Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1990, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1990, Blaðsíða 4
20 FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 1990. FÖSTUDAGUR 8. JÚNl 1990. 21 Messur Guðsþjónustur Árbæjarprestakall: Guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson messar. Organleikari Jón Mýrdal. Sókn- arprestur. Ásprestakall: Guðsþjónusta kl. 11. Síð- asta guðsþjónusta fyrir sumarleyfi prests og starfsmanna kirkjunnar. Árni Bergur Sigurbjömsson. Breiðholtskirkja: Messa kl. 14. Altaris- ganga. Organisti Daníel Jónasson. Ath. breyttan messutíma. Að guðsþjónustu lokinni verður haldinn aðalfundur Breið- holtssafnaðar. Sr. Gísh Jónasson. Bústaðakirkja: Sjómannadagurinn: Sjó- mannamessa með þátttöku sjómanna kl. 11. Ræðumaður Ásgeir Jakobsson. Org- anisti Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. Páhni Matthíasson. Dómkirkjan: Sjómannadagurinn: Sjó- mannamessa kl. 11. Biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, prédikar og minnist lát- inna sjómanna. Sr. Hjalti Guðmundsson þjánar fyrir altari. Einsöngur Ingibjörg Marteinsdóttir. Sjómenn lesa ritningar- orð. Dómkórinn syngur. Organleikari Marteinn Htmger Friðriksson. Dóm- kirkjan. Elliheimilið Grund: Guösþjónusta kl. 10.00. Sr. Magnús Bjömsson. Frikirkjan I Reykjavík: Guðsþjónusta kl. 14.00. Miðvikudagur 13. júní: Morgun- andakt kl. 7.30. Orgelleikari Pavel Smid. Cecil Haraldsson. Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Guömundur Karl Ágústs- son. Organisti Guðný M. Magnúsdóttir. Sóknarprestar. Grensáskirkja: Safnaðarferð Grensás- sóknar austur í Fljótshlið. Farið verður frá Grensáskirkju kl. 10. Snæddur máls- verður í Goðalandi. Guðsþjónusta í Breiðabólstaðarkirkju kl. 14. Sr. Halldór S. Gröndal prédikar, sr. Sváfnir Svein- bjömsson prófastur þjónar fyrir altari. Kostnaður kr. 1.200. Þriðjudagur: Kirkju- kaffi í Grensási. Þriðji biblíulestur sr. Jónasar Gíslasonar vígslubiskups um postulasöguna kl. 14. Kaffi og heimabak- að. Prestamir. Hallgrímskirkja: Sjómannadagurinn: Messa kl. 11. Sr. Karl Sigurbjömsson. Þriðjudagur: Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fýrir sjúkum. Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Háteigskirkja: Hámessa kl. 11. Sr. Am- grímur Jónsson. Kvöldbænir og fyrir- bænir em í kirkjunni á miðvikudögum kl. 18. Kópavogskirkja: Guðsþjónusta í Kópa- vogskirkju kl. 11. Sr. Þorbergur Kristj- ánsson. Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands biskups. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðuefni: atvinnan. Sr. Þórhalltu Heimisson. Laugarneskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Heitt á könnunni eftir guðsþjónusttma. Kyrrðarstund í hádeginu á fímmtudög- um, orgelleikur, fyrirbænir, altaris- ganga. Sóknarprestur. Neskirkja: Messa kl. 11. Fermd verður Kolbrún Tinna Ragnarsdóttir, Tjamar- götu 47. