli Fram hefst í lok
maí og veröa haldin íjögur tveggja
vikna námskeið og verða þau sem
hér segir:
29. maí-9. júní, 12. júni-23. júní, 26.
júní-7. júlí, 10. júli-21. júlí. Skólinn
starfar alla vikuna kl. 13-15.30 og er
ætlaður yngstu kynslóðinni, það er
6 til 10 ára bömum sem fædd em
árin 1979, 1980, 1981, 1982 og 1983.
Námskeiösgjald er kr. 2.200.
Sérstök námskeið í knattspymu-
Karen Sævarsdóttir, GS, sigraði í
fyrsta stigamótinu í kvennaflokki,
lék á 261 höggi, Þórdís Geirsdóttir,
GK, lék á 263 höggum, í þriðja sæti
varð Alda Sigurðardóttir, GK, á 267
höggum og í fjórða sæti lenti Kristín
Þorvaldsdóttir, GK, á 268 höggum.
Karen fékk fyrir sigurinn 28 stig,
Þórdís 16 stig, Alda 12 stig og Kristín
11 stig.
Fjórða stigamót sumarsins af sex
verður haldið um næstu helgi.
Keppnin er 54 holu höggleikur. Keppt
verður í meistaraílokki karla, forgjöf
5 og lægra og meistaraflokki kvenna,
forgjöf 15 og lægra. Keppnin hefst 3.
júní kl. 8 og veröa leiknar 36 holur
þann dag. Síðari umferðin þann dag
hefst kl. 13. Þátttökutilkynningar
þurfa að berast Golfklúbbi Reykja-
víkur fyrir 2. júní.
-JKS
umferð og hefjast allir kl. 20. Það
em: Ægir - Njarðvík, Hafnir - Aftur-
elding, Víðir-Snæfell, Ernir-
Augnablik, Skallagrímur - Breiða-
blik, Völsungur - Magni, KS-Dal-
vík, Hvöt-Tindastóll, Leiftur-
Reynir, Á., Höttur - Valur, Rf.,
Leiknir, F. - Sindri og Huginn - Ein-
herji. Annað kvöld leika ÍK-ÍR og
Þróttur, R.-Haukar, og á fimmtu-
daginn Grindavík - Hveragerði, Vík-
verji - Ármann og Þróttur, N. -
Austri.
þrautum fyrir 10-14 ára verða haldin
í júnímánuöi, ein vika í senn, og
verða þau sem hér segir:
5. júní-9. júní, 12. júní-16. júní, 19.
júní-23. júní, Sérstök námskeiö
verða virka daga kl. 9.30-11.30 og
gjald er kr. 1.500.
Innritun er hafin á skrifstofu
knattspymudeildar Fram í Fram-
heimilinu, Safamýri 28, símar 680342
og 680343, milli kl. 13 og 14, einnig
eftir kl. 17. Kennarar verða Magnús
Einarsson og Eiríkur Björgvinsson.
Bikarkeppni KSÍ:
Fimm Eyjamörk í
seinni hálfleiknum
-vs
Knattspyrnuskóli Fram
Arnór í hópi
þeirra prúðustu
Kristján Bemburg, DV, Belgíu;
Amór Guðjohnsen, leikmaður
með Anderlecht í Belgíu, hafnaði í
10. sæti í hópi prúðustu knattspymu-
manna þar í landi.
Fékk Amór sex punkta en hliðsjón
er höfð af framgöngu manna í leikj-
um.
Michel Preud-homme, markvörður
Mechelen, hafnaði í fyrsta sæti og
fékk fyrir bragðiö 135 þúsund íslen-
skar krónur í verðlaun.
Leikmenn völdu síðan sjálfir Marc
Emmers besta leikmann fyrstu deild-
ar en hann spilar með Mechelen.
Efnilegasti leikmaðurinn var hins
vegar kjörinn Eric Viscal, Hollend-
ingurinn ungi. Hann lék með ungl-
ingaliði Hollands á íslandi fyrir fá-
einum misserum.
-JKS
Knstján Bentburg, DV, Belgíu;
Belgíski landsliðsmaðurinn,
Enzo Scifo, semfyrir nokkm yfir-
gaf lið Anderlecht í Belgiu, sér
nú eftir öllu saman.
Fyrst lá leiö Scifos til Inter
Milan á Ítalíu. „Þar gekk allt á
afturfótunum. Iáðinu gekk mjög
illa og mér var kennt um allt sam-
an. Þá fór ég til Bordeaux. Þar
var það sama sagan. Liðinu gekk
mjög illa og mér er kennt um ó-
farirnar. Eg hef verið á vara-
mannabekknum imdanfarið og
get ekki hugsað mér að verma
bekkinn eitt árið enn. Það gæti
þýtt endatok ferilsins hjá mér.
