Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1990, Síða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1990, Síða 1
Veitíngahús vikunnar: Lauga-ás - sjá bls. 18 Þrett- ánda- brenna á Akureyri - sjá bls. 19 Paul Zu- kofsky og Sinfóníu- hljóm- sveit æskunnar - sjá bls. 19 Portrett- sýning - sjá bls. 20-21 Vinsæl- ustu mynd- böndin 1989 - sjá bls. 24 'í ' Hjálmar H. Ragnarsson stjórnar sönghópnum Hljómeyki i flutningi á eigin söngverkum. Kristskirkja: Söngverk eftir Hjálm- ar H. Ragnarsson Sönghópurinn Hljómeyki heldur hljómleika meö söngverkum eftir Hjálmar H. Ragnarsson í Krists- kirkju, Landakoti, sunnudaginn 7. janúar kl. 17.00. A efnisskránni er Messa í fimm þáttum viö latneska kirkjutexta og Lofsöngur um Mar- íu (Ave Maria). Smíöi þeirrar messu, sem sungin veröur á þessum hljómleikum, á sér nokkuð langan aðdraganda. Hjálmar samdi Gloriuþáttinn fyrir réttum sjö árum og Credoþáttinn fyrir rúmlega tveimur árum, en hina þrjá þættina smíöaöi hann á síðastíiðnu sumri. Hljómeyki undir stjórn höfundarins frumflutti messuna á sumartónleikum í Skál- holti í síðastliönum ágústmánuði. Allt frá miðöldum til dagsins í dag hafa tónskáld glímt við að skrifa tónlist við texta hinna fóstu liði messugjörðarinnar og má þannig sjá í messutónlistinni helstu hrær- ingar og strauma sem átt hafa sér stað í vestrænni tónlist. Þá endur- speglar tónlist tónskáldanna við þessa messutexta afstöðu manna á mismunandi tímum til Drottins síns og hvaða breytingum tilbeiðsl- an hefur tekið frá einni öld til ann- arrar. Sú messa sem flutt verður á sunnudaginn er skrifuð fyrir kór án undirleiks og án einsöngvara og fetar þennig höfundurinn hvað varðar framsetningu messunnar í fótspor tónskálda sextándu aldar- innar. Hvað varðar tök höfundar- ins á þessum fornu trúartextum má hins vegar að einhverju leyti. til sanns vegar færa að smíði þess- arar messu haíi mótast af glímu nútímamannsins við að skilja jarð- artilvist sína og óvissu hans um mátt guðdómsins í hinum harða og flókna heimi efnis- og vísinda- hyggju. Sönghópinn Hljómeyki skipa að þessu sinni fimmtán söngvarar, en stjórnandi á hljómleikunum er höf- undurinn, Hjálmar H. Ragnarsson. í austursal Kjarvalsstaða hefur verið opnuð sýning á verkum Jóhannesar S. Kjarvals sem eru í eigu Reykjavíkurborgar. Yfirskrift sýningarinnar er Kjarval og landið. Er sýningin opin daglega frá kl. 11-18. Listasafn Sigurjóns: Tónleikar og ljóðalestur Listasafn Sigurjóns Ólafssonar mun standa fyrir tveimur dagskrám um helgina. Á laugardaginn kl. 17 verða haldnir tríótónleikar þar sem Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari, David Tutt píanóleikari og Christian Giger sellóleikari flytja píanótríó nr. 1 ópus 49 í d-moll eftir Mendelssohn og píanótríó nr. 1 ópus 8 í H-dúr eftir Johannes Brahms. Hlíf, David og Christian hafa leikið saman undanfarin ár og meðal ann- ars haldiö fjölda tónleika í Sviss. Haustiö 1988 komu þau einnig fram sem tríó hér á landi við vígslu Lista- safns Sigurjóns. Á sunnudaginn verður bók- menntadagskrá í safninu eins og venja er fyrsta sunnudag hvers mán- aðar. í þetta sinn verða lesin bæöi þýdd ljóð og frumsamin. Geir Kristj- ánssaon les úr þýðingum sínum á rússneskum ljóðum úr bókinni Und- Tríóið, sem leikur á laugardaginn, Hlíf Sigurjónsdóttir, David Tutt og Christ- ian Giger. ir hælum dansara. Gyrðir Elíasson mun síðan lesa úr nýrri ljóðabók sem nefnist Tvö tungl og að lokum les Stefán Hörður Grímsson úr bók sinni Yfir heiðan morgun. \ Gísli Magnússon píanóleikari mun leika nokkur stutt verk milli atriða. Dagskráin hefst klukkan 15 stund- víslega og tekur um það bil eina. klukkustund.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.