Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1990, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.1990, Qupperneq 8
24 FÖSTUDAGUR 5. JANÚAR 1990. Mynd- bönd Umsjón: Sigurður M. Jónsson Hilmar Karlsson Vinsælustu myndböndin 1989 On fche Streets Blood is Thicker than Evih TrííeBlgg Götustrákar TRUE BLOOD Útgefandi: Myndform. Leikstjóri og handritshöfundur: Frank Kerr. Aðalhlutverk: Jeff Fahey, Chad Lowe, James Tolkan, Sherilyn Fenn og Billy Drago. Bandarisk 1989.100 mín. Bönnuð yngri en 16 ára. Myndin segir frá Ray sem veröur að flýja New York eftir aö hann er grunaður um morð á lögreglu- manni. Hann kemur til baka 10 árum síðar til að sækja yngri bróð- ur sinn og jafna sakirnar. Hér er að flestu leyti um að ræða dæmigerða götuslagsmálamynd. Á köflum er hún hressileg en þess á milli líður hún fyrir brotalamir í handriti. Hún er þó skárri en margt það sem af þessum meiði hefur sprottið og því alls ekki aivond. -SMJ Bandarískar gamanmyndir og spennumyndir einoka hstann yfir vinsælustu myndböndin á síðasta ári og kemur í ljós, þegar grannt er skoðað, að smekkur þeirra sem leigja sér myndbönd og þeirra sem sækja kvikmyndahúsin er mjög svipaður. Kemur í ljós að vinsæl- ustu myndböndin eru kvikmyndir sem gerðu það einnig gott hér á landi í bíóhúsunum. Einnig kemur í ljós að það hefur ekki allt að segja að kvikmynd gangi vel erlendis til að hún fái góða aðsókn hér í bíói sem á mynd- bandaleigum. Má nefna að Mid- night Run og Red Heat gerður lítið betur en að standa undir kostnaði vestan hafs en gengu vel í bíóum hér á landi og skipa sér í efstu sæti myndbandavinsældalistans. Það er gamanmyndin Big með Tom Hanks í aðalhlutverki sem var vinsælasta myndbandið hér á landi á síðasta ári. Kemur það ekkert á óvart. Hún var samtals þrettán vik- ur á listanum, þar af fjórar vikur í 1. sæti. í öðru sæti er önnur gam- anmynd, Midnight Run, með Ro- bert deNiro. Sú mynd náði einnig að vera þrettán vikur á listanum. Höfðu þessar kvikmyndir nokkra sérstöðu með hvað varðar langa viðkomu á vikulistanum. Það er fátt sem kemur á óvart þegar listinn er skoðaður í heild. Gamanmyndimar hafa vinninginn yfir spennumyndimar, öfugt við það sem gerðist í fyrra. Eins og oft vill verða var mjög jafnt á stigum milli neðstu mynda listans. Hér til hhðar eru svo 20 vinsælustu mynd- böndin 1989 valin samkvæmt viku- hsta DV en hann er svo vahnn í samráði við 10 myndbandaleigur í Reykjavík og úti á landi. Tom Hanks hlaut mikið lof fyrir leik sinn i Big. Hann er hér ásamt Ro- bert Loggia. 1. Big 2. Midnight Run 3. Big Business 4. Krókódíla Dundee II 5. Red Heat 6. Die Hard 7. Twins 8. A Fish Calied Wanda 9. D.O.A. 10. Fatal Attraction 11. Prayer for Dying 12. Saigon 13. Little Nikita 14. Mississippi Burning 15. Wall Street 16. Beetlejuice 17. Coming to America 18. Good Morning Vietnam 19. Frantic 20. The Presido Bankaræningjar í klípu THREE FUGITIVES Útgefandl: Bergvik. Leikstjóri: Francis Veber. Aðalhlutverk: Nick Nolte, Martin Short og James Earl Jones. Bandarisk, 1988 -sýningartimi 93 min. Leyfð öllum aldurshópum. Nick Nolte hefur þróast úr leik- ara sem nær eingöngu lék töffara- hlutverk yfir í leikara sem hefur náð tökum á léttum og hárfínum gamanleik. í Three Fugitives, sem er gaman- söm sakamálamynd, leikur hann bankaræningja einn sem lendir í hinum furðulegustu ævintýrum. Nær hann að sameina gamanleik- arann og töffarann í eina manngerð sem heldur þessari brokkgengu mynd á floti. Nolte leikur bankaræningjann Lucas sem er að sleppa út úr fang- elsi eftir fimm ára setu. Á móti honum .tekur lögregluforingi einn sem vill veðja við Lucas að hann geti ekki án bankarána verið, en Lucas á að baki fjórtán bankarán. Lucas er aftur á móti ákveðinn í að halda hinn þrönga veg heiðar- leikans og byrjar á því að leggja laun sín eftir fimm ára strit í fang- elsinu í banka. Hann er ekki búinn að vera lengi í bankanum þegar einhver sein- heppnasti bankaræningi, sem sést hefur lengi, reynir bankarán sem mistekst herfilega. Bankaræningj- anum tekst þó að komast burt með peningana og Lucas sem gísl. Lög- reglan trúir þvi ekki að Lucas