Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1990, Side 1

Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1990, Side 1
Opið hús í Háskólanum I Það er stefna Háskóla Islands að veita almenningi innsýri í þá starf- semi sem fram fer á vegum þess, hvort sem um rannsóknir, kennslu eða almenna þjónustu er að ræða. Þessu markmiði er leitast við að ná með ýmsu móti og er hið árlega „opna hús“ sem verður nú á sunnu- daginn liður í þeirri viðleitni. Jafn- framt má segja að tilgangur „opins húss“ sé tvíþættur, annars vegar að ná til almennings og hins vegar að sinna þörfum framhaldsskólanema í námsvali. í „opnu húsi“ mætast allar deildir til leiks ásamt 22 sérskólum landsins og ýmsum þjónustuaðilum með það fyrir augum að veita nemendum í námsvah upplýsingar á sem breið- ustum vettvangi. Með samvinnu við sérskólana er Háskólinn að koma á móts við þær breytingar sem orðið hafa á skipulagi framhaldskólanna, en það er ekki lengur sjálfgefið að framhaldsskólanemar og stúdents- efni leiði aðeins hugann að háskóla- námi. Fulltrúar allra kynningaraðila sitja fyrir svörum við upplýsinga- borð sem komið verður fyrir í Þjóð- arbókhlöðu. Til viðbótar þessari breiðkynningu á námsframboði skiptast deildir og stofnanir Háskólans frá ári til árs á um að kynna starfsemi sína hver í sínum húsakynnum. í tengslum við þennan hluta verður í ár lögð áhersla á að kynna starfsemi Háskóla íslands sem tengist verkfræðideild og raun- vísindadeild en sú starfsemi fer að mestu leyti fram á háskólalóðinni vestan Suðurgötu. Þessi umfangsmikla kynning „op- ins húss“ fer nær eingöngu fram á samfehdu svæði það er á háskólalóð- inni vestan Suðurgötu og í Þjóðar- bókhlöðu. í tilefni „opin húss“ verða fríar kvikmyndasýningar í Háskólabíói á sunnudaginn og verða þá í leiðinni kynntir nýir sýningarsalir og í and- dyri bíósins munu nemendur Fóstur- skóla íslands vera með brúðuleikhús fyrir börn. Margt fleira verður gert gestum til skemmtunar og fróðleiks. Háskóli íslands vonast eftir því að með þessum hætti verða lifandi og fræðandi vettvangur þar sem allir er áhuga hafa á menntun og við- fangsefnum á efri skólastigum geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Mynd þessi er tekin þegar Sinfóníuhljómsveit íslands var á æfingu fyrir afmælistónleikana. Afmælistónleikar Sinfóníunnar: Hátt á annað hundrað manns á sviðinu Á laugardaginn eru liðin fjörutíu ár frá því Sinfóníuhljómsveit íslands hélt sína fyrstu tónleika. Á afmæhs- daginn verða því sérstakir afmælis- tónleikar og verða þeir í Háskólabíói og hefjast kl. 19.30. Stjórnandi á tón- leikunum verður Petri Sakari og veröur efnisskráin sem hér segir: Sellókonsert eftir Jón Nordal. Ein- leikari verður Erling Blöndal Bengt- son sem hefur áður leikið nokkrum sinnum með Sinfóníuhljómsveitinni og er einhver fremsti sellóleikari í heiminum. Seinna verkið á tónleik- unum er Sinfónía nr. 2 eftir Gustav Mahler. Einsöngvarar eru Signý Sæmndsdóttir og Rannveig Braga- dóttir. Kór íslensku óperunnar kem- ur einnig fram í þessu verki. Á þessum afmælistónleikum koma fram hátt í tvö hundruð manns. Hljómsveitin verður skipuð 104 hljóðfæraleikurum og kórinn er 70 manns. Stórviðburður í skákheiminum: Stórveldaslagur í nýjum sal sem Taflfélag Reykja- víkur hefur komið sér upp í Faxafeni 12 hest stórviðburður í heimi skák- íþróttarinnar í kvöld. Það er sór- veldaslagurinn sem er keppni fjög- urra liða; frá Sovétríkjunum, Banda- ríkjunum, Bretlandi og úrvalshðs frá Norðurlöndunum. Teflt verður á tíu borðum, tvöföid umferð, og stendur mótið yflr í eina viku. Á sinn hátt mun sórveldaslagurinn eða VISA-IBM Chess Summit eins og keppnin heitir á ensku verða eins konar friðsamleg átök á hvítum reit- um og svörtum milli stórveldanna í austri og vestri. Þótt