Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1990, Síða 1
Sjónvarpið laugardaginn 5. maí kl. 19.00:
Bein útsending
frá Júgóslavíu
- Arthúr Björgvin kynnir Söngvakeppni sjónvarpsstöðva
Þá líður að úrslitunum í söngva-
keppni Sjónvarpsstöðva. Sjónvarp-
ið verður með þriggja klukkutíma
beina útsendingu frá keppninni
sem aö þessu sinni er haldin í
Zagreb í Júgóslavíu. Útsendingin
hefst kl. 19.00 og stendur til kl.
22.00.
Keppendur eru þegar komnir til
Zagreb og hafa tekið til við æfing-
ar. Þar á meðal eru að sjálfsögðu
Sigríður Beinteinsdóttir, Grétar
Örvarsson og hljómsveitin Stjómin
sem að þessu sinni keppa fyrir
hönd íslands.
Ýmis nýmæli verða nú í fram-
gangi keppninnar. Má þar nefna
að hljóðgerflar verða gerðir útlægir
en þeir hafa ár frá ári sett vaxandi
mark á allan tónlistarflutning. Þá
er ekki ætlunin að kynna hvert lag
fyrir sig heldur nokkur í einu til
að slíta dagskrána ekki um of í
sundur.
Talið er að um 600 milljónir
manna hafi horft á síðustu keppni
og þeir verða enn fleiri nú þvf fólk
víða í Austur-Evrópu getur horft á
hana í fyrsta sinn. Þá sýna sjón-
varpsstöðvar utan Evrópu keppn-
inni vaxandi áhuga. Því er áætlað
að um einn milljarður manna sjái
það sem fram fer keppniskvöldið í
Zagreb.
í íslensku dómnefndinni eiga
sextán manns sæti auk Guðmund-
ar Inga Kristjánssonar, sem er for-
maður, og Árna Snævars sem er
ritari. Annar hver dómnefndar-
maður er af höfuðborgarsvæðinu
en hinir af landsbyggðinni. Þá fá
bæði kynin jafnmarga fulltrúa í
nefndinni.
Kynnir í útsendingunni á laugar-
dagskvöldið verður sjónvarpsmað-
urinn raddþýði, Arthúr Björgvin
Bollason.
Sigríður Beinteinsdóttir, Grétar Örvarsson og hljómsveitin Stjórnin flytja lag Harðar Ólafssonar í Zagreb á
laugardagskvöldið.
Sjónvarp fímmtudaginn 10. maí kl. 20.30:
Sex sjónvarpsþættir
um hemám íslands
Norrænir djassdagar í Reykjavík
Þetta er fyrsti þátturinn í heimilda-
syrpu Sjónvarpsins þar sem stríðsár-
in hérlendis verða skoðuð frá ýmsum
sjónarhornum. Umsjón hafa Helgi
H. Jónsson og Anna Heiður Odds-
dóttir. Alls verða þættirnir sex og á
dagskrá fram eftir sumri.
Þættirnir eiga að varpa ljósi á ís-
lenskt þjóðfélag við upphaf heims-
styijaldarinnar síðari og þau ár sem
hún stóð. Fléttaö verður saman kvik-
myndum, ljósmyndum og viðtölum
við innlenda og erlenda menn sem
liföu og muna stríðsárin.
Fyrsta þáttinn ber upp á sjálfan
hernámsdaginn, 10. maí. í honum
verða raktir atburöir þessa fyrsta
dags hemámsins fyrir réttum 50
árum, sem og aðdragandi þess og tíö-
arandinn um þær mundir sem styrj-
aldarskýin hrönnuðust upp á Evr-
ópuhimni.
í þættinum verður talað við einn
þeirra bresku landgönguliða er fyrst-
ir stigu hér fæti á land og kom hann
sérstaklega hingað til lands vegna
viðtalsins. Einnig verður gerð grein
fyrir áhuga Breta og Þjóðverja á ís-
landi og umsvif þeirra hérlendis á
árunum fyrir styrjöldina tíunduð.
Meðal þess sem Ríkisútvarpiö
gerir í tilefni 60 ára afmælis síns á
þessu ári er að gangast fyrir
stærstu og umfangsmestu djass-
hátíð sem haldin hefur verið hér á
landi. Hefst hátíðin sunnudaginn
6. maí og lýkur að viku liöinni, 13.
maí. Alls verða um 50 tónleikar og
munu liölega 200 hljóðfæraleikarar
taka þátt í hátíðinni.
Djasshátíðin er felld inn í sér-
staka norræna útvarpsdjassdaga
sem nú eru haldnir í þriðja sinn.
Margir þekktir djassmenn á Norð-
urlöndum munu leika þessa daga.
Má þar nefna Ole Kock Hansen frá
Danmörku, Jukka Linkola frá
Finnlandi, Egil Johansen frá Nor-
egi og Hakon Werling frá Svíþjóð.
Auk þeirra og yfir tuttugu annarra
hljóðfæraleikara frá Norðurlönd-
um munu allir okkar bestu djass-
leikarar leika á Djassdögum. Hátið-
in fer þannig fram að á hverjum
degi verða tónleikar á Hótel Borg,
Fógetanum, Duushúsi, Gauki á
Stöng, Fimmunni, Horninu,
Óperukjallaranum og Kringlu-
kránni fram á föstudag. Sérstakir
norrænir tónleikar verða á
fimmtudags- og föstudagskvöld þar
sem fram koma fulltrúar Norður-
landanna.
Á laugardagskvöld verða svo
stórtónleikar á Hótel Borg þar sem
allar norrænu sveitirnar koma
fram. Hátíðinni lýkur svo með stór-
tónleikum í Borgarleikhúsinu
sunnudaginn 13. maí en þar kemur
fram stórsveit sem skipuð er tutt-
ugu og tveimur hljóðfæraleikurum
frá öllum Norðurlöndunum.
Stjómandinn verður Jukka Lin-
kola frá Finnlandi. Útvarpað verð-
ur á báðum rásum Ríkisútvarpsins
öll kvöld meðan á hátíðinni stend-
ur.
Fyrsta útvarpsútsendingin verð-
ur á sunnudagskvöld kl. 23.00 á Rás
1. Mun Borgarhljómsveitin, með
Carl Möller í broddi fylkingar,
leika í Óperúkjallaranum. Þá má
geta þess að í hádeginu, frá mánu-
degi til fóstudags, ríkja píanistar á
rás 1. Guðmundur Ingólfsson, Árni
Elfar, Jón og Karl Möller, Olafur
Stephensen og Kristján Magnússon
verða þá í sviðsljóSinu.
Helgi H. Jónsson og Anna Heiður Oddsdóttir eru umsjónarmenn þáttanna um hernám íslands.