Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1990, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.1990, Blaðsíða 2
18 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1990. Ef þú VÍIt Út að borða VEITINGAHÚS - MEÐ VÍNI A. Hansen Vesturgötu 4. Hf.. sími 651693. American Style Skipholti 70. sími 686838. Argentína 7 Barónsstígur 1 1 a. sími 19555. Arnarhóll Hverfisgötu 8 10. sími 18833. Asía Laugavegi 10. sími 626210 Askur Suðurlandsbraut 4. sími 38550 Suöurlandsbraut 1 4. sími 81 344 Á alþingi Þöpglabakka 6 (Mjóddin). s. 79911. Árberg Ármúla 21. símf 686022 Bandidos Hverfisgötu 56. sími 21630 Bæjarins besti fiskur Naustin. sími 18484 Café Hressó Austurstræti 1 8. sími 1 4353. Duus hús v/Fischersund, sími 14446. El Sombrero Laugavegi 73, sími 23433 Eldvagninn Laugavegi 73. sími 622631 Fimman Hafnarstræti 5. sími 11212. Fjaran Strandgötu 55. sími 651890. Fógetinn, Aðalstræti 10. sími 16323. Gaukur á Stöng Tryggvagötu 22. sími 1 1 556 Gullni haninn Laugavegi 178. sími 34780 Hallargarðurinn Húsi verslunarinnar. sími 30400. Hard Rock Café Kringlunni. sími 689888 Hjá Kim Ármúla 34. sími 31381 Hornið Hafnarstræti 1 5. sími 1 3340. Hótel Borg Pósthússtræti 11. sími 11440. Hótel Esja/Esjuberg Suðurlandsbraut 2. sími 82200 Hótel Holt Bergstaöastræti 37. sími 25700. Hótel ísland v/Ármúla. sími 6871 11. Hótel Lind Rauöarárstíg 18, sími 623350. Hótel Loftleiðir Reykjavíkurflugvelli. sími 22322. Hótel Óðinsvé v/óöinstbrg. sími 25224 Hótel Saga Grilliö, sími 25033. Súlnasalur. sími 20221 Skrúöur, sími 29900. Ítalía Laugavegi 1 1, sími 24630. Jónatan Livingston mávur. Tryggvagötu 4-6. sími 15520 Kabarett Austurstræti 4. sími 10292. Kaffivagninn Grandagaröi. sími 1 5932. Kínahofið Nýbýlavegi 20. simi 45022. Kína-Húsið Lækjargötu 8. simi 11014. Kringlukráin Kringlunni 4. simi 680878. Krókurinn Nýbýlavegi 26. sími 46080. Lækjarbrekka Bankastræti 2. simi 14430. Madonna Rauðarárstíg 27-29, sími 621988 Mamma Rósa Hamraborg 11. sími 42166 Mandaríninn Tryggvagötu 26, sími 23950. Mongolian Barbecue Grensásvegi 7. sími 688311 Myllan, kaffihús Kringlunni. slmi 689040. Napoli, Skipholti 37. simi 685670. Naustið Vesturgötu 6-8. sími 17759. Ópera Lækjargötu 2. simi 29499. Pizzahúsið Grensásvegi 10. slmi 39933. Pizzaramí Hringbraut 119, slmi 21066. Pizzusmiðjan Smiðjuvegi 14 D. sími 72177 Potturinn og pannan Brautarholti 22. simi 11690. Punktur og pasta Amtmannsstíg 1, slmi 13303. Rauða Ijónið Eiöistorgi, simi 611414 Rauði sófinn Laugavegí 126. simi 16566. 