Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1990, Síða 4
20
FÖSTUDi\GUR 5. JANÚAR 1990.
FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1990.
21
Messur
Guðsþjónustur
7. janúar1990
Árbæjarprestakall: Barnasamkoma
kl. 11. Guösþjónusta kl. 14. Organ-
leikari Jón Mýrdal. Æskulýösfundur
sunnudagskvöld kl. 20.30. Öldrunar-
þjónusta Árbæjarsafnaðar: Hár-
snyrting alla þriðjudaga hjá Stellu.
Tímapantanir í sima 673530. Síma-
viötalstími öldrunarfulltrúa þriöju-
daga kl. 13-14 í síma 82405. Leikfimi
í safnaðarheimilinu þriöjudaga kl.
14. Opið hús í safnaöarheimilinu
miðvikudaga frá kl. 13.30. Fyrir-
bænastund kl. 16.30. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
Áskirkja: Barnaguösþjónusta kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14. KafFisala safn-
aðarfélagsins eftir messu. Munið
kirkjubílinn. Sr. Árni Bergur Sigur-
bjömsson.
Breiðholtskirkja: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Messa kl. 14, altaris-
ganga. Organisti Daníel Jónasson.
Bænaguðsþjónusta þriðjudag kl.
18.30. Sr. Gísli Jónasson.
Bústaðakirkja: Barnaguðsþjónusta
kl. 11, Guðrún Ebba Ólafsdóttir, sr,
Pálmi Matthíasson. Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Guðni Þ. Guðmunds-
son. Sr. Pálmi Matthíasson.
Digranesprestakall: Barnasamkoma
í safnaðarheimilinu við Bjamhólstíg
kl. 11. Guðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 14. Vænst er þátttöku ferm-
ingarbama og foreldra. Sr. Þorberg-
ur Kristjánsson.
Dómkirkjan: Messa kl. 11. Dómkór-
inn syngur. Organisti Marteinn
Hunger Friðriksson. Sr. Hjalti Guð-
mundsson.
Fella- og Hólakirkja: Messa kl. 14.
Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústs-
son. Organisti Guðný M. Magnús-
dóttir. Sóknarprestur.
Fríkirkjan í Reykjavík: Laugardagur
6. janúar kl. 18.00. Helgistund. Leikið
verður á orgel kirkjunnar frá kl.
17.40. Sunnudagur. Barnaguðsþjón-
usta kl. 11.00. Orgelleikari Pavel
Srnid. Cecil Haraldsson.
Grafarvogsprestakall: Barnamessa
kl. 11 í Félagsmiðstöðinni Fjörgyn
við Foldaskóla. Sunnudagspóstur-
söngvar. Aðstoðarfólk Guðrún, Val-
gerður og Hjörtur. Skólabíll fer frá
Hamrahverfi kl. 10.45. Sr. Vigfús Þór
Árnason.
Grensáskirkja: Messa kl. 14. Organ-
isti Ámi Arinbjarnarson. Barna-
starfið hefst sunnudaginn 14. janúar.
Prestamir.
Hallgrímskirkja: Sunnudagur 7. jan.
Messa og altarisganga kl. 11. Dr. Ein-
ar Sigurbjömsson prédikar. Bama-
samkoma á sama tíma. Sr. Karl Sig-
urbjörnsson. Þeir sem vilja bílfar
hringi í Hallgrímskirkju í síma 10745
eða 621475. Þriðjudagur 9. jan. Fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið
fyrir sjúkum. Miðvikudagur 13. jan.
Samvera fermingarbarna kl. 10.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Karl
Sigurbjömsson.
Háteigskirkja: Morgunmessa kl. 10.
Sr. Tómas Sveinsson. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Kirkjubíllinn fer um
Hlíðarnar fyrir og eftir bamaguðs-
þjónustuna. Hámessa kl. 14. Sr. Am-
grímur Jónsson. Kvöldbænir og fyr-
irbænir era í kirkjunni á miðviku-
dögum kl. 18. Prestarnir.
Kársnesprestakall: Bamasamkoma í
safnaöarheimilinu Borgum sunnu-
dag kl. 11. Umsjón hafa María og
Vilborg. Guðsþjónusta í Kópavogs-
kirkju kl. 11. Prestur sr. Stefán Lár-
usson. Sóknamefndin.
Laugarneskirkja: Engin guðsþjón-
usta verður í Laugarneskirkju
Helgi Þorgils Friðjónsson og Hallgrímur Helgason.