sé aðeins gísl og mikil eftirför hefst. Samkomulag flóttamannanna er ekki upp á það besta og ekki eykur það álit Lucas á hinum misheppn- aða bankaræningja þegar hann segist eingöngu hafa framiö banka- ránið til að kosta dóttur sína í skóla.... Three Fugitives er hröð og mörg atriði fyndin, en ofleikur Martins Short er frekar hvimleiður til lengdar og er það synd því Nick Nolte og Sarah Rowland Doroff, er leikur litlu stúlkuna, eiga mjög góðan samleik. Það ætti þó fáum að leiðast yfir kostulegum flóttatil- raunum félaganna þriggja. -HK ★★!4 Stjúpa með jarðsamband MY STEPMOTHER IS AN ALIEN Útgefandl: Skífan Leikstjóri: Richard Benjamin. Handrit: Jerico og Herschel Weingrod, Timothy Harris og Jonathan Reynolds. Aóal- hlutverk: Dan Aykroyd og Kim Basinger. Bandarísk 1988. 104 min. Öllum leyfó. Aykroyd hefur átt miklu láni aö fagna í gamanmyndum og sjaldan -sem hann skýtur yfir markið. Eftir að hann varð kunnur sem annar Blús-bræðranna (á móti John Bel- ushi) hefur hann verið á stöðugri siglingu. Hefur hann meðal annars átt stóran hlut að aðsóknarmynd- unum um Draugabanana. Hér segir frá því er frekar mis- heppnuðum visindamanni (Aykro- yd) tekst að vekja athygli vits- munavera á öðrum hnetti sem ákveða að senda fulltrúa sinn (Bas- inger) til að kanna máhö. Veran heillast hins vegar af jarðarbúum og verður þar að auki ástfangin af vísindamanninum. Það er í sjálfu sér ekki mikið vit í söguþræðinum sem er mun nær gamni en vísindum. Bestu atriðin eru í kringum Basinger og ójarð- neska hæfileika hennar. Aykroyd er blessunarlega laus við að vera alvarlegur og kryddar vel upp á tilveruna. Myndin er í stuttu máli ákaflega hnökralaus en að sama skapi vitlaus. Á köflum er hún hin ágætasta skemmtun. -SMJ ★y2 Martröð í lyftu THE ELEVATOR Útgefandi: Laugarásbió. Leikstjóri: Jerry Jameson. Aðalhlutverk: James Farentino, Roddy McDowell, Craig Styevens og Carol Lynley. Bandarisk, 1973 - sýningartími 78 mín. Eins og nafn myndarinnar, The Elevator, bendir til kemur lyfta nokkuð við sögu í þessari sextán ára gömlu sjónvarpsmynd. Gerist myndin í háhýsi nokkru á fáum tímum. Þaö er kvöld, allir á leið út nema tveir ræningjar sem skunda upp á efstu hæð þar sem er von um fjármuni. Ránið heppn- ast en öðrum þeirra verður á að drepa þann sem rændur var. Það hkar öðrum ekki sem er mjög taugaveiklaður. Þegar halda skal niður úr háhýsinu stöðvast lyftan THE ★★ JÍI Enn um sprengjuna DISASTER AT SILO 7 Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Larry Elikann. Handrit: Dou- glas Lloyd Mclntosh. Aóalhlutverk: Ray Baker, Peter Boyle, Patricia Char- bonneau, Perry King, Michael O’Keefe, Joe Spano og Dennis Weaver. Bandarisk. 1988. 92. min. Bönnuó yngri en 12 ára. Líklega verða kvikmyndagerðar- menn að fara að aðlaga sig breytt- um heimi þar sem múrarnir hrynja og sprengjunum fækkar. Það er hæpið að kaldastríðs- og helfarar- myndir lifi af þær breytingar sem nú eru að eiga sér stað í heimspóht- íkinni. Hér er á ferðinni mynd sem segir frá mistökum við kjarnorku- sprengju í Texas. Er myndin sögö vera byggð á raunverulegum at- burðum og er í sjálfu sér ekki ástæða til aö rengja það. Ekki er um að ræða neitt tíma- mótaverk en frásögnin er trúverð- ug og engar hetjur eru til að spiha þvi. Framan af myndinni er frá- sögnin spennandi en hún teygist því miður of á langinn. Frammi- staða leikara er hin ágætasta og þá helst til að nefna O’Keefe i aðal- hlutverkinu. -SMJ fuh af fólki á milli hæða og þar sem annar ræningjanna er haldinn innilokunarkennd er ekki lengi aö bíða vandræðanna. The Elevator er ósköp khsju- kennd sakamálamynd. Spennan er í lágmarki og það er fátt sem kemur áhorfándanum á óvart. í hverju einasta hlutverki eru þekktir kar- akterleikarar og fyrrverandi stjömur. Má þar fyrst nefna Mymu Loy sem þótti mikil þokkadís á stríösámnum. Carol Lynley er önnur sem átti stutt stopp á stjömuhimninum. Craig Stevens, James Farentino, Don Stroud og Roddy McDowall, sem leika helstu karlhlutverkin, eru ahir þekktir karakterleikarar sem enn í dag eru í fullu starfi. _hk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.