Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1990, Page 6
.)« i/u» 3 a jOAGUTaö’í
22
FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 1990.
Kvikmyndahúsin - Kvikmyndahúsin --Kvikmyndahúsin
Bíóhöllin:
Utangarðsunglingar
Utangarðsunglingar (The Dehn-
quents) er áströlsk kvikmynd sem
gerist á sjötta áratugnum. Þar er
sögð saga tveggja unglinga, Lolu
Lowell (Kylie Minogue) og Brownie
Hansen (Charlie Schlatter). Þetta
eru hressir krakkar sem ákveða
flótta saman. í augum fjölskyldu
beggja eru þau bara ábyrgðarlausir
krakkar sem rísa ekki undir þeirri
ábyrgð sem hvílir á þeim, en öll
vandamál eru til þess að leysa þau
eins og kemur í ljós.
Þegar þau hittast fyrst, Brownie
og Lola, komast þau að því að þau
eiga margt sameiginlegt, meðal
annars það að þeim líður illa heima
hjá sér og bæði eru mjög hrifin af
rokktónhst, sem á þessum árum
þótti ekki merkileg tónlist, og fram-
tíðardraumar þeirra renna einnig
saman.
Á stuttum tíma verða þau ást-
fangin og ákveða að strjúka að
heiman til að sjá veröldina, en flótti
þeirra er stöðvaöur af foreldrum
og lögreglu og þau eru aðskilin,
Brownie fer á sjóinn á meðan Lola
fer til Melbofirne. Þar hittast svo
elskendurnir af tilviljun.
Aðdráttaraflið við þessa kvik-
mynd er táningastjarnan Kyhe
Minogue og er þetta fyrsta kvik-
myndin sem hún leikur í. Minogue
er einhver allra vinsælasta söng-
konan í dag, sérstaklega í Evrópu
og heimalandi sínu, Ástrahu. Hún
varð samt fyrst þekkt sem leik-
kona. Var það fyrir hlutverk sitt í
sápuóperunni Nágrannar (Nabo-
urs) sem Stöð 2 hefur nýlega hafið
sýningar á. Var hún kosin vinsæl-
asta sjónvarpsleikkonan í Ástralíu
1988.
Þótt lögin, sem hún hefur sungið
inn á plötur, séu ekki merkheg eða
röddin neitt sérstök þá hafa þær
selst vel. Þrátt fyrir ungan aldur
hefur Kyhe Minogue afrekað mikið
sem leikkona og söngkona og er
heildarsala á plötum hennar yíir
tíu milljónir eintaka.
Charlie Schlatter, sem leikur að-
alhlutverkið á móti Kyhe Minogue,
er bandarískur leikari og vakti
fyrst athygli er hann lék á móti
Michael J. Fox í Bright Light, Big
City. Utangarðsunghngar er fjórða
hlutverk hans í kvikmynd.
-HK
Stjörnubíó sýnir um þessar myndir víðfræga mynd, Stálblómið, sem lýsir nokkrum árum i lífi sex kvenna i
smáborg í Bandaríkjunum. Þær búa við ólíkar aðstæður, eiga sér misjafna fortíð og eru sjaldan sammála
um nokkurt málefni. En eitt eiga þær þó sameiginlegt. Þær standa saman í blíðu og stríðu.
Konurnar sex eru leiknar af Sally Field, Dolly Parton, Shirley McLaine, Daryl Hannah, Olympia Dukakis og
Julia Roberts. Á myndinni er Shirley MacLaine sem á hér í erjum við nágranna sinn sem leikinn er af Tom
Skerritt.
Regnboginn sýnir Hjólabrettagengið (Gleaming the Cube) sem ætti að
verða þeim mörgu ungu strákum sem stunda hjólabrettaíþróttina kær-
kominn fengur. Fjallar myndin um ungan hjólabrettasnilling og leit hans
að morðingja bróður síns.
Laugarásbíó sýnir gamanmyndina
Hjartaskipti (Heart Condition) sem
er gamanmynd um nokkuð sér-
stakan hjartaflutning. Grætt er
hjarta svarts manns í hvítan sem
á erfitt með að sætta sig við það
enda var hann yfirlýstur svert-
ingjahatari. Ekki bætir það úr að
sá svarti gengur aftur til að fylgj-
ast með þeim sem fékk hjartað.
Það eru úrvalsleikararnir Bob
Hoskins og Densel Washington
sem leika aðalhlutverkin. Má geta
þess að Washington fékk i vor
óskarsverðlaun sem besti leikari
í aukahlutverki.
Sýningar
Grafík-gallerí Borg
Síðumúla 32
Þar er nú blandað upphengi: grafíkmynd-
ir eftir um það bil 50 höfunda, Utlar vatns-
lita- og pastelmyndir og stærri olíumál-
verk eftir marga af kunnustu hstamönn-
um þjóðarinnar.
