Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1989, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1989, Side 6
22 EÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1989. Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir í dag frumsýnir Regnboginn bresku kvikmyndina Dögun (Daw- ning) sem hefur fengið afburða dóma viðast hvar þar sem hún hef- ur verið sýnd. Meðai annars fékk hún verðlaun dómnefndar á kvik- myndahátíðinni í Montreal. Kvikmyndin gerist 1920 á sunh- anverðu írlandi. Nancy býr með afa sínum og frænku í smáþorpi. Hún er rómantískur táningur og þegar hún hittir dularfullan, ókunnugan mann, sem hefur falið Regnboginn: Dögun sig í strandhúsi, treystir hún hon- um strax. Hún samþykkir að vera sendiboði fyrir hann og fer til Dub- Un. Þar hittir Nancy fyrir Mark sem tekur við skilaboðunum. Seinna, þegar hún fréttir að fimmtán breskir hermenn hafi verið myrtir, gerir hún sér grein fyrir hver skila- boðin voru... Það er óþekkt leikkona, Rebecca Pidgeon, sem leikur Nancy en þekktir breskir leikarar eru í öðr- um hlutverkum. Fyrst ber að telja Anthony Hopkins er leikur þann ókunnuga sem Nancy nefnir Cass- ius. Hefur hann fengið frábæra dóma fyrir leik sinn í þessari mynd. Þá var Dögun síðasta kvikmyndin sem Trevor Howard lék í, en hann leikur afa Nancy. Jean Simmons leikur svo frænku hennar. Dögun er vönduð kvikmynd sem býður þeim er vilja góðan leik og dramatískan söguþráð upp á góða kvöldstund. -HK Egill Olafsson leikur titilhlutverkið, Magnus. Anthony Hopkins og Rebecca Pidgeon í hlutverkum sínum í Dögun. Stjömubíó Magnús Ágæt aðsókn hefur verið að'kvik- mynd Þráins Bertelssonar, Magn- úsi, enda er hér ein albesta íslenska kvikmyndin. Hún fjallar um Magn- ús sem er í góðri stöðu hjá borg- inni. Hann fær aö vita einn daginn að hann sé líklega með hættulegan sjúkdóm. Á slíkri stundu, þegar fjölskyldan ætti að standa saman, á hann erfitt með að ná sambandi við eiginkonu og böm. Magnús er gamanmynd þar sem húmorinn er bæði farsakenndur og svartur. Aðalhlutverkin leika Egill Ólafsson, Laddi og Guðrún Gísladóttir. -HK Bíóborgin og Bíóhöllin: Batman Batman er eins og flestum ætti að vera kunnugt, byggð á þekktri teiknimyndafígúru. Myndin gerist í Gothamborg. Þar ræður glæpa- lýður lögum og lofum og er ekki hollt fyrir heiðarlegan mann að eiga heima þar. Þegar allir eru að gefast upp við að reyna að stilla til friðar í borginni fara fjölmiðlar að tala um veru eina sem sést á ferli á hinum ólíklegustu stöðum. Vegna klæðaburðarins er henni gefið nafnið Batman eða leðurblöku- maðurinn. Fer það svo að þessi dularfulla vera fer að gera glæpa- mönnunum erfitt fyrir. Það er Michael Keaton er leikur Batman. Keaton, sem er þekktari sem gamanleikari, bregður sér í hetjuhlutverkið án fyrirhafnar. Það sem aftur á móti hefur vakið hvað mesta athygli og á sjálfsagt einhvern þátt í hinum ótrúlegu vinsældum myndarinnar er að Jack Nicholson leikur skúrkinn Jack Napier eða gárungann eins og hann er kallaður vegna útlits síns. Það er svo þokkagyðjan Kim Basinger sem leikur ljósmyndar- ann fagra, Vicki Vale. Þess má geta að lokum að ísland er þriðja landið þar sem myndin er sýnd. Hún hefur enn sem komið er aðeins verið sýnd í Bandaríkjun- um og Englandi. -HK Michael Keaton leikur Batman og Kim Basinger þokkagyðjuna Vicki Vale. _____Sýningar Árt-Hún, jtangarhyl 7, Reykjavík Kö Stangarhyl 7 eru sýningarsalur og /innustofur. Þar eru til sýnis og sölu olíu- nálverk, pastelmyndir, grafik og ýmsir 'eirmunir eftir myndlistarmennina Erlu S. Áxelsdóttur, Helgu Ármanns, Elín- xirgu Guömundsdóttur, Margréti salome Gunnarsdóttur og Sigrúnu Sunnarsdóttur. Opiö alla virka daga kl. 13-18. Árbæjarsafn, timi 84412 Dpiö kl. 10-18 alla daga nema mánudaga. Leiðsögn um safniö laugardaga og sunnudaga kl. 15. Veitingar í Dillonshúsi. Ásgrímssafn, Bergstaöastræti 74 Þar eru til sýnis 24 landslagsmyndir, bæði oliumálverk og vatnslitamyndir, eftir Ásgrím. Sýningin stendur til sept- emberloka og er opið alla daga nema mánudaga kl. 13.30-16. Ásmundarsalur v/Freyjugötu, í kvöld opnar Björg Sveinsdóttir mál- verkasýningu. Hún sýnir olíumálverk, unnin á síðustu tveim árum. Sýningin er opin virka daga kl. 16-20 og um helgar kl. 14-22. Hún stendur til 1. október. FÍM-salurinn, Garðastræti 6 FÍM-salurinn er opinn virka daga frá kl. 13-18 og um helgar frá kl. 14-18. Gallerí Borg, Pósthússtræti 9 Jón Jóhannsson sýnir gleriist í Gallerí Borg. Sýningin er opin kl. 10-18 virka daga og kl. 14-18 