Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1989, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1989, Blaðsíða 44
44 Jarðarfarir Guðjón Pétursson skipstjóri lést 20. júlí sl. Hann fæddist á Stóru-Vatnsleysu ^■20. september 1902, sonur hjónanna Pét- urs Jóakimssonar og Agnesar Felixdótt- ur. Hann mun hafa alist upp frá unga aldri hjá fósturforeldrum, f.rst í Flekku- vík og síðar í Hafnarflrði. Snémma fór Guðjón að stunda sjóinn. Hann var sjó- maður í 34 ár sem háseti, stýrimaður og skipstjóri. Hann kvæntist Jóhönnu Guð- mundsdóttur 19. maí 1928, hún dó 24. nóvember 1970. Þeim varð ekki barna auðið. Útfór hans verður gerð frá Árbæj- arkirkju í dag kl. 13.30. Helga Magnúsdóttir kennari andaðist 25. júlí sl. Helga átti æskustöðvar í Ólafs- vík, dóttir prestshjónanna sr. Magnúsar Guðmundssonar og Rósu Th. Einars- dóttur. Hún var heitbundin Friðriki Ól- afssyni kennara en hann lést úr hvit- blæði 18. desember 1942. Helga starfaði í skóla ísaks Jónssonar sem kennari og einnig sem skólastjóri. Hún var líka ráð- in æfingakennari við Kennaraskóla ís- lands og Kennaraháskóla íslands er hann tók til starfa. Á löngum starfsferh voru henni falin mörg trúnaðarstörf svo sem formennsku í sumarstarfi KFUK. Útfór hennar verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavik í dag ki. 13.30. Óskar örn Jónsson lést 24. júli sl. Hann fæddist i Hafnarfirði 9. desember 1966, sonur Lilju A. Guðmundsdóttur og Jóns Grétars Öskarssonar. Hann ólst upp í Hafnarfirði fyrstu ár ævi siimar. Þegar hann var fiögurra ára gamall flutti fjöl- skyldan til Kanada þar sem faðir hans fór til náms. Fljótlega eftir heimkomuna shtu foreldrar hans samvistum. Nokkr- jim árum síðar flutti hann til Sviþjóðar með móður sinni. Faðir hans lést nokkru síðar. Síðustu árin þurfti Óskar að glíma við erfiðan sjúkdóm. Útfor hans verður gerð frá Fella- og Hólakirkju í dag kl. 15. Borgarspítalanum miðvikudaginn 26. júlí MÁNutíAGUR ll. JÚL*! 10891' Merming sl. Klara fæddist 8. janúar 1898 í Innri- Fagradal í Saurbæ í Dalasýslu. Foreldrar ' hennar voru hjónin Rögnvaldur Magnús- en og Anna Soffía Oddsdóttir. Klara Ólst upp í Dalasýslu, lengst af í Tjaldanesi en flutti síðan til Reykjavíkur. Þar kynntist hún eiginmanni sínum, Skúla Símon Eggertssyni, og gengu þau í hjónaband árið 1925. Klara og Skúh eignuðust eina dóttrn-. Útfór hennar verður gerð frá nýju kapehunni í Fossvogi í dag kl. 13.30. Jórunn Norðmann, Skeggjagötu 10, Reykjavík, sem lést sunnudaginn 23. júh sL, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 1. ágúst kl. 15. Þorvaldur Guðmundsson frá Deplum verður jarðsunginn frá Siglufjarðar- kirkju miövikudaginn 2. ágúst kl. 14. Sigurmundur Einarsson, EUi- og hjúkrunarheimilinu Grund, andaðist 19. júh sl. Útfórin verður gerð frá Fíladelfiu- kirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 1. ágúst kl. 13.30. Peimavinir Giraud Jocelyn óskar eftir íslenskum pennavini. Heimihsfangiö er: 6, Square Hoche 94200 Iury-Sur-Seine France. Philippe Cléroy óskar eftir íslenskum pennavini, getur bæði skrifað á ensku og frönsku. Áhugamál eru margvísleg, t.d. saga og landafræði. Heimihsfangið er: Résidence Froutdecher 30, Aheé de Venise F. 37200 Toors France. Ferðalög Útivist. Ferðir um verslunarmannahelgi, 4.-7. ágúst. Þórsmörk. Heim á sunnudegi eða mánu- degi, einnig sunnudagsferð. Langisjór - Sveinstindur - Lakagígar Fjallabaksleið syðri. Gist í svefnpoka- plássi í félagsheimih Skaftártungu- manna. Núpsstaðarskógar. Tjöld. Kynnist þessu margrómaða svæöi. Hólaskógur - Landmannalaugar - Gljúfurleit. Ný ferð. Gist í húsum. Munið fjölskylduhelgina í Þórsmörk 11.