Gallerí List
Skipholti 50
Til sölu verk eftir þekkta íslenska lista-
menn. Opið á afgreiðslutima verslana.
Gallerí Sævars Karls,
Bankastræti 9,
Listahátíðarsýning Gallerís Sævars
Karls er myndlistarsýning Eddu Jóns-
dóttur. Sýningin nefnist Vörður og eru
vatnslitamyndir og smáskúlptúrar úr
gleri, grásteini og pappamassa - hugleið-
ingar listamannsins um vörðuna sem
vegvísi: Sýningin stendur til 24. júní og
er opin á verslunartíma, kl. 9-18.
J. Hinriksson,
Maritime Museum
Súðarvogi 4
Sjóminja- og vélsmiðjumunasafnið er
opið frá kl. 13-17 þriðjudaga, miðviku-
daga, fimmtudaga, fóstudaga og laugar-
daga.
Kjarvalsstaðir
v/Miklatún
Að Kjarvalsstöðum stendur nú yfir í öllu
húsinu yfirlitssýning á íslenskri högg-
myndalist fram til ársins 1950. Á sýning-
unni eru verk eftir Einar Jónsson, Ás-
mund Sveinsson, Siguijón Ólafsson,
Gunnfriði Jónsdóttur, Guðmund frá
Miðdal, Ríkarð Jónsson, Magnús Á.
Ámason, Nínu Sæmundsson og Martein
Guðmundsson. Sýningin er framiag
Kjarvalsstaða til Listahátíðar 1990.
Kjarvalsstaöir eru opnir daglega frá kl.
11-18 og er veitingabúðin opin á sama
tíma.
Listasafn Einars Jónssonar
er opið alla daga kl. 13.30-16 nema mánu-
daga. Höggmyndagarðurinn er opinn
daglega kl. 11-17.
Mokkakaffi
Skólavörðustíg
Ásta Ámadóttir sýnir vatnslitamyndir á
Mokka. Sýningin stendur til 19. júní.
Mokkakaffi er opið virka daga kl. 10-23.30
og á sunnudögum kl. 14-23.30.
Nýhöfn
Hafnarstræti 18
Magnús Tómasson sýnir skúlptúra. Á
sýningunni, sem hlotið hefur nafnið Land
og vættir, eru verk aðallega unnin úr áli
og jámi. Sýningin er opin virka daga kl.
10-18 nema mánudaga og um helgar kl.
14-18. Hún stendur til 20. júni.
Katel
Laugavegi 20b
(Klapparstigsmegin)
Til sölu em verk eftir innlenda og er-
lenda listamenn, málverk, grafík og leir-
munir.
Sýning í Odda
nýja hugvísindahúsinu
er opin daglega kl. 13.30-17. Þar em til
sýnis 90 verk í eigu safnsins, aðallega
eftír yngri listamenn þjóðarinnar. Að-
gangur að safninu er ókeypis.
Listasafn ASI
v/Grensásveg
Þar stendur yfir sýning á grafíklist frá
Frakklandi. Listasafn ASÍ og sendiráð
Frakklands standa að þessari sýningu. Á
sýningunni em myndir eftir fjölda
þekktra myndlistarmanna af ýmsu þjóð-
emi. Franski píanóleikarinn Francoise
Choveaux mun leika á píanó við opnun
sýningarinnar. Sýningin er opin virka
daga frá kl. 16-19 og um helgar frá kl.
14-19. Lokað á mánudögum. Aögangur
að sýningunni er ókeypis.
Listasafn íslands
Fríkirkjuvegi 7
Þar stendur sýning á verkum franska
myndlistarmannsins André Masson. Að
sýningunni standa Listasafnið og Lista-
hátið í Reykjavík. Á sýningunni em 52
verk, olíumálverk og teikningar. Lista-
safnið er opið hvítasunnudag kl. 12-22,
annan í hvítasunnu kl. 12-22, virka daga
12-18, helgar kl. 12-22. Veitingastofa
safnsins er opin á sama tíma. Lokað
mánudaga. Sýningun'ni lýkur 15. júlí.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Laugarnestanga 70
í listasafni Sigurjóns í Laugamesi er nú
til sýnis úrval af andlitsmyndum Sigur-
jóns frá timabilinu 1927-1980. Safnið er
opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18,
mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og
fímmtudaga kl. 20-22.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8
Hafnarfirði - sími 52502
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-18
eða eftir nánara samkomulagi í síma
52502.
Stöðlakot
Bókhlöðustíg 6
Guttormur Jónsson sýnir skúlptúr.
Verkin em öll unnin í gijót. Sýningin er
opin daglega kl. 13-18 og lýkur þann 17.
júni.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.