Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1990, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1990, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1990. íþróttir stúfar Körfuknattlelkssam- band íslands hefur ákveöiö aö reyna að bæta við 2. deild karla fyrir keppnistímabilið sem hefst í haust en hingað til hefur aðeins verið keppt í úrvalsdeild og 1. deild. 2. deildinni verður skipt eftir landstjórðungum, það er i Vesturlandsriðil, Norðurlands- riöil, Austurlandsriöil, Suöur- landsriðil, Reykjavíkurriðil og Reykjanesriðil. Keppnisfyrir- komulagið verður í fjölliðamóts- forrai eða svonefndum túrnering- um sem fram fara um helgar og leika þá allir við alla. Leiknar verða þrjár umferðir, ein fyrir áramót og tvær eftir áramót. Það liö sem bestum árangri nær úr þessum mótum kemst i úrslita- fjölliðamót þar sem sigurvegarar úr riðlunum leika um sæti í 1. deild. Frestur til aö skila inn þátt- tökutilkynningum til skrifstofu KKÍ rennur út 3. september og er þátttökugjald krónur 10.000. FH-ingar endurvekja körfuknattleiksdeildina Nokkir knattspyrnumenn i meistaraílokki FH hafa ákveðið að endurvekja körfuknattleiks- deild FH og senda liö til þátttöku í 2. deild karla á íslandsmótinu í haust. FH-ingar kepptu í körfu- knattleik fyrir nokkrum árum og léku þá með liðinu kappar eins og Einar Bollason og Viðar Hall- dórsson. Meistaramót yngri kynslóðarinnar i frjálsum Meistaramót íslands 12-14 ára veröur hald- iö um næstu helgi á Selfossvelli og verður mótið í umsjá HSK. Mótið hefst á laugardaginn kl. 10 og verður fram haldið á sunnudeginum og hefst keppni þá einnig kl 10. Sömu helgi verður meistaramót 15-18 ára haldiö á Valbjamarvelli og er það i umsjá Ármanns. Mótið hefst á laugardaginn kl. 14 og kl. 11 á sunnudaginn. Mikil gróska er nú hjá yngri flokkum og má búast við spennandi keppni í mörgum greinum. Olapade vann ílOOmhlaupi Ágætur árangur náðist í nokkr- um greinum á frjalsíþróttamóti í Malmö i Svíþjóð í fyrrakvöld. í 100 metra hlaupi sigraði Nígeríu- maðurinn Olapade Adeniken á 10,10 sekúndum. Annar í hlaup- inu varð Leroy Burreh á 10,12 sek. en hann hefur verið ó- sígrandi undanfarið og sigraði Carl Lewis fyrir skömmu á frið- arleikunum. Þegar Olapade kom í mark henti hann sér yfir mark- línuna og féll kylliflatur á hlaupa- brautina. í fyrstu var haldið að hann væri viöbeinsbrotinn en svo var þó ekki. Heimsmethafinn í kúluvarpi, Randy Barnes frá Bandaríkjunum, sigraði með yfirburðum í kúluvarpi þegar hann kastaði 22,84 metra. Heike Drechsler vann einn sigur í lang- stökki þegar hún stökk 7,26 metra. Bretinn Tom McKean var fyrstur í mark í 800 meta hlaupi á tímanum 1:45,36 mínútur. Óvænt úrslit urðu í hástökki karla en þar sigraði Bandaríkja- maðurinn Hollos Conway, stökk 2,38 metra, en Svíinn Patrick Sjö- berg varð að láta sér lynda 3. sætið pieð 2,26 metra. í 800 metra hlaupi kvenna varð Austur- þýska stúlkan Ellen Kiessling fyrst í mark, hljóp á tímanum 2:01,39 mínútur. Marlane Ottey vann auöveldan sigur í 100 metra hlaupi og fékk tímann 11,04 sek- úndur. Norska knattspyman: Brann lá á heimavelli - liðið tapaði fyrir nágrönnunum, Fyliingen Brann, lið þeirra Ólafs og Teits Þórðarsona, tapaði um helgina fyrir Fyllingen, 2-3, á heimavelli sínum í 1. deild norsku knattspymunnar. Geysileg stemmning var á meðal 16 þúsund áhorfenda sem horfðu á leik- inn enda eru bæði liðin frá Bergen. Vorum betri aðilinn í leiknum „Það var ansi slæmt að tapa þessum leik því við vomm mun betri aðilinn í leiknum. Staðan var 1-0 okkur í vil í hálfleik en í upphafi síðari hálfleiks skoruðu þeir tvö ódýr mörk sem markvörðurinn hefði átt að koma í veg fyrir. Við náðum að