612095 Samlokur og fiskur Hafnarstræti 5. simi 18484. Setrið Sigtúni 38. sími 689000. Siam, Skólavörðurstíg 22. sími 28208 Singapore Reykjavíkurvegi 68. sími 54999 Sjanghæ Laugavegi 28, sími 16513. Staupasteinn Smiðjuvegi 14 D. simi 607347 Sælkerinn Austurstrætí 22. sími 11 633. Taj Mahal, Tandori og Sushi bar. Laugavegi 34a, slmi 13088. Tveir vinir og annar í fríi. Laugavegi 45. sími 21255. Veitingahúsið 22 Laugavegi 22. slmi 1 3628 Viö Tjörnina Templarasundi 3. sími 18666. Viva Strætó Lækjagötu 2 ölkeldan Laugavegi 22. sími 621036. Þrír Frakkar hjá Úlfari Baldursgötu 14. slmi 23939. Tíu dropar, Laugavegi 27. Sími 12780. Opið 8-18.00 virka daga, 10-16 laugardaga. Verð: kaffi 110 krónur, expresso 110 krónur, Cappuchino 140 krónur, Swiss Mokka 140 krónur, kökusneið 230-250 krónur, rúnn- stykki með osti 175 krónur Tíu dropar: Athvarf elli - hippanna „Viö erum ósköp venjulegt fólk,“ heyröum við tvær konur segja um leið og þær tylltu sér við næsta borð og byijuðu að háma í sig kök- ur og smjatta á kafFinu. í öðru horni kaffístofunnar sat hins vegar gamall róni og drakk kafFiö sitt hljóðlega, stóð svo allt í einu upp og heimtaði aö komast á náðhúsið. Venjulegt fólk á óvenjulegri kaffi- stofu. KafFistofan Tíu dropar er til húsa í kjallara við Laugaveginn og lætur ekki mikið yflr sér. Þegar inn er komið blasir við eitt sæmilega rúmgott herbergi á stærð við betri- stofu á velmegunarheimili og tvö minni herbergi inn af henni sem aöskilin eru með skilrúmi í miðju. í loftum hanga kafFikönnur af ýmsum stærðum og gerðum, í gluggum standa gamlir mjólkur- brúsar, aldnir kökustaukar, smjör- líkisbox og tvær kisur í líki rjóma- kanna sitja makindalega uppi í hillu. Á veggjunum ægir saman gömlum ljósmyndum af Fógrum fossum, sálmaskáldum, þjóðhetj- um lífs og liðnum í bland við Jesú- myndir og þegar litið er yfir skenk- inn má sjá Drottinn blessi heimilið. Þessi handahófskenndi ofhlæð- istíll minnti okkur sterklega á betristofurnar á frumbýlingsheim- ilum blómabarnanna fyrir röskum 20 árum. Þar sveif yfir vötnunum friðarást blandin eftirsjá eftir for- tíðinni. Hipparnir stilltu gjarnan upp myndum af John Lennon, Che Guevara og Matthíasi Jochums- syni upp á gamla tekkskápinn og voru fyrstir til að nota emaléruð næturgögn sem blómapotta. í nútímanum á kafFistofunni Tíu dropum gengur þetta ekki alls kost- ar upp. Matthías er á sínum stað en Lennon vantar tilfinnanlega. Nútímaleg límtrésborðin og reyr- stólarnir stinga harkalega í stúf við skrautmuni staðarins sem bera skipbroti hippakynslóöarinnar þögult vitni. Það myndi gefa kafFi- stofunni mun viðfelldnari blæ ef þessum borðum og stólum væri skipt út og í staðinn kæmu borð- stofuborð, dekkuð með hvítum dúkum, og stólar úr búi afa og ömmu. Stofuna virðist sækja fólk af ýms- um toga. Þó fannst okkur meöal- Kaffihúsa- rýni Jóhanna Margrét og Páll Ásgeir aldur flestra gestanna benda til þess að þeir heföu einhvern tímann sveiflaö síðu hári í takt við sýru- rokk og söng friðardúfna á borð við Melanie, Janis Joplin og Bob Dyl- an. Nú situr þetta sama fólk hins vegar og