Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1989, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1989, Síða 3
FÖSTUDAGUR 15 SEPTF.MBF.R 19C*» 19 Dans- staðir Ártún, Vagnhöfða 11 Gömlu dansamir fostudagskvöld kl. 21-3 og laugardagskvöld kl. 22-3. HUómsveitin Danssporið leikur fyrir dansi bæði kvöldin. Broadway, Álfabakka 8, Reykjavík, sími 77500 Unglinga'dansleikur fóstudagskvöld. Dægurlagahátiðin „Komdu í kvöld" á laugardagskvöld. Söngvararnir Ragnar Bjarnason, Ellý Vilhjálms, Þorvaldur Haildórsson, Þuríður Sig- urðardóttir, Trausti Jónsson og Hjör- dis Geirs í stórskemmtilegri sýningu Jóns Sigurðssonar bankamanns. Casablanca, Skúlagötu 30 Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld. Danshöllin, Brautarholti 22, s. 23333 Nýr skemmtistaöur. Farið verður af stað um helgina með landsþekktum hijómsveitum, Rokksveit Rúnars Júl- íussonar, Mannakomum Pálma Gunnarssonar og Magnúsar Eiríks- sonar, auk hljómsveitar Stefáns P. og hljómsveitarinnar Gauta frá Siglufirði. Duus-hús, Fischersundi, sími 14446 Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld. Fjörðurinn, Strandgötu 30, simi 50249 Sverrir Stormsker og Stormsveitin leika fyrir dansi um helgina. Danshúsið Glæsibær, Álfheimum, simi 686220. Hljómsveit Hilmars Sverrissonar og Anna Vilhjálms leika á föstudags- og laugardagskvöld. Gömlu dansarnir með Reyni Jónassyni á sunnudags- kvöld. Hollywood, Ármúla 5, Reykjavik Hljómsveitin Loðin rotta leikur á föstudags- og laugardagskvöld. Hótel Borg, Pósthússtræti 10, Reykjavík, simi 11440 Diskótek fóstudags- og laugardags- kvöld. Borgarkráin er opin til kl. 24 báða dagana. Gömlu dansarnir sunnudagskvöld. Hótel Esja, Skálafell, Suðurlandsbraut 2, Reykjavik, simi 82200 Dansleikir fóstudags- og laugardags- kvöld. Lifandi tónhst. Opið frá kl. 19-1. Hótel ísland, Ármúla 9, simi 687111 Sumarkamival fóstudags- og laugar- dagskvöld. HLH flokkurinn leikur fyrir dansi bæði kvöldin. Keisarinn v/Hlemmtorg Diskótek fóstdags- og laugardags- kvöld. Staupasteinn, Smiðjuvegi 14D, s. 670347 Hljómsveit leikur fyrir dansi fóstu- dags- og laugardagskvöld. Tunglið og Bíókjallarinn, Lækjargötu 2, simi 621625 Smekkleysukvöld fóstudagskvöld. Diskótek laugardagskvöld. Ölver, Álfheimum 74, s. 686220 Opið funmtudags-, fóstudags-, laugar- dags- og sunnudagskvöld. Danshöllin: Skemmtistaður á fjórum haeöum Að undanfornu hefur veriö unn- ið að undirbúningi ýmissa breyt- inga á skemmtistöðunum Þórcafé, Norðurljósunum og Vetrarbraut- inni. Þessum breytingum er að ljúka og verður staðurinn kynntur nú um helgina undir nafninu Dans- höllin. Danshöllin er því samheiti þessara þriggja staða sem eru á fjórum hæðum í sama húsinu. Verður hér um 2400 fermetra dans- höll að ræða. í Danshöllinni getur fólk valið á milii ólíkra skemmti- og veitinga- staða og er ekki ætlunin aö ungl- ingar sæki staðinn því aldurstak- mark verður 25 ár. Þess ber einnig að geta að einn aðgöngumiði gildir nú á alla staðina. Um helgina verður farið myndar- lega af stað með landsþekktum hljómsveitum, Rokksveit Rúnars Júlíussonar, Mannakomum Pálma Gunnarssonar og Magnúsar Ei- ríkssonar, auk hijómsveitar Stef- áns P. og hljómsveitarinnar Gauta frá Siglufirði. Danshöllin verður opnuð form- lega á föstudagskvöld kl. 20 meö hanastéli. í vetur verða endurvak- in svokölluð „stórshow" með dansi, tónfist og söng. Gunnar Þórðarson hefur verið ráðinn tón- listarstjóri Danshallarinnar og mun hann hafa uppsetningu sýn- inganna á sinni hendi. Valdimar Örn Flygenring og Maria Ellingsen eru meðal leikara í Sjúk i ást. Leikhópurinn Annaö svið: Sjúk Leikhópurinn Annað svið hefur aö undanfórnu sýnt eitt þekktasta verk bandaríska leikritaskáldsins Sams Shepard, Fool for Love eða Sjúk í ást eins og það nefnist í ís- lenskri útgáfu. Verkið fjallar um ástríðufullt ást- arsamband