Kjarvalsstaðir:
Portrett
Listmálararnir Helgi Þorgils Friðjóns-
son og Hallgrímur Helgason opna á morg-
un, laugardaginn 6. janúar, málverkasýn-
ingu á portrettum sem þeir hafa málað
af vinum, kunningjum, ættingjum og eig-
inkonum. Þá hafa tvímenningamir einnig
málað hvor annan sem og sína eigin
sjálfsmynd.
Sýning þessi hefur nú staðið til í fjögur
ár og er nú loks orðin að vemleika. Verk-
in em annars vegar frá árinu 1986 og 1989
auk tveggja mynda frá nýju ári. Því er
vel við hæfi að sýning þessi sé opnuð í
byrjun nýs áratugar manngildis og vænt-
umþykju.
Portrettsýningin er í vesturforsal og
stendur til 21. janúar og er opin frá kl.
11-18.
Landslagsmálverk
í nýju húsnæði
Magnús Ingvarsson mun í dag
opna sýningu á landslagsmálverk-
um í húsnæöi Rekstrarvara að
Réttarhálsi 2. Tilefni sýningarinn-
ar er að Rekstrarvörur opna form-
lega glæsilegt húsnæði þann dag,
nákvæmlega ári eftir að fyrirtækið
brann í stórbmna að Réttarhálsi 2.
Þetta er þriðja einkasýning
Magnúsar á landslagsmálverkum
og jafnframt sú fyrsta í Reykjavík.
Auk þess hefur hann tekið þátt í
samsýningum á vegum myndhst-
arklúbbs Mosfellsbæjar sem er
undir handleiðslu Jóns Gunnars-
sonar.
Hálendi íslands er Magnúsi hug-
leikið og kemur það víða fram í
málverkum hans. Magnús er frá
Hamri í ísafjarðardjúpi en hefur
búið undanfarin ár í Mosfellsbæ.
Þá hefur Magnús einnig fengist
við rósamálun á trémuni og hefur
Magnús Ingvarsson ásamt einu málverkinu á sýningunni.
haldið sýningar á ýmsum munum
og haldið námskeið í átján ár víða
um land. Sýningin verður opin til
26. jan. á afgreiðslutíma Rekstrar-
vara sem er mánudagur til föstu-
dags kl. 8-17.
Mosfellsbær:
Álfadans og brenna
Hin ýmsu félög í Mosfellsbæ verða þar ásamt hirð sinni. Einnig Nóatúnskl. 20.00 aðbrennunninið-
gangast fyrir álfadansi og brennu verða ýmsar uppákomur, söngur ur af Álmholti. Þátttakendur eru
á þrettándanum, laugardaginn 6. og dans. beðnir um að vera hlýlega klæddir.
janúar. Álfakóngur og drottning Blysför verður farin frá bílastæði
Útivist:
Þrettándaganga
Útivist stendur fyrir stuttri
göngu á morgun, laugardaginn 6.
janúar. Lagt verður af staö frá Ár-
bæjarsafni klukkan 16 og gengið í
ljósaskiptunum eftir skemmtilegri
leið að álfabrennu við Snælands-
skóla í Kópavogi. Þar gefst kostur
á að taka þátt í dagskrá félagsins
Líf í Fossvogsdal sem hefst kl. 17.
Lagt verður í þrettándagöngu Útivistar frá Árbæjarsafni.
Hollywood:
Bítlavinafélagið
í síðasta sinn
Margrét Jónsdóttir sýnir olíumálverk i vestursal.
Kjarvalsstaðir:
Olíumálverk
í vestursal
Margrét Jónsdóttir mun á morgun,
laugardaginn 6. janúar, opna sýn-
ingu á olíumálverkum í vestursal
Kjarvalsstaða kl. 14.00. Við opnunina
mun Gunnar Guðbjartsson tenór-
söngvari syngja nokkur lög við und-
irleik Guðbjargar Sigurjónsdóttur
píanóleikara.
Sýning Margrétar er opin daglega
frá kl. 11-18. Henni lýkur 21. janúar.
Iistasafn íslands:
Mynd
- mynd mánaðarins
Mynd janúarmánaðarins í Lista-
safni íslands er eftir Gunnar Örn
Gunnarsson. Verkið sem ber ein-
faldalega heitið Mynd er unnin með
olíulitum 1976 og er stærð þess
145x130,5 og var það keypt til safns-
ins 1976.
