Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1990, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1990, Page 15
FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1990. 15 Völdin og þjóðarsáttin Þjóöarsáttin hefir nú sannað aö hún er tseki til aö halda niöri laun- um í landinu. Lög á samninga ríkis- ins við BHMR eru til aö leiðrétta mistök ríkisstjórnarinnar, segir formaöur Alþýðuflokksins. Hvílík- ur vitnisburður! Og formaöur vinnuveitenda segir aö hann hafi kraflst.þess aö bráða- birgðalögin yrðu sett af því aö þau voru ekki í takt viö samninga sem hann geröi allöngu seinna. Hvílíkir tímar, hvílíkir siöir, stundi Cicero fyrir meira en tveimur árþúsund- um. Þjóöarsáttin var gjörð í einingu andans og bandi friðarins af út- gerðarstjóra aö vestan og Alþýðu- sambandsforseta aö sunnan. Þessi gjörningur virðist hafa verið meö þeim hætti að aðrir og fyrri gjörn- ingar launþega væru ógildir. Um það er auðvitað ekkert að segja. Ríkið, það er eg, sagði Lúðvík íjórt- ándi sællar minningar og ríkti lengur en nokkur annar þjóðhöfð- ingi sem vitað er um. Ríkið erum við, segja útgerðar- forstjórinn og forseti eríiðisvinnu- manna í landinu. Okkar lög eru ykkar lög, okkar samningar ykkar samningar. (Til að forðast mis- skilning vil eg taka strax fram að stéttarfélag það sem eg er í er ekki aðili að samningi BHMR við ríkið.) Eðli valdsins Um nokkurra ára skeið átti eg sæti á Alþingi og fékk reyndar eina þingsályktunartillögu samþykkta. Sú tillaga var hvorki þess eðlis að hún ylli ríkisjóði milljarða útgjöld- um né legði heilar atvinnugreinar í rúst, svo hún vakti litla sem enga athygli, þótt nokkrir þingmenn teldu það merki um „ítarlega um- fjöllun" að leggja til örlitlar breyt- ingar á orðalagi. Þessi tillaga fjallaði um að fela ríkisstjórninni að hafa frumkvæði að því að láta rannsaka vald á ís- landi. Hugmynd mín var sú að láta kanna, eftir því kostur er á, hvar raunveruleg völd liggja í landi, - hvaða aðilar fari með þau, og í krafti hvers þeir geti beitt áhrifum KjaUarinn Haraldur Ólafsson dósent sínum og aðstöðu til valda. Norðmenn hafa látið gera ítar- lega könnun á völdum þar í landi og nýlega hafa sænskir vísinda- menn birt bráðabirgðaniðurstöður um skiptingu valds þar í landi. Eg held að atburðir síðustu vikna ættu að vekja menn til umhugsun- ar um eðli valds á íslandi, hverjir fara þar með raunveruleg völd og hvernig þeir beita þeim. Með valdi er auðvitað ekki aðeins átt við þá sem í krafti embætta, eða eru kosn- ir í trúnaðarstöður, stjórnmála- menn og ráðherrar og aðrir slíkir, fara með tiltekin völd, heldur ekki síður þá sem hafa völd og áhrif óbeint. Undir þá flokkast t.d. fjölmiðlar, félagasamtök, launaþegafélög, þrýstihópar, stéttir o.s.frv. Dómar- ar og ýmsir forstöðumenn stofnana hafa oft mikil völd. Einstakhngar geta stundum hafa talsverö völd þótt þeir gegni ekki neinu valda- starfi, einungis vegna áhrifa sinna á skoðanamyndun meðal þjóðar- innar. Óljóst og frumstætt valdakerfi Öll þessi BHMR-deila sýnir glöggt hve margt er enn óljóst í valda- kerfi landsins og hve frumstætt það er. Úrskurður félagsdóms um samning ríkisins og BHMR var ótvíræður að því leyti að hann tók tillit til þess sem stóð í samningn- um en ekki þess sem ríkisstjórnin taldi að ætti að lesa úr honum og þróun mála síðan hann var gerður. Dómurinn taldi ekki aðra samn- inga hafa ómerkt þann samning sem honum var falið að fjalla um. „Þjóðarsáttin" var alls ekki gerð af BHMR. Vald þeirra að vestan og sunnan náði einfaldlega ekki til allra þeirra sem þeir vildu ráða yfir. Það er bráðnauðsynlegt að hver og einn viti takmörk sín og enginn á að geta tekið sér meira vald en honum ber samkvæmt lög- um og samskiptareglum í þjóðfé- laginu. Þetta mál er líka fróðlegt fyrir þá sök að það sýnir hvernig einstök samtök telja ekkert athugavert við það að krefjast laga sem nemi úr gildi samninga annarra félaga. Það er í sjálfu sér furðulegt að verða vitni að því að þjóðarsáttin marglofaða skuli snúast upp í samningsrof og lög sem svipta launþega umsömdum launum. Og hvað er í raun hægt að segja um verkalýðsforingja sem beinlínis heimta bráðabirgðalög til að koma „Það er eitthvað að í landi þar sem góðæri og hagstætt verð á útflutnings- vörum er talin mesta hætta sem yfir þjóðinni vofir.