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson. Orgel og kórstjóm Reynir Jónasson. Mið- vikudagur: Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr. Frank M. Halldórsson. Seljakirkja: Guðsþjónusta kl. 20. Ath. breyttan messutíma. Eiríkur Pálsson leikur einleik á trompet. Organisti Jakob Hallgrímsson. Guðsþjónustur verða áiram á sunnudagskvöldum kl. 20 í sum- ar. Sóknarprestur. Seltjarnarneskirkja: Messa kl. 11. Org- anisti Gyða Halldórsdóttir. Prestur sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Kirkja óháða safnaðarins: Guðsþjón- usta kl. 11. Organisti Jónas Þórir. Þór- steinn Ragnarsson safnaðarprestur. Hafnarfjarðarkirkja: Morgunsöngur kl. 11. Ath. breyttan tíma. Tónleikar kórs Hafnarfjarðarkirkju kl. 17 með hljóð- færaleikurum og einsöngvurunum Esther Helgu Guðmundsdóttur og Guðnýju Árnadóttur. Stjómandi Helgi Bragason. Gunnþór Ingason. Eyrarbakkakirkja: Messa kl. 10.30. Sóknarpestur. Stokkseyrarkirkja: Messa kl. 14. Sókn- arpestur. Ferðalög Ferðafélag íslands Laugardagur 9. júní kl. 09 Söguslóðir Njálu. Mjög fróðleg Og skemmtileg öku- og skoðunarferð um helstu sögustaði Njálssögu. Staðir sem margir hafa heyrt eða lesið um en ef til vUl ekki séð fyrr. Farastjóri: Sigurður Kristinsson. Aðeins þessi eina ferð. Verð 1.800 kr. Sunnudagur 10. júni: 1. Kl. 10 Fjall mánaðarins: Esja. Gengið á hæsta hluta Esjunnar yfir Hátind (909 m.y.s.) og Hábungu (914 m.y.s.) Verð 1000 kr. 2. KI. 13 afmælisgangan, 6. ferð. Skógarkotsvegur - Gjábakki. Nú er hver gönguleiðin annarri fallegri. Gengið um gamla skógarstíga á Þingvöllum. Með í för verður Pétur Jóhannsson frá Skóg- arkoti sem þekkir svæðið flestum betur. Nú em þátttakendiu- í afmælisgöngunni orðnir um 500. Gengið er í 12 áfóngum frá Reykjavík í Hvítámes í tilefni 60 ára afmælis Hvitámesskála. Ferðagetraun og happdrætti. Spmning ferðagetraunar Sýningargestur virðir fyrir sér eina höggmyndina á Kjarvalsstöðum. DV-mynd Brynjar Gauti, Kj arvaisstaðir: Yfirlit yfir íslenska höggmyndalist Að Kjarvalsstöðum stendur yfir í öllu húsinu yfirlitssýning á ís- lenskri höggmyndalist fram til árs- ins 1950. Á sýningtmni eru verk eftir Einar Jónsson, Ásmund Sveinsson, Sig- urjón Ólafsson, Gunnfríði Jóns- dóttur, Guðmund frá Miðdal, Rík- arð Jónsson, Magnús Á. Árnason, Nínu Sæmundsson og Martein Guðmundsson. Sýningin er framlag Kjarvals- staða til Listahátíðar 1990. Kjarv- alsstaðir eru opnir daglega frá kl. 11-18 og er veitingabúðin opin á sama tíma. Opið hús hjá Búseta Opið hús verður hjá Búseta svf. sunnudaginn 10. júní næstkomandi kl. 13-18. Búseti flutti nýlega í stærra og betra húsnæði að Laufás- vegi 17, í hjarta borgarinnar. Mikil gróska er í starfi Búseta núna og eru fjörutíu og átta íbúðir í byggingu og ennfremur hefur fé- lagið fengið lán til byggingar sjötíu íbúða til viðbótar. Allir Búsetar jafnt sem aðrir eru velkomnir í kaffi og meðlæti og eru allar upp- lýsingar veittar á staðnum. Norræn mannfræðiráðstefna: Að skilja og þýða Dagana 9. til 11. júní verður haldin í Reykjavík fjórtánda ráðstefna norrænna mannfræðinga. Þema ráðstefnunnar, „að skilja og þýða“, er síg- ilt viðfangsefni í mannfræði. Mannfræðin