Leiðsögnin: „mynd mánaðarins“
fer fram í fylgd sérfræðings,
fimmtudaga kl. 13.30-13.45 og er
safnast saman í anddyri Lista-
safnsins.
Listasafn íslands verður fram-
vegis opið alla daga, nema mánu-
daga kl. 12-18. Veitingastofa safns-
ins er opin á sama tíma. Aðgangur
er ókeypis svo og auglýst leiðsögn.
Bítlavinafélagið.
Mynd eftir Gunnar örn Gunnarsson.
Bítlavinafélagið, sem hefur gert
garðinn frægan á undanfömum
misseram, er nú að hætta störfum
eftir farsælan feril. Mun það
skemmta gestum í Hollywood á
fóstudags- og laugardagskvöld á
tveimur kveðjudansleikjum.
Tilkyrmingar
Safnaðarfélag Ásprestakalls
verður með kaffisölu í safnaöarheimilinu
nk. sunnudag, 7. janúar, effir messu sem
hefst kl. 14.
Félag eldri borgara
Göngu-Hrólfur hittist að Nóatúni 17 nk.
laugardag kl. 11. Opið hús aftur að loknu
jólaleyfi sunnudaginn 7. janúar, kl. 14
frjálst spil og tafl, kl. 20 dansað.
ARI (iISl.I BRACIASON
í STJÖRNUMYRKRI
MiNDSKKI VI I Al
IIAliKI IIAI.LDÖKSSYNI
Ný Ijóðabók
Nýlega er komin úr ljóðabókin „í stjömu-
myrkri" eftir Ara Gísla Bragason. Mörg
af ljóðum Ara Gísla eru myndhverfar
ljóðasmámyndir úr lífi ungs fólks á vor-
um dögum, gæddar tærri ljóðrænu en þó
settar fram á skiljanlegu máli. Bókin er
prýdd myndverkum eftir Hauk Halldórs-
son listmálara sem þjóna ljóðunum af
einlægni en eru jafnframt sjálfstæð lista-
verk. Bókin er prentuð í Borgarprenti.
Tónleikar
Ljóðatónleikar í Gerðubergi
Þriðju tónleikar í ljóðatónleikaröð
Gerðubergs verða mánudaginn 8. janúar
kl. 20.30. John Speight, baritón, syngur
við undirleik Jónasar Ingimundarsonar.
Á þessum tónleikum verður fluttur laga-
flokkur eftir B. Britten svo og sönglög
eftir Purcell, H. Wolf, F. Schubert, R.
Schumann, C. Ives o.fl.
Ferðalög
Ferðafélag íslands
Sunnudagsferð 7. jan. kl. 13.
Óttarsstaðir - Kapellan í hrauninu.
Gengið um Rauðamel, Slunkuríki, Lóna-
kot og Óttarsstaði að Kapellu heilagrar
Barböm. Mætið vel í fyrstu dagsgöngu
ársins. Fararstjóri: Kristján M. Baldurs-
son. Verð 500 kr. frítt f. böm m. fullorðn-
um. Brottfór frá Umferðarmiðstöðinni
(BSÍ) austanmegin. Ný og fjölbreytt
ferðaáætlun 1990 er að koma út. Henni
verður dreift viða og einnig send til allra
félagsmanna F.í. Myndakvöld veröur
miðvikudagskvöldið 10. janúar kl. 20.30 í
Sóknarsalnum Skipholti 50a. Vetrar-
kvöldganga og blysfór á fimmtudags-
kvöldið 11. jan. kl. 20. Þorrablótsferð í
Þórsmörk verður helgina 2.-4. febrúar.
sunnudaginn 7. jan. Helgistund
þriðjudagskvöld kl. 22. Kyrrðarstund
í hádeginu fimmtudag. Orgelleikur,
fyrirbænir, altarisganga. Léttur há-
degisverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina. Sóknarprestur.
Neskirkja: Barnasamkoma kl. 11. Sr.
Frank M. Halldórsson. Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Guðmundur Óskar Ólafs-
son. Munið kirkjubílinn. Orgel- og
kórstjóm Reynir Jónasson. Miðviku-
dagur: Fyrirbænaguðsþjónusta kl.
18.20. Sr. Guðmundur Óskar Ólafs-
son.
