Dagblaðið Vísir - DV - 01.06.1990, Page 7
FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1990.
23
Hörkuleikir í
fótboltanum
Knattspyman er í fyrirrúmi um
þessa hvítasunnuhelgi. Heil um-
ferð verður í 1. deild á laugardag-
inn en leikmenn 2. deildar ríða á
vaðið í kvöld og leika sömuleiðis
heila umferð.
• Aliir leikirnir á laugardaginn
heí]ast kl. 14. Þór frá Akureyri, sem
tapað hefur fyrstu tveimur leikjun-
um, tekur á móti Fram, sem hefur
unnið báða leikina á sannfærandi
hátt. Þetta verður örugglega
hörkuleikur enda viðureignin
miklivæg fyrir bæði hðin. Búist er
við að leikurinn fari fram' á grasi
en það yrði fyrsti leikurinn á gras-
velli norðan heiða í sumar.
• FH-ingar taka á móti nágrönn-
um sínum í Stjörnunni á Kapla-
krikavelh. Bæði hðin hafa unnið
einn leik á íslandsmótinu og tapað
einum. í þessari viðureign verður
hvergi gefið eftir. Valur og Víking-
ur leika á Hlíðarenda en Víkingar
hafa komið á óvart á mótinu en
geysileg barátta hefur einkennt
leik liðsins. Valsmenn hafa unnið
báða sína leiki en Víkingar biðu
ósigur í fyrsta leiknum en unnu
síðan FH í 2. umferð.
• íslandsmeistarar KA hafa
byrjað mótið iha og tapað báðum
leikjum sínum. Á laugardag leikur
hðið sinn þriðja útileik í röð og
mætir hinu unga hði Skagamanna
sem einnig hefur ekki unnið leik.
Þessi leikur er upp á líf dauða fyrir
bæði hð. KR-ingar, sem hafa byrjað
mótið með látum, taka á móti Eyja-
mönnum. KR-ingar eru sterkir um
þessar mundir en Eyjamenn, sem
unnu sinn leik í síðustu umferð,
eru til ahs líklegir.
Fimm leikir verða í 2. deild í
kvöld og hefjast þeir alhr kl. 20 en
þetta er önnur umferð 2. deildar.
Víðir úr Garði leikur gegn KS frá
Þessir kappar verða í eldiinunni með sínum á laugardaginn. Björn Rafnsson, KR, og Sveinbjörn Hákonarson, Stjörnunni, eigast hér við um síð-
ustu hetgi í leik liðanna í Garðabæ þar sem KR-ingar höfðu betur.
Siglufirði, Breiðabhk og Grindavík
leika í Kópavogi, Tindastóh og ÍR
eigast við á Sauðárkróki, Fylkir og
Leiftur leika á Fylkisvelli og loks
taka Selfyssingar á móti Keflvík-
ingum á Selfossi.
Fjórir leikir verða í 3. deild í
kvöld kl. 20. Eigast þá við Þróttur
R - Einherji, Haukar - Þróttur N,
BÍ - Dalvík og Völsungur og TBA.
í 4. dehd verða tveir leikir, Augna-
blik - Hafnir og Árvakur - HK.
Á laugardag verður einn leikur í
3. deild og leika þá ÍK og Reynir Á
á Kópavogsvelli kl. 14. Þá verða 14
leikir í 4. dehd og eigast við eftirtal-
in lið: Ármann - Grótta, Snæfell -
Ernir, Fjölnir - Njarðvík, Ægir -
Víkverji, Vikingur Ó - TBR, Skalla-
grímur - Leiknir R, Stokkseyri -
Léttir, UMSE b - Narfi, Magni -
HSþ b, Austri - S.M., Sindri - KSH,
Neisti - Leiknir F, Austri E - Valur
R, Umf. Stjarnan - Höttur.
-JKS
Sýningar
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74
í safni Ásgríms stendur yflr sýnlng á
myndum Ásgríms frá Þingvöllum. Á sýn-
ingunni eru 25 verk, aðallega vatnslita-
myndir, en einnig nokkur olíumálverk.
Opið um helgar og á þriðjudögum og
fimmtudögum kl. 13.30-16.
Ásmundarsalur
v/Freyjugötu
í Ásmundarsal stendur yfir grafíksýning.
Þar sýna Dagrún Magnúsaóttir, Guðr.
Nanna Guðmundsdóttir, íris Ingvars-
dóttir og Þórdís Elín Jóelsdóttir. Þær út-
skrifuðust úr grafíkdeild M.H.Í. voriö
1988 og eru í myndlistarhópnum Áfram
veginn. Sýningin stendur til 4. júni og er
opin daglega kl. 14-18.