er í eðli sínu glíma við þýðingar- vanda þar sem hún freistar þess að varpa ljósi á framandi samfélög - gera þau skiljanleg. Mann- fræðingar eru þó ekki á einu máli um þýðingar- vandann. Sumir hafa haldið því fram að þýðing sé nánast óhugsandi,. Aðrir benda á að sífellt sé verið að þýöa og verði ekki betur séð en fólki verði nokkuð ágengt. En hvað skilur á þá á milli „góðrar" þýðingar og „slæmrar". Á ráðstefnunni verða flutt um fimmtíu erindi. Hefur nokkrum heimskunnum mannfræðingum verið sérstaklega boði að flytja erindi. Baldvin Halldórsson er einn fjögurra leikara sem leika í Stefnumóti og voru meö í opnunarsýningu Þjóðleikhússins. Þjóðleikhúsið: Leikarar á ferð um Vesturland Leikarar frá Þjóðleikhúsinu eru nú lagðir af stað um Vesturland með sýninguna Stefnumót í farangrinum, Stefnumót var frumsýnt í Þjóðleik- húsinu rétt fyrir lokun hússins í marsbyrjun og var síðan sýnt í Iðnó. Fyrsta sýningin var á mið- vikudagskvöld í Búðardal. í kvöld verður sýnt í Ólafsvík, á morgun á Hellissandi og á sunnudag á Akranesi. Stefnumót er byggt upp á örleikritum eftir Pet- er Bames, Michel de Ghelderode, Eugene Ionesco og David Mamet. Sýningin markar að ýmsu leyti tímamót í sögu Þjóðleikhússins. Tveir leikend- anna hættu í vetur sem fastráðnir leikarar við húsið og fóru á eftirlaun, Bessi Bjarnason og Rúrik Haraldsson. Fjórir leikaranna voru með í opnunarsýningum hússins og eiga því 40 ára starfsafmæli, þau Baldvin Halldórsson, Bryndís Pétursdóttir, Herdís Þorvaldsdóttir og Róbert Arnfinnsson. Auk þeirra leika Anna Kristín Arn- grímsdóttir, Arnar Jónsson, Bríet Héðinsdóttir, Gunnar Eyjólfsson og Tinna Gunnlaugsdóttir. Akogeshúsið í Vestmannaeyjum: Málverk og skúlptúrar Ríkey við eitt málverka sinna Myndlistarkonan Ríkey opnar sýningu í dag, fóstudaginn 8. júní, í Akogeshúsinu í Vestmannaeyj- um. Þar sýnir hún málverk, postul- ínslágmyndir og skúlptúra. Þessi verk hafa ekki verið sýnd áður. Ríkey hefur stundað nám í mál- aralist og kermik um árabil. Hún útskrifaðist úr myndhöggvaradeild Myndlista- og handíðaskóla íslands 1983. Verk sín hefur Ríkey sýnt bæði hér heima og erlendis og er þetta fjórtánda einkasýning henn- ar. Sýningin stendur fram í næstu viku. Stöðlakot: Myndverk unnin í grjót Guttormur Jónsson er með sýn- ingu í Stöðlakoti, Bókhlöðustíg 6. Guttormur sýnir skúlptúr og eru verkin öll unnin í grjót. Guttormur stundaði nám í höggmyndadeild Myndlistarskóla Reykjavíkur. Hann hefur haldið eina einkasýn- ingu á Kjarvalsstöðum, 1984, og auk þess tekið þátt í samsýningum. Efnið í myndverkin hefur hann fengið í nágrenni Akraness, þar sem hann býr og bera þau öll nöfn kennileita þaðan. Sýningin er opin daglega frá 13-18 og lýkur 17. júní. Ólafsvík: Ása Ólafsdóttir sýnir Ása Ólafsdóttir opnar sýningu í Ólafsvík 8. júní kl. 18. Sýningin er í sal Grunnskólans og er hún opin laugardaga og sunnudaga frá kl. 14-22 báða dagana. 