jafna leik- inn, 2-2, og áttum mörg færi til að gera út um leikinn en á síðustu mín- útunni fékk Fyllingen dæmda_víta- spymu sem þeir nýttu,“ sagði Ólafur Þórðarson í samtah við DV. Hef átt við meiðsli að stríða „Ég hef átt við langvarandi meiðsli að stríða í hné og há meiðslin mér nokkuð. Ég mun að öllum líkindum gangast undir uppskurð eftir lok keppnistímabilsins," sagði Ólafur sem ekki náði að skora í leiknum. Önnur úrslit í 1. deild norsku knatt- spyrnunnar urðu þannig: Rosenborg-Moss...............4-0 Start-Molde..................2-0 Tromso-Kongsvinger...........3-1 Viking-VIF Fotbcdl...........1-2 • Staðaefstuliðaídeildinnierþessi: Tromso........14 9 2 3 26-15 29 Molde.........14 9 2 3 18-11 29 Rosenborg.....14 7 4 3 35-18 25 Viking........14 7 3 4 23-15 24 Brann.........14 6 5 3 21-14 23 Start.........14 7 1 6 29-20 22 Fyllingen.....14 5 5 4 18-17 20 Brann tapaði fyrirTottenham í fyrrakvöld lék Brann æfmgleik gegn Guðna Bergssyni og félögum hans í Tottenham. Tottenham sigraði í leiknum, 0-1, og var markið skorað um miðjan síðari hálfleik og var David Howell þar af verki. Ólafur og Guðni léku báðir með liðum sínum og að sögn Ólafs átti Guðni góðan leik í hði Tottenham, lék í stöðu hægri bakvarðar. Um 5 þúsund manns fylgdust með leiknum. -GH Agæt aðsókn í maraþonið -hlaupið verður 19. ágúst Nú styttist óðum í Reykjavíkur- maraþonhlaupið en það verður sunnudaginn 19. ágúst. Fyrsta al- þjóðlega Reykjavíkurmaraþonið var haldið árið 1984 og voru þá þátttak- endur 214 en síöan hefur þeim farið fjölgandi með hveiju árinu. Skráning í hlaupið er nú í fullum gangi og lýk- ur 15. ágúst. Hlaupaleiðirnar, sem keppt er í, eru þrjár. Fullt maraþon- hlaup, sem er 42,5 kílómetrar, hálf- maraþon, sem er 21 kílómetri, og skemmtiskokk sem er 7 kílómetrar. „Skráning hefur gengið ágætlega en íslendingar eru seinir að taka við sér og síðustu vikuna fyrir hlaupið skrá flestir sig. í fyrra voru keppend- ur 1.250 en við erum aö gæla við að þeir vprði um 1.500 og þar af um 300 útlendingar. Það er alltaf töluvert spurst fyrir um Reykjavíkurmara- þonið af erlendum keppendum og þeir erlendu keppendur sem keppt hafa segja að það sé mjög gott að hlaupa hérlendis vegna loftsins og ennfremur að hlaupaleiðimar séu góðar,“ sagði Jakob Bragi Hannes- son, framkvæmdastjóri Reykjavík- urmaraþonsins, í samtali við DV. Þrír sterkir hlauparar boðað komu sína „Þrír sterkir hlauparar hafa þegar boðað komu sína í hlaupið. Dan- merkurmeistarinn i maraþoni karla árið 1989 mun keppa en hann á best 2 klukkustundir og 22 mínútur. Þá mun stúlka frá Norður-írlandi taka þátt í hlaupinu og auk þess hefur breskur hlaupari boðaö komu sína en hann á best 2 klukkustundir og 18 mínútur. Þá erum við að vinna í því að fá hingað til lands fimm sov- éska maraþonhlaupara. Það em margir keppendur sem búa sig vel undir hlaupið og til að mynda hafa um 50 manns verið í stöðugum æf- ingum hjá æfingastöðinni Mætti undir stjórn reyndra þjálfara," sagði Jakob. íslandsmót í hálfmaraþoni í leiðinni Samhliða keppninni í hálfmaraþon- inu verður keppt um íslandsmeist- aratitil í karla- og kvennaflokki í hlaupinu og verða vegleg verðlaun veitt fyrir þrjú efstu sætin í báðum flokkum. Þá verður sú nýjung að keppt verður í sveitakeppni í hálf- maraþoni en í fyrra var aðeins um slíka keppni að ræða í skemmtis- kokkinu. Hveija sveit skipa þrír keppendur og samanlagður tími þeirra ræður úrslitunum og verða bikarar veittir þeim sem sigra. Verða með uppákomur í Kringlunni Skipuleggjendur Reykjavíkurmara- þonsins ætla að verða með hinar ýmsu uppákomur í Kringlunni síð- ustu vikuna fyrir hlaupið. Þar verð- ur til að mynda efnt til keppni á