“ „Rikið erum við, segja útgerðarforstjórinn og forseti erfiðisvinnumanna í landinu," segir m.a. í greininni. - Einar Oddur Kristjánsson, formaður VSÍ, og Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ. í veg fyrir að samningar séu haldn- ir. Um þá menn er ekkert hægt að segja. Þeir eru ekki til umræðu. Eg tel að launafólk í þessu landi verði að gera sér ljóst að „þjóðar- sáttin“ á ekki og getur ekki einung- is verið spurning um frystingu kaupgjalds og þaðan af síður um frystingu hlutfalls kaupgjalds milli atyinnuhópa. Á sama tíma og margs konar launaskrið á sér stað hjá einkafyr- irtækjum þá eru laun opinberra starfsmanna látin standa í stað, lík- lega um aldur og ævi, ef hin sam- virka forysta atvinnurekenda og verkamanna fær að ráða. Skilisér tilfólksins Það er vissulega mikilvægt að verðbólga hjaðni, en það má ekki gera með því einu að láta launafólk borga brúsann. Haldi svo fram sem horfir mun launafólk, í hvaða at- vinnustétt sem er, hvort sem það eru verkamenn eða háskólafólk, bílstjórar eða prófessorar, sjómenn eða hjúkrunarfræðingar rísa upp og krefjast þess að hinar miklu þjóðartekjur, einhverjar hinar mestu í heimi, skili sér til fólksins í landinu, alls fjöldans sem skapar þessi verðmæti, en sé ekki tæki stjórnmálamanna og hagsmuna- potara til að tryggja völd sín. Það er eitthvað að í landi þar sem góðæri og hagstætt verð á útflutn- ingsvörum er talin mesta hætta sem yfir þjóðinna vofir. Verðbólgan er ekki afleiðing of hárra launa alls þorra landsmanna. Þar koma margir fleiri þættir við sögu. Þættir sem ríkisstjórnir hafa í litlu sem engu sinnt á undanfórnum árum. Það er enginn vafi á því að haldist ríkj- andi ástand við muni æ fleiri sjá réttmæti þess sem hagfræöingar eins og t.d. Þorvaldur Gylfason hafa um þessi mál að segja. Stjórnmálastarfsemi næstu ára mun snúast um hvort hér á að festa fátæktarríki í sessi eða hvort við ætlum að halda uppi svipuðum kjörum og tíðkast í nágrannaríkj- um okkar. Og það verður ekki síst barátta um mennta- og menningar- stig þessarar þjóðar. Lög á saminga BHMR munu engu breyta um það. Það er brýnt að láta kanna rækilega hvernig háttað er völdum í þessu landi, hverjir með þau fara og hvort sum hagsmuna- samtök hafa óeðlilega mikil áhrif. Haraldur Ólafsson Andlega vanheilir Ég sit ekki uppi í Öskjuhlíð og hlusta á fuglakvak og flugnasuð heldur sit ég uppi við Úlfljótsvatn í sumarbústað í grenjandi rign- ingu. Það hæfir ágætlega hugs- unum mínum því ég er að hugsa um það sem hefur verið ritað og rætt um Sæbraut 2, meðferðar- heimili einhverfra unglinga, ekki barna. Eflaust verða þeir alltaf eins og börn, sama hversu gamlir þeir verða, þótt líkamlegur kynþroski fylgi árunum. Ég er að hugsa um það hvað hægt sé að brjóta á mann- réttindum fólks og enginn gerir neitt. Finnst mér allt þetta mál vera talsmönnum meðferðarheimilisins til lítils sóma Meðferðarheimili á röngum stað Ég get ekki ímyndað mér að allir þeir sem eru andsnúnir staðsetn- ingu heimihsins vilji ekki ungling- unum og aðstandendum þeirra allt það besta. Það hafa veriö lagðir miklir fjármunir í þetta hús við endurbætur og breytingar frá því það var keypt í upphafi. Nú stendur til að gera ennþá meira: heitur pottur, ný einangrun í allt húsið og e.t.v. skyggð gler í glugga hússins. Væri ekki nær að setjá þennan pening í nýtt húsnæði sem hentar þeim? Málið er mjög einfalt Meðferðarheimilið er á röngum stað. Það er ekki hægt að fela það eða loka augunum fyrir því hvern- Kjallariim Sunneva G. Snæhólm húsmóðir í Kópavogi ig