40 myndir eru á sýningunni, 13 myndofnar og 27 unnar í „collage"- tækni úr pappír máluðum með akrýllitum. Ása nam við Myndlista- og hand- íðaskóla íslands 1969-1973 og var við framhaldsnám við Konstind- ustriskolan Göteborgs Universitet 1976-1978. Hún hefur haldið nokkr- ara einkasýnngar og tekið þátt í mörgum samsýningum. Ása Ólafsdóttir. Tónleikar í Hafnarfjarðarkirkju Næstkomandi sunnudag, þann 10. júní, heldur Kór Hafnarfjarðar- kirkju tónleika ásamt einsöngvur- um og hljóðfæraleikurum. Á efnis- skránni er Missa brevis í B-dúr eða hin svokallaða Litla orgelsóló- messa eftir Joseph Haydn. Ein- söngvari í messunni verður Esther Helga Guðmundsdóttir sópran. Kórinn mun flytja verk eftir hafnfirska tónskáldið Friðrik Bjamason svo og latneskar mótett- ur og einnig negrasálma ásamt Guðnýju Ámadóttur mezzósópran. Þær Guðný Árnadóttir og Esther Helga Guðmundsdóttir munu einn- ig syngja saman dúetta. Guðrún Guðmundsdóttir annast undirleik á píanó og stjórnandi kórsins er Helgi Bragason. Tónleikarnir heíjast kl. 17 og eru aðgöngumiðar á kr. 500 seldir við innganginn. Hér sjást þrír málarar, Jóhannes Jóhannesson, Hafsteinn Austmann og Einar Þoriáksson, sem eiga verk á sýningunni, ásamt Guðmundi Snorra- syni, forstöðumanni Listhússins. Mynd Einar Ólason. listmálarafélagið opnar listhús Listmálarafélagið hefur opnað Listhús að Vesturgötu 17 í Reykja- vík. Hófst um síðustu helgi sýning á málverkum eftir félagsmenn í til- efni Listahátíðar í Reykjavík. Það eru átta hstmálara sem eiga verk á sýningunni sem stendur til 20. júní. Þeir sem sýna eru Bragi Ásgeirs- son, Einar G. Baldvinsson, Haf- steinn Austmann, Jóhannes Geir Jónsson, Jóhannes Jóhannesson, Kjartan Guðjónsson, Kristján Dav- íðsson og Valtýr Pétursson. Sýningin er opin daglega frá kl. 14-18. Með sýningunni vilja félagar Valtýs Péturssonar í Listmálarafé- laginu heiðra minningu hans. Tónleikar í Víðistaóakirkju Kór Víðistaðasóknar heldur tón- leika í Víðistaðakirkju í kvöld, fóstudaginn 8. júní, og hefjast þeir kl. 20.30. Einsöngvari er Sigurður S. Steingrímsson. Píanóleikari er Bjarni Þ. Jónatansson. Á dag- skránni eru ýmis lög eftir íslenska og erlenda höfunda, meðal annars lög úr óperettum og söngleikjum. Söngstjóri Kórs Víðstaðasóknar er Kristín Jóhannesdóttir. 6. ferðar: Hvað eru mörg gistipláss í Hvit- ámesskála? (sjá svar í ferðaáætlun 1990). Verð 1.000, fritt í ferðimar fyrir börn m. foreldrum sínum 15 ára og yngri. Brottfór frá Umferðarmiðstöðinni, að austan- verðu. Viðey - Vesturey, kvöldferð kl. 20 á þriðjudagskvöldið 12. júní. Nýja hsta- verkið skoðað. Brottför frá Sundahöfn. Héiðmörk, skógræktaferð á miðviku- dagskvöld kl. 20. Námskeið Námskeið í hugrækt, heilun og líföndun Námskeið verður haldið helgina 9. og 10. júní nk. í hugrækt, heilun og líföndun og mun það standa yfir í 10 klst. Þetta verður síðasta námskeiðið þar til í sept- ember nk. Námskeiðið er tilvalið fyrir þá sem vilja auka innsæi, næmi og efla sjálfan sig á allan hátt. Verð á námskeið- inu er kr. 7.000. Leiðbeinandi er Friðrik Páll Ágústsson A. V. P. en hann hefur leiðbeint yfir 300 manns á þessum nám- skeiðum. Til að fá nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við Lífsafl í síma 622273. Tónleikar Snæfellingakórinn í Reykjavík heldur tónleika að Breiðabliki í Mikla- holtshreppi laugardaginn 9. júní kl. 21. Söngskráin er fjölbreytt, lög eftir innlend og erlend tónskáld. Kórinn fer í söng- ferðalag tfi Noregs 12.