Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1989, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1989, Blaðsíða 12
FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 198ð. Spumingin Lesendur Hvað lestu fyrst í dagblöðunum? örn Valdimarsson: Sennilega forsíö- una og baksíðuna. Ragnar Traustason: Ég les sjóvarps- dagskrána fyrst. Jóna Þ. Vemharðsdóttir: Ég renni yfir innlendu fréttimar á baksíöu. Hörður Guðmundsson: Almennar fréttir á forsíðu og baksíðu. Vala Björg Garðarsdóttir: Fólk í fréttum og sviðsljós. Þórarinn Lindal Stcinþórsson: Bíla- auglýsingar og svona. Ég hef mikinn áhuga á bflum. „Úrval hótelherbergja i stórborgunum fyrir mun lægra verð en hér tíðk- ast.“ - Vísað til vegar frá The Clifton-Ford-hótelinu í London. Þær eru ekki allar við þjóðveginn, blessaðar skjaturnar. Fjártalning á þjóðveginum Konráð Friðfinnsson skrifar: Eitt sinn tók ég mér það bessaleyfi í gamni, vegna stöðugrar umræðu um málið, að telja alla fjárhópana er yrðu á leið minni og hindruðu for mina á þjóðveginmn frá Akureyri til Reykjavíkur, sæjust þá einhveijar skjátur til aö kasta tölu á. Aksturinn hóf ég í höfuðstað Norð- urlands. Bifreiðin lá vel á brautinni og kflómetrunum að baki fjölgaöi sí- fellt. Ein klukkustund leið. Síðan önnur. - Og þá, allt í einu, eins og skrattinn úr sauðarleggnum, birtast þrjár fullorðnar rúnar ær með fjögur hvít hymd og þijú koflótt svört lömb í eftirdragi. Jæja, hugsaði ég, þar byrjar ballið. Reyndar er upptalning þessi hálfgert ! plat þar sem roUumar heftu hvergi fór mína. Ég geystist nefnilega áfram og framhjá grasbítunum - létti aö vísu ástigið á bensínpinnann og gat ekki stfllt mig um að senda eitt píp að étandi hópnum, svona í kveðju- skyni. En nóg um það. Afram hélt ferðin. Hvert býUð á ! fætur öðm var að baki. Framundan I og á miðjum veginum greindi ég þúst. Þústin reyndist vera tvö „leikfong“ (bikkjur) að kljást. Ég hamaðist ár- angurslaust á bflflautunni og bölvaði tmntunum í hljóði. Renndi svo öku- tækinu fast upp að skepnunum og freistaði þess að fæla þær á brott en neyddist þess í stað til aö stöðva það til að forðast árekstur. Slökkti síðan á véUnni. Dágóöa stund horfði ég á gælur dýranna. Foröaðist að láta kræla á mér. Mundi aUt í einu eftir mynda- véUnni í aftursætinu og teygði mig varlega þangað til að grípa apparatiö og mundaði að ágætu mótfli. - En þá var búið með ást Maríu. Fákamir vöknuðu af dvalanum, leystu vind og þutu sem fætur toguðu beint af augum - burt frá hinum óboðna. Ferðalagið til borgarinnar var tíð- indalaust úr þessu, nema hvað ein- staka vagn á stangU skaust hjá. Fyr- irhuguð íjártalning mín varð þannig afskaplega létt og auðvelt að muna endanlegar tölur. En þær vora 10 kindur á 400 km leið - eða 40 lappir og 20 eym, hrífist menn frekar af hærri tölum. Mismunandi mjólkurumbúðir Óskaumbúöir bréfritara (og senni- lega fleiri) fyrir mjólkurlítrann. S.P. skrifar: Ég hef ferðast nokkuð um landið í sumar og komið við á ýmsum stöðum þar sem ég hef þurft að kaupa mjólk. Nánast aUs staðar annars staðar en á dreifingarsvæði Mjólkursamsöl- unnar hér em eins Utra mjólkumm- búðir í aflöngum fernum. Ég tók mynd af einni femunni til að sanna mál mitt og sendi til blaðsins. - Þessi er t.d. frá Kaupfélagi Austur-Skaft- felUnga. Það er aUt annað að nota þessar umbúðir