sér- stöku hlaupabretti og sérfræðingar gefa keppendum góð ráð fyrir mara- þoniö. Fólk er hvatt til að mæta á þessar uppákomur og upplagt er að skrá sig í hlaupið í leiðinni. Einnig er hægt að láta skrá sig á ferðaskrif- stofunni Úrvali og Útsýn, Pósthús- stræti 13 og Álfabakka 16, skrifstofu Frjálsíþróttasambandsins í Laugar- dal og verslunum Sportvals á Hlemmi og í Kringlunni. • Allir þeir sem ljúka hlaupinu fá fallega peninga til eignar til minning- ar um Reykjavíkurmaraþonið. -GH • Leroy Burrell, bandaríski spretthlauparinn, sigraði glæsilega i 100 m hlaupi á alþ i gær. Burrell, sem vann Carl Lewis í Seattle á dögunum, hefur heldur betur komi taklega eftir sigurinn á Lewis. í gær hljóp hann 100 metrana á 9,96 sekúndum en i á 10,04 sekúndum. Blikastúlkur siwi Einn leikur fór fram í 1. deild kvenna í gærkvöldi. Breiðablik sigraði Þór fyrir norðan, 1-0. „Þetta var mjög erfiður leikur," sagði Sigurður Hannesson, þjálfari Blika- stúlkna, í samtah við DV eftir leikinn. „Breiðabhksliðið átti slæman leik en Þórsstúlkumar börðust vel. Þórsarar eru með mjög vaxandi Uð sem kemur til með að vera í toppbaráttunni á næsta ári,“ sagði Sigurður. Leikurinn var jafn allan tímann en Hörðbarátl 1. deildar s - aukakeppni 4 liða hefst á fósl Á síðasta ársþingi Handknattleiks- keppnistímabiU og markahæsti leik- sambands íslands var ákveðiö að fjölga maður liðsins, Magnús Sigurðsson, er liðunum í l. deild karla úr 10 í 12. genginn til liðs við Stjömunna. Keppni þeirra fjögurra liða um tvö laus Nokkrar breytingar eru á Gróttulið- sæti í deildinni hefst á morgun og lýk- inu. Sovéski þjálfarinn Veleric Mutag- ur 19. ágúst, arov er orðimi þjálfari liðsins í stað Þau Uð, sem munu heyja aukakeppn- Árna Indriðasonar og liðið hefur feng- ina, eru liðin sem urðu í tveimur iö sovéskan leikmann, Stepanov Vlad- neðstu sætunum í 1. deild karla á síð- imir Alexvech, til Uðs við sig. Hann er asta keppnistímabiU, Grótta og HK, 34 ára vinstri handar skytta. Að ööra auk Uðanna sem höfnuðu í 3. og 4. leyti er GróttuUðið óbreytt frá síðasta sæti í 2. deildar keppninni, Haukar og keppnistímabili að undanskildum Sig- Þór frá Akureyri. tryggi Albertssyni og Willum Þór Þórs- Liðin hafa æft stíft á undanfórnum .syni. vikum og hefur nokkur liðsauki borist Þórsarar frá Akureyri, sem höfnuðu sumum þeirra. Haukar hafa til aö í4.sætií2.deildásíðastakeppnistima- mynda fengið til liðs við sig tékkneska bili, tefla fram nær óbreyttu liði frá landsUösmanninn Peter Bamruk, síðsta keppnistímabiU. Félagið hefur Steinar Birgisson, fyrrum landsUðs- ráðið Danann Jan Larsen sem þjáU'ara mann og leíkmann með Runar í Nor- fyrir meistaraflokk auk þess sem hann egi, og Magnús Árnason, sem lék í hefur yfirumsjón með þjálfun yngri marki FH, svo einhverjir séu nefnd- flokka og er hann ráðinn til þriggja Liði HK hefur einnig borist liðsauki. Larsen þjálfaði lið KA veturinn 1982 Magnús Ingi Stefánsson er kominn til 1983. Aö sögn formanns handknatt- heim frá Noregi en hann lék í marki leiksdeildar Þórs, Odds Halldórssonar, HK áður en hann hélt utan. Þá er nýr þá reyndu þeir að útvega sér leikmann þjálfari tekinn við störfum hjá HK en frá Póllandi fyrir milUgöngu Ðodgans það er Tékkinn Rudolv Havlik sem Kowalcyks auk þess sem þeir reyndu þjálfaði félagiö fyrir nokkrum árum. fyrir sér í Sovétríkjunum en þaö gekk Sonur HavUks, Robert Havlik, mun ekki upp að sögn Odds. leika með liðinu auk þess sem Erlend- Fyrsta umferðin hefst á fostudags- ur Daviðsson hefur skipt yfir í HK úr kvöld en þá leika Haukar og Þór AK í Víkingi. Aðalskytta HK á síðasta íþróttahúsinu við Strandgötu og hefst

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.