-22. júní og syngur í Drammen og í Osló. Söngstjóri nú eins og undanfarin ár er Friðrik S. Kristins- son. Tilkyrirdngar Bláfell flytur Heildverslunin Bláfell, sem var að Smiðjuvegi 4c, Kópavogi, flutti þann 10. apríl í nýtt eigið húsnæði í Faxafeni 12, 108 Reykjavik. Þessi breyting gerði það kleift að jafnframt opna nýja hljómtækja- verslun og sýningaraðstöðu fyrir aðrar vörur sem Bláfell dreifir í heildsölu. Hijómtækjaverslunin selur vörur sem framleiddar eru af Elta en það er vöru- merki vesturþýska fyrirtækisins Elta- tronic Wunche. Bláfell dreifir einnig vör- um til byggingavöruverslana. Þessi nýja aðstaða gerir fyrirtækinu mögulegt að auka þjónustu við viðskiptavini sína. Myndin var tekin í nýju versluninni og á myndinni eru eigendur. Talið frá vinstri: Magnús Karlsson, Jóhann Við- arsson og Viðar Arthúrsson. MT stúdentar 1975 Stúdentar sem útskrifuðust frá Mennta- skólanum við Tjömina 1975 ætla aö hitt- ast í kvöld, 8. júní, í félagsheimili Raf- veitunnar við Elliðaár og rifja upp gömlu kynnin. Húsið verður opnað kl. 20.30. Matur kl. 22. Veislustjóri verður Stefán Jón Hafstein og ræðumaður kvöldsins Einar Már Guðmundsson. Diskótekiö Dollý heldur uppi Qörinu. Miðaverð 2000 krónur. Mætum öll í spariskapinu. Skoðunarferð á vegum Hins íslenska náttúrufræðifélags Nk. sunnudag 10. júní, verður farin skoð- unarferð á vegum Hins íslenska náttúru- fræðifélags. Farið verður í Straumsvík. Þar verður lífríki fjörunnar skoðað á út- fallinu og síðan verður gengið upp í Hrauntungu. Leiðsögumenn verða próf- essor Agnar Ingólfsson og Snorri P. Snorrason jarðfræðingur. Farið verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 12 á hádegi og heim um kl. 17 frá Straumsvík en um kl. 19 frá Hrauntungu. Laugardagsganga Hana nú Vikuleg laugardagsganga Hana nú í Kópavogi verður á morgun. Lagt af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10. Laugardags- gangan er fyrir alla. Púttvöllur Hana nú á Rútstúni er öllum opin. Landsþing ITC á Islandi Fimmta landsþing Landssamtaka ITC á fslandi verður haldið að Hótel Örk, Hveragerði, dagana 8.-10. júní nk. Kjör- orð þingsins er: Vex vitund, vex þor“. Hið árlega landsþing ITC á íslandi er nú haldið í 5. skipti. Þingsetning hefst kl. 20 í kvöld að Hótel Örk, Hveragerði. Laugar- dagimt 9. júní kl. 9.30 hefst félagsmála- hluti fundarins. Á dagskrá verður m.a. kosning stjómar fyrir næsta kjörtímabfi. Heiðursgestur landsþingsins er Toni Hanrahan, varaforseti V. svæðis, og er hún fulltrúi alþjóðastjómarinnar á þing- inu. Meðal fyrirlesara á þinginu má nefna Baldvin Jónsson auglýsingastjóra er flyt- ur erindi um ferðamál á Islandi. Hrafn- hildur Scram hstfræðingur mun flytja - erindi um myndhst kvenna