Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1989, Blaðsíða 1
Stöð 2 á nýársdag:
Umhverfis jörðina
á áttatíu dögum
Á nýársdagskvöld frumsýnir Stöð
2 fyrsta hlutann af þremur í míniser-
íunni Umhverfis jörðina á áttatíu
dögum sem gerð er eftir hinni frægu
sögu Jules Verne.
Sagan hefur verið kvikmynduð
áður og þá lék David Niven ferða-
langinn frækna, Phileas Fogg, sem
ferðaðist í loftbelg kringum hnöttinn.
Sú kvikmynd þótti takast mjög vel
og var vel sótt.
í þessari nýju seríu leikur sjón-
Peter Ustinov leikur lögregluforingj-
ann Fix sem grunar að Phileas Fogg
sé bankaræningi. Hér hefur hann
lent í klemmu ásamt Fogg sjálfum.
varpsstjarnan Pierre Brosnan aðal-
hlutverkið. Sjónvarpsáhorfendur
sáu hann síðast í þáttaröðinni Noble
House sem einhig var sýnd á Stöö
2. Aðstoðarmann hans og þjón,
Passepartout, leikur Eric Idle, bresk-
ur gamanleikari sem þekktastur er
fyrir þátttöku sina í Monthy Python-
hópnum.
Margir aðrir leikarar leika stór og
htil hlutverk. Þar á meöal eru Julia
Nickson, Peter Ustinov, Lee Remick,
Robert Wagner, Jill St. John, John
Hillerman, Roddy McDowall, John
Mills, Robert Morley, Jack Klugman
og Christopher Lee.
Strax í fyrsta þættinum kemur í
ljós að ekki er nákvæmlega fylgt
söguþræði bókarinnar heldur ér far-
ið frjálslega með hann, sem og per-
sónumar sem koma við sögu. Sum-
um persónum er sleppt og öðrum
bætt inn í, eins og til dæmis í fyrsta
þættinum þar sem hin fræga leik-
kona Sarah Bernhard kemur við
sögu. Er Fogg ásamt Passepartout að
flýta sér yfir Ermarsund til Frakk-
lands en töf verður á að feijan láti
úr höfn vegna þess að Sarah Bern-
hard er að baða sig í káetu sinni.
Önnur þekkt persóna úr mann-
kynssögunni, sem kemur við sögu í
fyrsta þættinum, er franski læknir-
inn Louis Pasteur en það er einmitt
hann sem bendir þeim á væntanleg-
an farkost þeirra félaga, loftbelginn.
-HK
lan Holm leikur njósnarann Bernard Samson I þáttaröðinni Að leikslokum.
Sjónvarp á þriðjudögum:
Svik, báðum megin
jámtjaldsins
Að leikslokum (Game, Set &
Match) er þrettán þátta myndaflokk-
ur gerður eftir þremur skáldsögum
hins fræga njósnasöguhöfundar Len
Deighton, sem oft hefur verið kallað-
ur „ljóðskáld njósnasagnanna“.
Aðalpersónan í þessum þremur
sögum Leightons er Bernard Samson
og starfar hann á vígvelli Deightons
sem er Berlín þar sem aðalpersóna
okkar er uppalinn, til frumskóga
Mexíkó og frá gráum múrum Pól-
lands til virðuleika Oxfords. Þaö tók
heilt ár að kvikmynda þáttaröð þessa
og var kostaðurinn gífurlegur. Fór
kvikmyndatakan fram í Bretlandi,
Þýskalandi og Mexíkó og ferðaðist
kvimyndahópurinn 42.000 mílur.
Fjöldi þekktra leikara leikur í
myndaflokknum. Aðalhlutvérkið,
njósnarann Samson, leikur breski
leikarinn Ian Holm. Enska nafn
myndarinnar Game Set & Match gef-
ur til kynna þær þrjá bækur sem
handrit myndaflokksins er unnið
uppúr, Berlin Game, Mexico Set og
London Match.
Aöalpersónan Bernard Samson er
ekki hetja eins og þekktastar eru úr
njósnasögum, hann er hinn þöguli
maður sem hverfur í fjöldann. Þegar
sagan hefst er hann sestur bak við
skrifborð í aðalstöðvum M16. Þessu
starfi óskar hann eftir sjálfur eftir
að hafa orðið vitni að dauða besta
vinar síns, en það eru ekki til nein
rólegheit hjá M16, sérstaklega þegar
eiginkonan er hærra sett en hann í
sömu stofnun.
-HK
Lilja Þórisdóttir og Klara Iris Vigfúsdóttir leika mæðgur i nýrri sjónvarpsmynd, Steinbarn.
Sjónvarp á nýársdag:
Steinbam
Steinbarn er ný íslensk' sjón-
varpskvikmynd sem gerð er eftir
verðlaunahandriti Vilhorgar Ein-
arsdóttur og Kristjáns Friðriksson-
ar. Komst handritið í úrslit í sam-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva
um leikið efni er haldin var í Genf
í fyrra.
