Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1990, Page 11
FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1990.
11
DV
Útlönd
Breytt staða Sameinuðu þjóðanna 1 breyttum heimi?
Gætu nú gegnt sínu
upprunalega hlutverki
Frá fundi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þann 6. þessa mánaóar. Þá samþykkti meirihluti ráðsins að beita
íraka víðtækum refsiaðgerðum vegna innrásar þeirra í Kuwait. Símamynd Reuter
Snögg viðbrögð Öryggisráðs Sam-
einuðu þjóðanna við innrás íraka í
Kuwait hafa vakið vonir um að nú
loks geti Sameinuðu þjóðirnar gegnt
því hlutverki sem stofnendur þeirra
höfðu í huga fyrir rúmum fjórum
áratugum.
„Sameinuöu þjóðirnar eiga nú
raunhæfan möguleika á að gegna því
hlutverki sem þeim var upprunalega
ætlað, það er að segja ef stórveldin
eru samhuga," sagði einn háttsettur
sendiherra. Þessi ummæli komu í
kjölfar fordæmingar meirihluta Ör-
yggisráðs Sameinuöu þjóðanna á
innrás íraka í Kuwait og samþykktar
víðtækra refsiaðgerða gegn íröskum
stjórnvöldum.
Kalda stríðið búið
Embættismenn Sameinuðu þjóö-
anna vonast til að endalok kalda
stríðsins þýði að nú geti stofnunin
snúið sér að upprunalegum mark-
miðum, ekki einungis að varðveita
friðinn heldur einnig að kljást við
mörg önnur erfið verkefni, s.s. um-
hverfisvemd, fíkniefnavandann og
fátækt þróunarlandanna.
Sameinuðu þjóðirnar, sem stofn-
settar vom í kjölfar síðari heims-
styrjaldarinnar, voru settar á lagg-
irnar á þeim forsendum og grund-
vallarhugsun að bandamenn myndu
sameinast til aö varðveita friðinn.
En mörgum voru enn í fersku minni
vonbrigöin þegar forveri Sameinuðu
þjóðanna, Þjóðabandalagið, stóð
vanmáttugt frammi fyrir nasisma
Þýskalands, fasisma Ítalíu og her-
veldisstefnu Japans.
Og blekið hafði vart þornað á stofn-
skrá Sameinuðu þjóðanna þegar
sundmng þjóða heims og skipting
þeirra í tvær blokkir - annars vegar
þær þjóðir sem hlynntar voru
kommúnisma og hins vegar þær sem
börðust gegn honum - gerði það að
verkum að enn á ný var stofnunin
vígvöllur hugmyndafræðilegra skoð-
anaskipta. í næstum hverri deilu,
hverjum ágreiningi, mátti reikna
með ákveðinni skiptingu: ef Banda-
ríkin og hinn vestræni heimur
studdu annan deiluaðilann léðu Sov-
étríkin hinum stuðning sinn. Jafnvel
umsóknir um aðild að þessum fjöl-
þjóða samtökum urðu efni í harðorð
skoðanaskipti milli þessara tveggja
blokka. Oft reyndist þörf á málamiðl-
un til að gæta jafnvægis i fjölda aðild-
arríkja hliðhollum annarri hvorri
blokkinni.
Skjót viðbrögð
Viðbrögð Sameinuðu þjóðanna við
innrás íraka í Kuwait og hvernig
samtökin hafa tekið á málinu hafa
vakið aðdáun margra. Aðeins ör-
fáum klukkustundum eftir að íra-
skar hersveitir réðust yfir landa-
mærin við Kuwait komu fulltrúar
hinna fimmtán þjóða, sem sæti eiga
í Öryggisráðinu, saman, fordæmdu
innrásina og kröfðust tafarlauss og
skilyröislauss brottflutnings íraska
hersins. Það er ekki einungis að full-
trúar allra þeirra fimm ríkja, sem
hafa neitunarvald í ráðinu - Banda-
ríkin, Bretland, Frakkland, Kína og
Sovétríkin - hafi verið sammála
heldur tóku hin, að Yemen undan-
skildu, einnig undir fordæminguna.
Yemen sat hjá við atkvæðagreiðsl-
una.
Örfáum dögum síðar, þegar lepp-
stjórn íraka hafði verið sett á lagg-
irnar í Kuwait, hittust fulltrúar aö-
ildarríkja Öryggisráðsins aftur til að
ræða innrásina. Engin merki voru
sjáanleg sem bentu til þess aö írakar
hygðust draga herlið sitt til baka í
bráö og að auki höfðu þeir skipað
stofnun alþýðuhers ,til að styðja við
bakið á nýju leppstjórninni.