á íslandi og Indriði G. Þorsteinsson mun flytja er- indi. Þá fer einnig fram ræðukeppni. Á meðan á þinginu stendur verður boðið upp á margs konar námskeið sem haldin em af ITC félögum. Inna flytur Hársnyrtistofan Inna, sem er með starf- semi að Borgarholtsbraut 69 í Kópavogi og Grettisgötu 86 í Reykjavík á 10 ára afmæh um þessar mundir. Stofan annast hársnyrtingu fyrir bæði konur og karla. í tfiefni þessara tímamóta veita stofumar 15 prósent afslátt af allri þjónustu frá 11. júní til 11. júh næstkomandi. Starfsmenn Hársnyrtistofunnar Innu, talið frá vinstri. Dagný Hjaltadóttir, Guðrún J. Benediktsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Kristín Ottósdóttir og Hlldur Blumenstein. Endurmenntunarsjóður VSFl Um nokkurt skeið hafa staðið yfir við- ræður um stofnun endurmenntunarsjóðs Vélstjórafélags íslands (VSFÍ). Hlutverk sjóðsins verður að standa straum af margháttuöum kostnaði vegna endur- menntunarinnar samkvæmt ákvörðun stjómar og reglum hans. Eins og velflest- ir þekkja er um að ræða tíðar breytingar á starfsvettvangi vélstjóra vegna örra tæknibreytinga, og því nauðsynlegt að koma á endur- eða símenntun fyrir þessa starfsstétt. Landsvirkjun, fyrst vinnu- veitenda, hóf greiðslur í sjóðinn frá síð- ustu áramótum, en hjá Landsvirkjun er um að ræða mjög miklar breytingar á tæknisviði og um leið á störfum vélfræð- inganna sem þar starfa en þeir em um 60 talsins. Átthagasamtök Héraðs- manna efna til torgsölu á Lækjartorgi í dag, föstudaginn 8. júní. Félag einstæðra foreldra heldur flóamarkað í Skeljahelli, Skelja- nesi 6, alla laugardaga í júní kl. 14-17. Frábær fatnaður á krakka í sveitina og ýmislegt annað gagnlegt og gott. Flóamarkaður FEF Félag einstæðra foreldra heldur flóa- markað í Skeljahelh, Skeljanesi 6, aha laugardaga í júní kl. 14-17. Frábær fatn- aður á krakka í sveitina og ýmislegt ann- aö gagnlegt og gott. Göngu-Hrólfar hittast að Nóatúni 17 á morgun, laugar- dag, kl. 10. Kirkjan í Þorlákshöfn opin ferðamönnum Undanfarin sumur hefur sóknamefnd Þorlákskirkju í Þorlákshöfn séð um að kirkjan væri opin ferðamönnum um helgar og að þar væri staðkunnugt fólk sem veitt gæti gestum haldgóðar upplýs- ingar um kirkjuna og byggðina í Þorláks- höfn. Ferðamenn hafa kunnað vel að meta þessa þjónustu því á síðasta sumri skrifuðu rúmlega 1700 manns nöfn sín í gestabók kirkjunnar. í sumar verður sami háttur haföur á og mánuðina júní, júh og ágúst verður hún opin á laugar- dögum og sunnudögum kl. 15-19. Séu ein- hveijir, sem þessi timi hentar ekki, þá þurfa þeir ekki annað en hringja í síma- númer sem hengt verður upp við kirkju- dyr og er þá hægt að fá að skoða hana hvenær sem er þessa tvo daga. Vflji hóp- ar aftur á móti skoða kirkjuna í miðri viku þarf að láta vita um það með fyrir- vara með þvi að hringja í síma 98-33638 eða 98-33990. Lúðrasveit Hafnar- fjarðar 40 ára Laugardaginn 9. júní nk. heldur Lúðra- sveit Hafnarfjarðar stutta síðdegistón- leika í Hafnarborg kl. 15. Hans Ploder mun stjóma tveimur verkum sem gest- ur, en