Seljakirkja: Laugardagur 6. janúar:
Guðsþjónusta í Seljahlíð kl. 11. Kór-
söngur. Sunnudagur: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Organisti Kjartan Sigurjónsson.
Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirkja: Fjölskyldu-
messa kl. 11. Bamastarf á sama tíma
í umsjón Öddu Steinu, Sigríðar og
Hannesar. Organisti Gyða Halldórs-
dóttir. Prestur sr. Solveig Lára Guð-
mundsdóttir. Æskulýðsfundur
sunnudagskvöld kl. 20. Opiö hús fyr-
ir 10-12 ára þriöjudag kl. 17.30.
Hafnarfjarðarkirkja: Guðsþjónusta
kl. 14. Organisti Helgi Bragason. Sr.
Gunnþór Ingason.
Tilkyimingar
Safnaðarfélag Ásprestakalls
verður með kaffisölu í safnaðarheimilinu
nk. sunnudag, 7. janúar eftir messu sem
hefst kl. 14.
Húnvetningafélagið
Félagsvist nk. laugardag, 6. janúar, kl. 14
í Húnabúð, Skeifunni 17. Allir velkomnir.
Þrettándafagnaður
Héraðsmanna
Félagsmenn Átthagasamtaka Héraðs-
manna, svo og aðrir héraðsmenn, vinir
og kunningjar ætla að hittast í Bláa saln-
um á Hótel Sögu laugardaginn 6. janúar
kl. 20.30.
Barðstrendingafélagið
heldur þrettándagleði í Hreyffishúsinu,
laugardaginn 6. janúar. Húsið opnað kl.
21. Mætum öll í furðufótum, grímubún-
ingum eða jólafótunum.
Þjónustumiðstöð aldraðra,
Vesturgötu 7,
Á morgun, laugardag, kl. 14-17, verður
þrettándadagsgleði. Syngjum og dönsum
út jólin undir harmóníkuspili Karls Jón-
atanssonar og píanóundirleik Sigur-
bjargar. Sigvaldi stjómar dansinum.
Heitt súkkulaði með rjóma og bakkelsi.
Skákþing Reykjavíkur hefst
á sunnudaginn.
Skákþing Reykjavíkur 1990 hefst nk.
sunnudag 7. janúar og verður teflt í hinu
nýja félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur
að Faxafeni 12. í aðalkeppninni, sem hefst
á sunnudaginn kl. 14, munu keppendur
tefla saman í einum flokki ellefu um-
ferðir eftir Monrad-kerfi. Umferðir verða
að jafnaöi þrisvar í viku, á sunnudögum
kl. 14 og á miðvikudögum og föstudögum
kl. 19.30. Biðskákadagar verða inni á
milli. Aðalkeppninni lýkur væntanlega
31. janúar. Keppni í flokki 14 ára og yngri
á skákþingi Reykjavíkur hefst laugardag
13. janúar kl. 14. í þeim flokki verða tefld-
ar niu umferðir eftir Monrad-kerfi, um-
hugsunartími 40 mínútur fyrir hvem
keppanda. Képpnin tekur þrjá laugar-
daga, þijár umferðir i senn. Bókaverð-
laun verða fyrir a.m.k. fimm efstu sæti.
Lokaskráning í aðalkeppnina verður
laugardag 6. janúar kl. 14-18 og er öllum
heimO þátttaka.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsgana Hana nú í Kópa-
vogi verður á morgun, laugardaginn 6.
janúar. Lagt af stað frá Digranesvegi 12
kl. 10. Nú hefst nýtt gönguár. Á síðasta
ári tóku á annað þúsund Kópavogsbúar
þátt í bæjarrölti Hana nú. Við minnum á
þetta einfalda trimm sem er ætlað öllum,
ungum sem eldri. Markmiðið er: sam-
vera, súrefni og hreyfmg. Nýlagað mola-
kaffi aUa laugardagsmorgna í upphafi
göngunnar.
Sögusjóður stúdenta
í Kaupmannahöfn
í febrúarmánuði verður veittur árlegur
styrkur úr Sögusjóði Stúdenta í Kaup-
mannahöfn að upphæð 7.000 Dkr. Sjóður-
inn veitir styrki til: a) verkefna er tengj-
ast sögu íslenskra námsmanna í Kaup-
mannahöfn. B) Verkefna er að einhverju
leyti tengjast sögu íslendinga í Kaup-
mannahöfn. C) í sérstökum tilfellum til
annarra verkefna, sem tengjast dvöl ís-
lendinga í Danmörku, er stjórn sjóðsins
telur ástæðu til að styrkja. Umsóknir um
styrkinn skulu hafa borist stjóm sjóðsins
fyrir 17. febrúar 1990.
