Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1989, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1989, Blaðsíða 8
34 fli. 198?. Sérstæð sakamál Sölumaöur drepur Ungi bílasalinn hreifst mjög af Ijóshæröum og laglegum konum. Því miöur uröu kynni þeirra af honum stutt því þeim fylgdi nauög- un og jafnvel dauði. John Cannan heitir hann, þessi ungi maður sem hefur vakið svo mikla athygh á Bretlandseyjum af því hann er grunaður um að vera jafnvel enn hættulegri sakamaður en fram hefur komið. Að vísu hefur þaö ekki sannast en líkumar eru verulegar til að hann eigi heima í hópi mjög hættulegra sakamanna og morðingja. Cannan var bíiasah og þekktur fyrir hve brosmildur hann var. Unga, ljóshærða konan, Shirley Banks, átti eftir.að komast að því hve þættulegt það var að kynnast honum en hún endaði líf sitt á fá- fömum vegi nærri Bristol á Suð- ur-Englandi. Shirley Banks var rænt á bíla- stæði að kvöldi 8. október 1987. Það var Cannan sem rændi henni og hann þröngvaði henni upp í bO með hníf og fékk hana síöan til að koma með sér upp í íbúð sína þar sem hann misþyrmdi henni fyrst en nauðgaði síðan. Bundin í aftursæti Er Cannan haföi komið fram vilja sínum við ungu konuna neyddi hann hana inn í bíl sinn, þýskan BMW-fólksbíl, kom henni fyrir í aftursætinu og setti þar á hana handjám. Þá var henni ljóst að hún myndi deyja. Erfitt er að gera sér nákvæma grein fyrir hugsunum Shirley Banks þann tíma sem hún sat í aft- ursætinu en víst má telja að henni hafi verið hugsað til brúðkaups- ferðarinnar sinnar til eyjarinnar Kaprí sem hún var nýkomin úr og þess að hún fengi ekki að sjá mann sinn, Richard, afitur. Ljóst er að þótt álagið á hana hafi verið mikið tókst henni að skilja eftir ummerki um dvöl sína í íbúðinni og ferðina í bílnum og varð vart við þau löngu áður en lík hennar, illa leikið, fannst hálfu ári síðar. Ljóst þykir aö Shirley Banks hafi aðeins verið ein af mörgum ungum og ljóshærðum konum sem John Cannan lék illa og grunur leikur á að hann hafi ekki aðeins morð hennar á samviskunni heldur fleiri. Einkum vom það ríkar og glæsi- legar ljóshærðar konur sem Cann- an hreifst af. Nokkrum vikum eftir að Shirley Banks hvarf gerðist at- burður í Lemington Spa, sem er um eitt hundrað og fimmtíu kfió- metra fyrir austan Bristol, sem minnir mjög á rániö og morðið á henni. Það var þann 29. október og þykir af því ljóst að skammt kunni að hafa verið á mih þess sem Cann- an lét til skarar skríða. Kemur það reyndar heim og saman við tOgátur í óupplýstum málum sem kunna að tengjast honum. Atburðurinn í Lemington Spa var með þeim hætti að maður réðst að konu með hnif. Konan brást hins vegár hart við og tókst að snúa vöm upp í sókn svo að árásarmað- urinn fékk skurð af eigin vopni. Síðan hljóp hann að BMW-bO og ók í skyndi burt. Hann reyndist vera Cannan. Áður dæmdur fyrir nauóganir Er Cannan var handtekinn eftir árásina í Lemington Spa var farið að kanna feril hans. Kom þá í Ijós að hann haföi hlotið dóm fyrir nauðganir og haföi setið í fangelsi. Var aðferð hans sú sama sem hann beitti við konuna sem komst frá honum. Hann sat einkum fyrir ungu konunum á bOastæðum eða þá að hann haföi samband við fast- eignasölur þar sem hann vissi að Ijóshærðar og faOegar stúlkur störfuðu. Þóttist haxm þá hafa áhuga á aö skoða íbúðir sem tíl sölu voru og mælti sér mót við konumar tO að skoða þær. Kom fram að Cannan haföi verið látinn laus úr fangelsi í vesturhluta Lon- don 25. júh 1986. Ekki leið nú á löngu þar tíl margt kom fram sem benti tO að Cannan tengdist hvarfi Shirley Banks. Þannig fundust handjám og blóð- ugur hnifur í BMW-bO hans og sömuleiðis ökuskírteini hennar. Tvö önnur sönnunargögn Ekki var það aðeins ökuskírteini Shirley sem benti til þess að hann gæti skýrt hvarf hennar heldur fannst nú bOl hennar í bOskúr Cannans. Haföi hann verið spraut- aður í öðrum lit en hann haföi ver- ið og á honum vora nú fölsk skrá- setningamúmer. Er hér var komið ákvað rann- sóknarlögreglan að gera nákvæma leit á heimih Cannans. Fundust þá fingraför af þumalfingri vinstri handar sem líklegt þótti að gætu verið af Shirley Banks. Varð strax ljóst að fyndist líkiö af henni væri þetta sönnunargagn sem yrði tíl þess að Cannan