Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1990, Síða 6
22.
FÖSTUDAGUR 9. MAES 1990.
Kvikmyndahúsin
REGNBOGINN sýnir þessa dagana Innilokaður með Sylvester Stallone
í aðalhlutverki. Leikur hann fanga einn sem á stuttan tíma eftir af inni-
setu sinni. Fangavörður einn, sem telur hann eiga sök á að hann var
lækkaður i tign, hefur þó hug á að halda honum lengur inni. Það er
Donald Sutherland sem leikur fangavörðinn.
BÍÓHÖLLIN sýnir í hefndarhug með Patrick Swayze í aðalhlutverki.
Leikur hann lögguna Truman Gates sem starfar í Chicago. Þegar bróð-
ir hans er myrtur af glæpaflokki lendir hann i að berjast einn gegn
harðsoönum glæpaflokkum sem tilheyra „fjölskyldum" sem ráða lögum
og lofum í undirheimum Chicago.
Dan Aykroyd og Jessica Tandy hafa bæði verið tilnefnd til óskarsverðlauna.
Laugarásbíó:
Ekið með Daisy
Laugarásbíó sýnir hina eftirtekt-
arveröu kvikmynd Ekið meö Daisy
(Driving Miss Daisy) sem fengiö
hefur hvorki fleiri né færri en níu
óskarstilnefningar í ár. Hún hefur
meöal annars fengið tilnefningu
sem besta kvikmynd, aöalleikar-
arnir tveir, Jessica Tandy og Morg-
an Freeman, eru tilnefndir fyrir
leik, einnig Dan Aykroyd fyrir leik
sinn í aukahlutverki. Frá því kvik-
myndin var frumsýnd um jóhn
hefur sigurganga hennar verið
mikil vestanhafs.
Ekiö meö Daisy er byggö á sam-
nefndu leikriti sem frumsýnt var á
Broadway 1987. Þar lék Morgan
Freeman sama hlutverk og hann
leikur í myndinni og hlaut Obie-
verölaunin fyrir.
Leikstjóri myndarinnar Ekiö
meö Daisy er Bruce Beresford,
ástralskur leikstjóri sem var einn
af upphafsmönnum áströlsku kvik-
myndabylgjunnar svokölluöu.
Þekktasta ástralska kvikmyndin,
sem hann gerði, er tvímælalaust
Breaker-Morant. í Bandaríkjunum
hefur gengi hans verið misjafnt.
Hann gerði hina misheppnuðu
King David, en einnig hina ágætu
kvikmynd Tender Mercies. -HK
Kvikmyndaklúbbur íslands:
Konan a ströndinni
Konanáströndimú(Womenon lista- og menntamenn sem voru
the Beach) er sjálfsagt aðallega tíöir gestir á æskuheimili hans.
þekkt fyrir að vera síðasta kvik- Hann lauk háskóiaprófi í heim-
mynd sem Jean Renoir geröi í speki og stærðfræði en gekk í
Bandaríkjunum. Hun er langt frá herinn 1913 og barðist i fyrri
að vera í flokki hans bestu kvik- heimsstyrjöldinni.
mynda og hefur í raun lítiö erindi Fyrstu kynni Renoir af kvik-
á sýningarskrá Kvikmynda- myndagerð voru þau aö hann
klúbbs íslands. flármagnaöi kvikmynd til aö
Myndin fjallar um Strand- koma konu sinni á framfæri 1942.
gæslumanninn Scott Burnett sem Áhuginn var kviknaður og varö
er nýkominn heim úr stríðinu og ekki aflur snúið. Hann leikstýrði
þjáist af eftirköstum reynslunnar kvikmynd sama árið en hún þótti
þar. Hann verður ástfanginn af kiaufaleg enda gerð af algjörum
dularfullri konu sem hann hittir viðvaningi. En framfarir hans
á ströndinni. Hún er gift hálf- voru örar. Og í næstu kvikmynd
geggjuðum og blindum lista- hans.Nana, máttisjáþáljóðrænu
manni. Hún höfðar til samúðar ograunsæisemjafnaneinkenndi
Burnett með því að segja honum myndir hans upp frá því.
frá grimmd eiginmannsins. Bur- Þekktustu kvikmyndir Jean
nett leggur á ráðin um að ryðja Renoir gerði hann rétt áður en
listamanninum úr vegi en kemst seinni heimsstyrjöldin skall á, La
að því um síðir aö samband hjón- La Grand Illusion og La Régie du
anna er mun flóknara en konan Jeu. Hann flúðí til Bandaríkjanna
hafði látiö í veðri váka. 1941 og sneri aftur til heimalands
Jean Renoir er einhver merk- síns 1949 og hélt áfram aö leik-
asti kvikmyndagerðarmaður sem stýra myndum fram til 1969. hann
uppi hefur verið. Hann fæddist í lést 1979. Sýning á Konan á
París 15. september 1894. Faðir ströndinniverðurálaugardaginn
hans var listmálarinn Auguste kl. 15 í Regnboganum.
