Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1990, Side 1
1 l (Tq /. Q
w>! 111/f pr
•as
í bíla-
leik
með
Dönum
á Isuzu
- sjá lýsingu af
Þórsmerkurferð
danskra blaða-
manna á næstu
opnu og leið-
beiningum þeim
sem þeir fengu í
hendur frá belg-
ísku fyrirtæki
fyrir íslandsferð-
ina á bls. 36
Hálfkassabillinn sullast yfir Krossá. Þessi bíll vakti mikla aðdáun íslensku blaðamannanna i ferðinni.
Nissan Primera - arftaki Bluebird. Þessi nýi bill ber mjög svip af helstu keppinautunum á evrópska bílamarkaðn-
um: Peugeot 405 og Opel Vectra.
Arftaki Nissan Bluebird framleiddur í Bretlandi:
Japani meó evrópskt yfirbragð
Blanda af Peugeot 405 og Opel
Vectra með afturhluta í stíl við
Mercedes Benz 190 - svo lýsa evróp-
skir bílablaðamenn Nissan Primera
- arftaka Nissan Bluebird. Þessi bíll
var ekki fyrir löngu kynntur heima
í Japan og kemur væntanlega á Evr-
ópumarkað í september.
Bæði Bluebird og ekki síður þessi
nýi bíll eru í raun „evrópskir" bílar
skrifar breska bílablaðið Autocar &
Motor á dögunum. Það er kannski
engin furða vegna þess að það eru
verksmiðjur Nissan í Sunderland á
Englandi sem sjá um framleiðsluna.
Þessi stefna Nissan að gera bílana
þetta „evrópska" er augljós ef innri
markaöur Evrópu er hafður í huga,
en hann gengur í garð 1. janúar 1993.
Sú staðreynd að þegar er búið að
boða komu Primera á markað í Dan-
mörku í september er sérstæð ef það
er haft í huga að raunveruleg „Evr-
ópufrumsýning" verður ekki fyrr en
á bílasýningunni í París í október.
Fyrstu teikn um hinn nýja Primera
mátti sjá á bilsýningunni í Tokýó í
október síðastliðnum en þá sýndi
Nissan tilraunabíl undir heitinu Pri-
mera-X. Þessi tilraunabíll var með
loftmótstöðugildi upp á aðeins 0,25
Cw, en nú þegar bíllinn er kominn í
fjöldaframleiðslu þá reiknast Cw-
gildið 0,29, sem er í meðallagi fyrir
bíla af þessari stærð.
Margir keppinautar
Það eru margir skæðir keppinautar
í þessum flokki sem Primera er í.
Skæðustu keppinautarnir í hópi evr-
ópskra bíla eru Peugeot 405 og Opel
Vectra, sem honum var líkt við í
upphafi greinarinnar. Meðal ann-
arra keppinauta er Audi 80/90 og af
„heimaslóðum" má nefna bíla eins
og Honda Accord, Maxda 626 og Toy-
ota Camry.
Primera kemur á markað sem 4
dyra sedan eða „skotta“ eins og fé-
lagi minn hér á DV Bílum hefur
stungið upp á að bílar með hefð-
bundnu „þriggja kassa lagi“ eða með
skotti séu kallaði. Eins er Primera
væntanlegur sem hlaðbakur eða
„hatchback".
Boðið verður upp á ýmsar vélar.
Efst veröur íjögurra strokka vél,
1.998 rúmsm. sem gefur 150 hestöfl
við 6.400 sn/mín.
Á heimamarkaði verður Primera i
boði með 1,8 lítra vél. Hvort sú vél
verður einnig í boði á Evrópumark-
aði er ekki vitað í dag. Grunnmótor
í Primera verður án efa sama 110
hestafla, 1,6 lítra vélin með beinni
innspýtingu sem við þekkjum í dag
úr Nissan Sunny.
Góð fjöðrun
Eitt af aðalsmerkjum þessa nýja
bíls verður án efa íjöðrunin, því að
framan er sami hjólabúnaður og í
sportbílnum 300ZX frá Nissan og að
aftan verður sami hjóla- og fjöð-
runarbúnaður og á lúxusbílnum
Maxima.
Með Primera verður Nissan án efa
áfram stærsti japanski bílaframleið-
andinn í Evrópu líkt og á síðasta ári
- nokkuð sem Nissan heldur fast í.
Á síðasta ári setti Nissan upp aðal-
stöðvar í Evrópu í Amsterdam, þar
sem lögð er áhersla á tæknilegar
rannsóknir og búið er að byggja upp
mjög stóran varahlutalager fyrir
Evrópu í Amsterdam. -JR (Poiitiken)
TOYOTA
NOTAÐIR BÍLAR
Landcruiser II bensín 2400 árg. Saab 900i árg. '86, 5 gíra, 3ja dyra,
'86, m/rafm., 5 gíra, 3ja dyra, ekinn hvítur, ekinn 65.000, verð 720.000
94.000, verð 1.250.000. staðgreitt.
HB 1300 árg. '88,
4ra gíra, 5 dyra, svartur, ekinn
28.000, verð 680.000.
Toyota Camry GLi 2000 árg. '87,
rafm. í öllu, sjálfsk., 4ra dyra, grár,
ekinn 44.000, verð 950.000 stað-
greitt.
- ~ —- jg|Síg|g
Toyota 4Runner 2400 D, árg. '85, AMC Jeep pickup 4000 árg. '88, 5
5 gíra,- 3ja dyra, grár, ekinn gíra, 2ja dyra, hvitur, ekinn 25.000,
107.000, verð 1.350.000. verð 800.000 staðgreitt.
Opið laugardaga kl. 12-16
44 1 44 - 44 7 33
TOYOTA
NÝBÝLAVEGI 6-8, KÓPAVOGI