FÍM-salurinn
Garðastræti
Á morgun kl. 16 verður opnuð sýning á
verkum Sigurðar Sigurðssonar. Sýningin
er framlag FÍM til Listahátiðar í Reykja-
vík 1990. Sigurður hefur tekið þátt í íjölda
samsýninga hérlendis og erlendis og
haldið nokkrar einkasýningar.
Gallerí 8
Austurstræti 8
Á morgun opnar Alda Sveinsdóttir sýn-
ingu í Gallerí 8. Sýningin verður opin kl.
14-18 um hvítasunnuhelgina. Meginvið-
fangsefni á sýningunni er konur. Mynd-
imar af konunum em málaðar með
vatns- og akrýllitum. Gallerí 8 er opiö
virka daga kl. 10-16, á laugardögum og
sunnudögum kl. 14-18.
Gallerí Borg
Pósthússtræti 9
Opið virka daga kl. 10-18 og um helgar
kl. 14-18.
Grafík-gallerí Borg
Síðumúla 32
Þar er nú blandað upphengi: grafikmynd-
ir eftir um þaö bil 50 höfunda, litlar vatns-
hta- og pastelmyndir og stærri olíumál-
verk eftir marga af kunnustu hstamönn-
um þjóðarinnar.
Gallerí List
Skipholti 50
Til sölu verk eftir þekkta íslenska lista-
menn. Opið á afgreiðslutíma verslana.
Gallerí Sævars Karls,
Bankastræti 9,
Listahátíðarsýning Gallerís Sævars
Karls er myndlistarsýning Eddu Jóns-
dóttur. Sýningin nefnist Vörður og em
vatnslitamyndir og smáskúlptúrar úr
gleri, grásteini og pappamassa - hugleið-
ingar listamannsins um vörðuna sem
vegvísi. Sýningin stendur til 24. júní og
er opin á verslunartíma, kl. 9-18.
J. Hinriksson,
Maritime Museum
Súðarvogi 4
Sjóminja- og vélsmiðjumunasafnið er
opið frá kl. 13-17 þriðjudaga, miðviku-
daga, fimmtudaga, fóstudaga og laugar-
daga.
Kjarvalsstaðir
v/Miklatún
Á morgun veröur opnuð yfirlitssýning á
íslenstai höggmyndalist fram til ársins
1950. Á sýningunni eru verk eftir: Einar
Jónsson, Ásmund Sveinsson, Sigurjón
Ólafsson, Gunnfríði Jónsdóttur, Guð-
mund frá Miðdal, Ríkarð Jónsson, Magn-
ús Á. Ámason, Nínu Sæmundsson og
Martein Guðmundsson. Sýningin er
framlag Kjarvalsstaða til Listahátíðar
1990. Kjarvalsstaöir eru opnir daglega frá
kl. 11-18 og er veitingabúðin opin á sama
tíma.
Listasafn Einars Jónssonar
er opið alla daga kl. 13.30-16 nema mánu-
daga. Höggmyndagaröurinn er opinn
daglega kl. 11-17.
Mokkakaffi
Skólavörðustíg
Ásta Árnadóttir sýnir vatnslitamyndir á
Mokka. Sýningin stendur til 19. júní.
Mokkakaffi er opið virka daga kl. 10-23.30
og á sunnudögum kl. 14-23.30.
Nýhöfn
Hafnarstræti 18
Magnús Tómasson opnar skúlptúrsýn-
ingu á morgun kl. 14-6. Á sýningunni,
sem hlotið hefur nafnið „Land og vætt-
ir“, em verk aðallega unnin úr áli og
jámi. Sýningin er opin virka daga kl.
10-18 nema mánudaga og um helgar kl.
14-18. Hún stendur til 20. júní.
Katel
Laugavegi 20b
(Klapparstígsmegin)
Til sölu eru verk eftir innlenda og er-
lenda listamenn, málverk, grafík og leir-
munir.
Sýning í Odda
nýja hugvísindahúsinu
er opin daglega kl. 13.30-17. Þar em til
sýnis 90 verk í eigu safnsins, aðallega
eftir yngri listamenn þjóðarinnar. Aö-
gangur að safninu er ókeypis.
Listasafn ASÍ
v/Grensásveg
Á morgun kl. 17 verður opnuð sýning á
grafíklist frá Frakklandi. Listasafn ASÍ
og sendiráð Frakklands standa að þessari
sýningu. Á sýningunni em myndir eftir
íjölda þekktra myndhstarmanna af ýmsu
þjóðemi. Franski píanóleikarinn Fran-
coise Choveaux mun leika á píanó við
opnun sýningarinnar. Sýningin er opin
virka daga frá kl. 16-19 og um helgar frá
kl. 14-19. Lokað á mánudögum. Aðgangur
að sýningunni er ókeypis.
