Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1990, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1990.
9
Útlönd
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fundar:
Mun lýsa inn-
limun Kuwait
ómerka
- segja stjomarerindrekar
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
mun lýsa innlimun Kuwait 1 írak
ógilda, að sögn erlendra stjórnarer-
indreka. Stjórnarerindrekarnir segja
að fulltrúar aðildarríkja ráðsins
muni samþykkja ályktun þar sem
segir að í ljósi alþjóðalaga og reglna
hafi innlimunin, sem tilkynnt var í
útvarpi í írak í gær, engan lagalegan
grundvöll. „Inrriimun Kuwait í frak,
í hvaða mynd sem er eða undir hvaða
yfirvarpi sem er, á sér enga lagalega
stoð og er ógiid óg ómerk,“ segir í
drögum að ályktun ráðsins.
Sendiherra Kuwait, Mohammed
Abulhasan, kveðst fullviss um að
atkvæðagreiðsla fulltrúa hinna
fimmtán aðildarríkja ráðsins um
ólögmæti innlimunar Kuwait verði
einróma og án mótatkvæða. Þar með
er ljóst að hann telur víst að fulltrúi
Yemen, sem hefur setið hjá við at-
kvæðagreiðslur Öryggisráðsins,
muni ljá ályktuninni atkvæði sitt.
Talsmaður sendinefndar Kuwait
hjá Sameinuðu þjóðunum sagði að
nefndarmenn vildu að ráðið lýsti
innlimunina ómerka og hvetti þjóðir
heims til að viðurkenna ekki lepp-
stjórn íraka í Kuwait.
Öryggisráðið kom saman til fundar
síðast á mánudag. Þá náðist sam-
staða meirihluta aðildarríkjanna að
beita íraka efnahagslegum þvingun-
um. Þrettán af fimmtán aðildarþjóð-
um samþykktu refsiaðgerðirnar en
fulltrúar tveggja sátu hjá við at-
kvæðagreiðsluna.
Reuter
Sendinefnd Kuwait hjá Sameinuðu þjóðunum vill að Öryggisráðið hvetji ríki heims til að viðurkenna ekki lepp-
stjórn íraka í Kuwait. Á þessari mynd má sjá Saddam Hussein írakforseta ásamt forsætisráðherra leppstjórnarinn-
ar, Ala Hussein Aii. Simamynd Reuter
Leiðtogar arabaríkja
boða til nýs f undar
Leiðtogar arabaríkja munu koma saman til
fundar í Kaíró í dag til að reyna að leysa deil-
una fyrir botni Persaflóa á friðsamlegan hátt.
Forseti Egyptalands, Hosni Mubarak, hefur
hvatt íraksforseta, Saddam Hussein, til þess að
mæta. Ekki er ljóst hvort hann lætur verða af
því.
Innrás íraka í Kuwait kom leiðtogum araba-
ríkja algjörlega í opna skjöldu og vissu þeir
ekki fyrst hvernig þeir ættu að bregðast við.
Flestir þeirra hafa nú fordæmt innrásina og
innlimun Kuwaits í írak.
Að minnsta kosti fimmtán leiðtogar hafa sagst
ætla aö koma á fundinn í Kaíró og fyrstur á
staðinn var Gaddafi Líbýuleiðtogi. Á með-
an mótmæltu líbýskir. námsmenn í Trípólí
flutningum bandarískra hermanna til Saudi-
Arabíu.
Castro Kúbuleiðtogi hvatti í gær leiðtoga ara-
baríkja til aö fara samningaleiðinga. í bréfi, sem
hann sendi þeim, gagnrýndi Castro ákvörðun
Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um harðar
efnahagslegar refsiaðgerðir gegn írak og kvaðst
óttast aö þær drægju úr friðsamlegri lausn deil-
unnar. Yfirvöld á Kúbu studdu aftur á móti
ályktun Öryggisráðsins þar sem innrásin í
Kuwaitvarfordæmd Reuter
Forsefi Egyptalands, Hosni Mubarak, hefur hvatt Iraksforseta,
Saddam Hussein, til þess að mæta á boðaðan fund leiðtoga
Arabaríkja. Simamynd Reuter
Jórdanía snýr
_ bakivið
íraksforseta
Hussein Jórdaníukonungur,
einn nánasti bandamaður Saddams
Hussein Iraksforseta, hafhaði í gær
innlimun Kuwaits í írak. Sagði
Jórdaníukonungur að emirinn af
Kuwait væri enn réttmætur leið-
togi landsins.
Þessi ummæli lét Hussein Jórd-
aniukonungur falla aðeins nokkr-
um klukkustundum eftir að írösk
yfirvöld tilkynntu að þau hefðu
innlimað Kuwait í írak. Kvaðst
konungurinn myndu sitja neyðar-
fund leiðtoga arabaríkja í Kaíró
sem fram á að fara i dag. Konung-
urinn sagöist ekki vita hver myndi
verða fulltrúi Kuwaits á leiötoga-
fundinum né hvort Saddam myndi
sitja fundinn.
Aðspurður hvort yftrvöld i Jórd-
aníu myndu hlíta samþykkt Sam-
einuðu þjóðanna um refsiaðgerðir
gegn irak sagði konungurinn aö
stjórn sín væri að kanna máliö.
Undanfama viku hefur orðið vart
við mikinn stuðning við írak meðal
jórdanskra stjórnmálamanna og
fjölmiðla. Yfir fimm þúsund Jórd-
anir hafa boðist til að berjast fyrir
Hussein Jórdaníukonungur viður-
kennir ekki innlimun Kuwaits i
írak. Simamynd Reuter
irak. Margir Jórdanir hafa spurt
hver§ vegna umheimurinn hafi
ekki brugðist jafnharkalega viö
hernámi Israela á arabísku landi
og innrás ísraela í Líbanon 1982
eins og við innrás íraka í Kuwait.
Reuter
'
Yitzhak Shamir, forsætisráðherra Israeis, og ráðgjafar hans taka hótun
íraksforseta alvarlega. Simamynd Reuter
Saddam Hussein
hótarísrael
Háttsettur ráðgjafi Yitzhaks Sham-
ir, forsætisráöherra ísraels, sagði í
morgun að ísraelar yrðu aö búa sig
undir efnavopnaárás íraka á hverri
stundu. Saddam Hussein íraksfprseti
hótaði því í gær að ráðast á ísrael
ef Bandaríkin gripu til hernaðarað-
gerða gegn írak.
Ráðgjafi Shamirs, Ben Aharon,
kvaðst telja að með hótuninni væri
Saddam Hussein að reyna að vinna
stuðning annarra arabaríkja. Hins
vegar gæti enginn sagt fyrir um
hvemig íraksforseti myndi bregðast-
við aukinni spennu vegna liðsflutn-
inga Bandaríkjamanna til Persaflóa.
Ben Aharon sagði einnig að of
snemmt væri að lýsa yfir neyðar-
ástandi en forsætisráðherranum
bærust stöðugt upplýsingar frá varn-
armálaráðuneytinu og ísraelsku
leyniþjónustunni.
Ben Aharon bætti því við að ísrael-
ar hygðust ekki ráðast á neitt araba-
ríki en þeir sæju hins vegar ástæðu
til hernaðaraðgerða ef íraskir her-
menn færu inn í Jórdaníu.
Reuter