Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1990, Qupperneq 1

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1990, Qupperneq 1
Sjónvarpið laugardaginn 5. maí kl. 19.00: Bein útsending frá Júgóslavíu - Arthúr Björgvin kynnir Söngvakeppni sjónvarpsstöðva Þá líður að úrslitunum í söngva- keppni Sjónvarpsstöðva. Sjónvarp- ið verður með þriggja klukkutíma beina útsendingu frá keppninni sem aö þessu sinni er haldin í Zagreb í Júgóslavíu. Útsendingin hefst kl. 19.00 og stendur til kl. 22.00. Keppendur eru þegar komnir til Zagreb og hafa tekið til við æfing- ar. Þar á meðal eru að sjálfsögðu Sigríður Beinteinsdóttir, Grétar Örvarsson og hljómsveitin Stjómin sem að þessu sinni keppa fyrir hönd íslands. Ýmis nýmæli verða nú í fram- gangi keppninnar. Má þar nefna að hljóðgerflar verða gerðir útlægir en þeir hafa ár frá ári sett vaxandi mark á allan tónlistarflutning. Þá er ekki ætlunin að kynna hvert lag fyrir sig heldur nokkur í einu til að slíta dagskrána ekki um of í sundur. Talið er að um 600 milljónir manna hafi horft á síðustu keppni og þeir verða enn fleiri nú þvf fólk víða í Austur-Evrópu getur horft á hana í fyrsta sinn. Þá sýna sjón- varpsstöðvar utan Evrópu keppn- inni vaxandi áhuga. Því er áætlað að um einn milljarður manna sjái það sem fram fer keppniskvöldið í Zagreb. í íslensku dómnefndinni eiga sextán manns sæti auk Guðmund- ar Inga Kristjánssonar, sem er for- maður, og Árna Snævars sem er ritari. Annar hver dómnefndar- maður er af höfuðborgarsvæðinu en hinir af landsbyggðinni. Þá fá bæði kynin jafnmarga fulltrúa í nefndinni. Kynnir í útsendingunni á laugar- dagskvöldið verður sjónvarpsmað- urinn raddþýði, Arthúr Björgvin Bollason. Sigríður Beinteinsdóttir, Grétar Örvarsson og hljómsveitin Stjórnin flytja lag Harðar Ólafssonar í Zagreb á laugardagskvöldið. Sjónvarp fímmtudaginn 10. maí kl. 20.30: Sex sjónvarpsþættir um hemám íslands Norrænir djassdagar í Reykjavík Þetta er fyrsti þátturinn í heimilda- syrpu Sjónvarpsins þar sem stríðsár- in hérlendis verða skoðuð frá ýmsum sjónarhornum. Umsjón hafa Helgi H. Jónsson og Anna Heiður Odds- dóttir. Alls verða þættirnir sex og á dagskrá fram eftir sumri. Þættirnir eiga að varpa ljósi á ís- lenskt þjóðfélag við upphaf heims- styijaldarinnar síðari og þau ár sem hún stóð. Fléttaö verður saman kvik- myndum, ljósmyndum og viðtölum við innlenda og erlenda menn sem liföu og muna stríðsárin. Fyrsta þáttinn ber upp á sjálfan hernámsdaginn, 10. maí. í honum verða raktir atburöir þessa fyrsta dags hemámsins fyrir réttum 50 árum, sem og aðdragandi þess og tíö- arandinn um þær mundir sem styrj- aldarskýin hrönnuðust upp á Evr- ópuhimni. í þættinum verður talað við einn þeirra bresku landgönguliða er fyrst- ir stigu hér fæti á land og kom hann sérstaklega hingað til lands vegna viðtalsins. Einnig verður gerð grein fyrir áhuga Breta og Þjóðverja á ís- landi og umsvif þeirra hérlendis á árunum fyrir styrjöldina tíunduð. Meðal þess sem Ríkisútvarpiö gerir í tilefni 60 ára afmælis síns á þessu ári er að gangast fyrir stærstu og umfangsmestu djass- hátíð sem haldin hefur verið hér á landi. Hefst hátíðin sunnudaginn 6. maí og lýkur að viku liöinni, 13. maí. Alls verða um 50 tónleikar og munu liölega 200 hljóðfæraleikarar taka þátt í hátíðinni. Djasshátíðin er felld inn í sér- staka norræna útvarpsdjassdaga sem nú eru haldnir í þriðja sinn. Margir þekktir djassmenn á Norð- urlöndum munu leika þessa daga. Má þar nefna Ole Kock Hansen frá Danmörku, Jukka Linkola frá Finnlandi, Egil Johansen frá Nor- egi og Hakon Werling frá Svíþjóð. Auk þeirra og yfir tuttugu annarra hljóðfæraleikara frá Norðurlönd- um munu allir okkar bestu djass- leikarar leika á Djassdögum. Hátið- in fer þannig fram að á hverjum degi verða tónleikar á Hótel Borg, Fógetanum, Duushúsi, Gauki á Stöng, Fimmunni, Horninu, Óperukjallaranum og Kringlu- kránni fram á föstudag. Sérstakir norrænir tónleikar verða á fimmtudags- og föstudagskvöld þar sem fram koma fulltrúar Norður- landanna. Á laugardagskvöld verða svo stórtónleikar á Hótel Borg þar sem allar norrænu sveitirnar koma fram. Hátíðinni lýkur svo með stór- tónleikum í Borgarleikhúsinu sunnudaginn 13. maí en þar kemur fram stórsveit sem skipuð er tutt- ugu og tveimur hljóðfæraleikurum frá öllum Norðurlöndunum. Stjómandinn verður Jukka Lin- kola frá Finnlandi. Útvarpað verð- ur á báðum rásum Ríkisútvarpsins öll kvöld meðan á hátíðinni stend- ur. Fyrsta útvarpsútsendingin verð- ur á sunnudagskvöld kl. 23.00 á Rás 1. Mun Borgarhljómsveitin, með Carl Möller í broddi fylkingar, leika í Óperúkjallaranum. Þá má geta þess að í hádeginu, frá mánu- degi til fóstudags, ríkja píanistar á rás 1. Guðmundur Ingólfsson, Árni Elfar, Jón og Karl Möller, Olafur Stephensen og Kristján Magnússon verða þá í sviðsljóSinu. Helgi H. Jónsson og Anna Heiður Oddsdóttir eru umsjónarmenn þáttanna um hernám íslands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.