Ég hef rekið mig rækilega á þá
staaðreynd að peningar em ekki
allt Ég vona að Anderlecht fái
mig að láni frá Bordeaux og leysi
þar með þann mikla vanda sem
ég er í þessa dagana. Ég er tilbú-
inn að draga verulega úr launa-
kröfúm til aö komast til And-
erlecht aftur,“ segir Sdfo sem er
mjög uggandi um framtíð sína í
knattspymunni
FIRMAKEPPNI
í utanhússknattspyrnu verður haldin dagana 3.-4.
og 10.-11. júní. Upplýsingar og þátttökutilkynningar
í síma 74248, Hlynur. Þátttökugjald kr. 6.000.
• íslenska landsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri að lokinni æfingu i gærkvöldi sem fram fór á golfvellinum í Mosfellsbæ.
DV-mynd Sveinn
Evrópuleikur íslendinga og Vestur-Þjóðverja undir 21 árs aldri 1 kvöld
„Þýska liðið er geysisterkt
og þetta verður hörkuleikur“
- segir Guðni Kjartansson, þjálfari liðsins. Þjóðverjar með þekkta leikmenn innanborðs
Islenska landsliðið í knattspyrnu
skipað leikmönnum 21 árs og yngri leik-
ur gegn Vestur-Þýskalandi á Laugar-
dalsvellinum í kvöld og hefst leikur
þjóðanna kl. 20.00. Leikurinn er liður í
Evrópukeppninni en auk íslendinga og
Vestur-Þjóðverja leika Hollendingar og
Finnar í þessum riðli keppninnar.
íslendingar léku tvo leiki á síðasta ári
í rðlinum. Fyrri leikurinn var gegn
Finnum og tapaðist sá leikur, 1-2, sem
fram fór í Fimílandi. íslenska liðið gerði
síðan jafnteíli gegn Hollendingum, 1-1,
í Reykjavík. Vestur-Þýskaland hefur
sigrað í öllum sínum leikjum til þessa
með miklum mun. í liði þeirra eru
fimasterkir einstaklingar sem leika
með allra bestu félögunum í vestur-
þýsku úrvalsdeildinni. Tveir leik-
manna liðsins koma frá Stuttgart og
hafa þannig leikið með Ásgeiri Sigur-
vinssyni. Þetta em þeir Nils Schmaler
og Gerhard Poschner.
Mikill áhugi er fyrir leiknum í Vest-
ur-Þýskalandi, sem dæmist best af því
að formaður Bayern Múnchen, prófess-
or Frtiz Scherer, kemur með liðinu
hingað til lands til að fylgjast með leikn-
um. Einnig era með för nokkrir af for-
ystumönnum knattspyrnumála í Vest-
ur-Þýskalandi.
„Leikurinn í kvöld leggst ágætlega í
mig. Við misstum hins vegar tvo sterka
leikmenn út úr liðinu á síðustu stundu.
Rúnar Kristinsson fór með A-landsliö-
inu til Moskvu og Amljótur Davíðsson
á við meiðsli að stríða í baki. Við höfum
átt í hinu mesta basli að finna æfinga-
svæði fyrir liðið enda er vallarástand
ekki sem best um þessar mundir. Þann-
ig að félögin hafa verið treg að lána
okkur svæði til æfinga," sagði Guðni
Kjartansson, þjálfari íslenska liðsins, í
samtali við DV í gær.
„Leikurinn verður erfiður en þýska
liöið er geysilega sterkt. Viö munum
reyna alit hvað við getum til að knýja
fram sem hagstæöust úrslit. Eitt er víst
að þetta verður hörkuleikur," sagði
Guðni Kjartansson ennfremur.
„Ég á von á fjörugum leik. Það verður
samt ekki gengið framhjá þeirri stað-
reynd að Vestur-Þjóðverjar eiga á að
skipa sterkum knattspyrnumönnum.
Landsliðið í þessum aldursflokki hefur
þó oft komið á óvart með mikilli bar-
áttu og vonandi verður engin breyting
þar á í kvöld,“ sagði Kristinn Jónsson
úr Fram og einn leikmanna liðsins í
samtali við DV.