Listasafn íslands
Fríkirkjuvegi 7
Sunnudaginn 3. júní kl. 12 verður opnuð
sýning á verkum franska myndlistar-
mannsins André Masson. Að sýningunni
standa Listasafnið og Listahátíð í Reykja-
vík. Á sýningunni verða 52 verk, oliumái-
verk og teikningar. Listasafnið er opið
hvítasunnudag kl. 12-22, annan í hvíta-
sunnu kl. 12-22, virka daga 12-18, helgar
kl. 12-22. Veitingastofa safnsins er opin
á sama tíma. Lokað mánudaga. Sýning-
unni lýkur 15. júh.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Laugarnestanga 70
í listasafni Sigurjóns í Laugamesi er nú
til sýnis úrval af andlitsmyndum Sigur-
jóns frá tímabilinu 1927-1980. Safnið er
opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18,
mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og
fimmtudaga kl. 20-22.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8
Hafnarfirði sími 52502
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18
eða eftir nánara samkomulagi í síma
52502.
Stöðlakot,
Bókhlöðustíg 6,
Á morgun kl. 14 opnar Guttormur Jóns-
son sýningu á skúlptúr. Verkin em öll
unnin í grjót. Sýningin verður opin dag-
lega kl. 13-18 og lýkur þann 17. júní.
Póst- og símaminjasáfnið
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
SPRON
Álfabakka 14
í SPRON stendur yfir sýning á verkum
eftir Katrínu Ágústsdóttur. Myndefnið
sækir Katrín aðallega í húsaþyrpingar
t.d. í Reykjavík og íslenskt landslag. Á
sýningunni er myndefnið nokkuð úr
Breiðholtshverfinu og umhverfi þess svo
og nokkrar landslagsmyndir. Sýningin,
sem er sölusýning, mun standa yfir tií
31. ágúst nk. og er opin frá fóstudegi til
mánudags frá kl. 9.15—16.
Vinnustofa Ríkeyjar
Hverfisgötu
Þar em til sýnis og sölu postulínslág-
myndir, málverk og ýmsir litlir hlutir.
Opiö er á verslunartíma þriðjudaga, mið-
vikudaga, fimmtudaga og fóstudaga og á
laugardögum kl. 10-16.
Þjóðminjasafnið
Safnið er opið alla daga nema mánudaga
kl. 11-16.
Sýning í Bóka-
safni Kópasvogs
Nú stendur yfir í Bókasafni Kópavogs
sýning á málverkum eftir Mattheu Jóns-
dóttur hstmálara. Matthea hefur haldið
13 einkasýningar auk fjölda samsýninga
hér heima og erlendis. Þá hefur hún
nokkrum sinnum hlotið verðlaun fyrir
verk sín á alþjóðasýningum, m.a. í
Frakklandi og Belgiu. Matthea hlaut
starfslaun Menntamálaráðs á sl. ári. Sýn-
ingin stendur til 25. júni og er opin á af-
greiðslutíma safnsins kl. 10-22 virka
daga.
Myntsafnið á Akureyri
Aðalstræti 58 - sími 24162
Opiö er kl. 13.30-17 alla daga vikimnar.
Guðjón Bjarnason
sýnir í Kringlunni
Guðjón Bjamason sýnir í boði ÁTVR í
forsal verslunarinnar i Kringlunni. Sýn-
ingin er hður í þeirri stefnu ÁTVR að
efla og styrkja íslenska myndlist og
myndhstarmenn. Á sýningunni em 12
málverk unnin á tré með ýmsum að-
ferðum í Bandaríkjunum og hériendis á
sl. ári.
Sýning á Hótel Selfossi
Um hvítasunnuna verður opnuð sýning
á myndum Sigurðar Sólmundssonar á
Hótel Selfossi. Þetta er 12 einkasýning
hans með 20 nýjum myndum sem unnar
em á sl. ári og þaö sem af er þessu. Mynd-
imar em unnar úr grjóti, timbri, jámi,
mosa og fleiri lífrænum efnum. Sýningin
verður opnuð á morgun kl. 14 og lýkur
sunnudaginn 10. júni kl. 22. í tilefni sýn-
ingarinnar verður kaffihlaðborð frá kl.
15-17 og kvöldverður frá kl. 19-21.30 í
Norðursal hótelsins.
Sýning í Gamla
Lundi, Akureyri
Ingvar Þorvaldsson opnar málverkasýn-
ingu í Gamla Lundi, Akureyri laugardag-
inn 2. júni kl. 14. Á sýningunni em 40
verk, olíumálverk og vatnshtamyndir.
þetta er 20. einkasýning Ingvars. Sýning-
in er opin kl. 14-20 daglega en henni lýk-
ur þriðjudaginn 5. júní.