Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1989, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ 1989.
19
Abracadabra,
Laugavegi
Diskótek fostudags- og laugardags-
kvöld.
Amadeus, Þórscafé,
Brautarholti, simi 23333
Hafrót, hljómsveit hússins, leikur
fyrir dansi rnn helgina. Diskótek á
fyrstu haeðinni.
Ártún,
Vagnhöfða 11
Gömlu dansamir fóstudagskvöld kl.
21-3 og laugardagskvöld kl. 22-3.
' mjómsveitin Danssporið leikur fyrir
dansi bæði kvöldin.
Broadway,
Álfabakka 8, Reykjavík, simi 77500
Unglingadansleikur fóstudags- og
laugardagskvöld. Aldiu-stakmark
fæddir 1973 og eldri.
Casablanca,
Skúlagötu 30
Smekkleysukvöld í kvöld, diskótek
laugardagskvöld.
Duus-hús,
Fischersundi, simi 14446
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld. Á sunnudagskvöld verður
leikin djass- og blústónlist. Flytjend-
ur: Ellen Kristjánsdóttir ásamt
Mezzoforte og Stefáni Stefánssyni
saxófónleikara.
Glæsibær,
Álfheimum
Hljómsveitin Upplyfting leikur fyrir
dansi föstudags- og laugardagskvöld.
Hollywood,
Ármúla 5, Reykjavik
Diskótek föstudags- og laugardags-
kvöld.
Hótel Borg,
Pósthússtræti 10, Reykjavík, simi
11440
Diskótek föstudag og laugardag.
Hótel Esja, Skálafell,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavik, sími
82200
Dansleikir föstudags- og laugardags-
kvöld. Lifandi tónlist. Opið frá kl.
19-1.
Hótel ísland .
„Sumarkamival" föstudags- og laug-
ardagskvöld. 24 dansarar koma fram
í litríkri sýningu. Hljómsveitin
Mannakom og Pálmi Gunnarsson
spila.
Cuba,
Borgartúni 32
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld. Aldurstakmark 18 ár.
Tunglið og Bíókjallarinn,
Lækjargötu 2, simi 621625
Diskótek föstudags- og laugardags-
kvöld.
Vetrarbrautin,
Brautarholti 20, sími 29098
Hljómsveit André Bachmann leikur
fyrir dansi föstudags- og laugardags-
kvöld.
Zeppelin
rokkklúbburinn,
Borgartúni 32
Royal Rock, húshljómsveit, leikur
fyrir dansi um helgina.
ölver,
Álfheimum 74, s. 686220
Opið fimmtudags-, fóstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld.
Hótel Selfoss
Viking band leikur fyrir dansi á laug-
ardagskvöld.
Uppinn,
Akureyri
Hljómsveitin Síðan skein sól leikur
fyrir dansi í kvöld.
Djassað í
Djúpinu
Heljarinnar mikil djassveisla er
í uppsiglingu í Djúpinu, kjallar-
anum úndir veitingastaðnum
Hominu. Dagana 10.-14. og 17.-21.
júli verður leikinn þar djass á
hveiju kvöldi.
Fyrir hátíð þessari standa þrír
tóníistarmenn sem tónlistarunn-
endur þekkja vel. Þeir eru Sigurður
Flosason, sem leikur á alt- og barít-
ónsaxófóna, nýkominn heim eftir
langt nám í Bandaríkjunum; Hilm-
ar Jensson gítarleikari, sem hefur
leikið með ýmsum hljómsveitum
heima og erlendis og var í Berklee-
tónlistarskólanum í Boston síðast-
liðinn vetur, og loks Tómas R. Ein-
arsson kontrabassaleikari. Þann
síðastnefnda er óþarfi að kynna,
svo ötull hefur hann verið við
djassleikinn á undanfomum árum.
Félagamir munu fá trommuleik-
ara í heimsókn á fimmtudögum og
fostudögum en ekki er loku fyrir
það skotiö að aðrir tónlistarmenn
líti inn með tól sín og tæki.
Tónleikamir hefjast kl. 21.30 og
þeim lýkur um miðnættið.
Krýsuvík er einn viökomustaöa í skoðunarferð um Reykjanes á laugar-
dag.
Náttúruskoðun
á Reykjanesi
Náttúruverndarfélag Suðvestur-
lands fer í skoðunarferð um
Reykjanesskagann á laugardag.
Lagt verður af stað frá Norræna
húsinu kl. 9.
í ferðinni verður kynnt hin
merkilega jarðfræði skagans, varð-
veislugildi jarðmyndana og nýting
náttúruauðlinda. Bent verður á
áhugaverða skoðunarstaði og
skemmtilegar gönguleiðir.
Tilgangur ferðarinnar er m.a. sá
að vekja athygli á hinni brýnu þörf
á að unnið verði að markvissri
kynningu á svæði þessu. Einnig
verður vakin athygÚ á því hvers
þurfi að gæta í umgengni við nátt-
úruauðlindir Reykjanesskagans
svo að þeim verði ekki spillt frekar
en orðið er fyrir komandi kynslóð-
um.