Guðni Kjartansson hefur valið eftir-
talda leikmenn fyrir leikinn í kvöld:
AdólfÓskarsson.................ÍBV
AlexanderHögnason................ÍA
Baldur Bjamason..............Fylki
Einar Pál Tómasson..............Val
Eyjólf Sverrisson.........Tindstóli
Hallstein Arnarsson.........Víkingi
Harald Ingólfsson................ÍA
Helga Bjarnason...............Fram
Kjartan Einarsson...............ÍBK
Kristin Jónsson................Fram
Ólaf Gottskálksson..............ÍA
Ólaf Kristjánsson...............FH
Pál Guðmundsson..................ÍA
Pétur Óskarsson..............Fylki
Steinar Adólfsson..............Val
Sævar Jónsson..................Val
Dómari leiksins verður Kim Milton
Nielsen frá Danmörku en Nielsen
dæmdi einnig hér á landi á dögunum
er íslendingar léku gegn Englending-
um.
-JKS
Jordan haldið niðri og
Detroit jafnaði metin
Úrslitakeppni bandarísku NBA-deiIdarinnar í körfuknattleik:
ur til sögunnar, og sneri dæminu við.
Detroit hóf síðasta fjórðunginn
með íjögurra stiga forskot og jók það
í níu um miðjan fjórðunginn þar sem
sóknarleikur Chicago var í molum.
Leikmenn Chicago gerðu síðan ákafa
tilraun til að minnka muninn síðustu
mínúturnar en í þetta sinn lét Detro-
it sér ekki sigurinn úr greipum
ganga. Breiddin var það sem skildi á
milli liðanna. Varamenn Detroit,
Edward Jones, Salley og Rodman
skoraðu samtals 36 stig en Chicago
fékk aðeins tvö stig frá sínum vara-
mönnum. Dumas og Rodmann héldu
Jordan í skeíjum í sókninni á meðan
Thomas sá til þess að hann hefði nóg
að gera í vörninni. Pippen skoraði
18 stig fyrir Chigago en sóknarnýting
þeirra var aðeins 39%.
Næsti leikur liðanna verður á
fóstudagskvöldið.
gerði út um leikinn snemma. Chicago
byrjaði leikinn vel en í öðrum leik-
hluta skellti Detroit í lás. Chicago
skoraði aðeins þrettán stig í öðrum
leikhluta og Michael Jordan skoraði
ekki stig í tuttugu mínútur í síðari
hluta fyrri hálfleik og byrjun síðari
hálfleiks.
Á sama tíma tók Dennis Rodman
fimmtán fráköst og Salley sjö. Vörn
Chicago var einnig mjög þétt en
Detroit náði forystunni, 42-39, á síð-
ustu sekúndum fyrri hálfleiks með
þriggja stiga körfu Thomas, sem
ásamt Dumas sá um stigin í fyrri
hálfleik. Detroit jók síðan forystuna
í byrjun síðari hálfleiks þegar villu
vandræði fóra að herja á Chicago en
níu stig á stuttum tíma frá Pippen
færðu bolunum frá Chicgao aftur
forystuna um stund. En þá kom vara-
miðheijinn gamli, Jones Edward aft-
Birgir Þórisson, DV, New York
Detroit er eins og kvöm sem malar
hægt en örugglega. Chicago skoraði
23 stig fyrstu sjö mínútnar en aðeins
57 stig næstu fjörutíu mínúturnar í
fjórða leik liðanna í Chigaco í gær.
Detroit sigraði í leiknum, 86-80, og
jafnaði metin því nú hefur hvort lið-
ið sigrað í tveimur viðureignum.
Michael Jordan fékk að kenna á
kvöminni. Hann skoraði aðeins 23
stig í leiknum, þar af tólf fyrstu
mínúturnar.
Isiah Thomas fór hins vegar á kost-
um fyrir Detroit í sókninni, skoraði
27 stig og tók tíu fráköst en óumdeil-
anlega var það vörnin sem vann leik-
inn með varamennina, Salley og
var hans vel gætt af leikmönnum Detroit Pist- Rodmann. Þeir félagar áttu fráköstin
ons. Jordan skoraði 23 stig i leiknum. bæöi í sókn og vörn en léleg vítanýt-
Simamynd Reuter ing þeirra kom í veg fyrir að Detroit
Iþróttir
—
m w m w w
Afnor ffá |
þrjá mánuði
- fór í uppskurð nú í morgun
Krisfján Beníburg, DV, Bekjíu:
Araór Guöjohnsen var i morg-
un skorinn upp á Peltonberg-
sjúkrahúsinu í Leuwen í Belgíu.
Doktor Martens, þekktasti
íþróttaskurðlæknir Belga, sá um
aðgerðina. Martens þykir afar
snjall læknir og er meðal annars
með sjúklinga frá nágrannaþjóð-
unum.