Heimilisfang: Sögusjóður stúdenta,
Östervoldgade 12,
1350 Kaupmannahöfn K,
Danmörk.
O.A. samtökin á íslandi
O.A. samtökin starfa í formi funda þar
sem fólk hittist og deilir reynslu sinni,
styrk og vonum til að losna undan áþján
ofáts. Um áramótin fluttust allir O.A.
fundir, sem haldnir hafa verið í Þver-
holti 20, á nýjar slóðir. Mánudagsdeild
verður með fundi í Árbæjarkirkju öll
mánudagskvöld kl. 21. Miðvikudagsdeild
verður með fundi á Barónsstíg 20 öll
miðvikudagskvöld kl. 21. Byrjendafund-
ir verða öll miðvikudagskvöld kl. 20.30 á
Barónsstíg 20. Sporadeild verður með
sporafundi á Barónsstíg 20 á laugardög-
um kl. 11. Aðrar deildir verða óbreyttar
sem hér segir: laugardaga kl. 15 í Safnað-
arheimili kaþólskra, Hávallagötu 16,
föstudaga kl. 21 í Bókasafni Mýrarhúsa-
skóla, Seltjamamesi. Á landsbyggðinni:
Safnaðarheimili Hrepphólakirkju á mið-
vikudögum kl. 21, skrifstofu verkalýðs-
félagsins á Hólmavík á þriðjudögum kl.
21, Glerárkirkju, Akureyri, á mánudög-
um kl. 20.30, Snælandi við Aragötu 12,
Húsavík, á mánudögum kl. 20, Félags-
heimilinu Melsgili, Sauðárkróki, á
fimmtudögum kl. 21.30. Fundimir em
öllum opnir sem löngun hafa til að hætta
ofáti. Pósthólf O.A. samtakanna er 1783,
121 Reykjavík.
Tímaritið Þroskahjálp,
6. tbl., 1989, er komið út. Útgefandi er
Landssamtökin Þroskahjálp. í þessu
tölublaði segja foreldrar ungra bama og
nýliðar í stjóm Þroskahjálpar hvað þeim
liggur helst á hjarta varðandi lífið og til-
veruna. Erindi Páls Skúlasonar, „Réttur-
inn til lifsins", birtist í heftinu. Sagt er
frá því helsta sem fram kom á fundi Nor-
ræna samvinnuráðsins nú í haust og
rabbaö við Margréti Margeirsdóttur um
ráðstefnu sem hún sótti í Noregi um
breytingar sem em á döfinni þar í búsetu-
málum fatlaðra. Þá kynnumst viö undir-
búningi að leiklistarstarfi á vegum
Þroskahjálpar og Öryrkjabandalags.
Fastir liðir em á sínum stað. Tímaritiö
Þroskahjálp kemur út sex sinnum á ári.
Það er sent áskrifendum og fæst í lausa-
sölu í bókabúðum, á blaðsölustöðum og
á skrifstofu Þroskahjálpar, Nóatúni 177.
Áskriftarsiminn er 91-29901.
Nýr gítarskóli
Nú um áramótin tók til starfa Nýi gítar-
skólinn. Stofnendur skólans eru Björn
Thoroddsen og Friðrik Karlsson. Kennd-
ar verða hinar ýmsu stíltegundir raf- og
þjóðlagagítarleiks, t.d. blús, rokk, jass,
heavy metal og dægurlagatónlist. Nýi
gitarskólinn verður í samstarfi við Tón-
listarskóla FÍH sem er til húsa að Rauða-
gerði 27, Reykjavík.
V/SA
Þú hringir
— við birtum
og auglýsingin
verður færð á kortic
Nú er hægt að hringja inn'
smáauglýsingar og ganga
frá öllu í sama símtali.
AUKIJV
ÞJÓNUSTA
EUROCARD
'iUs ■ :::■ ■ • • ■:: • ■!
SIMGREIÐSLUR
Hafið tilbúið:
Nafn - heimilisfang
- síma - nafnnúmer
- kortnúmer
og gildistíma og að
sjálfsögðu texta
auglýsingarinnar.