Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1990, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1990.
Dans-
staðir
Bjórhöllin
Gerðubergi 1
Lifandi tónlist alla fimmtudaga,
fóstudaga og.laugardaga.
Danshúsið Glæsibær
Álfheimum, sími 686220
Dansleikur föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Danshöllin
Um helgina leikur hljómsveitin
Styrming frá Sauöárkróki fyrir
dansi á 2. hæö.
Casablanca
Danssýning fostudagskvöld,
diskótek laugardagskvöld.
Dans-Barinn
Grensásvegi 7, sími 688311
Opið funmtudags-, fostudags-.
laugardags- og sunnudagskvöld.
Tónlist sjöunda áratugarins í há-
vegum höfö.
Gikkurinn
Ármúla 7, sími 681661
Lifandi tónlist um helgar.
Hollywood
Ármúla 5, Reykjavík
Diskótek fóstudags- og laug-
ardagskvöld.
Hótel Borg
Pósthússtræti 10, Reykjavík,
sími-11440
Diskótek fóstudags- og laug-
ardagskvöld.
Skálafell, Hótel Esju,
Suðurlandsbraut 2, Reykja-
vik, simi 82200
Guðmundur Haukur leikur
föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld og nk.
fimmtudagskvöld. Opið öll
kvöld vikunnar.
Hótel ísland
Ármúla 9, sími 687111
Dansleikur fóstudags- og laugar-
dagskvöld.
Keisarinn,
Laugavegi 116
Opiö öll kvöld. Diskótek og
hljómsveitaruppákomur um
helgar.
Tunglið og Bíókjallarinn
Lækjargötu 2, simi 627090
Diskótek fóstudag og laugardag.
Ölver
Álfheimum 74, s. 686220
Opið fimmtudags-, föstudags-,
laugardags- og sunnudags-
kvöld.
&
I DRÖGUM ÚR FERÐ I
ÁÐUR EN VIÐ
BEYGJUM!
mÍUMFERDAR
Urað
19
Árbæjarsafn:
lifandi fortíð
Sumarstarf í Árbæjarsafni hefst
í dag. Safnið verður opið alla daga
nema mánudaga kl. 10-18. Bryddað
verður upp á ýmsum nýjungum og
athyghsverðar sýningar opnaðar.
Um helgar verður messað í safn-
kirkju á auglýstum tímum og í Dill-
onshúsi verða veitingar á boðstól-
um. Einnig verða ýmsar uppákom-
ur og tónleikar á dagskrá.
í sumar verður á Árbæjarsafni
opnuð krambúð að hætti aldamóta-
kaupmannsins. Þar verður ýmis-
legt á boðstólum sem minnir á
gamla tíma. í tilefiii 550 ára af-
mælis prentlistar á íslandi verður
prentminjasýning í Árbæjarsafni.
Þar verður í einu safnhúsanna
heimili og verkstæði prentara og
bókbindara og munu fagmenn sýna
þar handbragð fyrri tíma.
Liðin eru 50 ár frá því breskur
her steig hér á land og ísland dróst
inn í síðari heimsstyrjöldina. Ein
af sumarsýningum safnsins verður
um mannliílð í Reykjavík á stríös-
árunum og greint frá þeim áhrifum
er stríðið hafði þar. Til sýnis verða
munir frá stríðsárunum er tengd-
ust mannlífi Reykvíkinga, hlutir
frá hernum og skyggnst verður inn
á heimili í bragga.
Rúrik Kristjánsson, formaður fjáröflunarnefndar og Sigurveig Halldórs-
dóttir úr stjórn Landssamtaka hjartasjúklinga halda hér á lofti auglýs-
ingu með kjörorði merkjasölunnar; Er hjartað á réttum stað?
Merkjasala Landssamtaka hjartasjúklinga:
Er hjartað á
réttum stað?
Merkjasala Landssambands
hjartasjúklinga hófst í gær undir
kjörorðinu Er hjartað á réttum
stað? Lýkur merkjasölunni laugar-
daginn 2. júní. Merkið er það sama
og í síðustu fjáröflunum L.H.S. fyr-
ir tveimur og fjórum árum, það er
rautt hjarta á prjóni. Verðið er 300
krónur.
Öllum hagnaði af merkjasölunni
verður varið í þágu hjartasjúklinga
og markmiðið er „Sókn til betri
heilsu". Sjálfboðaliðar um allt land
munu annast sölu á hjartanu og
verða þeir meðal annars við f]öl-
menna verslunarstaði þessa þrjá
söludaga. Skrifstofa Landssamtaka
hjartasjúklinga er í Hafnarhúsinu
viö Tryggvagötu í Reykjavík.
listasafn íslands:
Píanótónleikar
Francoise Chorveaux
Franski píanóleikarinn Fran-
coise Choveaux kemur til íslands í
tilefni listahátíðar og mun hún
leika verk eftir frönsk tónskáld í
Listasafni íslands í boði safnsins
og Franska sendiráðsins.
Choveaux er einn áhugaverðasti
píanóleikari sem komið hefur fram
í Frakklandi á síðustu árum og
hefur hún ferðast víða við afbrags
undirtektir. Hún er fædd í Lille í
Norður-Frakklandi og stundaði
píanónám þar til hún hélt til fram-
haldnáms við Tónlistarskólann í
París.
