Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1990, Side 7
LAUGARDAGUR 19. MAÍ 1990.
37
Á næsta ári er von á nýjum skutbíl frá Skoda sem byggir á Favorit en er 36 sentímetrum lengri. Þetta þýöir aukna
heildarþyngd og nú leitar Skoda að samstarfsaðila sem getur hjálpað til að þróa nýja og aflmeiri vél í þennan nýja bíl.
Mikil aukning í bílaframleiðslu framundan
í Tékkóslóvaldu:
Skoda leitar
eftir sam-
starfsaðilum
í dag er framleiðslugeta Skoda-
verksmiðjanna í Tékkóslóvakíu um
190.000 bílar á ári en reiknað er með
því að innan fárra ára verði fram-
leiðslugetan komin í um 400.000 bíla
á ári. Þriðjungur núverandi fram-
leiðslu fer til útflutnings og þar með
er Skoda þriðji stærsti útflytjandi í
Tékkó.
Leitað eftir samstarfi
Líkt og er um aðra litla evrópska
bílaframleiðendur vantar Skoda
samstarfsaðila, í þessu tilfelli vest-
rænan bílaframleiðanda, til að
styrkja stöðu sína og taka þátt í
kostnaðarsömu þróunarstarfi. Vandi
Skoda birtist helst í því að núverandi
framleiðsla stendur undir íjár-
magnskostnaði og skuldum en ekki
undir frekari þróun framleiðslunn-
ar, hvorki bíla né véla.
Skutbíll á næsta ári
Á næsta ári kemur skutgerð af
Favorit á markað og unnið er að þró-
un sedan-bíls, en báðar þessar gerðir
eru líkt og Favorit teiknaðir af Ber-
tone á Ítalíu. Það er von Skoda að
áður en þessir bílar koma á markað
verði komnar nýjar 1.300 og 1.600
rúmsentímetra vélar. Slíkar vélar
verða efst á óskahstanum þegar
gengið verður til samstarfs við ein-
hvern eða einhverja í bílaiðnaðinum
á næstunni.
Af hálfu Skoda er lögð mikil
áhersla á það í leit þeirra að sam-
starfsaðila að framleiðslan haldist
innan Tékkó. Framleiðslan þar í
landi er á flmm stöðum og þar af er
langstærsta verksmiðjan í Mlada
Boleslav, skammt fyrir norðan Prag,
en þar vinna um 12.000 af sextán
þúsund starfsmönnum Skoda í
Tékkó.
Margir í sigti
Það eru margir aðilar sem Skoda
hefur í sigti sem mögulega samstarfs-
aðila. Þeir fengu breska ráðgjafarfyr-
irtækið Price Waterhouse til að
hjálpa sér við að fmna samstarfsað-
ila, og í skýrslu þess kemur fram að
framleiðslan á Favorit gengur nú
mjög vel og gæðin hafa aukist mikið.
í skýrslunni kemur líka fram að sá
aðili, sem gengur til samstarfs við
Skoda, fái mikil áhrif á framleiðsluna
og jafnframt að opnaðar verði dyr til
sölu á bílum í A-Evrópu, en þar er
mikil þörf á bílum þessa dagana.
Það eru sex evrópskir og tveir jap-
anskir aðilar sem eru í sigti af hálfu
Skoda: Frá V-Þýskalandi eru það
VW, GM (Opel) og BMW. Frá Frakk-
landi Citroen-Peugept samsteypan og
Renault og Fiat frá Ítalíu. Frá Japan
eru það Mitsubishi og Subaru sem
Skoda hefur augastað á samstarfi
við.
TEG. ÁRG. EK. VERÐ
Lada Sport 5 g. 1989 8.000 650.000
Lada Sport5g. 1988 20.000 550.000
Lada Sport5g. 1988 17.000 560.000
Lada Sport 1987 30.000 510.000
Lada Sport 1987 47.000 430.000
Lada Sport 1987 83.000 270.000
Lada Sport 1985 54.000 260.000
. Lada Safír 1988 30.000 250.000
Lada Safír 1988 50.000 230.000
Lada1200 1988 17.000 220.000
Lada Lux 1987 53.000 240.000
Lada Samara 1989 34.000 410.000
Lada Samara 1988 13.000 350.000
Lada Samara 1987 30.000 190.000
Suzuki fjórhjól 4x4 3.800 310.000
Volvo F88 árg. 77
ekinn 409.000, vel uppgerður í um 300.000,
kassi nýr í um 350.000, allar bremsur nýjar.
M. Benz 814 árg. ’85
f-iíti.
i! I -' Sff ’ ISr'
ekinn 135.000, 6 metra kassi með lyftu.
Bílasalan Skeifan
sími 689555
Mesta mótorhjólaúrval landsins
Glæsileg inniaðstaða
Tölvuskrá yfir öll hjól.
Sækjum hjólin og sendum.
Fullkominn sölufrágangur.
Tökum öll tæki í
umboðssölu.
Yfir 2000 bílar á söluskrá
Bllamiðstöðm r t
Skeifunni 8, sími 678008. ' J