Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1989, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.1989, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1989. Útlönd Conlon veHar tíl stuðnlngsmanna sinna I gær. Hann sat saklaus f fang- elsi I tjórtán ór. Simamynd Reuler Þrír karlar og ein kona sátu saklaus í fangelsi í íjórtán ár. Þetta var úrskuröur æðsta dómara Bretlands í gær. Fjórmenningarnir voru rang- lega fundnir sekir um sprengjutilræöi IRA, írska lýöveldishersins, á krám í Guildord. Sjö manns létu lífið i tilræðunum. Dómarinn, Lane lávarður, kvað upp úrskurð sinn eftir að rikissaksókn- ari viðurkenndi að rannsóknarlögregla heföi leitt sakbomingana í gildru til aö ná fram játningum. Hvatti dómarinn til þess að rannsókn íæri fram hið fyrsta í máli fimm lögreglumanna. Hinir ákærðu fullyrtu fyrir rétti að þeir heföu verið beittir ofbeldi. Fjórmenningarnir voru allir dæmdir í lífstíðarfangelsi. Þrír þeirra voru látnir lausir um leiö og órskuröurinn hafði verið kveömn upp en sá fjórði erákærðurfýriraöraglæpi Reuter Embættismaður i samgönguráðuneytinu i Kaliforníu sagði í gær að vegna fjárskorts hefði ekki verið hægt að Ijúka við styrkingu hraðbrautarinnar sem hrundi. Vitað hefði verið að gera þyrfti breytingar til að hún gæti staðið af sér jarðskjálfta. Símamynd Reuter Kínverjar mótmæla orðrómi Kínverjar hafa ekki hótaö að hætta viöskiptum við Noreg vegna þátt- töku norskra yfirvalda við afhendingu friðarverölaunanna í desember þegar Dalai Lama kemur til Osló. Þetta fullyröir starfsmaður kínverska sendiráðsins. Norskt dagblað greindi á miðvikudaginn frá hótunum Kínverja. Engar heimildir voru tilgreindar og hvorki norska utanríkisráöuneytið eða aðr- ir geta staöfest fréttina. mælaaðgerðaTibeta. Arekstur varð i morgun milli langferðabifreiöar og vörubifreíðar á hrað- braut fyrir norðan Sydney. Að minnsta kosti 22 fórust við áreksfurinn. Símamynd Reuter Síjö manns úr sömu fjölskyldunni voru meðal þeirra tuttugu og tveggja sem biðu bana í árekstri á austurströnd Ástralíu í morgun. Eini fjölskyldu- meðlimurinn sem komst lifs af hafði skipulagt ferðalag fýrir sig, konu sína og tvö böm og fjölskyldu bróður síns sem haföi komið í heimsókn til Ástralíu frá Englandi. Tveir vinir fjölskyldunnar létu einnig lífið í árekstrinum. Flestir þeirra sem létust krömdust undir langferðabifreiðinni sem fór tvær veltur eftir áreksturinn. Fjörutíu og sex manns, þar á meöal marg- ir ferðamenn, voru í bifreiðinni. Reuter Skotið á langferðabifreið tugi þegar þeir hófu skothríö á þéttsetna langferðabifreið í suðurhluta Filippseyja í morgun. Tóku skæruliðamir fjórtán manns í gíslingu eftir aö hafa kveikt í strætisvagninum. Árásin átti sér stað I Mindanaohéraðínu en þar er áætlað að fári fram þjóðaratkvæðagreiðsla um sjálfstjóro þann 19. nóveraber næstkomandi. Reuter Innanrikisráöherra Sovétrikjanna, Vadlm Bakatln, á fundl með frétta- mönnum í gær. Simamynd Reuter Jeltsin kallaður lygari Vadim Bakatin, innaríkisráö- herra Sovétríkjanna, réöist i gær gegn umbótasinnaöa þingmannin- um Boris Jeltsin og sakaði hann um lygar. Sagöi ráöherrann að aug- Ijóst væri aö Jeltshi væri aö reyna aö styrkja stöðu sína með fullyrö- ingum sínum um aö hann værí fómarlamb kerfisbundinna of- sókna háttsettra embættisraanna. Jeltsin haföi í vikunni komiö renn- votur til lögreglu og skýrt frá því að einhver hefði hent honum í Moskvuána í þeim tilgangi að myrðahann. Jeltsin seglr hins vegar að hann hafi ekki tUkynnt um