-13. ágúst. Uppl. og farm. á skrifst., Grófmni 1, símar 14606 eða 23732. Sjáumst. Listasafn íslands Mynd mánaðarins Mynd ágústmánaðar í Listasafni íslands er Úr Þingvahahrauni, eftir Finn Jónsson listmálara. Hér er um að ræða olíumál- verk frá árinu 1953. Listamaðurinn og eiginkona hans gáfu Listasafninu mál- verkið árið 1985 og er það til sýnis í sal 2. Leiðsögnin „Mynd mánaðarins" fer fram í fylgd sérfræðings á fimmtudögum kl. 13.30-13.35. Listasafnið er opiö aha daga nema mánudaga kl. 11-17. Alþýðuleikhúsið sýnir i íslensku óper- unni á Hundadögum: MACBETH Höfundur: William Shakespeare Þýðing: Sverrir Hólmarsson Lýsing: Árni J. Baldvinsson Leikstjórn: Inga Bjarnason Leikmynd: Gunnar Úrn Búningar: Gerla Tónlist: Leilur Þórarinsson Aðstoðarleikstjóri: Ingunn Ásdísardóttir Sviðshreyfingar: Lára Stefánsdóttir Förðun: Kristín Thors Hundadagar ’89, eöa Dies Canic- ulares, er yfirskrift listahátíöar á sumri og hófust dagskráratriði í gær. Næsta mánuðinn munu síðan hvers kyns listviðburðir ylja áhugamönnum um hjartarætur og þó að ekki skíni úti sól má bæta sér það upp með því að fylgjast með ýmsu sem á boðstólum er innan dyra. Sýning Alþýðuleikhússins á Mac- beth, einhverju stórbrotnasta verki leikbókmenntanna fyrr og síðar, er einn liður í dagskránni og var frumsýningin í húsi íslensku óper- unnar í gærkvöldi. Viö uppsetninguna er greinilega ekki ætlunin að fara með löndum heldur virðist vera lagt upp með það að leiöarljósi að þessi viða- mikla sýning verði hvöss, hröð og forvitnileg. Þetta tekst að sumu leyti en það eru þó ekki stórskorn- ir hausar í sviðsmynd Gunnars Arnar, ágeng tónlist Leifs Þórar- inssonar eða brettur og kóngulóar- kenndar hreyfingar nornanna sex sem valda þar mestu um. Inga Bjarnason leikstjóri hefur valið gott lið leikenda í sýninguna og nær athyglisverðum' árangri. Það er einmitt leikurinn og svo auðvitaö inntak verksins sem er sterkast í sýningunni, hitt er svo eins og krydd með og sumu jafnvel ofaukiö. Þá sætir það líka tíöindum að hér heyrist í fyrsta sinn ný þýöing verksins, þýðing þar sem nokkuð frjálslegar er farið með bragarhátt og rím en í fyrri þýöingum og leit- ast er viö að skúa textanum sem leikhæfustum. Sverrir Hólmarsson gerði þýðinguna og verður fjallað sérstaklega um hana síðar hér í blaöinu þar sem hún kemur út á bók um þessar mundir. Það kann að virðast ofdirfska að leggja til atlögu við texta sem tii er fyrir í þýðingu tveggja slíkra jöfra sem Matthíasar Jochumsson- ar og Helga Hálfdanarsonar og efa- laust skiptar skoðanir á því-hvort slíkt sé til bóta. En þýðing Sverris heyrðist mér ná því yfirbragði að vera lipur í flutningi, textinn hefur ekki skáld- legt yfirbragö, hann liggur nærri nútíma talmáli og var á að heyra vel gerður sem slíkur. Þó að komin séu hátt í fjögur hundruð ár síðan Shakespeare Erlingur Gíslason í hlutverki Macbeths. Leiklist Auður Eydal skrifaði leikritið og atburðirnir, sem fjallað er um, hafi gerst enn þá fleiri öldum fyrir hans daga er kynngi höfundar og orðsnilld ein- stök og gerir menn andaktuga enn í dag. Kjarninn í verkinu er heldur ekki háður ytri aðstæðum. Höfundur skyggnist um, kafar í mannlegt eðli og gegnumlýsir persónurnar af skarpskyggni. Þó að forsendur hafi breyst og hér í okkar heims- hluta tíðkist þaö að menn ryöji keppinautum sínum úr vegi meö öðrum hætti en gert var á dögum Macbeths eru valdagræðgi og drottnunargirni vel þekkt fyrir- bæri enn, þó svo að mannorðs- morðin hafa leyst sjálf sverðalögin af hólmi. Leikrit Shakaspeares um skoska kónginn Macbeth er fullt af myrkri og ógn og fjallar um þaö hvernig sök bítur sekan. Erlingur Gíslason leikur Mac- beth og sýnir á áhrifamikinn hátt hvernig heiðraður, trúr og virtur höfðingi svíkur herra sinn af því að seiðkonur spá honum konung- dómi. Til þess að Macbeth hljóti þá tign þarf hann að vinna það til að drepa kónginn með eigin hendi. En þessi drottinssvik og önnur voðaverk, sem fylgja í kjölfarið til þess