Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1990, Qupperneq 3
.œar ímiji, b siraAööiao?
■FÖSTUDAGUE ¥. 'jUNÍ'igffO;
61
19
Dans-
staðir
Bjórhöllin
Gerðubergi 1
Lifandi tónlist alla fimmtudaga,
fostudaga og laugardaga.
Danshúsið Glæsibær
Álfheimum, simi 686220
Dansleikur fbstudags- og laugar-
dagskvöld.
Danshöllin
Um helgina leikiu- hijómsveitin
Styrming frá Sauðárkróki fyrir
dansi á 2. hæð.
Casablanca
Danssýning fostudagskvöld,
diskótek laugardagskvöld.
Dans-Barinn
Grensásvegi 7, sími 688311
Opið funmtudags-, fóstudags-,
laugardags- og sunnudagskvöld.
Tónlist sjöunda áratugarins i há-
vegum höfð.
Gikkurinn
Ármúla 7, sími 681661
Lifandi tónlist um helgar.
Hollywood
Ármúla 5, Reykjavík
Diskótek föstudags- og laug-
ardagskvöld.
Hótel Borg
Pósthússtræti 10, Reykjavík,
sími 11440
Diskótek fóstudags- og laug-
ardagskvöld.
Skálafell, Hótel Esju,
Suðurlandsbraut 2, Reykja-
vík, sími 82200
Guðmundur Haukur leikur
fostudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld og nk.
fimmtudagskvöld. Opið öli
kvöld vikunnar.
Hótel ísland
Ármúla 9, sími 687111
Dansleikur fóstudags- og laugar-
dagskvöld.
Keisarinn,
Laugavegi 116
Opið öll kvöld. Diskótek og
hljómsveitaruppákomur um
helgar.
Ölver
Álfheimum 74, s. 686220
Opið fimmtudags-, föstudags-,
laugardags- og sunnudags-
kvöld.
ekki ökuskrrteinið heldur!. .
Hvert sumar er (-f<
margt fólk í sumarleyfi ; '
tekið ölvað við stýrið.
yUMFERÐAR
RÁÐ
íslenska óperan:
Frumflutningur
íslenskra djass-
verka á listahátíð
í f slensku óperunni í kvöld verða
frumflutt fjögur djasstónverk eftir
þá Eyþór Gunnarsson, Sigurð
Flosason, Stefán S. Stefánsson og
Tómas R. Einarsson. Þetta er í
fyrsta sinn sem íslensk djasstónlist
er leikin á listahátíð síðan 1979 er
Samstæður Gunnars Reynis
Sveinssonar voru frumfluttar.
Fjórmenningarnir, sem allir hafa
verið áberandi í íslensku djasslífi á
undanförnum misserum, hafa kos-
ið að nafngreina ekki verkin fyrr
en á tónleikunum í kvöld, en þeir
segja að þarna sé að finna glað-
beittan blúsvals, þunglynda stemn-
ingskafla, skuggaieg hljómasam-
bönd, sérkennileg stef og sundur-
höggnar línur sem minna okkur á
að hvað sem líður sögulegri ástríðu
samtímans erum við hvorki stödd
í danssölum svingtímans né á
klúbbunum við 52. stræti í New
York að hlusta á parkerísk stef;
bæði frjálsdjassinn og djassrokkiö
hafa komið og farið en engan veg-
inn horfið úr sameiginlegri vitund-
inni.
Fjórmenningarnir fyrrnefndu
flytja verkin ásamt Pétri Grétars-
syni trommuleikara. Á sömu
hljómleikum kemur fram sovéski
píanóleikarinn Leoníd Tsjísjík og
leikur hann fyrri hluta tónleikanna
en íslensku tónlistarmennimir
leika á síðari hlutanum.
Fimmmenningarnir sem frumflytja fjögur íslensk djassverk, talið frá
vinstri: Stefán S. Stefánsson, Eyþór Gunnarsson, Pétur Grétarsson,
Tómas R. Einarsson og Sigurður Flosason.
Sálin hans Jóns míns.
Sálin í Sævangi
og Sjallanum
Um helgina hefst hin árlega sum-
aryfirreið hljómsveitarinnar Sálar-
innar hans Jóns míns. Fyrstu
hljómamir verða slegnir í félags-
heimiiinu Sævangi sem er staðsett
skammt frá Hólmavík.
Enn sem fyrr mun Sáhn hvergi
hvika frá sinni tónlistarstefnu sem
felst í því að spila kröftugt rokk og
ról fram í rauðan dauðann. Einnig
mun hljómsveitin frumflytja ný lög
sem væntanleg eru á hljómplötu
innan skamms.
Á laugardagskvöld mun svo Sálin
hans Jóns míns leika í Sjallanum
á Akureyri.