hann var stjómandi lúðrasveitar- innar í 25 ár. Allir em velkomnir meðan húsrúm leyfir og aðgangur er ókeypis. Félag eldri borgara BSÍ býður eldri borgurum í skoðunarferð um borgina á morgun, laugardaginn 9. júní. Lagt af stað kl. 13 frá Umferðarmið- stöðinni. Nýr skemmtistaður opnaður í Reykjavík í kvöld, 8. júní, verður opnar nýr skemmtistaður í hjarta borgarinnar, Lækjargötu 2. Skemmtistaðurinn Tung- hö var rekið þar tfi skamms tíma en nýir aðilar tóku við rekstri hússins þann 1. júní. Húsið hefur verið lokað sl. hálfan mánuð vegna stórvægilegra breytinga og verður opnað í kvöld undir nafninu Lag- una og Café Krókódíll. Jón Magnússon, nemi við Parsons hstaskólann í Paris, hefur haft yfirumsjón með breytingun- um. Boðið verður upp á hanastél og fjöl- breytt skemmtiatriði. Allir velkomnir. Flugdagur hjá Vesturflugi Vesturflug hf. verður með flugdag nk. sunnudag kl. 10-18. Þar veröur sýnt hst- flug, uppákomur verða og gefst fólki kost- ur á að komast í þyrluflug eða útsýnis- flug. Jafnframt verða sýndar forvitnUeg- ar flugvélar. Skemmtun fyrir alla fjöl- skylduna. Boðið verður upp á kaffiveit- ingar. Vesturflug er Skeijaíiarðarmegin. Sýningar Leirlistafélagið opnar sýningu Leirhstafélagið hefur opnað sýninguna Leir og blóm í Epalhúsinu, Faxafeni 7, Reykjavík, og fengið tfi hðs við sig versl- unina Blómahst. Sýningunni er ætlað að kynna hstform í leir og fjölbreytta notk- un leirsins með blómum. Þátttakendur eru 14 af félögum Leirhstafélagsins: Ás- laug Höskuldsdóttir, Brita Berglund, Bryndís Jónsdóttir, Daði Harðarson, El- ísabet Haraldsdóttir, Guðný Magnús- dóttir, Hjördís Guðmundsdóttir. Inga El- ín Kristinsdóttir, Ingunn E. Stefánsdóttir, Jóna Guðvarðardóttir, Kogga, Kristín ísleifsdóttir, Margrét Jónsdóttir og Ólöf Erla Bjarnadóttir. Sýningin er opin á verslunartima á virkum dögum og frá kl. 14-18 um helgar. Sýningin, sem er sölusýning, stendur til 16. júní. Art-Hún Stangarhyl7 Art-Hún-hópurinn sýnir skúlptúrverk, grafík og myndir unnar í kol, pastel og ohu í sýningarsal sínum að Stangarhyl 7. Árbæjarsafn sími 84412 Safnið er opið alla daga nema mánudaga kl. 10-18. Ásgrímssafn Bergstaðastræti 74 í safni Ásgríms stendur yfir sýning á myndum Ásgríms frá Þingvöhum. Á sýn- ingunni eru 25 verk, aðahega vatnshta- myndir en einnig nokkur ohumálverk. Opið um helgar og á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13.30-16. FÍM-salurinn Garðastræti Þar stendur yfir sýning á verkum Sigurð- ar Sigurðssonar. Sýningin er framlag FÍM til Listahátíðar í Reykjavík 1990. Sig- urður hefur tekið þátt í fjölda samsýn- inga hérlendis og érlendis og haldið nokkrar einkasýningar. Gallerí 8 Austurstræti 8 Alda Sveinsdóttir sýnir í GaUerí 8. Meg- inviðfangsefni á sýningunni er konur. Myndimar af konunum eru málaðar með vatns- og akrýUitum. GaUerí 8 er opið virka daga kl. 10-16, á laugardögum og sunnudögum kl. 14-18. Gallerí Borg Pósthússtræti 9 Opið virka daga kl. 10-18 og um helgar kl. 14-18.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.