Fyrir aðgerðina sagði Amór að
ætlunin væri að íjarlægja bólgur
og styrkja bönd í magavöðvum.
Þá kvaðst hann eiga von á þvl að
einnig yrði litið á nárann en
þangað er verkur sá kominn sem
Araór hefur Iengi strítt við.
Aðferðin, sem beitt verður við
að eyða bólgunum, er af nýjum
toga en hún hefur gefist nýög
vel. Vonast Martens læknir til að
Amór geti hafið æfingar að nýju
eftir þijá mánuöi.
• Amór í leik meö Anderlecht gegn Mechelen á keppnistímabilinu.
DV-mynd Marc De Waele
Arnórdvelurá
sjúkrahús! tii sunnudags
Mun Amór vera á sjúkrahúsinu
fram á sunnudag ef allt fer sam-
kvæmt áætlun. Er þetta í annað
sinn sem Amór er skorinn af
Martens en hann hefur í mörg
hom að líta í vikunni. Landsliðs-
maðurinn George Grtin, félagi
Arnórs hjá Anderlecht, fer til að
mynda í hnéaðgerð hjá Martens
nú í vikunni og munu þeir líklega
liggja á sömu stofu á sjúkrahús-
inu í Leuwen.
Forkeppni HM 1 knattspymu:
Þungur róður á
Lenín-leikvanginum
- íslendingar mæta Sovétmönnum á morgun
í uppskurð í morgun í Belgíu eins og
fram kemur annars staðar á síðunni.
Gert er ráð fyrir miklum mann-
fjölda á Lenín-leikvanginum, einu
mesta íþróttamannvirki í Sovétríkj-
unum.
Sovéska hðið stendur enda vel aö
vígi í 3. riðli heimsmeistaramótsins.
Liðið hefur aðeins tapað einu stigi í
Öórum leikjum og það gegn litla ís-
landi. Sá ósigur kom í kjölfar mikill-
ar velgengni Sovétmanna í loka-
keppni Evrópumóts landsliða. Komu
úrslitin í Reykjavík því mjög á óvart
i knattspyrnuheiminum.
Sovétmenn hafa til þessa unnið
vinaþjóð sína Austur-Þjóðverja í for-
keppninni, 3-0, Austurríkismenn 2-0
og Tyrki 1-0 en síðasttalda þjóðin
hefur komið mjög á óvart í forkeppn-
inni og unnið tvo frækilega sigra.
íslendingar, sem leika án margra
máttarstólpa á morgun, hafa borið
tvö stig úr býtum í forkeppninni til
þessa. Liðið hefur tvívegis skipt hlut,
fyrst gegn Rússum eins og áður kom
fram en síðan gegn Tyrkjum í Mikla-
garði, 1-1. Liðið hefur tapað einum
leik, gegn Austur-Þjóðverjum ytra,
2-0, Mörk íslendinga í keppninni
hafa þeir Sigurður Grétarsson og
Guðmundur Torfason skorað. Þeir
leika líklega báðir á morgun.
Hætt er við að róður íslendinga
verði þá erfiður en Sovétmenn tefla
fram gríðarlega öflugu liöi og munu
leggja allt í sölurnar tO að hafa betur
á heimavelli sínum í Moskvuborg.
Staðan í 3. riðli:
Sovétríkin...........4 3 1 0 7-1 7
Tyrkland.............5 2 1 2 8-6 5
Austurríki...........3 1114-53
A-Þýskaland..........5 113 4-93
ísland...............3 0 2 1 2-4 2
-JÖG
Knattspyrnulið íslendinga og Sovét-
manna eigast við á morgun á Lenín-
leikvanginum í Moskvu. Viðureignin
er liður í forkeppni heimsmeistara-
mótsins í knattspyrnu.
Síðast þegar Uð þjóðanna léku átt-
ust þau við nærri Svartahafi, í borg-
inni Simferopol, haustið 1987. ís-
lenska liðið beið þá lægri hlut, 2-0
og gerðu þeir Igor Belanov og Oleg
Protasov mörk Rússanna.
Þá eins og nú höfðu hðin gert jafn-
tefli í fyrri viðureign sinni, 1-1, í
Reykjavík. Þá gerði Amóí Guðjohn-
sen mark íslands með eftirminiúleg-
um hætti. Hann verður nú flarri, fór
• Sigurður Grétarsson andspænis einum besta markverði heims, Rinat
Dasajev, i fyrri leik þjóðanna sl. haust. Jafntefii varð í leiknum og skoraði
Sigurður mark íslendinga.