Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1990, Qupperneq 1
Sjónvarp á föstudagskvöldum:
Spuminga-
keppni fram-
haldsskólanna
Á fostudagskvöld kl. 21.15 hefst í
Sjónvarpinu í fimmta sinn seinni
hluti Spumingakeppni framhalds-
skólanna. Undanrásir hafa fariö
fram í Útvarpinu og eru búnar ellefu
umferöir.
Þættir þessir hafa öðlast miklar
vinsældir enda komið fram upprenn-
andi sniliingar sem hafa geta svarað
hinum ótrúlegustu spurningum.
Átta stigahæstu liðin úr þessum ell-
efu umferðum spreyta sig í lokaum-
ferðunum og er ekki hætt fyrr en
eitt stendur uppi sem sigurvegari. í
fyrra var það Menntaskólinn í Kópa-
vogi sem sigraöi.
Að þessu sinni er það Steinunn Sig-
urðardóttir sem spyr æsku landsins
og hefur hún jafnframt umsjón með
þáttunum. Magdalena Schram og
Sonja B. Jónsdóttir semja spurning-
arnar og annast þær einnig dóm-
vörslu til skiptis. íþróttaspurning-
amar samdi Bjami Felixson.
Aöalstöðin:
Dagbókin
- alla virka daga
Alla virka daga er Dagbók Aðal-
stöðvarinnar milli kl. 12 og 13. f henni
eru innlendar og erlendar fréttir,
fréttir af fólki, færð, flugi og sam-
göngum, ásamt því að leikin eru brot
úr viðtölum Aðalstöðvarinnar. Þá er
-nýtt í Dagbókinni fasteignamarkað-
ur, bílatíðindi og fréttir af atvinnu-
tækifæmm.
Umsjónarmenn Dagbókarinnar
eru Eiríkur Jónsson, Ásgeir Tómas-
son, Þorgeir Ástvaldsson og Margrét
Hrafnsdóttir.
Umsjónarmenn Dagbókarinnar: Ei-
ríkur Jónsson, Þorgeir Ástvaldsson,
Ásgeir Tómasson og Margrét
Hrafnsdóttir.
Stöö 2 og Stjaman:
Popp og kók
Stjarnan og Stöð 2 hafa tekið hönd-
um saman ásamt Vífilfelli hf. og
munu í náinni framtíð framleiða
vikulegan sjónvarps- og útvarpsþátt.
Þátturinn hefur fengið nafnið Popp
og kók. í þessum þætti, sem verður
sendur út samtímis á Stöð 2 og
Stjörnunni, verða sýnd og leikin ný
tónlistarmyndbönd og fylgst með því
sem er að gerast markvert í fram-
haldsskólunum, ekki má gleyma því
að sýnt verður úr nýjustu kvikmynd-
imum. Þessi þáttur höfðar fyrst og
fremst til ungs folks, sama á hvaða
aldri það er.
Dagskrárgerð og umsjón hafa með
höndum Bjami Haukur Þórsson og
Sigurður Helgi Hlöðversson.
Skúrkurinn Helgi makkar við móður sína. Hólmfríður Björnsdóttir og Pétur Einarsson i hlutverkum sínum.
Sjónvarp á sunnudagskvöld:
Englakroppar
Tveir af fremstu kvikmyndagerð-
armönnum okkar, Friðrik Þór Frið-
riksson og Hrafn Gunnlaugsson,
sameinast óbeint um sjónvarpskvik-
myndina Englakroppa. Myndin er
byggð á smásögu eftir kvikmynda-
gerðarmanninn og skáldið Hrafn
Gunnlaugsson og er hana að finna í
safni tólf smásagna er nefnist Fiski-
sagan flýgur og kom út 1981.
Hetja þessarar kvikmyndar er bæj-
arstjóri í smábæ úti á landi og er
hann jafnframt sögumaður. Dag
nokkum berst honum til eyma óljós
orðrómur um að myrkraverk hafi
verið framin í þorpinu. Hann fer því
á stúfana að leita sér upplýsinga.
Með aðalhlutverkin fara Gísh Hall-
dórsson, Pétur Einarsson, Egill Ól-
afsson, Harald G. Haraldsson og
Kristbjörg Kjeld. Leikstjóri og stjórn-
andi upptöku er Friðrik Þór Friðriks-
son. Kvikmyndun annaðist Tony
Forsberg en þessi þekkti sænski
kvikmyndatökumaður hefur áður
unnið með Hrafni Gunnlaugssyni.
Egill Olafsson í baði og er greinilega brugðið vegna einhvers sem stendur
i DV.
Klippingu annaðist Skapti Guð-
mundsson og tónlistina samdi Hilm-
ar Örn Hilmarsson.
Englakroppar eru á dagskrá Sjón-
varpsins kl. 21.35.
Bandaríkin:
Vinsælustu sjónvaipsserímnar
Nýlega var birtur Usti yfir tíu vin-
sælustu sjónvarpsseríurnar í
Bandaríkjunum. Það sem kemur
mest á óvart er vinsældir stuttra
gamanmyndasería. Af þáttunum
tíu eru átta slíkar seríur sem eru
kannski ólíkar hvað söguþráð
varðar en allar byggðar upp eins.
Áhorfendur hlæja í tíma og ótíma
að fimmaurabröndurum og per-
sónum sem eiga sér engar fyrir-
myndir i raunveruleikanum. Segja
vinsældir þessara afþreyingarþátta
svo ekki verður um vihst hvað það
1. Roseanne
2. The Cosby Show (Fyrirmyndarfaðir)
3. Cheers (Staupasteinn)
4. A Different World (Vistaskipti)
5. The Golden Girls (Klassapíur)
6. 60 Minutes
7. Dear John (Kæri Jón)
8. Empty Nest.
9. The Wonder Years (Bernskubrek)
10. Murder She Wrote (Morðgáta)
er sem bandarískur almenningur
vill horfa á í sjónvarpi.
á móti vinninginn yfir vinsælustu
þættina því fjórir þeir vinsælustu
hafa allir verið á dagskrá þar. En
listinn fylgir hér.
Undantekningarnar tvær eru
fréttaskýringaþátturinn 60 Minut-
es sem hefur gengið í fjöldamörg
ár í bandarísku sjónvarpi og Morð-
gáta (Murder She Wrote), léttur
spennuþáttur.
Vinsælasti þátturinn fyrri hluta
„sjónvarpsársins" í Bandaríkjun-
um er Roseanne. Mikih sigur fyrir
Roseanne Barr, því hún átti mestan
heiður af að skapa persónurnar í
þáttaröðinni. Leysir Roseanne Fyr-
irmyndarfoðurinn af hólmi sem
hefur verið þaulsætinn í fyrsta
sætinu imdanfarin ár.
Á dagskrá Sjónvarpsins og Stöðv-
ar 2 hafa átta þessara þáttaraða
verið sýndar og skiptist það jafnt
milli stöðva. Sjónvarpið hefur aftur
Roseanne er vinsælasti sjónvarpsþátturinn í Bandaríkjunum. Eins og
sjá má af þessari mynd eru aðalleikararnir Roseanne Barr og John.
Goodman i góðum holdum.