morötUraun. Hins vegar hefur hann viðurkennt að hafa komið blautur til lögregl- unnar. Reuter Fórnarlömbin kannski fævri en óttast var Fjöldi þeirra sem fórst í jarðskjálft- anum í Kalifomíu á þriðjudaginn gæti verið miklu minni en í fyrstu var óttast. Miklu færri voru á ferð en venjulega vegna hafnaboltaleiks seni sextíu þúsund áhorfendur höfðu mætt á þegar jarðskjálftinn reið yfir. Margir fóm einnig fyrr heim úr vinnu en venjulega til að fylgjast með leiknum í sjórivarpinu. Tveir slökkviliðsmenn, sem í gær reyndu aö kanna hversu margir bílar heföu kramist undir efri hæö hrað- brautarinnar, sögðu að verið gæti að bílamir væm aðeins nokkrir tugir. Svo virtist sem engir bílar hefðu ver- ið á ferli á fjögur hundruð metra löngum kafla hraðbrautarinnar þeg- ar hún hrundi. Höföu menn óttast að fómarlömbin gætu verið sex hundmð Um átta þúsund manns hafast við í bráðabirgðaskýlum. Margir þeirra hafa misst heimili sín og aðrir bíða ákvarðana um hvort þeir megi fara inn á heimili sín. Mörg hundmð íbú- ar í Marinahverfinu í San Francisco, þar sem miklar skemmdir urðu, fengu þrenns konar passa í gær eftir fund með borgarsfjóranum. Grænan passa fengu þeir sem sjálfir fengu að ákveða hvort þeir vildu snúa aftur til húss síns. Þeir sem fengu gulan passa máttu fara í hús sín með fylgd til að ná í eigur sínar. Rauður passi Ibúarnir í Marinahverfinu í San Francisco fengu að vita í gær hvaða hús ætti að rffa og til hvaða húsa þeir gætu horfið aftur. Á myndinni má sjá embættismann með lista yfir hús sem verða jöfnuð við jörðu. Símamynd Reuter þýddi að rífa ætti viðkomandi hús. Úthiutim passanna olli mikilli reiði gegn yfirvöldum sem lokað hafa næstum öllum byggingum með sprungum. Verða þau rannsökuð áður en íbúunum leyfist að snúa aft- ur til heimila sinna. Björgunarmenn era lofaðir í fjöl- miölum og sérstaklega læknir nokk- ur sem tók þátt í björgun ungra systkina sem voru með þeim síðustu sem fundust á lífi. Áður en læknirinn gat losað það yngra, sex ára gamlan dreng, varð hann að saga sundur lík móður bamanna. Því næst varð hann taka af annan fót drengsins við hné. í borginni Santa Cruz, sem er fyrir sunnan San Francisco, varð lögregla aö beita íbúana valdi til að koma í veg fyrir að þeir færu inn í eyöilagt hús þar sem talið var að ung kona gæti legið hjálparlaus. Síðar kom opinber tiikynning um aö konan hefði fundist látin. Hefði hún að öll- um líkindum farist samstundis. Ritzau og Reuter Framför í viðræðum Breta og Argentínumanna Fulltrúar Bretlands og Argentínu hafa samþykkt að taka upp diplómat- ísk tengsl á ný. Var þetta samþykkt á fundi þeirra í Madrid í gær. Þá var og samþykkt að falla frá viðskiptahömlum, takmörkunum á fjárhagsviðskiptum miili landanna sem og taka upp á nýjan leik beinar flug- og sjósamgöngur en slitið var slíkum tengslum í kjölfar Falklands- eyjastríðsins fyrir sjö árum. Utanríkisráðherra Argentínu, Domingo Cavallo, sagði í gær að arg- entísk'yfirvöld" væra ánægð með ár- angur hinna þriggja daga viðræðna í Madrid. Breskir kaupsýslumenn sem og stjórnmálamenn kváöust ánægðir með viðræðumar. Talsmenn Britísh Airways, sem farið hefur fram á leyfi til að stunda beint flug til Argentínu, sögðust ánægðir með árangurinn. Aður en Falklandseyjastríðið hófst, 1982, var Argentína annar mikilvæg- asti markaður Bretlands í rómönsku Ameríku. Á síöasta ári nam útílutn- ingur Breta til Argentínu 21 milljón- um dollara miöað við 258 milljónum fyrir Stríð. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.