Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1989, Side 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsíngar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022
Frjálst, óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1989.
Þrjár breyt-
ingar á
' landsliðinu
- ekki öruggt með Sigurð
Þrjár breytingar hafa verið gerðar
á íslenska landsliðshópnum í knatt-
spyrnu sem mætir Austur-Þýska-
landi í heimsmeistarakeppninni á
Laugardalsvellinum á miövikudag-
inn. Ásgeir Sigurvinsson, Arnór
Guðjohnsen og Friörik Friðriksson
koma í staðinn fyrir Ólaf Þórðarson,
Gunnar Oddsson og Guðmund
Hreiðarsson.
Fimmtán leikmenn voru valdir í
morgun en sá sextándi er Sigurður
Jónsson. Ekki hefur fengist endanleg
staðfesting frá honum hvort hann
— kemst í leikinn. Hinir fnnmtán eru:
Bjarni Sigurðssoh, Gunnar Gíslason,
Guðni Bergsson, Ágúst Már Jónsson,
Sævar Jónsson, Asgeir Sigurvins-
son, Amór Guðjohnsen, Pétur Am-
þórsson, Ragnar Margeirsson, Sig-
urður Grétarsson, Guðmundur
Torfason, Rúnar Kristinsson, Friðrik
Friðriksson, Ómar Torfason og Viðar
Þorkelsson. -VS
Bflvelta í
Eyjafirði
Bíll valt á Moldhaugahálsi í Eyja-
firði um klukkan hálfþrjú í nótt.
Ökumaðurinn var einn í bílnum.
Hann slapp við meiðsh og bíllinn er
lítið skemmdur.
Ökumaðurinn er gmnaður um að
hafa verið ölvaður við aksturinn.
-sme
Stundatafla
fyrir veturinn
1989-1990
rtATH:
SKÓU:
DV hefur gefið út stundatöflu fyrir
^ skólanemendur. Áskrifendur fá
hana senda heim með blaðinu en
einnig getur fólk komið á afgreiðslu
DV og fengið eintak.
LOKI
Hvað ætli
manntalið kosti?
Greiðslukortasvik á Benidorm:
M M* ■ ■■ ■
wivfuir uAilmaA.
staður kærður
- fjölmargir íslendingar hafa orðiö fyrir svikmn
Visa hefúr kært virtan veitinga- um þúsundum þá kvöldstund sem Hjá Visa íslandi fékk DV þær
stað á sólarstaðnum Benidorm á þaðdvaldiþar.Reikningurinnmun upplýsingaraðþettamálhefðiver-
Spáni fyrir svik með greiðslukorta- hins vegar hafa hijóðaö upp á ið upplýst fljótt þar sem margir
nótur. Hafa nótur frá veitinga- nokkra tugi þúsunda. Höfðu fleiri kvörtuðu undan sama staðnum.
staðnum verið sendar aftur til Visa svipaöa sögu að segja. Komu einnig Fólk heföi haldiö nótum sínum til
á Spáni sem sjá mun um framhald reikningarfrádiskóteki, semstarf- haga og því hægt að sjá aö ekki var
málsins. ar í tengslum við staöinn, en fólk allt með felldu. Sólarlandafararnir
Upp komst um þessi svik þegar hafði þá ekki farið þar inn. Er eins þurfa ekki að hafafrekari áhyggjur
nokkrir íslenskir sólarlandafarar og að þjónn eða þjónar á staðnum af málinu.
fengu yffrlitiö yfir notkun Visa- hafi rúllað yfir tvær nótur meö Hjá Visa var ítrekað að fólk héldi
kortsins. Upphæðum frá þessum Visakortinu, skrifað mun hærri afritum af nótum saman þar sem
ákveðnaveitingastaöþarekkisam- upphæðir á aðra og falsaö á hana alltaf væri um einhverja óprúttna
an við nótur sólarlandafaranna. undirskriftina. Fór parið grunlaust menn á viðkomustöðum erlendis.