um helgar. í Grafík-galleríi Borg, Austurstræti 10, er mikið úrval af grafík og keramiki, einnig oliuverk eftir yngri kynslóðina í stækkuðu sýningarrými. Grafík-galleríið er opið virka daga kl. 10-18. Gallerí Ellefu, Birgir Andrésson sýnir verk sín. Kjarvalsstaðir Á morgun kl. 14 verður í boði Listasafns Reykjavikur opnuð sýning á Kjarvals- stöðum á verkum eftir Erró. Þau eru ffá síðastliðnum fjórum árum. Erla Þórarinsdóttir opnar sýningu í aust- ursal Kjarvalsstaða á morgtm. Hún sýnir olíumyndir, unnar á striga og á tré. Sýn- ingin stendur til sunnudags 1. október. Listasafn Einars Jónssonar er opið alla daga kl. 13.30-16 nema mánu- daga. Höggmyndagarðurinn er opinn daglega kl. 11—17. Hafnarborg, . menningar- og listastofnun Hafnarfjaróar Gunnar R. Bjamason opnar á morgun sýningu á 50 pastelmyndum. Þetta er þriðja einkasýning Gunnars á mynd- verkum. Sýningin er opin kl. 14-19 alla daga nema þriðjudaga og stendur til 1. október. Katel, Laugavegi 20b (Klapparstígsmegin) Til sölu eru verk eftir innlenda og er- lenda listamenn, málverk, grafík og leir- munir. Sýning í Odda, nýja hugvísindahúsinu, er opin daglega kl. 13.30-17. Þar eru til sýnis 90 verk í eigu safnsins, aðallega eftir yngri listamenn þjóðarinnar. Að- gangur að safninu er ókeypis. Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi 7 Leiðsögnin Mynd mánaðarins fer fram í fylgd sérffæðings á fimmtudögum kl. 13.30-13.45. Safnast er saman í anddyri safnsins og er leiðsögnin öllum opin og ókeypis. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70 Ákveðið hefur verið að ftamlengja sýn- ingu Kristjáns Daviössonar til septemb- erloka. Safnið er opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-7 og öll þriðjudagskvöld kl. 20-22. Kaffistofan er opin á sama tíma. Norræna húsið v/Hringbraut 1 anddyri Norræna hússins stendur yfir sýning á ljósmyndum sem Nanna Bisp Buchert hefur tekið. Á sýningunni eru 28 myndir sem skiptast í fjórar myndrað- ir, flestar í svart-hvítu og teknar hér á landi. Sýningin stendur til 24. september og er opin daglega kl. 9-19 nema sunnu- daga kl. 12-19. I kjallara hússins sýnir Elías B. Halldórsson málverk. Á sýning- unni eru rúmlega 40 myndir, unnar í olíu og verður hún opin daglega kl. 14-19 fram til 17. september. Nýhöfn, Hafnarstræti 18 Páll Guðmundsson frá Húsafelli opnar sýningu í Nýhöfn á morgun. Á sýning- unni eru málverk, öll af fólki, og högg- myndir, vrnnar í grjót úr Húsafelli. Þetta er ellefta einkasýning Páls en hann hefur einnig tekið þátt í samsýningum. Sýning- in, sem er sölusýning, er opin virka daga kl. 10-18 og kl. 14-18 um helgar. Henni lýkur 4. október. Sjóminjasafn íslands, Vesturgötu 8, Hafnarfirði, s. 52502 Fundur Ameríku nefnist sýning í Sjó- minjasafni íslands. Sýningin er tvískipt. Annars vegar er sýning um ferðir nor- rænna manna til Ámeríku og fund Vín- lands um 1000. Hins vegar er um að ræða farandsýningu frá ítalska menntamála- ráðuneytinu um Kristófer Kólumbus og ferðir hans fyrir um 500 árum. Sýningin verður opin í sumar, alla daga nema mánudaga kl. 14-18. Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis i útibúinu Álfabakka 14, Reykjavík, eru til sýnis myndir eftir Ragnheiði Jóns- dóttur. Sýningin stendur til 10. nóvember nk. og er opin frá mánudegi til fimmtu- dags frá kl. 9.15-16 og fóstudaga frá kl. 9.15-18. Sýningin er sölusýning. Stofnun Árna Magnússonar Handritasýning Stofnunar Áma Magn- ússonar er í Ámagarði við Suðurgötu á þriðjudögum, fimmtudögum og laugar- dögum kl. 14-16. Póst- og símaminjasafnið, Austurgötu 11 Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl. 15-18. Aðgangur ókeypis. Vinnustofa Ríkeyjar, Hverfisgötu Þar em til sýnis og sölu postuiínslág- myndir, málverk og ýmsir litlir hlutir. Opið er á verslunartíma þriðjudaga, mið- vikudaga, fimmtudaga og fóstudaga og á laugardögum kl. 10-16. Þjóðminjasafnið Safnið er opið alla daga nema mánudaga kl. 11-16. Myntsafnið á Akureyri, Aðalstræti 58, s. 24162 Opið er kl. 13.30-17 alla daga vikunnar. Slunkaríki, Aðalstræti 22, fsafirði í Slunkaríki er nú sýning á ljósmynda- verkum Arthurs Bell Artliur Bell er Bandaríkjamaður og stundaði nám í ljós- myndun við listaháskóla Chicagoborgar. Hann hefur sýnt myndir sínar víða í Bandaríkjunum og Mið-Ameríku en sýn- ingin í Slunkaríki er sú fyrsta héma megin Atlantshafs. Sýningin stendur til 17. september og er opin fimmtudaga- sunnudaga kl. 16-18. BEYGJA A AMALARVEGI!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.