yröi sekur fundinn um að bera ábyrgð á hvarfi hennar. Neitun eftir neitun Cannan sýndi af sér mestu hörku Shirley Banks. í yfirheyrslum og neitaði með öOu að þekkja nokkuð til Shirley Banks og sagðist enga skýringu geta gefið á því hvaö af henni heföi orðið. Engu að síður var hann fangelsað- ur því allmargt þótti benda tO sekt- ar hans. Um þetta leyti fór lögreglan í London að kanna hvort Cannan bæri ekki ábyrgð á hvarfi annarrar ungrar og ljóshærðrar konu, Suzy Lamplughs, en hún haföi þá getið sér gott orð í heimi kaupsýslunnar. Og nokkm síðar hófst á þvi sérstök athugun hvort Cannan tengdist þrjátíu ungum og ljóshærðum kon- um sem naugað haföi verið. Suzy Lamplughs hvarf 28. júlí 1986, aðeins þremur dögum eftir að Cannan var látinn laus úr fangelsi. Hún vann á skrifstofu fasteignasala og haföi mælt sér mót við viðskiptavin sem haföi lýst áhuga sínum á að kaupa hús. Mister Kipper var nafifið sem við- skipatvinurinn haföi gefið upp. Suzy Lamplughs fór til móts við þennan mann en síðan hefur eng- inn séð tíl hennar. BOl hennar fannst aftur á móti við Thamesá sama kvöld. Nafnið Mister Kipper hefur sér- staka þýðingu í þessu máh af þvi í ljós er komið að undir því gekk Cannan meðal samfanga sinna. Páskadag, 3. apríl 1988, vora mið- aldra hjón á gangi við fjallalæk í Quantock-hæðum nærri Bristol. Komu þau þá að líki í læknum. Var það af ungri, ljóshærðri stúlku og var Ijóst að henni haföi verið mis- þyrmt. Á líkinu vora enn skart- gripir og mátti því telja víst að hún heföi ekki verið myrt tíl fjár. Haft var samband við Richard Banks því tahð var líklegt að um væri að ræða lík konu hans, Shir- ley, og reyndist svo vera. Fingraförin þau sömu KcOt haföi verið í veðri um vetur- inn og sá htið á líkinu eftir að hafa legið í köldu vatninu. Þess vegna var hægt að taka fingraför af því og reyndist far af þumh koma heim og saman við það fingrafar sem fundist haföi í íbúð Cannans. Var nú ljóst að hann fengist dæmdur fyrir morðið á Shirley Banks. Samtímis kom ýmislegt fram sem benti til að Cannan heföi myrt Suzy Lamplughs. Hann haföi sést aka á BMW-bO sínum í vesturhluta Lon- don, skammt frá þeim stað sem hún bjó á. Einnig haföi hann gortað af því að þekkja glæsOega stúlku sem héti Suzy. Loks var rannsóknarlög- reglumönnum enn í fersku minni að maðurinn, sem haföi haft sam- band við hana á fasteignasölunni, haföi kallað sig Mister Kipper. Fyrirrétti Þegar Cannan kom fyrir rétt, sak- aður um morðið á Shirley Banks, neitaði hann að fjá sig. Það stoðaði þó htið og var hann dæmdur í ævi- langt fangelsi. „Eg vO taka sérstaklega fram,“ sagöi dómarinn, „að í þínu tOviki verður ekki um neina náðun að ræða. Þú kemur tíl með að sitja inni alla þína daga. Þú lýkur ævinni á bak við rimla.“ Shirley Banks með manni sínum, Richard, á brúðkaupsdaginn. Þó John Cannan sé þannig kom- inn í fangelsi og fái ekki aftur frelsi er rannsókninni á afbrotaferh hans ekki lokið. Hvert nauðgunarmáhð á fætur öðra, sem ekki hefur tekist að upplýsa, er nú rannsakað með tilhti til þess hvort hann tengist því en mest er þó reynt að komast að því hvort hægt verði að færa fyrir því óyggjandi rök að hann beri ábyrgð á hvarfi Suzy Lamplughs og jafnvel fleiri kvenna BOasalinn hrosandi haföi einmitt áhuga á konum með úthti Suzy og þar að auki var aðferðin, sem beitt var til að lokka hana af fasteigna- sölunni, sú sama sem ljóst þykir að Cannan hafi í mörgum tilvikum beitt. Ein af uppáhaldsaðferðum hans var að taka með sér kampa- vínsflösku þegar hann var að skoða hús. Ljóst er að kampavín var drukkið í húsinu sem Suzy Lamplughs sýndi manninum sem hringt haföi tO hennar og kynnt sig sem Mister Kipper. Reynt hefur verið að fá Cannan til að koma með fjarvistarsönnun þann dag sem Suzy hvarf en honum hefur ekki tekist það. Því spyija margir sig nú þeirrar spumingar hvort líkið' af henni eigi eftir að finnast á einhverjum afviknum stað eins og lík Shirley Banks. John Cannan segist sem fyrr ekk- ert vita um hvarf Suzy Lamplughs og engu ljósi getað varpað á fjölda óupplýstra mála. Eins og áður segir er þó sterkur granur talinn leika á því að afbrotaferih hans sé lengri og ljótari en sannast hefur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.