unglingarnir haga sér í sínum sjúka heimi. Það er ekki við þá að sakast heldur stjórnendur þeirra mála því meðferðarheimilið er allt- of nálægt næstu húsum, bæði þeirra vegna og nágranna þeirra vegna. Það er ekki verið að hugsa um velferð unghnganna að hafa þá í svona þröngu útirými. Ef hugsað er um velferð fólksins, sem býr einnig við Sæbraut með bömunum sínum og barnabörnum, þá er um- hugsunin og tillitssemin engin við það. Það á að venjast þessum óhljóðum og ágangi á heinúli sín. Ég hef búið í 30 ár við Þingholts- braut og er það ca 10 mín. gangur frá Kópavogshæli þar sem ég bý. Er ég vön í gegnum árin aö sjá og hitta sjúklingana frá hælinu. Hef ég glaðst yflr því hvað mikið hefur verið gert fyrir þessa sjúklinga síð- ustu árin, frá því sem það var. Þeir virðast ánægðir, betur klæddir og öll hugsun um þá til fyrirmyndar. - Þeir rölta hér fram hjá með gæslumönnum og veifa manni og bjóða góðan daginn. Þessir vanheilu einstaklingar eru allt önnur tilfelli en á Sæbrautinni sem ekki má líta af eða sleppa af hendi. Foreldrar fái sjálfir að dæma Ég er hrædd um að heyrðist í okkur, eða næstu íbúum hæhsins, ef vaðið væri inn í garðana okkar og jafnvel legið á gluggum eða ber vistmaður færi inn á heimili eða gerði stykki sín á götuna. Efast ég um að barnaverndarnefnd Kópa- vogs léti það líðast að vistmenn frá hælinu „sýndu sig“ og hlypu úti berir þar sem fullt er af börnum. Faðir skrifar í Morgunblaðið með miklum ofsa og talar um „fjand- skap“ og „aðdróttanir" í garð dótt- ur sinnar o.fl. sem vistuð eru á Sæbraut. Hann segir einnig „að það sé bæði hollt og gott fyrir börn“ að kynnast einhverfum unglingum. Því er ég ekki sammála, ekki svona mikið sjúkum tilfellum sem þessir einhverfu unglingar eru. Faöirinn getur ekki með skrifum breytt stað- reyndum um hegðun unghnganna á meðferðarheimilinu við Sæbraut. Foreldrar heilbrigðra barna verða sjálfir að fá að dæma fyrir sig og sín börn, hvað þeir telja „hoht“ fyrir þau. Faðirinn segir ennfremur að ungir bræður Siggu, dóttur hans, „séu hinir ánægðustu með Siggu. Mér hefur sýnst að þeir séu frekar stoltir en hitt af því að eiga svona stórskrýtna systur“. Þetta er einkennilega til orða tekið hjá manni sem á vanheilt barn. Það hlýtur að vera stór kross að bera að eignast vanheilt barn, verða að sætta sig við það og lifa við það. Foreldrar þessara veiku barna og börnin sjálf eiga aö fá aha þá aðstoð sem hægt er að veita. - En það eru takmörk fyrir öllu. Það er ekki hægt að traðka á rétti ann- arra foreldra, heimilum þeirra og börnum þess vegna. Reynt að breiða yfir Maður kemur fram í sjónvarpi sem talsmaður umsjónarfélags ein- hverfra. Talar hann um fordóma og vanþekkingu fólks. Ég held að hann hljóti að beina þessum orðum að sjálfum sér. Um allt þetta „lítil- ræði“, sem sést hefur frá vistmönn- um, er breitt yfir á allan hátt og því sleppt sem kemur sér illa fyrir stofnunina. Hann segir orðrétt: „Einn strákur á vistheimilinu sést berrassaður uppi í rúmi og stelpur, sem búa í nágrenninu, verða vitni að þessu.“ - Það veit víst enginn um hvaða „stelpur i nágrenninu" hann talar með svona miklum skilningi. Ef hann er að tala um þessar 6 litlu stelpur, sem ég þekki til og búa í götunni, eru þær allar undir 12 ára aldri. Það væri býsna erfitt fyr- ir þær að sjá einhvern „uppi í rúmi“ á annarri hæð hússins, enda halda börnin sig eins langt frá Sæ- braut 2 og hægt er. Hitt er annað mál að þær og aðr- ir geta séð þá berrassaða í gluggum annarrar hæðar með athæfi sem atti ekki að líðast, t.d. kynferðis- legt. Það er nauðsynlegt fyrir öll félög, sem beijast fyrir málefnum þeirra sem minna mega sín, að gera það heiðarlega og ofstækislaust. Þetta hefur ekki verið stórmannleg fram- koma fram að þessu. Sunneva G. Snæhólm „Það er ekki hægt að fela það eða loka augunum fyrir því hvernig unglingarn- ir haga sér í sínum sjúka heimi.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.