Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1990, Side 6
22
FÖÖfíJÐÁbÍJR i: jt?M’ 199ÖÍ •
Kvikmyndahúsin - Kvikmyndahúsin -
Háskólabíó:
Skuggaverk
Paul Newman leikur hershöfðingjkann Leslie R. Groves og Dwight Schultz leikur Robert Oppenheimer.
Þann 6. ágúst 1945 reis eldhnött-
ur upp frá jöröu. Á nokkrum sek-
úndum eyddist borg meö eitt
hundraö þúsund manns. Banda-
ríkjamenn höfðu sprengt kjarn-
orkusprengju í Hiroshima. Þrem
dögum síðar biðu Nagasaki sömu
örlög. Hvaö var þaö sem gerði það
að verkum að Bandaríkin tóku
þessa örlagaríku ákvörðun? Um
það fjailar nýjasta mynd Roland
Joffe, Skuggaverk (Shadow Ma-
kers) sem Háskólabíó tók til sýn-
ingar í vikunni.
Myndin hefst 1942. Heimsstyrj-
öldin síðari er í algleymingi. Til
Pentagon hafa þær fregnir borist
að Þjóðverjar séu að vinna að
kjarnorkusprengju. Kapphlaupið
er byrjað. Leshe R. Groves hers-
höíðingi fær þaö hlutverk að
tryggja það að Bandaríkin verði á
undan að gera kjamorkusprengju.
Hann safnar saman öllum helstu
vísindamönnum sem hann á kost á
og flytur þá í eyðimerkurborg í
New Mexico.
Hann fær prófessor J. Robert
Oppenheimer yfirstjórn verkefnis-
ins, að gera kjarnorkusprengju,
hvaö sem það kostar.
Fjailar Skuggaverk um þessa tvo
menn sem eru andstæðingar, Op-
penheimer er vísindamaður, trúir
á frjálsa hugsun og sameiningu, en
Groves er aðeins umhugað um eitt
að varnir Bandaríkjanna séu
traustari en vamir annarra ríkja.
Það er Paul Newman sem leikur
hershöfingjann og minna þekktur
leikari, Dwight Schultz, sem leikur
Oppenheimer. Paul Newman þarf
ekki að kynna. Hann hefur verið í
fremstu röð leikara í Hollywood í
þrjátíu ár og á því tímabili fengið
átta óskarstilnefningar sem besti
leikari.
Skuggaverk er aftur á móti fyrsta
kvikmynd sem Dwight Schultz
leikur í. Hann hefur nokkuð leikið
í sjónvarpi, en hugur hans og starf
hefur ávallt verið á sviði og hefur
hann leikið í mörgum þekktum
uppfærslum á Broadway.
Leikstjóri myndarinnar Skugga-
verk er Roland Jofie sem sló í gegn
1984 með sinni fyrstu kvikmynd
The Killing Fields. Hlaut sú kvik-
mynd óskarsverðlaun og mörg
önnur verðlaun. Ekki varð næsta
mynd hans, The Mission, minna
verðlaunuð. Fékk verðlaun á kvik-
myndahátíðinni í Cannes auk sjö
óskarstilnefninga.
Bakgrunnur Joffe liggur í sjón-
varpinu en áður en hann hóf að
leikstýra kvikmyndum leikstýrði
hann heimildamyndum fyrir
Granada sjónvarpsstöðina ásamt
því að leikstýra á sviði.
-HK
Laugarásbíó:
Úlfurinn
hún mamma
Leikkonurnar sem leika aðalhlutverkin í Stálblóminu. Efri röð frá vinstri:
Dolly Parton, Sally Field og Daryl Hannah. Neðri röð frá vinstri: Shirley
MacLaine, Olympia Dukakis og Julia Roberts.
Stjömubíó:
Stálblómið
Saga sex kvenna gæti þessi mynd
alveg eins heitið eins og Stálblómið
(Steel Mangolis) þvi hún lýsir
nokkrum árum í lífi sex óvenju-
legra kvenna í smáborg í Banda-
ríkjunum. Þær búa viö ólíkar að-
stæður, eiga sér misjafna fortíð og
eru sjaldan sammála um nokkurt
málefni. En eitt eiga þær þó sam-
eiginlegt. Þær standa saman í blíðu
og stríðu.
Konurnar sex eru leiknar af Sally
Field, Dolly Parton, Shirley McLa-
ine, Daryl Hannah, Olympia Duk-
akis og Julia Roberts sem slegið
hefur í gegn aö undanfórnu. Fékk
hún tilnefningu til óskarsverð-
launa fyrir leik sinn í Stálblóminu.
Það er því sannarlega fritt lið leik-
kvenna eins og sjá má af upptaln-
ingunni sem leikur í myndinni.
Stálblómið hefur verið meðal vin-
sælustu kvikmynda vestan hafs
undanfarin misseri.
Leikstjóri er Hérbert Ross, gam-
alreyndur leikstjóri kvikmynda í
Hollywood, sem hefur haldið sig
nær eingöngu við gerð kvikmynda
þar sem fengist er við mannleg
samskipti, oft á gamansaman máta.
