Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1990, Page 3
8Í
19
.ofiot H/.omai .ó aöéAcnmðí
FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1990.
Dans-
staðir
Ártún,
Vagnhöfða 11
Gömlu dansamir föstudagskvöld kl.
21-3 og laugardagskvöld kl. 22-3.
Hljójnsveitin Danssporið leikur fyrir
dansi bæði kvöldin.
Casablanca,
Skúlagötu 30
Diskótek föstudags- og laugardags-
kvöld.
Danshöllin,
Brautarholti 22, s. 23333
Hljómsveitir á fjórum hæðum fóstu-
dags- og laugardagskvöld.
Duus-hús,
Fischersundi, simi 14446
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
1
Fjörðurinn,
Strandgötu 30, sími 50249
Hljómsveit leikur fyrir dansi á fostu-
dags- og laugardagskvöld.
Danshúsið Glæsibær,
Álfheimum, simi 686220
Hljómsveit Hilmars Sverrissonar
leikur fyrir dansi um helgina. Gömlu
dansamir með Reyni Jónassyni á
sunnudagskvöld.
Hollywood,
Ármúia 5, Reykjavík
Bítlavinafélagið leikur fyrir dansi um
helgina.
Hótel Borg,
Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími
11440
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld. Borgarkráin er opin til kl. 24
báða dagana. Gömlu dansarnir með
hljómsveit Jóns Sigurðssonar á
sunnudagskvöld.
Hótel Esja, Skálafell,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, simi
82200
Dansleikir fóstudags- og laugardags-
kvöld. Lifandi tónhst. Opið frá kl.
19-1.
Hótel ísland,
Ármúla 9, sími 687111
Árshátíð Veraldar í kvöld, Stjómin
leikur fyrir dansi í kvöld og laugar-
dagskvöld.
Hótel Saga
Hljómsveitin Einsdæmi leikur fyrir
dansi.
Keisarinn
v/Hlemmtorg
Diskótek fóstdags- og laugardags-
kvöld.
Sportklúbburinn,
Borgartúni 22,
Hljómsveit leikur fyrir dansi fostu-
dags- og laugardagskvöld. Pöbb og
diskó.
Staupasteinn,
Smiðjuvegi 14D, s. 670347
Hljómsveit leikur fyrir dansi fostu-
dags- og laugardagskvöld.
Tunglið og Bíókjallarinn,
Lækjargötu 2, simi 621625
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
Ölver,
Álfheimum 74, s. 686220
Opið fimmtudags-, fóstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld. Hljóm-
sveitin Hrím leikur um helgina.
Brenna er fastur liður í þrettándagleði Akureyringa.
Skrautlitir búningar, andlitsmálning og blys tilheyra þrettándanum.
Þrettándagleði á Akureyri:
Álfadans og brenna
Gylfi Kristjánsson, DV, Akuxeyri:
íþróttafélagið Þór á Akureyri
gengst á morgun fyrir brennu og
álfadansi á félsgssvæði sínu í Gler-
árhverfi og hefst skemmtunin kl.
17 sem er breyttur tími frá siðustu
árum.
Þessi þrettándagleði Þórsara
verður með hefðbundnu sniði.
Álfakóngur og drottning hans
mæta á svæðið ásamt fóruneyti
sínu, sem skipað verður álfum,
púkum, tröllum og öðrum kynja-
verum sem munu dansa á svæðinu
og skemmta ungum sem öldnum.
Þá mæta jólasveinarnir einnig og
kveðja áður en þeir halda til fjalla.
Af öðrum skemmtiatriöum má
nefna Halla og Ladda, Bjartmar
Guðlaugsson og Jóhann Má Jó-
hannsson sögnvara sem munu sjá
um að halda uppi léttri stemningu.
Jólin verða brennd út í veglegum
bálkesti og glæsileg flugeldasýning
verður.
Um kvöldið halda Þórsarar
„brennuball“ í Húsi aldraðra og
eru allir Þórsarar velkomnir þang-
að án aðgangseyris. Boðið verður
upp á sömu skemmtiatriði og á
þrettándagleðinni fyrr um daginn.
Paul Zukofsky við æfingar með Sinfóníuhljómsveit æskunnar.
Hlufi þeirra tónlistarnemanda sem skipa Sinfóniuhljómsveit æskunnar.
Nemendurnir verða að vera búnir að ná vissri hæfni á hljóðfæri sitt
áður en þeir eru frambærilegir í hljómsveitina.