Síðan lá leið hennar til New York
þar sem hún innritaðist í Julliard
tónlistarskólann. Þar lauk hún
meistaraprófi. Choveaux leitast við
að draga fram í dagsljósið verk lítið
þekktra tónskálda. A efnisskránni
í Listasafni íslands á sunnudaginn
kl. 15.00 eru verk eftir frönsku tón-
skáldin Debussy, Poulenc og Saint
Saens. Aðgangur er ókeypis.
Norræna húsið:
Kvikmynd um andspymu-
hreyflnguna í Danmörku
Á laugardaginn verður kvik-
myndasýning í fundarsal Norræna
hússins. Myndin sem sýnd verður
heitir Den osynlige hær og er gerð
1945 eftir þekktri sögu Knud Sond-
erby. Myndin fjallar um starfsemi
dönsku andspyrnuhreyfingarinnar
en einnig kemur hinn sígildi ástar-
þríhyrningur við sögu.
í aðalhlutverkum eru Mogens
Wieth, Bodil Kjer og Ebbe Rode.
Leikstjóri er Johan Jacobsen. Áður
en sýning hefst mun Lars Brink,
prófessor í dönsku við Háskóla ís-
lands, kynna myndina.
Myndin er sýnd í tengslum við
dagskrárröð Norræna hússins um
síðari heimsstyrjöldina. Aðgangur
er ókeypis.
Hví tasunnukapp -
reiðar Fáks
Hinar árlegu hvítasunnukapp-
reiðar Hestamannafélagsins Fáks
veröa haldnar nú um helgina. Hefj-
ast þær með keppni í A og B flokki
gæðinga. Undankeppni í A flokki
var í gær, en í B flokki verður und-
ankeppnin í kvöld kl. 18.00. Tutt-
ugu og fjórir hestar keppa í hvorum
flokki og verða tíu efstu hestar þeir
sem hljóta landsmótssæti fyrir Fák
á landsmóti hestamanna á Vind-
heimamelum í sumar.
Mótinu verður framhaldið á laug-
ardaginn og hefst kl. 9.00 um morg-
uninn með töltkeppni. Úrslit verða
síðan á mánudag og hefjast kl. 12.30
en að venju lýkur mótinu með
kappreiðum, þar sem búast má við
að mæti til leiks margir af fljótustu
hestum landsins. Verður keppt í
250 metra skeiði, 250 metra stökki,
350 metra stökki og 800 metra
stökki.
Kappreiðar Fáks hafa verið árlegur viðburður í langan tíma.
Félagsheimilið að Hlöðum:
Kór Langholtskirkju
Kór I.angholtskirkju mun á laug-
ardaginn halda tónleika í Félags-
heimilinu að Hlöðum á Hvalfjarð-
arströnd. Stjórnandi kórsins er Jón
Stefánsson. Eru þessir tónleikar
hluti af M-hátíð á Vesturlandi og
eru á vegum Tónlistarfélags Borg-
arfjarðar.
Starf Tónlistarfélagsins hefur
verið blómlegt í vetur. Hafa verið
haldnir flmm tónleikar þar sem
fram hafa komið Ólöf-K. Haröar-
dóttir, Jónas Ingimundarson,
Vísnasönghópurinn Islandica, Ein-
ar Jóhannesson, Philip Jenkins og
Rannveig Bragadóttir auk tónlist-
armanna í Borgarfjarðarhéraði.
Á efnisskrá á tónleikum Kórs
Langholtskirkju eru ættjarðarlög
og önnur íslensk lög auk laga eftir
erlenda höfunda.
Aðventkirkjan:
Bjöllutónleikar
Bjöllukórinn Pine Tree Academy
Bell Ringers, sem er á tónleikaferð
um Evrópu, mun hafa viðdvöl hér
á landi og halda eina tónleika.
Kórinn er skipaður tíu ungmenn-
um sem leika fjórar áttundir með
fjörutíu og níu bjöllum.
Kórinn hefur komið víða fram í
Bandaríkjunum, má þar nefna
frægan stað eins og Radio City
Music Hall í New York. 1987 fór
Myndlist
Laugardaginn 2. júní hefst nýr
kapítuli í kaffihúsamenningu
Reykvíkinga því þá verður kaffí-
húsið Djúpið opnað formlega í nýj-
um búningi eftir nokkra óþroskaða
listkafara sem hafa það að mark-
miði sínu að búa til fallega og
skemmtilega myndlist handa öll-
um sem vilja sjá.
Fyrstu sýninguna heldur Róbert
kórinn í ferðalag til Suður-Amer-
íku og hélt sextíu og tvo tónleika í
Argentínu, Brasilíu og Paraguay.
Ferðinni héðan er heitið til Júgó-
slavíu og Póllands.
Sakir stífrar áætlunar veröa að-
eins einir tónleikar haldnir hér.
Þeir verða í kvöld kl. 20.30 í Að-
ventkirtjunni, Ingólfsstræti 9. Að-
gangur er ókeypis.
í Djúpinu
Róbertsson. Hann er fæddur og
uppalinn á Akureyri en útskrifað-
ist úr Myndlista- og handíðaskóla
íslands, fjöltæknideild, 1989 og hef-
ur síðan unnið hörðum höndum
að myndlist. Djúpið er eins og flest-
ir vita í kjallara veitingastaðarins
Hornsins og er opiö alla daga frá
kl. 11 á daginn. Sýning Róberts
stendur út júnímánuð.