Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1989, Side 10
u
■10
MÁNUD'AGUR 31. JÚLÍ Í989.
Utlönd
Ósamlyndi á
friðarrádstefnu
Shevardnadze, sovéski utanríkisráðherrann, og Baker, hinn bandaríski
starfsbróðir hans, áður en viðræður þeirra fóru fram um helgina.
Simamynd Reuter
Leiðtoga-
fundur í
sjónmáli?
Illa horflr um frið í Kambódíu eftir
fyrsta dag nítján þjóða ráðstefnu sem
hófst í París í gær um leiðir til að
sætta stríðandi fylkingar í landinu.
Stjórnarerindrekar sögðu að bilið
milli deiluaðila virtist óbrúanlegt á
sama tíma og hersveitir þeirra til-
kynntu um átök sín í milli.
Fulltrúar á ráðstefnunni körpuðu
um grundvallaratriði eins og hvort
rauðu khmerarnir, sem sakaðir eru
um að hafa myrt milljón manns á
valdatíma sínum á síðasta áratug,
ættu aö fá að taka þátt í næstu stjórn
landsins og hvort Sameinuðu þjóð-
irnar ættu að taka þátt í friðarumleit-
ununum.
Bandaríkin og Asíuríki sem ekki
lúta stjórn kommúnista hvöttu til
þess að stjórnin í Kambódíu, sem er
höll undir Víetnama, væri leyst upp
og að Sihanouk fursti sneri heim úr
útlegð til að veita nýrri ríkisstjórn
landsins forystu. Eduard She-
vardnadze, utanríkisráðherra Sovét-
ríkjanna, brást harkalega við gagn-
rýni á stjórnirnar í Phnom Penh og
Hanoi og sagði við fréttamenn að
þetta ætti að vera friðarráðstefna.
Javier Perez de Cuellar, aðalritari
Sameinuðu þjóðanna, hvatti til þess
að rannsóknarnefnd yrði þegar send
til Kambódíu og sagði að eftirlits-
sveitir yrðu að vera í landinu, þótt í
litlum mæh væri, áður en Víetnamar
hæfu brottflutning herja sinna í sept-
ember. Shevardnadze gagnrýndi
friðarumleitanir S.Þ. í Afganistan og
sagði aö samtökin yrðu að vera óvil-
hallari áður en þau gætu tekið þátt
í sáttatilraunum í kambódíu.
Hersveitir andspyrnuhreyfingar-
innar í Kambódíu sendu frá sér til-
kynningu þar sem þær sökuðu ,,ár-
ásarsveitir Víetnama“ um harðar
sprengjuárásir á tælenskt landsvæði
með þeim afleiðingum að bæði
kambódískir flóttamenn og Tælend-
ingar létu lífið. Kambódíski herinn
tilkynnti að hann hefði gert 22 árásir
og drepiö 36 skæruliða.
Skærur brutust út á landamærum
Kambódíu og Tælands.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, lýsti því yfir á ráö-
stefnunni í gær að stjórnin í Was-
hington styddi stjómarþátttöku
rauðu khmeranna gegn því að ‘Pol
Pot og aðrir illræmdir leiðtogar
þeirra kæmu þar hvergi nærri. Ba-
ker sagði að nýja stjórnin í Kambód-
íu fengi þeim mun minni stuðning
frá Bandaríkjunum eftir því sem
rauöu khmerarnir gegndu stærra
hlutverki. Sihanouk fursti, leiðtogi
samfylkingar andspyrnuhreyfing-
anna, heldur því fram að stjórnar-
þátttaka rauðu khmeranna sé nauð-
synleg til að koma á þjóðarsátt.
Qian Qichen, utanríkisráðherra
Kína, sem er í fyrstu ferð sinni til
útlanda eftir átökin í heimalandi
hans, hvatti til þess að stríðandi fylk-
ingamar fjórar deildu með sér völd-
um og að utanaðkomandi afskiptum
af deilunni yrði hætt.
Reuter
Viðræður utanríkisráðherra Sov-
étríkjanna og Bandaríkjanna um
helgina hafa flýtt fyrir hugsanlegum
leiðtogafundi stórveldanna að sögn
fréttaskýrenda. Utanríkisráðherr-
amir, sem báðir taka þátt í friöarráð-
stefnu um Kambódíu sem fram fer í
París, hafa ákveðið að funda 19. og
20. september og munu þá hefja und-
irbúning leiðtogafundar Bush
Bandaríkjaforseta og Gorbatsjov
Sovétforseta.
Shevardnadze, sovéski utanríkis-
ráðherrann, sagði að til leiðtogafund-
ar gæti komið „fljótlega" ef viðræð-
urnar í september gengju vel. Baker,
bandaríski starfsbróðir hans, vildi
aftur á móti ekki tjá sig um hugsan-
lega dagsetningu.
Sovétmenn vilja aö leiðtogafundur
hefjist hið fyrsta en fyrrum forseti
Bandaríkjanna, Ronald Reagan, og
Gorbatsjov hittust fimm sinnum á
þremur áram.
Á hinum fyrirhugaða ráðherra-
fundi í september verður m.a. rætt
um afvopnunarmál, mannréttindi,
tvíhliða samskipti þjóðanna, um-
hverfismál, auk undirbúnings fyrir
leiðtogafund.
Á síðasta fundi fulltrúa Sovét-
manna og Bandaríkjamanna stálu
þeir fyrrnefndu senunni af Baker
með því að taka enn eitt frumkvæðiö
í afvopnunarmálum. En fundurinn í
París um helgina var öllu rólegri.
Þeir ræddu saman í klukkustund
lengur en áætlað var og sögðu banda-
rískir embættismenn að viðræðurn-
ar hefðu verið gagnlegar. Sovétmenn
lögðu fram tilboð um að flýta banni
við notkun efnavopna og auka sam-
vinnu þjóðanna á sviði vísinda og
efnahagsmála. Bandaríkjamenn
lögðu fram tilboð um tæknilega aö-
stoð við þann mikla efnahagslega
vanda sem ríkir í Sovétríkjunum. En
mestur tími ráðherranna fór í að
ræða umbótastefnu Gorbatsjovs, auk
staðbundinna deilumála.
Reuter
Kambódisk kona stendur i rigningu fyrir utan ráöstefnusalinn í Paris. Á
skiltinu stendur: Frióur í Kambódíu, sjálfstæöi. Símamynd Reuter
VERÐ FRÁ KR.
ARNARFLUG
Lágmúla 7, sími 91-84477, Austurstræti 22, sími 91-623060.