Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1989, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1989, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1989. Viðskipti_____________________________________________________________________dv Samherjamennirnir á Akureyri: I U GERÐIRAF LEÐUR- HVÍLDARSTÓLUM MEÐ SKEMLI Opið laugardag 9-17, sunnudag 14-17, TM-HUSGOGN Síðumúla 30 — Sími 68-68-22 Saga þeirra er frekar eins og bíómynd en raunveruleiki ftvMiu‘"•j’ m , _i 0 ... iíÆib?!# " „ »s ,,r 1' . » , , M:.. „ rh* i j., i'níi»••• wúi ’nmh^, ,, m ■ ■ CS*^;.&55f3í5*«"*• *£&■*" / , , ,.. .. ■ ; ■ ■■■ ::...’ í ■•■■ m .JllWUL- ‘í i /„.uiiííi®* ú„, ’iCwrf ■■-'"* #p .f .! ^ 'c , ;u I , ”‘‘l ^iuí.tI ?r> rf ' ''■;''' l , 'jh V«r 'f1' ' ' „j , ', 1)á, Jf^í,.r* ’* ^ Viðtal DV við Þorstein Vilhelmsson sumarið 1985 þegar Samherjamenn keyptu, ásamt Hagvirki og Jóni S. Friðjóns- syni verkfræðingi, Bæjarútgerð Hafnarfjarðar. Saga Samherjamannanna á Akur- eyri, bræðranna Þorsteins og Krist- jáns Vilhelmssona og frænda þeirra, Þorsteins Más Baldvinssonar, er frekar eins og lygileg saga í bíómynd en kaldur raunveruleikinn að mati útgerðarmanna sem DV ræddi við í gær. Þeir frændur keyptu í vikunni frystitogarann Arinbjörn RE úr Reykjavík. Fyrr á árinu hafa þeir keypt einn togara og nokkra báta. Ævintýri þeirra hófst árið 1983 þeg- ar þeir tæplega þrítugir keyptu tog- arann Guðstein þar sem hann lá ryðgaður og í reiðileysi í höfninni í Hafnarfirði. Þeir breyttu Guðsteini í frystitogara. Sá hlaut nafnið Akur- eyrin og hefur síðan malað gull fyrir þá frændur. Mikill mettogari það. Galdramenn með töfrasprota Kaup Útgerðarfélagsins Samherja hf., sem frændurnir eiga, á Arinbirni fyrr í vikunni virðast vera kornið sem fyllti mælinn því nú er mikið rætt um dugnað og framtakssemi þeirra félaga. Nú er þeim frekar líkt við galdramenn með töfrasprota. Hvemig fara þeir að þessu? Hvernig geta þeir þetta? Hvar fá þeir peninga? Þetta em spurningar sem menn í útgerð spyrja sig. Það var áriö 1983 sem þeir frænd- ur, Þorsteinn, Þorsteinn Már og Kristján, keyptu Guðstein og breyttu í Akureyrina. Síðan komust þeir í fréttirnar 20. júní árið 1985 þegar þeir keyptu Bæjarútgerð Hafnar- fjaröar ásamt Hagvirki og Jóni S. Friðjónssyni verkfræðingi sem þá starfaði að framleiðslumálum fyrir Sölumiöstöð hraðfrystihúsanna. Nafni Bæjarútgerðarinnar var breytt í Hvaleyri hf. Með í kaupunum á Bæjarútgerðinni fylgdu tveir ísfisk- togarar, Mai og Apríl. Þrítugir og áttu þrjá togara Þar með vom þeir Samherjafrænd- ur orðnir eigendur að þremur togur- um og hluta í frystihúsi. Þetta þótti lygilegt árið 1985. Nú er það orð ekki lengur notað. Það þykir of vægt til orða tekið. Engin yfirbygging eða flottræfilsháttur Þegar þeir frændur, Þorsteinn Már Baldvinsson og Þorsteinn Vilhelms- son, sátu annan stjórnarfund Hval- eyrar, sem haldinn var í húsakynn- um Hagvirkis tveimur klukkustund- um áður en skrifaö var undir kaup- samninginn á Bæjarútgerðinni, vakti það athygli undirritaðs hvernig þeir frændur og athafnamenn voru klæddir. Það vora engin jakkaföt, hvað þá bindi. Báðir vom í látlausum Fréttaljós Jón G. Hauksson úlpum og í gallabuxum. Gott ef Þor- steinn skipstjóri var ekki á íþrótta- skóm. Svona settust þeir við fundar- borðiö. Togaranum Maí var strax breytt í frystitogara og hlaut hann nafið Margrét. Árið 1987 keyptu Samherja- menn togarann Oddeyrina ásamt Akureyrarbæ og Niðursuðuverk- smiðju K. Jónssonar. Þeir hafa keypt heilan flota þeir togarann Sveinborgu frá Siglu- flrði og hlaut hún nafnið Þorsteinn. Eflaust muna flestir enn eftir frétt- unum af því þegar Þorsteinn lenti í ís og nær eyðilagðist. Eftir talsvert bras fengu þeir Samherjamenn að kaupa nýtt skip í stað Þorsteins og er það nú í smíðum fyrir þá á Spáni. Þorsteinn liggur hins vegar við bryggju á Akureyri. Síðan hafa Samherjamenn komist enn í fréttirnar vegna kaupa á skip- um í þeim tilgangi að hirða einungis kvóta þeirra. Þeir keyptu 100 tonna bát, Þorlák Helga. Hann hggur við bryggju á Akureyri. Þeir keyptu 80 tonna bát, Hraunsvíkina, og hirtu aðeins kvótann. Þeir keyptu 50 tonna bát, Auðbjörgu frá Árskógsströnd, og hirtu kvótann. Þá keyptu þeir í vor togaranri Álftafelhð