Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1989, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1989, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1989. 23 Það verður mikið lagt undir hjá þessum félögum um helgina, ÍBK og Fylki. Bæöi lið eiga í hatrammri fallbar- áttu. Fylkir mætir FH i leik, sem er sá mikilvægasti hjá báðum á timabilinu, en ÍBK leikur við KA. Fylkir og ÍBK eygja von um framhald í 1. deild en hin félögin tvö um sinn fyrsta íslandsmeistaratitil. DV-mynd Brynjar Gauti íþróttir helgarinnar: Allt á huldu á íslandsmótinu - úrslit ráðast um helgina í 1. og 2. deild Um helgina ráðast úrslit á ís- landsmótinu. Ekki einungis ræöst þá hvaða lið stendur uppi sem sig- urvegari heldur kunngerist einnig hitt hvaða Uð falla og hvort Víðir eða ÍBV fylgir Stjörnunni upp úr 2. deild. Þá opinberast landsmönnum hvaða lið verða fulltrúar þjóðar- innar á Evrópumótunum á næsta ári en Fram hefur þegar tryggt sér rétt til að leika í Evrópukeppni bik- arhafa. Tvö sæti eru óskipuð, sess í Evrópukeppni félagsliða annars vegar og í Evrópukeppni meistara- höa hins vegar. Ekki færri en fjögur lið geta hreppt íslandsmeistaratitilinn þeg- ar ein umferð er eftir. FH hefur pálmann í höndunum en KA stend- ur einnig vel að vígi. Erkiíjendurn- ir KR og Fram eiga á hinn bóginn fræðilega möguleika á titlinum. Þau lið, sem beijast hvað hat- rammast um framhald í 1. deild, eru Þór, Fylkir og Keflavík. Staða Víkings hefur hins vegar farið hríðversnandi með hverri umferð og er liðið nú með falldrauginn á bakinu á líkan hátt og fyrrtöldu félögin þrjú. Lokaumferðin í 1. deild fer fram á morgun, laugardag og hefjast ali- ir leikir ldukkan 14. Valur mætir KR á Hlíðarenda, ÍBK fær KA í heimsókn á Suður- nesin, FH glímir við Fylki í Kapla- krika, Fram mun kljást viö Víking á Laugardalsvelli og Þór leikur við ÍA norðan heiða. Staðan er þessi fyrir lokaum- ferðina. FH.............17 9 5 3 26-15 32 KA.............17 8 7 2 27-15 31 KR.............17 8 5 4 28-21 29 Fram...........17 9 2 6 21-16 29 Akranes........17 8 2 7 19-19 26 Valur..........17 7 4 6 20-15 25 Víkingur.......17 4 5 8 24-30 17 Keflavík.......17 3 6 8 18-27 15 Þór..............17 3 6 8 18-29 15 Fylkir..........17 4 2 11 16-30 14 í 2. deild leikur Selfoss við Víði austan fjalls en Breiðablik mætir ÍBV. Þessara leikja er beðið með mestri eftirvæntingu í 2. deildinni. Þá leikur Stjaman við ÍR, Ein- herji spilar viðLeiftur og Völsung- ur við Tindastól. Allir þessir leikir hefjast klukkan 14 á laugardag. í 3. deild leika til úrslita á laugar- da'g hð Siglfirðinga og Grindvík- inga. Bæði félögin hafa tryggt sér rétt th að léika í 2. deild að ári. Staðan í 2. deild er nú þessi: Stjaman.......17 13 1 3 40-16 40 ÍBV............17 12 0 5 47-29 36 Víðir...........17 11 2 4 28-20 35 Selfoss.........17 9 1 7 22-25 28 UBK.............17 6 4 7 35-30 22 ÍR..............17 5 5 7 22-26 20 Tindastóll.....17 5 2 10 31-28 17 Leiftur.........17 4 5 8 13-18 17 Völsungur.....17 4 2 11 23-41 14 Einherji......17 4 2 10 21^9 14 Af kylfingum Á morgun fer fram opið golfmót í Borgamesi, svonefnt Tres Ca- baheros. Leiknar verða 18 holur með og án forgjafar. Verðlaun eru fyrir efstu þrjú sætin. Þá verður einnig keppni í unghngaflokki 16 ára og yngri. Leiknar verða 18 hol- ur með og án forgjafar í þeim flokki. Mögulegt er að panta rástíma í kvöld frá klukkan 20 til 22 í síma 93-71663. Þá er um helgina, nánar tiltekið á morgun, hið svokallaða Kóngs- klapparmót. Fer það fram á Húsa- tóftavelh, aðstöðu þeirra Grindvík- inga. Kóngsklapparmótið er punkta- keppni. Síminn hjá Golfklúbbi Grindavíkur er 92-68720. -JÖG VERZLUNARMANNAFELAG REYKJAVÍKUR FRAMBOÐSFRESTUR Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða- greiðslu í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur um kjör fulltrúa á 17. þing Landssambands íslenskra verslun- armanna. Kjörnir verða 70 fulltrúar og jafnmargir til vara. Listar þurfa að hafa borist kjörstjórn á skrifstofu Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur, Húsi verslunarinnar, fyrir kl. 12.00 mánudaginn 18. september næstkomandi. Kjörstjórn FRÁ TÓNMENNTASKÓLA REYKJAVÍKUR Vilt þú læra á kontrabassa? Ert þú 8-10 ára gamall eða gömul? Við kennum á barnakontrabassa og getum enn bætt við nokkrum nemendum. 50% kynningarafsláttur af skólagjaldi. Hafið samband í síma 28477 sem fyrst. Skólastjóri AUGLÝSING Lausar stöður heilsugæslulækna Lausar eru til umsóknar eftirtaldar stöður heilsugæslulækna með veitingu sem hér segir: 1. Stykkishólmur, H2, önnur staða læknis frá og með 1. febrúar 1990. 2. Flateyri, H1, staða læknis frá og með 1. nóvember 1989. 3. Húsavík, H2, ein staða læknis frá 1. nóvember 1989. 4. Þórshöfn, H1, staða læknis frá og með 1. nóvember 1989. 5. Höfn Hornafirði, H2, önnur staða læknis frá og með 1. janúar 1990. 6. Vestmannaeyjar, H2, ein staða læknis frá og með 1. janúar 1990. Umsóknir, ásamt ítarlegum upplýsingum um læknismenntun og læknisstörf, sendist ráðuneytinu fyrir 11. október nk. á sér- stökum eyðublöðum sem fást hjá ráðuneytinu og hjá land- lækni. í umsóknum skal koma fram hvenær umsækjandi getur hafið störf. Æskilegt er að umsækjendur hafi sérfræðileyfi i heimilislækningum. Nánari upplýsingar um stöðurnar veita ráðuneytið og landlæknir. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðyneytið, . 12. september 1989. - Verslunin hættir - Opið föstudag kl. 13-18, laugardag kl. 10-16 ' Völvufelli 17

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.