manns og konu sem tengd eru saman af sterkum bönd- um fortíðarinnar þrátt fyrir síend- urteknar tilraunir til að stokka upp spilin og hefja nýtt líf. Með hlutverk í sýningu Annars sviðs fara þau María Ellingsen, í ást Valdimar Örn Flygenring, Róbert Amfinnsson og Eggert Þorleifsson. Leikstjóri sýningarinnar er Ke- vin Khulce og er þetta í fyrsta skipt- i sem hann stýrir uppfærslu hér- lendis. Það er Menningarstofnun Bandaríkjanna sem setndur fyrir komu hans hingað og hefur gert þetta menningarsamstarf mögu- legt. Sýningar era í leikhúsi Frú Emehu, Skeifunni 3c og er næsta sýning er á laugardagskvöld kl. 20.00. MÍR: Uppgangan Fræg sovésk verðlaunakvik- mynd frá síðasta áratug, Uppgang- an, verður sýnd á sunnudaginn kl. 16 að Vatnsstíjg 10. Mynd þessi, sem er leikstýrð af Larisu Shepitko, var sýnd á kvikmyndahátíð í Reykja- vik undir nafninu Seigla en heiti hennar er nú fært til samræmis viö rússneska nafniö, Voskhozdenie. Myndin gerist í skógum Hvíta- Rússlands veturinn 1942. Tveir menn eru gerðir út til að afla matar fyrir flokk skæruliða og fleirl íbúa sem leynast í skóginum. Mennimir tveir eru Rybak, sem lengi hefur barist með skæruliðum gegn hemámshði Þjóöverja, og Sotn- ikov, hðsforingi úr Rauða hernum sem gengiö hafði til hðs við skæra- liðana. Lýsir myndin mismunandi viðbrögöum þessara manna þegar í álinn syrtir. Með aöalhlutverkin fara Boris Piotnikov, Vladimir Gostjúkhin og Anatóh Solonitsin. Skýringar eru á ensku með mynd- inni. Aðgangur er ölium heimdil. Mannakorn eru ein þeirra hljómsveita sem skemmta gestum Dans- hallarinnar um helgina. Hafnarborg: Fimmtíu pastelmyndir Gunnar R. Bjamason opnar sýn- ingu í Hafnarborg, menningar- og hstastofnun Hafnarfjarðar, laugar- daginn 16. september. Á sýning- unni verða um 50 pastelmyndir. Gunnar lærði leiktjaldamálun við Þjóðleikhúsið 1953-56, jafn- framt sótti hann námskeið í Mynd- hsta- og handíðaskólanum. Hann stundaði seinna nám við Konst- fackskólann í Stokkhólmi. Frá 1958-1974 vann Gunnar sem leikmyndateiknari hjá Þjóðleik- húsinu, starfaði síðan sjálfstætt á eigin vinnustofu til 1988 en tók þá við starfi yfirleikmyndateiknara Þjóðleikhússins. Gunnar heldur nú þriðju einka- sýninguna á myndyerkum en áður hefur hann sýnt í Ásmundarsal og Norræna húsinu og verið þátttak- andi í samsýningum myndlistar- manna og leikmyndateiknara í Reykjavík og Kaupmannahöfn. Gunnar hefur hlotið margs konar viöurkenningar fyrir hst sína, meðal annars verðlaun úr Menn- ingarsjóði Þjóðleikhússins, styrk Gunnar Bjarnason með eina myndanna á sýningu hans í Hafn- arborg. frá Alþjóðasamtökum leikhúss- fólks til námsdvalar erlendis, starfslaun hstamanna og viður- kenningar fyrir hönnun sýningar- bása. Sýning Gunnars í Hafnarborg stendur frá 16. september til 1. okt- óber og verður opin kl. 14-19 aha daga nema þriðjudaga. Á laugardaginn gefst almenningi kostur á að skoða sig um í Þjóðleik- húsinu í fylgd leikarara. Þjóðleikhúsiö: Opið hús A morgun, laugardaginn 16. sept- ember, gefst almenningi kostur á að skoða Þjóöleikhúsið milli kl. 14 og 17 og skyggnast inn í þann heim sem er að tjaldabaki. Allar deildir leikhússins verða opnar. Leiðsögumenn verða leikarar stofnunarinnar sem munu fara með reglulegu mihibili með hópa um húsið, fræða gesti um starf þess og sögu og svara spurningum. Þá má gera ráð fyrir óvæntum uppá- komum af ýmsu tagi. Hverri hóp- ferö lýkur síðan í Leikhúskjahar- anum þar sem boðið verður upp á ókeypis kaffi- og kókveitingar. Fyrsta frumsýning vetrarins í Þjóðleikhúsinu verður um þamæstu helgi en þá verður söng- leikurinn Ohver frumsýndur og er þegar uppselt á nokkrar sýningar. I sambandi við þá sýningu er vert að benda á að böm í skóla fá af- slátt en um það atriði hefur orðið vart misskilnings. I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.