en þær sem við hér í Reykjavík eigum að venjast. Þessar bláu, flötu fernur, sem við fáum hér, em hinar óhentugustu að öUu leyti. Þær er erfitt að opna, oftast þarf að opna þær með skæmm, og þær vilja leggjast saman og mjóUdn gusast úr þeim við minnsta þrýsting. Þessi sem myndin er af er hins vegar viðtekin femutegund víða um heim fyrir mjólk og aðra fljótandi drykkjarvöm, t.d. Trópísafann sem flestir þekkja. - Ég skora á Mjólkur- samsöluna að taka þessa tegund fema í notkun fyrir mjólk. Ég hef séð þær í búðum undir t.d. mysu (að mig minnir) svo að ekki ætti að vera erf- itt að taka þær alfarið í notkun fyrir eins lítra mjólkurumbúðir Uka. Rauða Ijónið brást Ofsareiöprjónakonaúrvesturbæn- íþróttafréttamaður þessi, sem um skrifar: þekktur er undir nafiiinu .JRauða Ég næ vart upp í nef mér vegna ljónið" og á að heita KR-ingur, var reiði yfir hlutdrægri lýsingu sí og æ að hrósa Frömurum í stað íþróttafréttamanns RUV frá bikar- þess aö hvetja sína menn til dáða. úrsUtaleiknum í knattspymu sl. - Gef ég honum því hér og nú viöur- sunnudag. nefinð „Bláa flóniö“. U m JL I ■ ■ ing hér er rándýr Ólafur Ólafsson skrifar: Ég var að lesa grein í DV í gær (29. ágúst) um verð á reykvískum hótel- um. Þar kom fram að nóttin getur farið yfir 10 þúsund krónur á dýr- ustu hótelunum í höfuðborginni. - Þar er einnig sagt að algengasta verð- ið á 2ja manna herbergjum á hótelum í Reykjavík sé á milli 6 og 7 þúsund krónur. Ég myndi þó frekar halda mig við töluna 7 þúsund því flest hóteUn eru með verðið um eða yfir þá tölu. Það sem mér fannst þó athyglis- verðast í fréttinni var að sá sem var talsmaður hótelanna hér var að koma því inn hjá fólki að í raun væri gisting hér ekkert dýrari en t.d. í London eða Kaupmannahöfn og raunar „ódýrari en í nágrannalönd- unum miðað við sams konar gæði“! Talsmaöur veitingasambandsins hér sagði einnig aö verð væri hærra hér á sumrin þegar mest er að gera, og þannig væri það alls staðar í heim- inum, og bætti við: „Enda em helstu viðskiptavinir okkar á sumrin út- lendingar." - Ég segi nú einfaldlega: Það er kannski þess vegna sem sjálf- sagt er að hækka verð á gistingu eins og hægt er úr því þetta em allt út- lendingar. - Það er þó viðurkennt í fréttinni að útlendingar kvarti yfir háu matarverði, enda mun hærra en annars staðar þekkist. Sannleikurinn er þó aUur annar, hvað sem talsmenn hótelanna fuU- yrða. Hann er að hótelgisting hér er rándýr, og einmitt miðað er viö sams konar gæði og í öörum löndum, og einnig ef litið er til þess hvar við er- um á hnettinum og hve erfitt er að ná ferðamönnu'm til landsins. - Að greiða rúmlega 7 þúsund krónur fyr- ir 2ja manna herbergi á hóteU, sem hefur lítið og stundum ekkert upp á að bjóða annað en herbergið og veit- ingasal, er vitfirring í verðlagningu. Þetta eru þó um 115 dollarar eða rúm 70 ensk pund og hægt er að fá úrval af hótelherbergjum, t.d. í New York og London, fyrir þær upphæðir og mun lægri á ágætum hótelum þar sem mun meira er á boðstólum en hér. Og hvað sem öUum samanburði Uð- ur þá mun það koma í ljós fyrr en varir að hótel hér á landi munu standa auð mestan hluta ársins ef verði á hótelgistingu verður ekki stiUt í hóf og því haldiö talsvert mik- ið fyrir neðan það sem gerist í ná- grannalöndum okkar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.