hlustar á vínarvalsa og píanókonserta eftir Mozart, sem hljóma á lágu nótunum, yFir kafF- inu á Tíu dropum. Á Tíu dropum er hægt að fá flest sem íslensk kafFihús bjóða upp á. Hefðbundið íslenskt kaffi var sæmilegt. KafFinu er þó best lýst með því að segja að það sé þunnt en bragðgott, að okkar mati allt of þunnt. Bolli af expresso þótti bragðgóöur en ÚaufuT og raunar gátum við í þau skipti sem við heimsóttum staöinn aldrei fengið almennilega sterkt kafFi. Á Tíu dropum má fá heimabakað með kaffinu og reyndum við sýnishorn af því í heimsóknum okkar á stað- inn. Súkkulaðiterta með hnetum og vínberjum var þokkalega bragð- góð en hálfklesst. Aukinheldur var hvítt glassúrkrem ofan á henni eins og hurð á berjamó eða harðfiskur með kokkteilsósu, súkkulaðikaka bragðaðist ágætlega en ostakaka, sem okkur var tjáð að rekti ættir sínar til Osta- og smjörsölunnar, minnti á smjör með ofurlitlu ost- bragði, hálf vemmileg, svo að ekki sé meira sagt. Ýmislegt annað er svo á boðstólum sem á að kitla bragölauka gesta, svo sem bragðg- ott huggulega útlítandi brauð með ýmsu áleggi sem hefur það til síns ágætis að vera ekki ofhlaðið krans- æðakremi (mæjonsósu). í hádeginu má svo fá ýmsa létta rétti og súpur en þar sem við vorum fremur í þeim hugleiðingum að smakka kafFi og eta kökur og brauð sáum við ekki ástæðu til að bragða á þeim réttum. Þjónustan á Tíu dropum var sæmileg en ekkert umfram þaö. Okkur langaði að kíkja í blöðin en því miður gátum við hvergi fundið þau liggjandi frammi eins og á sumum öðrum kafFihúsum bæjar- ins. Á Tíu dropum er einnig viðhafö- ur sá óþolandi siður að salernið er haft kirfilega læst og eigi kaffigest- ir erindi þangað þarf fyrst að fá lykil í afgreiðslunni. Fólki er samt ekki fylgt á náöhúsið eins og væri þó í rökréttu samhengi við þennan dularfulla ótta við frjálsan aðgang gesta að þessari nauðsynlegu að- stööu. Hvers vegna þetta hvimleiða fyrirkomulag er við haft er okkur hulin ráðgáta. Þó staðsetning stofunnar sé ákjósanleg við Laugaveginn, sem oftlega iðar af mannlíFi, er útsýn kafFigesta til götunnar takmörkuð eða engin. Þaö er ágætt, vilji menn sitja á hljóðskraFi í básum baka til og horfa út í portin bak Hverfis- götu, en telst óneitanlega ljóður 'fyrir þá sem hafa gaman af því að sýna sig og sjá aðra. Tíu dropar er ágætiskafFistofa fyrir sinn hatt og rauriar mun betri en margar slíkar í borginni. Ef fólk hefur hins vegar tækifæri á að skreppa heim til mömmu í kaffi og þeimabakaðar kökur mælum við frekar með því. Ástæðan er sú að kafflð er ekki nógu gott og margar mömmur (og sumir pabbar) baka betri kökur. Á skalanum 0-10 gef- um við Tíu dropum einkunnina 6,0. Ölkjallarinn Pósthússtræti 17, sími 13344. Ölver v/Álfheima, sími 686220. AKUREYRI: Bautinn Hafnarstræti 92, sími 21818. Fiðlarinn. Skipagötu 