Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1989, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1989, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1989. 5 Fréttir Álviðræðumar: Ahugi fyrir stækkun - nýr fundur 1 október Eftir vinnufund, sem haldinn var í Stokkhólmi í síðustu viku, er enn greinilega miíull áhugi fyrir hendi hjá þeim erlendu aðilum sem hugs- anlega tækju þátt í stækkun álvers- ins í Straumsvík. Ýmislegt nýtt kom fram á fundinum og mun stækkun þykja hagkvæmari kostur en nýtt álver. Samkvæmt heimildum DV eru þó allir möguleikar opnir enn. Aðilar hafa ákveðið að hittast aftur í október þegar nákvæmari kostnað- arathuganir hafa farið fram. Erlendu aðilamir hafa lýst áhuga á að orku- verð frá Landsvirkjun yrði það sama og hægt er að fá í Ástralíu og Kanada. Það mun vera álíka hátt í þeim Iönd- um er til lengri tíma er litið. Á næstunni mun nánar verða skoðað hver stofn- og rekstrarkostn- aður verður og spáð nánar í framtíð iðnaðar í heiminum. Ekki hefur enn verið gerð nákvæm samanburðarút- tekt á launakostnaði hér og annars staðar. Samkvæmt heimildum DV mun fulltrúum stóriðjunefndar þykja það athyglisverðast að enn er áhugi allra fyrir hendi á íslandi. Jóhannes Nor- dal, formaður stóriðjunefndar, sagði við DV í síðustu viku að menn væru enníalvarlegumviðræðum. -ÓTT Menntamálaráöherra skipar LÍN að hækka lánin: Vill nýja stjórn LÍN Komið og sannfærist um gæðin, Sólstofur - Svaíahýsi Sýnum laugardag og sunnudag kl. 13-18 sólstofu, renniglugga, renni- hurðir, útihurðir, fellihurð o.fl. úr viðhaldsfríu PVC-efni. pjr—Í^Giluggar og Gardhús hf. Smiðsbúð 8, 210 Garðabæ, sími-44300. Menntamálaráðherra hefur lagt fyrir ríkisstjómina drög að frum- varpi um breytingu á lögum um LÍN. Drögin gera ráð fyrir breytingu á skipan Lánasjóðsstjómar og að hún verði skipuð til tveggja ára í senn. í gildandi lögum er gert ráð fyrir fjög- urra ára skipun fulltrúa mennta- málaráðuneytisins sem gerir það að verkum að Sigurbjörn Magnússon, starfsmaöur þingflokks sjálfstæðis- manna, er fulltrúi menntamálaráð- herra nú. „Ég er algerlega andvígur þessari breytingu því skipun fulltrúa í stjórn LÍN ætti að fylgja ráðherra. Meginat- riðið ætti að vera að koma í veg fyrir að í stjórn sitji fulltrúi ríkisstjórnar sem fer frá og ætti það reyndar að gilda um fleiri sjóði. Það verður ekki tryggt með þessum tillögum,“ sagði Sigurbjörn. Svavar Gestsson menntamálaráð- herra hefur skipað stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna að hækka framfærslugrunn námslána um 10,3% og kemur það til framkvæmda 1. september. Framfærsla náms- manns í leiguhúsnæði hækkar því í 40.197 kr. á mánuði úr 34.916 kr. eða um 27%. Þar með hefur menntamálaráð- herra svarað kröfugerð stjórnar LÍN sem fór fram á skriflega skipun til að framfylgja ákvörðun ráðherra um sérstaka 5% hækkun á framfærslu- grunni. Hin 5% eru vegna verðlags- breytinga. í tilkynningu frá menntamála- ráðuneytinu kemur fram að ekki mun liggja fyrir fyrr en í október hvaöa áhrif þetta hefur á stöðu LÍN og því verði að taka á því þá með framlagningu fjáraukalaga til að brúa það bil sem myndast. Telur stjóm LÍN að 250 til 300 milljónir vanti frá því sem gert sé ráð fyrir í Bílaskoöun: Byrjað að klippa í Árnessýslu Lögreglan í Ámessýslu er byrjuð að klippa númer af þeim bílum sem ekki hafa verið færðir til skoðunar. Einn lögreglumaður og starfsmaður Bifreiðaskoðunar íslands ferðast um héraðið og klippa númer af óskoðuð- um bílum. Þá bíla, sem eru með tölustafina einn til fimm sem aftasta staf í núm- eri, á að vera búið að skoða. Eigend- ur þeirra bíla eiga því á hættu að núme’rin verði klippt af séu bílamir enn óskoöaðir. -sme fjárlögum. 143 milljónir séu komnar tilvegnaákvarðanaSvavars. -SMJ NISSAN: Mest seldi japanski bíllinn í Evrópu í mörg ár Munum selja á næstu dögum auk annarra NISSAN bíla af 1989 árgerð með afslætti. - Lítió inn og leyfið okkur að koma ykkur á óvart! Við bjóðum m.a. 25% út og eftirstöðvar á allt að þremur árum með venjulegum lánakjörum banka. Ingvar Helgason hf Sævarhöfða 2, sími 674000 Munið bílasýninguna laugardag og sunnudag kl' 14.00-17.00. - réttur bíll á réttum stað SUNIMY jniiiiiiiiy.yyi a ~~rsm m wmr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.