Steinbarn fjallar um unga konu
er nýlega hefur lokið kvikmynda-
námi í Englandi. Erlend sjónvarps-
stöð hefur falið henni það verkefni
að vinna handrit að mynd um
skipsstrand er átti sér stað við
norðurstrendur íslands fyrir um
það bil fjörutíu árum.
Konan kemur til landsins og
heldur þegar á söguslóðimar til að
vinna að verkefni sínu. Hún kemur
þó fyrst við hjá eiginmanni sínum
og tekur dóttur þeirra htla með sér
norður.
Þær mæðgur halda síðan á þær
slóðir er skipskaðinn varð, fjöru-
tíu árum áður. Þar komast þær í
kynni við gamlan einsetumann er
sinnir vitavörslu skammt frá
strandstaðnum og kemur á daginn
að hann var sjónarvottur að at-
burðunum á sínum tíma. Einnig
hafði hann tekið þátt í björgun
þeirra örfáu skipverja er af kom-
ust. Handritshöfundurinn tekur
gamla manninnn tah og fær hjá
honum ýmsar upplýsingar um rás
viðburða. En önnur saga ekki síður
sorgleg kemur einnig á daginn í
spjalh þeirra og hrífur hún hina
aðkomnu enn frekar en hið upphaf-
lega verkefni...
Steinbam var tekin upp í sumar.
Leikstjóri er Egih Eðvarðsson. Karl
Óskarsson er kvikmyndatökumað-
ur. Lilja Þórisdóttir leikur aðalper-
sónuna, handritshöfundinn. Ung
stúlka, Klara íris Vigfúsdóttir, leik-
ur dóttur hennar. Klara hefur áður
staðið fyrir framan kvikmyndavél-
ina, lék hún í kvikmynd Hrafns
Gunnlaugssonar í skugga hrafns-
ins. Aðrir leikarar eru: Rúrik Har-
aldsson, Margrét Ólafsdóttir,
Hallmar Sigurðsson, Þráinn Karls-
son, Sigurður Karlsson, Sigurþór
Albert Heimisson og Sólveig Arn-
ardóttir.
-HK
Sjónvarp á nýársdag:
Heimildarmynd um Thor Vilhjálmsson
Heimildarmynd um Thor Vil-
hjálmsson verður á nýársdagskvöld
kl. 21.55. Verður fetað í slóð hans hér
heima og erlendis og birt ýmis viðtöl
við hann. Umsjónarmenn myndar-
innar em Einar Kárason og Haildór
Guðmundsson.
Thor Vhhjálmsson er nafn sem
ekki verður gengið fram hjá þegar
skoðuð er bókmenntasaga síðustu
fjörutíu ára hérlendis. Thor hefur
Klemenz Jónsson sem hefur búið
Björn að baki Kára til flutnings og
er einnig leikstjóri.
fengist við ritstörf allt frá 1950 og er
jafnvígur á flestar greinar bók-
mennta: skáldsögur, ljóðagerð, ævi-
sagnaritun, ferðaþætti og greina-
skrif. Hann hefur hlotið margvísleg-
ar viðurkenningar fyrir skrif sín á
löngum ferh og nægir þar að minna
á bókmenntaverðlaun Norðurlanda-
ráðs er honum hlotnuðust 1987 fyrir
bókina Grámosinn glóir. Þá hefur
Thor einnig verið í forsvari fyrir
Á nýársdag kl. 15.40 verður flutt á
rás 1 dagskrá sem ber heitið Björn
að baki Kára. Klemenz Jónsson hef-
ur búið þáttinn til flutnings og er
leikstjóri. Er Bjöm að baki Kára
byggður á þeim atriðum úr Brennu-
Njálssögu sem fjalla um samskipti
Kára Sólmundarsonar og Bjarnar í
Mörk en þeir hafa verið vinsælar
sögupersónur í hugum flestra íslend-
inga.
I Sögusinfóníu Jóns Leifs er einn
ýmsum menningar- og listaviðburð-
um hériendis á umliðnum árum.
Thor hefur komiö víða við á löng-
um ferh og er vel heima á erlendri
grund, einkum í Frakklandi, á Ítalíu
og Spáni. Hann hefur dvalið lang-
dvölum erlendis, jafnt við nám sem
ritstörf, og hefur frá ýmsu fróðlegu
að segja. Það er Plús-film sem gerir
myndina um Thor.
kaíli sem ber heitið Björn að baki
Kára og tengir sú tónlist saman at-
riði þáttarins.
Flytjendur eru: Árni Tryggvason
sem er í hlutverki Bjarnar í Mörk
og Arnar Jónsson er leikur Kára
Sólmundarson. Róbert Arnfmnsson,
Guðrún Þ. Stephensen, Sigurður
Skúlason og Hjörtur Pálsson koma
einnig við sögu. Tæknimaður er
Hreinn Valdimarsson og hefur hann
einnigvahðtónhstina. -HK
Rás 1 á nýársdag:
Bjöm að baki Kára