frá Stöðvar- firði. Þau kaup komust heldur betur í fréttirnar vegna lélegs atvinnu- ástands á Stöðvarfirði. Álftafehið hlaut nafnið Hjalteyrin. Og ofan á öh skipakaupin á þessu ári bættu þeir svo frystitogaranum Arinbirni í safnið í vikunni. Þetta er flotinn Floti þeirra félaga er því þessi: frystitogarinn Akureyrin, frystitog- arinn Margrét, rækjutogarinn Odd- eyrin, sem raunar er með botnfisks- kvóta líka, togarinn Hjalteyrin og frystitogarinn Arinbjöm. Við bryggju liggja togarinn Þorsteinn og báturinn Þorlákur Helgi vegna úr- eldingar. Þá eru Hraunsvíkin og Auðbjörgin heldur ekki í rekstri. Auk þess eiga þeir hluta í togaran- um Víði, gamla Apríl, sem gerður er út frá Hafnarfirði á vegum Hvaleyr- arinnar. Pungað út vart minna en 700 milljónum á árinu Eftir stendur að þeir hafa keypt tvo togara og nokkur skip á þessu ári fyrir vart minna en 700 milljónir króna. Auk þess eru þeir með frysti- togara í smíðum á Spáni. Þegar DV ræddi við einn þeirra Samheijafélaga, Þorstein Vhhelms- son skipstjóra, í júní árið 1985 um tildrögin að kaupunum að Guðsteini árið 1983 sagði hann: „Er við rædd- um saman frændumir hafði Þor- steinn Már, sem þá vann sem skipa- verkfræðingur hjá skipasmíðastöö- inni í Njarðvík, oft á orði að hann æki margsinnis fram hjá togaranum Guðsteini sem lægi í reiðileysi í Hafnaríjarðarhöfn. Hann haföi áhuga á skipinu og áhugi okkar bræðra var einnig vaknaður. Það var því ákveðið að bjóða í skipið. Við áttum náttúrulega enga peninga, eins og gengur, og heföum aldrei fengið skipið nema vegna þess að það vildu engir aðrir kaupa það.“ Fáir skildu þá frændur Þannig hófst ævintýrið 1983. Þor- steinn Vhhelmsson hætti sem skip- stjóri hjá Útgerðarfélagi Akur- eyringa, sömuleiðis Kristján bróðir hans sem vélstjóri og Þorsteinn Már skipaverkfræðingur hætti hjá skipa- smíðastöðinni í Njarðvíkum. Enginn skhdi í þessum drengjum að segja upp öruggum og farsælum störfum og kaupa gamlan ryðkláf úr Firðin- um. -JGH Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóösbækurób. 10-12 Úb,lb,- Sb.Ab Sparireikningar 3jamán. uppsögn 10,5-15 Vb 6mán. uppsögn 12-17 Vb 12mán.uppsögn 11-14 Úb.Ab 18mán. uppsögn 26 Ib Tékkareikningar, alm. 2-7 Ab Sértékkareikningar 4-13 lb,Ab Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1,5-2 Vb 6mán. uppsögn 2,5-3,5 Allir nema Sp Innlánmeðsérkjörum 17,7-22,7 Ib Innlángengistryggð Bandarikjadalir 7,5-8,5 Ab Sterlingspund 12,5-13 Sb.Ab Vestur-þýskmörk * 5,25-6 Sb,Ab Danskarkrónur 7,75-8,5 Bb,lb,- V- b,Sp,A- ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 27,5-30 lb Viöskiptavíxlar(forv-) (1) kaupgengi Almenn skuldabréf 29-33,5 Ib Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir . Hlaupareikningar(yfirdr.) 35,5-39 Lb Utlán verðtryggð Skuldabréf 7-8,25 Lb Útlán til framleiðslu Isl. krónur 25-33,5 Úb SDR 9.75-10,25 Lb Bandaríkjadalir 10,5-11 Allirne- maÚb Sterlingspund 15,5-15,75 Allir nema Úb Vestur-þýsk mörk 8,25-8,5 Úb Húsnæðislán 3,5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 45,6 MEÐALVEXTIR Överðtr.ágúst89 35.3 Verðtr.ágúst 89 7,4 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala sept. 2584 stig Byggingavísitala sept. 471 stig Byggingavísitalasept. 147,3stig Húsaleiguvísitala 5%hækkaöi 1 .júlí VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 4,144 Einingabréf 2 2,289 Einingabréf 3 2,717 Skammtimabréf 1,421 Lífeyrisbréf 2,083 Gengisbréf 1.844 Kjarabréf 4,114 J Markbréf 2,184 Tekjubréf 1,779 Skyndibréf 1,244 Fjölþjóðabréf 1,268 Sjóósbréf 1 1,985 Sjóðsbréf 2 1,592 Sjóðsbréf 3 1,398 Sjóðsbréf 4 1,169 Vaxtasjóðsbréf 1,4020 HLUTABREF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Sjóvá-Almennar hf. 302 kr. Eimskip 377 kr. Flugleiðir 172 kr. Hampiðjan 167 kr. Hlutabréfasjóður 131 kr. Iðnaðarbankinn 165 kr. Skagstrendingur hf. 212 kr. Útvegsbankinn hf. 138 kr. Verslunarbankinn 146 kr. Tollvörugeymslan hf. 109 kr. (1) Við kaup á viðskiptavixlum og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaup- gengi, kge. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb=lðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast i DV á fimmtudögum. Ævintýrið hélt áfram. Næst keyptu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.