Að þessu sinni tók ráðið af skarið
og samþykkti víðtækar efnahagsleg-
ar refsiaðgerðir gegn írak. Refsiað-
gerðirnar voru samþykktar með
þrettán atkvæðum gegn engu, tveir
sátu hins vegar hjá. Þessar refsiað-
gerðir fela meðal annars í sér vopna-
sölubann sem og bann við innflutn-
ingi á olíu frá írak og Kuwait. Það
er einungis Öryggisráðið af öllum
stofnunum Sameinuðu þjóðanna
sem getur samþykkt aðgerðir sem
aðildarríkjunum er skylt að hlíta.
Og það er ekki oft sem Öryggisráðið
samþykkir slikar refsiaðgerðir, þetta
er einungis í þriðja sinn frá stofnun
Sameinuðu þjóðanna að slíkt gerist.
Risaveldin hafa unnið samhent í
þessu máli. Áður en fulltrúar Örygg-
isráðsins funduðu gáfu utanríkisráð-
herrar Bandaríkjanna og Sovétríkj-
anna út sameiginlega yfirlýsingu um
deiluna fyrir botni Persaflóa þar sem
innrásin var fordæmd. Að auki sam-
þykktu bæði ríkin refsiaðgerðir gegn
Irak. Jafnvel Kína lét ekki sitt eftir
hggja og tók þátt í samþykkt meiri-
hluta ráðsins. Aðeins tvö ríki, Yemen
og Kúba, sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna um refsiaögerðir.
Breyttur heimur
En jafnvel þó Sameinuðu þjóðirnar
geti loksins snúið sér að því hlut-
verki sem þeim var upprunalega
ætlað ber að hafa í huga að heimur-
inn er alls ekki eins og hann var við
stofnun samtakanna árið 1945. Að-
eins fimmtíu og eitt ríki stofnuðu
þessi fjölþjóðasamtök en nú eru aö-
ildarríkin orðin 159.
Mörg þeirra rúmlega eitt hundrað
ríkja, sem bæst hafa í hópinn, eru
þjóðir sem hlotið hafa sjálfstæði á
þeim áratugum sem liðnir eru frá
stofnun Sameinuðu þjóðanna. Marg-
ar þessara þjóða óttast að þíðan í
samskiptum 'austurs og vesturs sé á
þeirra kostnað og að hin nýja skipan
heimsmála þýði að þau missi pólitísk
VÖld SÍn Og áhrif. Reuter
4
Skilafrestur er til 1. september
UOSMYNDASAMKEPPNI
OG FERÐAMÁLAÁRS EVRÓPU m
I KROASKRII STOI A ISLANDS
FLUGLEIÐIR
iðfangsefni keppninnar er ferðalög og útivist og verða myndirnar að tengjast
því efni á einhvern hátt. Þær geta verið bæði svarthvítar og í lit eða litskyggnur
af ferðalögum og útivist innanlands sem utan. Glæsilegir vinningar eru í boði
fyrir bestu myndirnar.
1. Lundúnaferð fyrir tvo með Flugleiðum.
Innifalin er hótelgisting með morgunverði í
þrjár nætur.
2. Farseðlar að eigin vali fyrir tvo til áætlunar-
staða Flugleiða innanlands.
3. Dvöl á Edduhóteli, Ferðaskrifstofu íslands,
að eigin vali fyrir tvo, gisting og morgun-
verður í fimm nætur.
4. Hringmiði fyrir tvo kringum landið með
sérleyfisbílum BSÍ.
5. Heigarferð fyrir tvo í Þórsmörk með Ferða-
skrifstofu BSÍ og Austurleið.
6. -10. Bókaverðlaun.
enda skal myndirnar til DV fyrir 1. september og merkja þær:
Ljósmyndasamkeppni, DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík.
Með myndunum skal fylgja lokað umslag með nafni, heimilisfangi
og símanúmeri þátttakenda.
Sú mynd, sem verður í fyrsta sæti í þessari ljósmyndakeppni, mun taka þátt í sérstakri keppni á
vegum Ferðamálaárs Evrópu 1990 í Grikklandi seint á þessu ári. Þar munu ellefu Evrópuþjóðir
auk íslands keppa um bestu myndina um ferðalög og útivist.