Sinfóníuhljómsveit æskunnar:
Paul Zukofsky stómar
verki eftir Schönberg
Sinfóníuhljómsveit æskunnar
mun næstkomandi sunnudag
frumflytja hérlendis Pellias & Meh-
sande eftir Schönberg undir stjórn
hins heimskunna fiðlusnillings og
stjómanda, Pauls Zukofsky.
Þessir tónleikar eru afrakstur
námskeiðs sem Sinfóníuhljómsveit
æskunnar hefur staðið fyrir nú yfir
áramótin. Hljómsveitin hefur áður
staðið fyrir að verk eru frumflutt
hérlendis. Þar á meðal 6. og 9. sinfó-
níur Mahlers.
Sinfóníuhljómsveit æskunnar er
nemendahljómsveit fyrir tónlistar-
nemendur af öllu landinu sem náð
hafa ákveðinni leikni á sitt hljóð-
færi og hefur hún starfað síðan á
ári æskunnar 1985. Á þessu nám-
skeiði eru um það bil áttatíu tón-
listarnemendur sem æft hafa
sleitulaust síðustu tíu daga og mun
námskeiðinu ljúka með tónleikun-
um.
Schönberg hafði ætlað að semja
óperu við leikritið Pellias & Melis-
ant en hvarf frá þeirri ætlun sinni
án þess að vita að Debussy var að
semja óperu um sama efni og Pell-
ias & Melisant fjallar um. Hann
samdi í stað þess tónaljóðið sem
hann segir algerlega vera byggt á
leikritinu. Schönberg hefur sagt að
hann hafi alltaf séð eftir því að
hafa ekki samið óperu. Hún hefði
orðið mjög ólík óperu Debussy.
Tónleikarnir á sunnudaginn
verða í Háskólabíói og hefjast kl. 14.
MÍR:
Kvikmynd um Spánarstríðið
Fyrsta kvikmyndasýningin á
nýju ári verður í bíósal MÍR, Vatns-
stíg 10, á sunnudaginn kl. 16. Þá
verður sýnd kvikmyndin Grenada,
Grenada, Grenada mín, heimilda-
kvikmynd Romans Karmen og
Konstantíns Simonovs frá 1967 um
Spánarstyrjöldina 1936-1939.
Kvikmynd þessi er að verulegu
leyti buggð á fréttamyndum er Ro-
man Karmen tók er hann fór til
Spánarvígstöðvanna 1936, fáum
vikum eftir að borgarastyrjöldin
hófst og um sama leyti og hið fræga
spænska skáld Federico Garcia
Lorca var myrt.
Myndefnið er einnig úr ýmsum
öðrum áttum og einnig eru notuð
atriði úr myndum sem Roman
Karmen tók í annarri Spánarferð
sinni þrjátíu árum síðar. Meðrit-
höfundur myndarinnar er Konst-
antín Simanov, þekktur blaðamað-
ur og rithöfundur sem er einkum
kunnur fyrir fréttapistla sína í
seinni heimstyrjöldinni og bækur
sem hann sRrifaði síðar um styrj-
aldarreynslu sína. Skýringar með
myndinni eru á ensku.
Komið er út prógramm yfir kvik-
myndir sem sýndar verða í MÍR-
salnum næstu þrjá mánuði. Má þar
nefna hina frægu kvikmynd Solar-
is eftir Tarkovskí sem byggð er á
vísindaskáldsögu. Verður hún
sýnd 14. janúar. Næstu helgi þar á
eftir, 20 janúar, verður stórvirki
Sergei Bondartsjúk Stríð og friður
sýnt í heild sinni. Verður þar um
maraþonsýningu að ræða með
matar- og kaffihléi, en myndin er 7
klst. og 14 mínútur. Þá verða.seinna
í vetur sýndar þrjár kvikmyndir
eftir Elgar Rjazanov, en hann
heimsótti ísland fyrir stuttu á so-
véska kvikmyndaviku.
-HK
Nýársferð Útivistar:
Breiðaból-
staður
í Fljótshlíð
Hin árlega kirkju- og nýársferð
Útivistar verður á sunnudaginn.
Verður skoðaður Breiðabólstaður
í Fljótshlíð. Gengið verður um
Krappann með Jóni á Árgilsstöð-
um. Ferð þessi er róleg ganga sem
allir geta tekið þátt í.
í kirkjunni að Breiðabólstað
heldur séra Sváfnir Sveinbjamar-
son stutta helgistund og segir sögu
staðarins. Brottfór frá Umferðar-
miðstöðinni verður kl. 11.00.