Þannig fékk par sér að borða á af veitingastaðnum og uppgötvaöi -hlh
staðnum og mun hafa eytt nokkr- ekki svikin fyrr en heim var komið.
Heljarmikið hraöskákmót var haldið í Kringlunni í gær, svokallað Reykjavikurskákmót. Stóð Taflfélag Reykjavikur
fyrir mótinu þar sem hver keppandi fékk sjö mínútur. Sigurvegari varð Þröstur Þórhallsson og fékk hann bikar
frá Reykjavikurborg að launum. Þröstur sést hér innbyrða einn vinning með svörtu mönnunum DV-mynd KAE
Veðrið á morgun:
Hvasst og
rigning
Á morgun verður sunnan- og
suðaustanátt, viöa allhvasst og
rigning á Suður- og Vesturlandi,
en hægari vindur og úrkomuhtið
á Norður- og Austurlandi. Hitinn
verður 8-12 stig.
Búfjártalningin:
Kostaði hátt í
sex milljónir
Enn hefur ekki verið gert upp við
alla þá sem tóku þátt í búfjártalningu
landbúnaðarráðuneytisins í apríl og
maí. Þó hafa veriö greiddar út um
þrjár milljónir króna en samkvæmt
heimildum DV er gert ráð fyrir að
talningin í heild kosti hátt í sex millj-
ónir. Mun það vera eitthvað meira
en áætlað var fyrirfram.
Ætlunin var að gera upp við taln-
ingarmenn fyrir 1. júlí en hreppstjór-
ar hafa víða verið seinir að senda inn
skýrslur og reikninga í sambandi við
talninguna. Þá mun hafa komið upp
einstaka tilvik þar sem þurfti að
leggja í töluverðan kostnað viö taln-
ingU, s.s. með leigu á þyrlu og bátum.
Einhverjir talningarmanna munu
vera orðnir óþreyjufulhr eftir upp-
gjöri en ekki er ljóst hvenær það ligg-
urendanlegafyrir. -SMJ
Alelda
vinnuskúr
Slökkvilið Reykjavíkur var kallað
út á fimmta tímanum í nótt. Þá var
mikill eldur í vinnuskúr við Krók-
háls. Slökkviliðsmönnum tókst ekki
að bjarga skúrnum og er hann gjöró-
nýtur. Eldsupptök eru ókunn. -sme
Verðhækkanir:
Mjólkurvörur
og egg hækka
- fleiri hækkanir á leiðinni
Heimiluð hefur verið hækkun á
mjólk og mjólkurvörum og eggjum.
Mjólkurlítrinn hækkar um 11,3% og
kostar nú 70,20 krónur í stað 63,10
áður.
Peh af rjóma hækkar um 14,3% og
kostar nú 144,70 krónur. Skyrkílóið
hækkar í 126,30 krónur, eða um
10,1%. Hvert smjörkíló hækkar úr
479,90 krónum í 546,30, eða um 13,8%,
og kíló af 45% osti kostar nú 738,70
krónur í stað 663,10 áður og hækkar
um 10,4%.
Þá var og heimiluð 6,9% hækkun á
eggjum og kostar kílóið í smásölu nú
407 krónur í stað um 380 áður.
Hækkun á kjöti og unnum kjötvör-
um kemur ekki til framkvæmda fyrr
en um miðjan mánuð þegar sláturtíð
hefst, að sögn starfsmanna Verðlags-
stofnunar. Hækkunarbeiðni á far-
gjöldum í innanlandsflugi og gjald-
skrám leigubíla bíður afgreiðslu
Verðlagsráðs og kemur ekki til af-
greiöslu fyrr en eftir helgi. -Pá
ÞRDSTUR
68-50-60
VANIR MENN
BILASPRAUTUN
ÍLARÉTTINGAR
BILASPRAUTUN
Aimalun og blettanir.
• RETTINGAR og hvers
konar boddiviðgerðir.
Varmi
Sími 44250