Sigurvegarar i barnaflokki á Rangárbökkum vorið 1989. Keppt verður í
tveimur barnaflokkum á mótinu nú. Mynd Sigurður Sigmundsson
Rangárbakkar við Hellu:
Annað mesta
hestamót ársins
Mikið hestamót er nú haldið á
Rangárbökkum við Hellu. Hófst
það á miðvikudaginn og lýkur á
sunnudaginn. Dæmd eru kynbóta-
hross af öllu Suðurlandi, bæði stóð-
Hrafnista:
Handavinnu-
sýning
Handavinnusýning og -sala verö-
ur á Hrafnistu á Sjómannadaginn
10. júní. Sýnd verður handavinna
vistfólks á Hrafnistu, dvalarheimili
aldraðra sjómanna í Reykjavík, frá
kl. 13.30-17.00. Einnig verður kaffi-
sala frá kl. 14.00-17.00 og rennur
ágóðinn til velferðarmála vistfólks-
ins.
hestar og hryssur og jafnframt fara
fram kappreiðar og gæðingakeppni
á vegum hestamannafélagsins
Geysis í Rangárvallasýslu og
Sindra í Vestur-Skaftafellssýslu.
Kynbótahross eru samkvæmt
hefð sýnd í sex flokkum, þar sem
stóðhestar koma til dóms í þremur
aldursflokkum og hryssur í jafn-
mörgum. Þá verða einnig bygging-
ardæmd yngri kynbótahross og
skoöuð afkvæmi eldri hrossa. Veg-
leg verðlaun verða veitt í öllum
flokkum.
í gæðingakeppni er keppt bæði í
A- og B-flokki sem og í tveimur
flokkum barna og unglinga. í kapp-
reiðum verður keppt í 800, 350 og
250 metra stökki, í 150 og 250 metra
skeiði og í 300 metra brokki. Pen-
ingaverðlaun verða eitt í kapp-
reiðagreinunum.
Motocross í Jósepsdal
Vélhjólaíþróttaklúbburinn mun
á sunnudaginn standa fyrir fyrstu
motocrosskeppni sumarsins og
hefst keppnin klukkan 14. Allir
bestu ökumenn landsins hafa
skráð sig til keppni og verður hart
barist, ekki hvað síst vegna þess
að keppnin veitir stig í baráttunni
um íslandsmeistaratitilinn í
motocross.
Að þessu sinni hefur keppninni
verið vahnn staður í Jósepsdal við
Litlu kaffistofuna, aðeins tíu mín-
útna akstur frá Reykjavík. Tekin
hefur verið upp sú nýbreytni að
keppa einnig í svoköfluðu fjór-
hjólacrossi, þar sem ökumenn
þeysast um á fjórhjólum.
Þótt keppni af þessu tagi sé stór
þáttur í fjármögnun öflugrar starf-
semi klúbbsins er verði stillt í hóf
Motocrosskeppni nýtur vaxandi
vinsælda hérlendis.
og er koátar aðeins 400 krónur fyr-
ir manninn og frítt er fyrir 10 ára
opg yngri.
Útivist:
Þórsmerkurgangan
Nú er Þórsmerkurgangan við
Þjórsá. Sunnudaginn 10. júní hefst
gangan á því að ferjað verður yfir
Þjórsá frá Ferjunesi yfir í Sand-
hólaferju. Þaðan verður gengið yfir
að Ytri-Rangá. Þetta er mjög fjöl-
breytt leið sem hggur meðai annars
yfir gamlar brýr, en það voru garð-
ar sem hlaðnir voru yfir mýrlendi
þannig að hægt væri aö komast
yfir með hesta.
Meðal annars verður gengið eftir
gömlu Asbrúnni frá Hrútsvatni
yfir að Rauðalæk, Skohhólar skoð-
aöir, en það eru merkir, lítt þekktir
hellar með ristum og rúnum, og
höfð viðkoma við Hellistjörn.
Staðfróðir menn, Árni Hjartar-
son jarðfræðingur, Guðbjörn Jóns-
son bóndi, Framnesi, Guðjón Ingi
Hauksson sagnfræðingur og Her-
mann Guðjónsson frá Ási verða
með í förinni.
Vanir menn
í Grindavík
Vanir menn.
Hljómsveitin Vanir menn mun á
sjómannadaginn leika í Festi í
Grindavik. .Hefur hljómsveitin
leikið síðasthðin tvö ár á opin-
berum dansleikjum og einkasam-
kvæmum bæði hér heima og er-
lendis. Lögð er áhersla á vandaða
alhliða danstónlist.
Meðlimir hljómsveitarinnar eru
Leó Ólason, hljómborð og hljóð-
gervlar, Hallvarður Óskarsson,
trommur, og Eyþór Stefánsson, gít-
ar.
Eftir sjómannadagsdansleikinn í
Festi helda Vanir menn norður á
Hvammstanga þar sem hljómsveit-
in mun leika 17. júní.
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar:
Skógardagur
Skógardagur Skógræktarfélag
Hafnarfiarðar verður á morgun,
laugardaginn 9. júni. Safnast verð-
ur saman í Gróðrarstöðinni við
Hvaleyrarvatn kl. 13 og plantað út
aspartrjám. Síðan verður meðal
annars gengið um nokkrar land-
nemaspildur undir leiðsögn land-
nema og fræðst af þeim um reynslu
þeirra í ræktuninni. Skógræktar-
fólk er beðið aö mæta vel og stund-
víslega.