Renoir. Jean ólst upp innan um -HK
Sýningar
1 Grafík-gallerí Borg, Síðumúla 32,
er nú blandað upphengi: grafikmyndir
eftir um þgð bil 50 höfunda, litlar vatns-
lita- og pastelmyndir og stærri oliumál-
verk eftir marga af kunnustu listamönn-
um þjóðarinnar.
Gallerí 11
Skólavörðustíg 4a
Þar stendur yfir sýning á skúlptúr, líkön-
um og pappírssamfellum eftir Jóhann
Eyfells og stendur sýningin til 15. mars.
Sýningin er opin kl. 14-18 alla daga.
Gallerí List
Skipholti 50
Til sölu verk eftir þekkta íslenska lista-
menn. Opið á afgreiðslutíma verslana.
Gallerí Sævars Karls
Bankastræti 9
Þar stendur yfir sýning Guðjóns Ketils-
sonar á blýantsteikningum. Sýningin
stendur til 16. mars og er opin á verslun-
artíma.
Hafnarborg
Strandgötu 34
Þar stendur yfir sýningin Nonaginta.
Þátttakendur eru: Björn Roth, Daði Guð-
bjömsson, Eiríkur Smith, Kjartan Guð-
jónsson og Ómar Skúlason. Þeir sýna
allir málverk. Sýningin er opin kl. 14-19
alla daga nema þriðjudaga og stendur
hún til 18. mars.
J. Hinriksson,
Maritime Museum,
Súðarvogi 4
Sjóminja- og vélsmiðjumunasafnið er
opið frá kl. 13-17 þriðjudaga, miðviku-
daga, fimmtudaga, íostudaga og laugar-
daga.
Kjarvalsstaðir
v/Miklatún
Laugardaginn 10. mars opnar Guðjón
Bjamason í austursal og austurforsal. í
vestursal Kjarvalsstaða stendur yfir sýn-
ing á formleysiverkum úr safni Riis sem
er eitt stærsta einkasafn í Noregi. Verkin
eru eftir ýmsa heimsþekkta listamenn
og frá ámniun 1950-1970. í vesturforsal
em myndir eftir Svavar Guðnason sem
em í eigu Reykjavíkurborgar. Kjarvals-
staðir em opnir daglega trá kl. 11-18 og
er veitingabúðin opin á sama tíma.
Listasafn ASÍ
Grensásvegi 16,
Á morgun kl. 15 verður opnuð sýning á
verkum fatlaðra. í tengslum við sýning-
una verður ljóðadagskrá með söng og
upplestri, bæði frá hópi fatlaðra og frá
Félagi íslenskra leikara. Einnig verða
fyrirlestrar um heimspeki, listfræði, sál-
lækningar og listameðferð. Aðgangur að
sýningunni er öllum heimill og aðgangs-
eyrir enginn.
Listasafn Einars Jónssonar
er opið alla daga kl. 13.30-16 nema mánu-
daga. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega kl. 11-17.
Listamannahúsið
Hafnarstræti
Birgitta Jónsdóttir heldur sína fyrstu
einkasýningu hér á landi. Á sýningunni
verður aðaláherslan lögð á þurrpastel-
myndir og olíumálverk. Sýningin er opin
á verslunartíma.
Mokka kaffi,
Skólavörðustíg,
Vilhjálmur Einarsson sýnir málverk.
Norræna húsið
v/Hringbraut
í sýningarsölum Norræna hússins stend-
ur yfir sýningin Aurora 3. Á sýningunni
em verk eftir 20 unga, norræna myndlist-
armenn, fjóra frá hverju Norðurland-
anna. Frá íslandi taka þátt í sýningunni
Georg Guðni, Guðrún Hrönn Ragnars-
dóttir, Kristinn G. Harðarson og Svava
Bjömsdóttir. Sýningin er opin daglega
kl. 14-19 og lýkur henni 11. mars. Á morg-
un kl. 15 verður svo opnuð sýning í and-
dyri hússins á teikningum eftir færeyska
rithöfundinn og myndlistarmanninn
William Heinesen. Á sýningunni em
einnig ljósmyndir úr lífi hans. Sýningin
stendur til 1. apríl og er opin daglega kl.