Fyrsti viðkomustaðurinn er
Njarðvíkurfitjamar en þaðan verð-
ur haldið til Grindavíkur, í Einis-
dal, til Krýsuvíkur og yfir Bláfjalla-
veginn að Suðurlandsvegi. Stansað
veröur á völdum stöðum til vett-
vangskönnunar. Ferðalok verða kl.
18 við Norræna húsið.
Þátttakendur em hvattir til að
hafa með sér nesti en kostur verður
gefinn á að fara á matsölustað í
Grindavík. Þeir sem vilja koma í
rútuna á leiðinni geta látið skrásig
í síma 91-15800 fyrir laugardag. Öll-
um er heimil þátttaka í ferð þessari
og fargjaldið er 800 krónur. Leið-
sögumaður verður Freysteinn Sig-
urðsson jarðfræðingur.
Stuðmenn i búningum Hjálpræðishersins. Þeir leika á Austurlandinu
um helgina.
Stuðmenn á
Austfjörðum
Stórhljómsveitin Stuðmenn úr
Reykjavík heldur áfram tónleika-
ferð sinni um landið um þessa
helgi. Sveinamir troða í kvöld upp
á nýjum stað í æskubyggð Þór-
bergs, Suðursveitinni. Hrollaugs-
staðir heitir þar. Kvöldið efdr,
laugardagskvöld, verður leikið í
Egilsbúð á Neskaupstað en þar er
sterkt vígi þeirra Stuðmanna.
Að vanda verður leikin hæfileg
blanda af nýjum lögum og gömlum,
eitthvað við allra hæfi, og ekki að
efa að Austfirðingar munu kunna
gott að meta.
Hilmar Jensson, Tómas R. Einarsson og Sigurður Flosason leika djass
í Djúpinu næstu tvær vikurnar eða svo.
Galtalækur:
Sumarmót AA
samtakanna
AA samtökin ætla að halda sum-
armót sitt í Galtalækjarskógi um
helgina. Hátíðin hefst í dag, fóstu-
dag, og lýkur á sunnudag.
Margt verður sér til gamans gert
fyrir austan, skemmtanir fyrir
bæði böm og fullorðna. André
Backmann og félagar leika fyrir
dansi af sinni alkunnu snilld ásamt
diskótekinu Tommi Sicko. Sýnd
verða atriði úr Öllu vitlausu og
Rokkskóm og bítlahári. Og ekki
má gleyma fiölskylduskemmtun-
inni og bamadansleiknum þar sem
trúðurinn Jógi mun leika við hvem
sinn fingur. Og einhvern tíma verð-
ur kveiktur varðeldur.
Ekki gleymist fæðan, hvorki ver-
aldleg né andleg. Sameiginlegt grill
verður á staðnum og flutt verður
hugvekja. Þá verða fundir hjá AA
og Al-anon.
Aðgangseyrir að sumarmótinu er
1600 krónur en böm innan 16 ára
aldurs fá ókeypis inn.
André Backmann og félagar hans leika fyrir dansi á sumarmóti AA
samtakanna í Galtalæk um helgina.
Október
Hljómsveitin október spilar um
helgina á Café Hressó, fomum veit-
ingastað í hjarta borgarinnar og
nú einu af höfuðvígjum íslenskrar
rokktónlistar. Leikið verður á
fostudags- og laugardagskvöld og
hefst hljóðfæraslátturinn kl. 22.
Októbermenn hafa kynnt tónlist
sína víða að undanfömu á hljóm-
leikum, óvenjulega blöndu af fín-
gerðum grípandi melódíum og
þrumandi rokki sem mótaðist í
þeim tónheimi sem nýbylgjan
skapaði. Söngkona sveitarinnar er
Hanna Steina.
Gestur Október á hljómleikunum
verður Te, efnileg hljómsveit meö
fjölbreytilegt efnisval.
á Hressó
Hanna Steina og Október verða á
Hressó um helgina.
Viking Band
í Glæsibæ
Færeyska hljómsveitin Viking
Band ásamt Georgi Eysaná leika
fyrir dansi í Glæsibæ um helgina.
Sveitin hefur gert víðreist um
landið að undanfomu og kynnt
landanum færeyskt rokk. Færey-
ingar em boðnir velkomnir á
dansiballið svo og íslendingar allir.
Meðalfellsvatn:
Laugardaginn 8. júlí er hreins- og harmóníkuleikari spilar vel
unardagur viö Meðalfellsvatn. valin lög. Fleira verður tíl
Gengið verður á fjörur vatnsins skeramtunar og loks á að dansa
og um nánasta umhverfi þess og fram á nótt.
allt rusl fjarlægt. Afrakstrinum Sumarbústaðareigendur eru
verður síðan safhað f heliarraik- hvattir til að hreinsa vél í kring-
inn báMst og kveikt í stundvfs- um hús sfn og mæta við bálköst-
lega kl. 20. Pylsur verða grillaðar inn ki 20.