14. sími 27100. Hlóðir Geislagötu 7, sími 22504 og 22600 Hótel KEA Hafnarstræti 87 89, sími 22200. Hótel Stefanía. Hafnarstræti 83-85. sími 26366 Laxdalshús Aðalstræti 11. sími 26680. Sjallinn Geislagötu 14. sími 22970. Smiðjan Kaupvangsstræti 3. sími 21818. Uppinn Ráohústorgi 9. sími 241 99 VESTMANNAEYJAR: Muninn Vestmannabraut 28. sími 11422 Skansinn/Gestgjafinn Heiðarvegi 1. sími 1 2577. Skútinn Kirkjuvegi 21, símí 11420. KEFLAVÍK: Glaumberg/Sjávargull Vesturbraut 1 7. sími 1 4040. Glóðin Hafnargötu 62. sími 11777. Flughótelið Hafnargötu 57, sími 15222. Ráin Hafnargata 19 - sími 14601 SUÐURLAND: Gjáin Austurvegi 2. Selfossi. sími 22555. Hótel Selfoss Eyravegi 2. Selfossi. sími 22500 Hótel Örk, Nóagrill Breiðumörk 1. Hverag.. s. 34700. Inghóll Austurvegi 46. Self., sími 21356. Skíðaskálinn, Hveradölum v/Suðurlandsveg. sími 98-34414. VEITINGAHÚS - ÁN yÍNS Arnargrill Arr^rbakka 2. sími 77540. Á næstu grösum Laugavegi 26. sími 28410. Bigga-bar^r pizza Tryggvagötu 18, sími 28060. Blásteinn Hraunbæ 102, sími 673311. Bleiki pardusinn Hjallahrauni 13. sími 652525. Brauðstofan Gleymmérei Nóatúni 17. sími 15355. Chick King Suöurveri. Stigahlíö 45-47, s. 38890. Eikapíta Hvertisgötu 82. sími 25522. Eldsmiðjan Bragagötu 38 A. sími 14248. Gafl-inn Dalshrauni 1 3. sími 54424. Gnoðagrill Gnoðavogi 44. sími 678555 Hér-inn Laugavegi 72. sími 19144. Höfðakaffi Vagnhöfða 10. sími 696075. Ingólfsbrunnur Aöalstræti 9. sími 1 3620. Jón bakan Nýbýlavegi 14, sími 46614 Kentucky Fried Chicken Hjallahrauni 1 5. sími 50828. Lauga-ás Laugarásvegi 1. sími 31 620. Marinós pizza Njálsgötu 26. sími 22610. Mokka-Expresso-Kaffi Skólavöröustíg 3a. sími 21174 Múlakaffi v/Hallarmúla. sími 37737. Nespizza, Austurströnd 8, Austurströnd 8. sími 61 2030. Norræna húsið Hringbraut. sími 21522. Næturgrillið heimsendingarþj.. sími 77444. Óli prik Hamraborg 14. sími 40344. Pizzahúsið Öldugötu 29, sími 623833. Pizzaofninn Geröubergi. sími 7901 1. Pizza snögg-sneið Skólavörðustíg 2. sími 13320 Gerðubergi, sími 7901 1 Pítan Skipholti 50 C, sími 6.881 50. Pítuhúsið Iðnbúð 8. sími 641 290. Selbitinn Eiðistorgi 13 15. sími 611070. Smáréttir Lækjargötu 2. sími 1 3480. Smiðjukaffi Smiðjuvegi 1 4d. sími 72177. Sprengisandur Bústaðavegi 1 53. sími 33679. Sundakaffi Sundahöfn. sími 36320. Svarta pannan Hafnarstræti 17. sími 16480. Tíu dropar Laugavegi 27. sími 1 9380. Toppurinn Bíldshöfða 12. sími 672025. Uxinn Álfheimum 74. sími 685660. Veitingahöllin Húsi verslunarinnar. sími 30400. Vogakaffi Smiðjuvegi 50. sími 38533. Western Fried, Mosfellssveit v/Vesturlandsveg. sími 667373. Winny’s Laugavegi 116. sími 25171 AKUREYRI: Crown Chicken Skipagötu 12, sími 21464. Keflavík: Langbest, pizzustaður Hafnargötu 62. sími 14777

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.