9-19 nema sunnudaga kl. 12-19.
Katel
Laugavegi 20b
(Klapparstigsmegin)
Til sölu eru verk eftir innlenda og er-
lenda hstamenn, málverk, grafik og leir-
munir.
Sýning í Odda,
nýja hugvisindahúsinu,
er opin daglega kl. 13.30-17. Þar era til
sýnis 90 verk í eigu safnsins, aðallega
eftir yngri listamenn þjóðarinnar. Að-
gangur að safninu er ókeypis.
Listasafn íslands
Fríkirkjuvegi 7
Kennurum barna og unglinga í skólum
landsiníhefur verið boöið aö kynna verk
nemenda sinna í fyririestrasal Listasafns
íslands og stendur nú yfir sýning á verk-
um nemenda úr barnadeild Myndlista-
og handiðaskóla íslands. Á sama tíma
verður leiðsögn fyrir böm. Fjallaö verður
um abstraktlist.
Leiðsögn í fylgd sérfræðings er á fimmtu-
dögum kl. 13.30-13.45. Safnast er saman
í anddyri safnsins og er leiðsögnin öllum
opin og ókeypis.
Listasafnið er opið alla daga nema mánu-
daga kl. 12-18. Veitingastofa safnsins er
opin á sama tíma.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Laugarnestanga 70
Þar stendur yfir sýning á verkum er Sig-
uijón gerði á áranum 1960-62. Þetta eru
aðallega verk úr járni. Þá em einnig sýnd
aðföng og gjafir sem safninu hafa borist
undanfarin ár, þar á meðal myndir frá
ámnum 1936-46 sem hafa verið í einka-
eign í Danmörku. Sýningin, sem mun
standa uppi í vetur, er opin laugardaga
og sunnudaga kl. 14-17 og öll þriðjudags-
kvöld kl. 20-22.
Nýhöfn
Hafnarstræti 18
Karólína Lárasdóttir opnar sýningu í
Nýhöfn á morgun kl. 14-16. Á sýningunni
verða vatnslitamyndir og dúkristur. Sýn-
ingin, sem er sölusýning, verður opin
virka daga frá kl. 10-18 og frá kl. 14-18
um helgar. Henni lýkur 28. mars.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8
Hafnarfirði - sími 52502
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18
eöa eftir nánara samkomulagi í síma
52502.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
SPRON
Áifabakka 14
í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis
stendur yfir sýning á múrristum eftir
Gunnstein Gíslason í útibúinu, Álfa-
bakka 14, Breiðholti. Gunnsteinn hefur
haldiö nokkrar einkasýningar og tekið
þátt í fjölda samsýninga. Sýningin mun
standa yfir til 27. apríl nk. og veröur opin
frá mánudegi til föstudags kl. 9.15-16.
Sýningin er sölusýning.
Vinnustofa Ríkeyjar
Hverfisgötu
Þar em til sýnis og sölu postulínslág-
myndir, málverk og ýmsir litlir hlutir.
Opið er á verslunartíma þriðjudaga, mið-
vikudaga, fimmtudaga og föstudaga og á
laugardögum kl. 10-16.
Þjóðminjasafnið
Safnið er opið alla daga nema mánudaga
kl, 11-16.
Málverkasýning í safnaðar-
heimili Langholtskirkju
Aöalbjörg Jónsdóttir opnar á morgun kl.
16 málverkasýningu í safnaöarheimili
Langholtskirkju. Sýningin stendur til 13.
mars. Við opnun mun dansflokkur frá
Nýja-Dansskólanum sýna samkvæmis-
dansa. Opið verður til kl. 19 nema síðasta
kvöldiö. Þá verður sérstök dagskrá. Kl.
21 verða sýndir handpijónaðir kjólar úr
íslensku eingirni eftir Aðalbjörgu. Einnig
kemur óperusöngkonan Olöf Kolbrún
Harðardóttir og syngur nokkur lög.
Myntsafnið á Akureyri
Aðalstræti 58 - sími 24162
Opið er kl. 13.30-17 alla daga vikunnar.
Slunkaríki
ísafirði
Sigríður Ásgeirsdóttir sýnir grafíkmynd-
ir. Sýningin er haldin í tengslum við 5
ára afmæli Slunkaríkis og stendur til
sunnudagsins 11. mars.