Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 09.04.1990, Qupperneq 3
MÁNUDAGUR 9. APRÍL 1990. 23 DV Fjórði sigur KA í röð - nú gegn ÍR, 18-17 Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyii: KA-menn hafa heidur betur gert það gott eftir hléið sem varð á handboltanum vegna HM. Þeir hafa leikið fjóra leiki í 1. deiidinní, unnið alla og nú síðast ÍR, 18-17, á Akueyri. KA lék mjög vel í fyrri hálfleik og leiddi að honum loknum, 12-7. Vörnin var sterk, og Bjöm Bjöms- son, sem kom í markið um miðjan hálfleikinn, varði mjög vel. ÍR-ingar voru fljótir að ganga á lagið í síðari háifleik með Ólaf Gylfason fremstan í flokki. ÍR skoraði 4 fyrstu mörkin og jafnaði síðan 14-14. KA komst aftur yfir en jafnt var 16-16. Næstu tvö mörk voru frá KA en ÍR minnkaði mun- inn í 18-17. Björn var besti maður KA og kpm virkilega á óvart. Hjá ÍR var Ólafur Gylfason langbesti maður og einnig Sebastian Alex- andersson í markinu. • Mörk KA: Karl 4, Sigurpáll 4, Pétur 3, Erlíngur 3, Friðjón 2, Jó- hannes 1 og Guðmundur 1. • Mörk IR: Ólafur 5, Sigfús Orri 4(1), Matthías 4, Róbert 2, Jóhann 1 og Magnús 1. Loks vann Víkingur Víkingur vann HK, 22-23, í fall- baráttuslag í Digranesi í gær- kvöldi í 1. deild karla í hand- knattleik. Staöan í leikhléi var 10-10. Fyrri hálfleikur var jafn en í síöari hálfleik höföu Vikingar undirtökin og sigur þeirra aldrei í mikilli hættu. • Mörk HK: Magnús Sigurðs- son 7/4, Óskar Elvar Óskarsson 6, Ásmundur Guömundsson 4, Róbert Haraldsson, Eyþór Guð- jónsson 2, og Bjarni Frostason markvörður 1. • Mörk Víkings: Birgir Sig- urðsson 10/4, Bjarki Sigurðsson 5, Dagur Jónasson 3, Guðmundur Guðmundsson 3, Karl Þráinsson 1 og Ingimundur Helgason 1. -SK/RR Stjarnan vann í Eyjum Stjarnan sigraði ÍBV í Eyjum í gærkvöidi, 25-26, eftir 12-13 í ieik- hiéi. Leikurinn var jafn allan tím- ann en Stjörnumenn sterkari á lokasprettinum. Sigurður Gunn- arsson meiddist þegar skammt var í leikhlé og lék ekki fyrr en 10 mínútur voru eftir og skoraði þá fjögur síðustumörk ÍBV úr vítum. Mörk ÍBV: Sigurður 8/5, Guð- mundur 5, Sigbjörn 3, Þprsteinn 3, Hilmar 3, Sigurður 2, og Óskar 1. • Mörk Stjörnunnar: Sigurður 8/1, Hilmar 5, Gylfi 5, Skúli 4, og Axel 4. -SK/BO Staðan í 1. deild er nú þannig: FH.......16 14 1 1 422-355 29 Valur.....16 12 1 3 421-362 25 Sfjarnan.. 16 10 2 4 371-349 22 KR........15 7 3 5 323-319 17 KA........ 16 7 1 8 358-375 15 ÍBV.......16 5 3 8 372-376 13 ÍR........16 5 2 9 342-357 12 Grótta....15 4 1 10 326-360 9 Víkingur.16 3 3 10 355-386 9 HK.......16 2 3 11 332-383 7 • KR og Grótta leika í Laugar- dalshöll i kvöld. Fjör á Nesinu Tveir leikir í 16-liða úrslitum bikarkeppni HSÍ fóru fram á fostudagskvöldið. ÍBV vann Gróttu á Seltjarnarnesi eftir tví- framlengdan leik og bráöabana með 31 marki gegn 30 og B-liö ÍBV sigraði Breiðablik í Eyjum, 23-22. Eyjamenn eiga því tvö lið í 8-liða úrslitunum, -SK íþróttir • Guðjón Árnason átti stórleik í liði FH gegn Val um helgina og var maðurinn á bak við hinn mikilvæga sigur FH-inga. Hér er hann að senda knöttinn í mark Valsmanna en þeir Valdimar Grímsson og Finnur Jóhannsson koma ekki vörnum við. DV-mynd Brynjar Gauti íslandsmótið í handknattleik: - FH vann Val, 22-20, og þarf aðeins eitt stig úr tveimur leikjum FH-ingar eru komnir með aðra höndina á íslandsmeistaratitilinn í handknattleik eftir að Hafnarfjarðarliðið hafði sigrað Valsmenn, 22-20, í ótrúlegum spennuleik í nýja íþróttahúsinu í Kaplakrika á laugardag. Leikurinn var svo gott sem úrslitaleikur um titilinn og eftir sigur FH-inga virðist fátt geta komið í veg fyrir að íslandsbikarinn fari í Fjörðinn í fyrsta sinn í 5 ár. FH-ingar hafa 4 stiga forskot á Valsmenn sem hafa varðveitt titilinn undanfarin tvö ár og Hafnfirðingum nægir því aðeins eitt stig úr tveimur síðustu leikjunum til að tryggja sér sigur á íslands- mótinu. Leikurinn í Kaplakrika á laugar- daginn var fyrsti stórleikurinn í hinu nýja og glæsilega íþróttahúsi og yfir 2 þúsund áhorfendur urðu vitni aö hreint frábærum leik þar sem spenn- an var meö ólíkindum allt frá upp- hafi til enda. Leikurinn var ótrúlega „köflóttur" og taugaspennan var mikil hjá báð- um