að styrkja stööuna, taka sinn toll og smám saman missir Mac- beth tökin og hverfur æ lengra inn í heim ranghugmynda og ofskynj- ana, hundeltur af hroðalegum ímyndum þeirra sem hann hefur fyrirkomið. Höfundur lætur aö því liggja að Macbeth hlusti á nornaseiðinn og taki mark á honum vegna þess aö hann ali innst inni með sér löngun til valda sem að öðru jöfnu hefðu aldrei orðið hans. Sú breyting sem veröur á mann- inum frá því að hann er virðulegur höfðingi til þess er hann þjakaður af samviskukvölum upplifir ýtrustu ógnir hugarvíls og martr- aðar verður einkar skýr í með- fórum Erlings sem leikur þetta stórbrotna hlutverk af öryggi og innsæi. Eitur illverkanna tærir manninn innan frá og lausnin fyrir hann og þjóð hans getur aðeins orðið ein. Þétt við hlið hans stendur lafði Macbeth sem stýrir hönd og hvetur til voðaverksins þegar honum bregst kjarkur í upphafi. í leik Margrétar Ákadóttur var jöfn stíg- andi og saman áttu þau Erlingur nokkrar af sterkustu stundum kvöldsins. Atriðið þar sem lafðin eggjar mann sinn og tekur síðan þátt í drápi konungs var eitt þeirra en þó varð leikur Margrétar enn sterkari þegar á leiö. Lafði Macbeth, sem er annálað- asta kvendi leikbókmenntanna, hlýtur sína hegningu þegar hún, svipt sálarró, gengur um í svefni og endurlifir ógnir morðnæturinn- ar. Þetta atriði var mjög vel unnið og hádramatískt eins og vera ber. Aðalsmenn og aörir, sem við sögu koma, eru m.a. leiknir af þeim Harald G. Haralds, sem er öruggur í hlutverki MacDuífs. Andri Orn Clausen er líka góöur í hlutverki Banquos og Viðar , Eggertsson traustur sem Lennox. Björn Karlsson var í nokkrum hlutverkur, þar af var hlutverk Duncans konungs veigamest. Gunnar Rafn Guðmundsson kom vel fyrir sem aðalsmaðurinn Ross en hafði óeðlilega framsögn og Kristján Franklín Magnús náði sér ekki á strik í hlutverki hins göfuga Malcolms. Þannig fór veigamikiö atriði, þar sem MacDuffs eru færð- ar fréttir af því að eiginkona hans og börn hafi verið myrt af útsend- urum konungs, alveg í vaskinn, varð ósannfærandi og innantómt. Þeir Daði og ívar Sverrissynir leika báðir af öryggi og þokka, svo ungir sem þeir eru, og Jónína Ól- afsdóttir sló á rétta strengi í litlu hlutverki lafði MacDuff. Valgeir Skagfjörð var mjög roðinn blóði, bæði sínu eigin og annarra, og skil- aði hlutverki illmennis eins og til stóð. Eins og ýjað var að hér að framan var þannig leikurinn sterkari en umbúðirnar sem stundum trufluöu frekar en hitt. Búningar Gerlu voru prýðilega útfærðir og sviðsmynd Gunnars Arnar viðunandi nema andlitin gríðarstóru sem náðu ekki neinni samlögun við gang verksins og voru þarna eins og minjagripir frá Mexíkó. Eilífur snúningur norn- anna á þessum ferlíkjum mynduðu óþarfa millikafla og trufluðu gang verksins. Nornirnar sex voru líka óþarflega fyrirferðarmiklar og til- burðir þeirra stundum til þess eins að drepa framvindunni á dreif. Enda sýndi það sig að þær Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir og Sigurveig Jónsdóttir, hver um sig hin magn- aðasta norn, önnuðust nomaþátt- inn að mestu en hinar urðu hálfut- anveltu. Þessar þrjár brugðu sér líka í fleiri hlutverk, þjóna og dyravarða m.m. Tónlist Leifs Þórarinssonar var víðast góð, skapaði rétt andrúms- loft seiðs og galdra og gaf til kynna ógn og hættu. Hún varð þó full ágeng á stundum og óþarflega mögnuð upp í tækjunum. Hylling- arstefið undir lokin fannst mér gott og hefði mín vegna mátt setja þar punkt og sleppa hallelújakórnum. Þetta er sjálfsagt viðamesta upp- færsla Alþýöuleikhússins til þessa og hreint ekki lítiö afrek að koma henni upp. Sýningafjöldi verður takmarkaður að sinni þannig að betra er að hafa hraðan á vilji menn vera öruggir um að sjá þessa sýn- ingu. AE Sök bítur sekan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.