Sovétmenn sendi ekki sína sterkustu menn verða þeir að teljast sigurstranglegastir. Eru samanlögð stig þeirra langt yfir stigaíjölda hinna þriggja keppinautanna, samt vantar heimsmeistarann, Kasparov, og næststerkasta skákmann í heimi, Karpov. Þá má nefna áð hvorki Belja- veski eða Salov, sem eru í fremstu röð sovéskra skákappa, eru í sveit- inni. Aðrar sveitir eru að langmest- um hluta skipaðar sterkustu mönn- um sem kostur er á. Möguleikar Norðurlandaliðsins eru ekki mikhr á pappírnum en það er aldrei að vita hvað gerist þegar sest er að skákborðinu. íslenskir skákmenn skipa helming Norður- landaliðsins eða sex, þeir eru Helgi Ólafsson, Margeir Pétursson, Jó- hann Hjartarson, Jón L. Árnason, Friðrik Ólafsson, sem jafnframt er liðsstjóri Norðurlandahösins, og Karl Þorsteinsson. Norræna húsið: Aldarafmæli Everts Taube Um helgina verður lialdið hátíð- lega í Svíþjóð aldarafmæh Everts Taube. Taube er ásamt Carl Michael Bellman ástsælasta vísnaskáld Sví- þjóðar. í Norræna húsinu verða af þessu tilefni tvær skemmtanir með vísum og lögum eftir Evert Taube. Hin fyrri verður á morgun, 10. mars, kl. 20.30 og hin síðari á sunnudag kl. 16.00. Það er sönghópurinn DUO VI frá Gautaborg sem kemur til íslands með Taube-veislu í farangrinum. Thomas Utbult og Bert-Ove Lund- quist mynda DUO VI. Þeir koma frá skerjagarðinum við Gautaborg en þar fæddist Evert Taube. Þeir hafa nýlega verið á ferðalagi með Gösta, yngri bróður Taubes. Sönghópurinn mun koma fram á mikilli Taube- hátíð í tónleikahúsi Gautaborgar mánudagskvöldið 12. mars, á fæðing- ardegi vísnaskáldsins. Thomas Utbult og Bert-Ove Lund- quist leika á gítar og harmóníku og önnur hljóðfæri þegar tækifæri býðst. í vor verður gefln út önnur hljómplata þeirra. Fyrir utan að leika í Norræna hús- inu mun DUO VI skemmta í Vest- mannaeyjum í kvöld kl. 20.30 og á sunnudagskvöld skemmta þeir í Borgarnesi kl. 20.30. Obsessions 2 í Sýningarsal FÍM Sýning á verkum hönnuðarfns og hstamannsins Daniels Morgenstern verður opnUð á laugardaginn í sýn- ingarsal FÍM. Nefnist sýningin Ób- sessions 2. Það er tímaritið Mannhf sem gengst fyrir sýningu á verkum eftir þennan merka hönnuð' en á þeim þremur árum, sem liðin eru frá því hann kom til Bretlands frá heimalandi sínu, ísrael, hefur hann skapað sér nafn sem hstamaður sem fér ekki hefðbundnar leiðir í fagi sínu. Morgenstern leggur óendanlega möguleika pappírs til grundvahar verkum sínum. Hann hefur unnið mikið með pappírsræmur sem hann mótar í stór htrík verk og hefur einn- ig fengist við ýmis fremur óvenjuleg form, meðal annars hjólkoppa sem hann hefur fundið og skreytt með pappírsræmum. Verk Morgensterns hafa vakið verðskuldaða athygli í London þar sem hann hefur verið búsettur síð- astliðin þrjú ár. Hann hefur hannað forsíður fyrir þekktasta hönnunar- tímarit Bretlands, Design Week, og nýlega hannaði hann kápu fyrir Portfolio sem er yfirlitsrit, útgefið af samtökum auglýsingastofa í Bret- landi. Hann hefur hannað útstilhng- ar fyrir verslun franska fatahönnuð- arins Jeans Peters Gaultier í London Bazar for Men. Morgenstern hefur einnig fengist við sviðsmyndagerð fyrir tónlistarmyndbönd hljómsveita á borð við Psychedehc Furs og Go West. Þótt ýmsir myndu flokka verk Morgensterns sem myndhst hefur hann sjálfur þá skoðun að hann sé „kaupsýslulistamaður", hönnuður sem vinnur verk eftir forskrift kaup- enda. „Ég vil geta unnið með ákveðið verkefni í huga, með þá vitneskju í huga fyrir hvern ég er að hanna,“ segir hann. „Ég er ekki myndlistar- maður. Myndlistarmaður situr fyrir framan auða örk og slettirTitum sér til ánægju. Það er þarna sem mörkin eru milli hönnunar og myndhstar." Sýningin verður opin alla daga frá kl. 14-18 til 27. mars.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.