liðum. Jafnt var á öllum tölum fyrstu 15 mínútur leiksins en þá náðu FH-ingar að komast þremur mörkum yfir, 7-4, og var það mesti munurinn í leiknum. Valsmenn náðu að jafna metin í 8-8 og í leikhléi var staðan jöfn 9-9. FH-ingar byrjuðu síðari hálfleik betur og komust tveimur mörkum yfir en síðan náðu Valsmenn undir- tökunum og náðu forystunni þegar 12 mínútur voru til leiksloka. Loka- kaílinn var hreint ótrúlegur. FH- ingar jöfnuðu, 19-19, þegar 7 mínútur voru eftir og komust yfir en Vals- menn náðu að jafna, 20-20, þegar rúmar 2 mínútur voru til leiksloka. A síðustu tveim mínútunum var spennan í hámarki og það gekk á ýmsu. Valsmenn vildu fá vítakast en í stað var dæmt á þá sóknarbrot. FH-ingar virtust ráða betur við spennuna og í næstu sókn náðu þeir að komast yfir, 21-20. Valsmenn fengu tvö færi á að jafna en Berg- svein Bergsveinsson lokaði FH- markinu og Guðjón Árnason tryggði Hafnfirðingum sigurinn með glæsi- legu marki á lokasekúndunni. FH-liðið sýndi sterkan karakter og þá sérstaklega á lokakaflanum þegar mest lá við. Guðjón Árnason átti frá- bæran leik og var maðurinn á bak við sigur liðsins en liðsheildin var einnig geysilega sterk. Guðmundur Hrafnkelsson varði mjög vel í fyrri hálfleik og undir lokin varði Berg- sveinn Bergsveinsson á mikilvægum augnablikum. Valsmenn áttu góðan leik þrátt fyr- ir tapið og með smáheppni heföu þeir getað náö öðru stiginu og jafnvel báðum. Valdimar Grímsson var öflugur að vanda og einnig þeir Jak- ob Sigurðsson og Brynjar Harðarson. Vörn liðsins hefur oft verið sterkari og markverðir liðsins náðu sér held- ur ekki vel á strik. Leikmenn liðsins eyddu líka of miklum krafti í að ríf- ast við dómarana og hefðu ef til vill þess í stað átt að einbeita sér betur að leiknum. Dómarar voru þeir Rögnvald Erl- ingsson og Stefán Arnaldsson. Þeir dæmdu prýðilega framan af en gerðu sig seka um nokkur afdrifarík mistök undir lokin. Mörk FH: Guðjón 9, Jón Erling 5, Héðinn 3, Gunnar 2, Oskar 2 og Þor- gils Óttar 1. Mörk Vals: Valdimar 7/4, Brynjar 5, Jakob 4, Jón 3 og Finnur 1. -RR „Allt FH-liðið var frábært“ - sagði Þorgils Óttar Mathiesen, þjálfari FH-inga, eftir sigurinn gegn Val „Þetta var frábær leikur og FH-liðið sýndi stórkostlegan karakter í lokin. Guðjón var hreint frábær eins og reyndar ailt liðiö. Það var líka sérs- taklega gaman að vígja húsið með svona sigri og við náðum í leiðinni fram hefndum á Valsmönnum. Þeir eru búnir að vinna okkur oft undanfarin ár og því var kominn tími til að hefna ófaranna. Titillinn er þó ekki alveg í höfn því við eigum enn tvo leiki eftir og þurfum alla vega eitt stig enn,“ sagði Þorgils Óttar Mathi- esen, þjálfari og leikmaður FH-inga, ánægður með sigur sinna manna. „Frábær sigur“ „Þetta er án efa erfiðasti leikur sem ég hef spilað og örugglega sá skemmtilegasti. Þetta var frábær sig- ur og við náðum að sýna okkar rétta andlit. Stemningin var virkilega góð og áhorfendur vel með á nótunum," sagði Gunnar Beinteinsson, horna- maðurinn snjalli úr FH, eftir leik- inn. „Taugarnarbiluðu í lokin“ „Þetta var gífurlega naumt og spenn- andi eins og búast mátti við og úrslit- in réðust ekki fyrr en á lokasekúnd- unum. Við klikkuðum á mikilvægum augnablikum og það var eins og taug- arnar biluðu í lokin. Við náðum ekki aö þétta vörnina nógu vel og ég held að það hafi ráöið úrslitunum. Eins var það vendipunktur íleiknum þeg- ar dæmt var á Jakob og staðan var jöfn. Ef við heföum skorað þá hefðum \dð alveg eins getað unnið. Ég vil óska FH-ingum til hamingju með sig- urinn og ég á ekki von á öðru en að þeir verði meistarar úr þessu,“ sagði Þorbjörn Jensson, þjálfari Vals- manna, eftir leikinn. „Dómgæslan hrikalega léleg“ „Ég óska FH-ingum til hamingju en sigurinn gat orðið hvorra sem var. Leikurinn var frábær og spennan mikil, sérstaklega í lokin. Dómgæsl- an var hrikalega léleg að mínu mati og þegar dæmt var á Jakob í horninu var það alveg út í hött. Við eigum bikarkeppnina eftir og ég vona að við fáum tækifæri til að hefna okkar á FH-ingum í úrslitaleik þar,“ sagði Valdimar Grímsson, landsliðsmaður úrVal.eftirleikinn. -RR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.