Ross er einnig þekktur leikstjóri
og dansahöfundur á Broadway og
þar starfar hann enn jafnframt því
sem hann leikstýrir kvikmyndum.
Ross byijaði kvikmyndaferil sinn
sem dansahöfundur og má nefna
að hann stjómaði dönsum í vinsæl-
um kvikmyndum eins og Carmen
Jones, The Young Ones, Summer
Holiday, Doctor Doohttle og Funny
Girl. Þá leikstýrði hann mörgum
þekktum uppfærslum á Broadway.
Ein af þeim kvikmyndum sem
hann hefur leikstýrt er Tuming
Point þar sem hann gat sameinað
leikstjómarhæfileika og danshæfi-
leika sína í kvikmynd sem fjallar
um ballett og ballettfólk.
-HK
Gamanmyndin Úlfurinn hún
mamma (My Mom’s a Werewolf)
íjallar um húsmóðurina Leslie
Shgaber sem Susan Blakely leikur.
Hún er einmana. Henni finnst hún
vera vanrækt af eiginmanninum
og ástríðan er ekki söm. Eigin-
maðurinn tekur vinnuna, fótbolt-
ann og félagana fram yfir hana og
heimilið. Táningurinn dóttir henn-
ar er heldur ekki mjög heimakær.
Dag einn hittir Leshe myndarleg-
an og skemmtilegan mann, Harry.
Og líf hennar tekur miklum breyt-
ingum í leiðinni því Harry er var-
úlfur og varúlfa vantar blóð til að
geta „lifað.“
Leslie (Susan Blakely) gerir hér
örvæntingarfulla tilraun til að
losna við óvelkomin hár.
Richard Gere og Andy Garcia leika tvo rannsóknarlögrelumenn í Siða-
nefnd lögreglunnar.
Háskólabíó:
Siðanefnd lögreglunnar
Andy Garcia leikur í Siöanefnd
lögreglunnar (Intemal Affairs)
rannsóknarlögreglumanninn Ra-
ymong Avila sem hefur verið færð-
ur á milli deilda. Á hann að starfa
í deild sem kallast Internal Affairs
Division. Þegar hann er að rann-
saka mál eitt verður hann sann-
færður um að einn starfsfélagi
hans, Dennis Peck (Richard Gere),
sé flæktur í mikil glæpamál. Þegar
Avila byrjar rannsókn sína á hög-
um Pecks svarar Peck með því að
draga fram ýmislegt um eiginkonu
Avila. Snýst barátta þeirra fljótlega
upp í sálfræðilegt einkastríð á mhli
þeirra t eggja.
Richard Gere hefur átt nokkuð
erfitt uppdráttar á undanfórnum
árum en með Internal Afairs og
sérstaklega Pretty Woman hefur
hann greinilega valiö rétt.
í byrjun síðasta áratugar var
hann helsta kyntáknið í Hohy-
wood. Var það aö þakka myndun-
um American Gigolo og An Officer
and a Gentlemen. Rangt val á hlut-
verkum gerði það að verkum aö
menn voru jafnvel búnir að af-
skrifa hann. Gere tók sér frí frá
leik í tvö ár og hefur greinilega
haft gott af hvíldinni því hann
blómstrar sem leikari í Internal
Affairs og Pretty Woman. Hann
hefur undanfarið látið mannrétt-
indamál mikið til sín taka og einnig
hefur vakið mikla athygli vinskap-
ur hans og Dalai Lama, vinskapur
sem er náinn.
Leikstjóri Internal Affairs er Mic-
hael Figgis. Hann er breskur leik-
stjóri og á að baki eina kvikmynd,
Stormy Monday þar sem aðalhlut-
verkin léku Melanie Griffith,
Tommy Lee Jones og Sting. Figgis
er einnig tónlistarmaður og hefur
samið tónlist við báðar myndir sín-
ar. Á tónlistarsviðinu hefur hann
unnið meðal annars með Bryan
Ferry.
Regnboginn:
Hjólabrettagengið
Það fer ekki fram hjá neinum
Reykvíkingi, sem gengur um götur
borgarinnar, að hjólabretti eiga
miklum vinsældum að fagna hjá
ungum drengjum. Þeir þeysa á
þessu niður götur af mikilli fimni
og krafti, stundum of miklum
krafti.
Hjólabrettagengið (Gleaming the
Cube), sem Regnboginn sýnir þessa
dagana, ætti að vera eitthvað fyrir
þessa stráka því þar gefur svo
sannarlega að líta snillinga á hjóla-
brettum.
Söguhetjan er Brian Kelly sem
er mikill áhugamaöur um hjóla-
bretti og telur að ekkert jafnist á
við snilli á hjólabretti. Hann er for-
eldrum sínum til mikils ama.
En daginn sem bróðri hans er
myrtur verða straumhvörf í lífi
hans. Upp á eigin spýtur reynir
hann að finna morðingjana og
rekst þá á rannsóknarlögreglu-
manninn A1 Lucero. Þeir hefja
samvinnu sem gengur ekkert of vel
í byrjun en áður en yfir lýkur vinna
þeir sem einn maður að því að fletta
ofan af morðingjunum.