Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1990, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.1990, Qupperneq 27
FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 1990. 35 Afmæli Hundrað ára Guðrún ísleifsdóttir Guðrún ísleifsdóttir, sem nú dvel- ur á Hjúkrunarheimilinu Hlíð, Ak- ureyri, er hundrað ára í dag. Guðrún fæddist á Hálsi í Fnjóskadal en fluttist ung til Eyja- fjarðar. Hún hjó með foreldrum sín- um á ýmsum stöðum við Eyjaíjörð, lengst á Ytra-Kamhshóh, Arnarnes- hreppi. Árið 1946 fluttist hún til Akureyrar og hefur búið þar síðan. Guðrún var húsmóðir en síðasta árið hefur hún dvalið á Hjúkrunar- heimihnu Hhð. Guðrún er skýr og hress en er nokkuð bundin við rúm- ið. Guðrún var gift Gunnari Sigurðs- syni, f. 2. ágúst 1892, d. 1976. Gunnar var lengst af bóndi á Ytra-Kambs- hóli og síðar verkamaður á Akur- eyri. Guðrún og Gunnar eiga einn son, Baldur, f. 26. desember 1923. Kona hans er Ásta Hallgrímsdóttir og eiga þau tvær dætur. Guðrún átti tvö systkini, Bríeti og Matthías. Þau eru bæði látin. For- eldrar Guðrúnar voru ísleifur Jóns- son og kona hans, Stefanía Indriöa- dóttir. Þau voru vinnuhjú á Hálsi í Fnjóskadal og bjuggu svo á ýmsum stöðum við Eyjafjörð, lengst á Ytra- Kambshóli. Jens G. og Móses B.G. Guðmundssynir Jens G. og Móses B.G. Guðmundssynir. Tviburahræðumir Jens G. og Móses B.G. Guðmundssynir eru sjötugirídag. Þeir eru báðir sjómenn. Jens hýr á Hörpugötu 4, Reykjavík, en Mó- ses á Mýrargötu 2, Hafnarflrði. Þeir fæddust á Þingeyri við Dýra- fjörð og ólust þar upp. Þeir bræður stunduðu sjóinn aht frá hamæsku og bjuggu á Þingeyri til 1940 er þeir fluttust til Akraness. Móses bjó á Akranesi til 1956 en þá flutti hann ásamt fjölskyldu sinni til Hafnarfjarðar þar sem hann hefur búið síðar. Hann nam í Stýrimannaskólanum og lauk stý- rimannsprófi 1950. Móses var á sjó í 35 ár á ýmsum skipum, síðast flutningaskipum. Síðustu 12árin hefur hann verið starfsmaður hjá íslenskaálfélaginu. Jens bjó nokkur ár á Akranesi og fluttist þá tíl Hafnarfjarðar. Síð- ustu 40 árin hefur hann búið á Hörpugötu 4 í Reykjavík. Jens var sjómaður um áratugaskeiö en vann síöast sem bifreiðarstjóri í Reykaj- vík. Þeir bræður, Jens og Móses, giftu sig báðir þann 19. maí 1951. Eigin- kona Móses er Ólafla Guðbjörns- dóttir verslunarmaður, f. 5. maí 1922. Hún er dóttir Jónu Oddnýjar Hahdórsdóttur og Guðbjörns Guð- laugssonar bónda. Eiginkona Jens er Sólborg Júhusdóttir, f. 27. des- ember 1929. Sólborg er dóttir Guð- rúnar Jensdóttur og Júlíusar Ní- elssonar en þau bjuggu allan sinn búskap í Reykjavík og frá árinu 1931aðHörpugötu4. Börn Móses og Ólafíu eru: Lilja f. 10. septemher 1951, bankastarfs- maður í Reykjavík, maöur hennar er Hahdór ð. Bergsson og eiga þau þrjú böm, og Þórdís, f. 14. septemb- er 1952, kennari í Hafnarfirði, hún áeittbarn. Jens og Sólborg em bamlaus. Systkinin voru tíu og af þeim em flmm á lífi. Móses og Jens vom yngstir. Foreldrar þeirra vom Guðmundur Bjarni Jónsson sjó- maður, en hann var formaður á báti sínum í Lokinhömrum í Arn- arfirði í 18 ár og stýrimaður á skút- um um árabh, og kona hans, Helga Jóna Jónsdóttir. Guðmundur Bjami og Helga Jóna bjuggu á Þingeyri í 40 ár en frá 1940 á Akra- nesi og allt til ævUoka. Foreldrar Guðmundar vom Jón Ólafsson, b. í Lokinhömmm í Arnarfirði, og kona hans, Kristín Guðmundsdótt- ir. Foreldrar Helgu vom Jón Hah- dórsson, vinnumaður í Botni í Súg- andafirði, og Soffía Eiríksdóttir, ráðskona í Botni, áður húsmóðir í Stapadal. Móses og Jens verða báðir að heiman á afmæhsdaginn. Hilmar Leifur Sveinsson Hilmar Leifur Sveinsson húsa- smiður, Tryggvagötu 14B, Selfossi, erfimmtugurídag. Hilmar Leifur fæddist í Laufási á Selfossi og ólst þar upp. Hann tók gagnfræöapróf frá Gagnfræðaskóla Selfoss og lauk námi í húsasmíði hjá Sigfúsi Kristinssyni árið 1972. Síðan hefur Hilmar Leifur unnið við húsa- smíðar á Selfossi. Hann hefur enn- fremur fengist við garðyrkju og gróðurhúsaræktun. Hilmar giftist 18. mars 1972 Gyðu Gunnarsdóttur, f. 26. janúar 1944. Foreldrar Gyðu eru Gunnar Jóns- son, verkamaður í Borgarnesi, f. 25. mars 1909, ogkona hans, Sigurást Sigurðardóttir, f. 25. október 1913. Hilmar og Gyða eiga tvö börn. Þau eru: Sólveig Amdís, f. 21. janúar 1973, nemi, og Ehas, f. 26. október 1980. Börn Gyðu frá fyrra hjóna- bandi eru: Þröstur Ólafsson, f. 16. janúar 1962, vélstjóri á ísafirði, kona hans er Guðbjörg Drengsdóttir; Ásta María Ólafsdóttir, f. 5. ágúst 1963, d. 18. mars 1990, en hún var búsett á Siglufirði síðustu árin og vann við hjúkmnarstörf. Hilmar á fimm systkini. Þau em: Margrét, f. 29. nóvember 1931, hús- móðir í Kópavogi, böm hennar eru Andrés og Elín Amdís; Sigríður, f. 10. febrúar 1932, maður hennar er Láms Jóhannsson, bifreiðasmiður á Selfossi, og börn þeirra em Arndís, Jónína, Sveinn, Jóhanna ogÁs- mundur; Sigurður, f. 16. maí 1936, bifreiðastjóri í Reykjavík, kona hans er Gunnlaug Ólafsdóttir sjúkrahði og dóttir þeirra er Elín Amdís; Elías, f. 9. júlí 1938, land- búnaðarhagfræðingur, búsettur í Uppsala í Svíþjóð, kona hans er Yvonnie Tidbeck iðjuþjálfi og börn þeirra em Sveinn og Elín Elísabet; Svanhildur, f. 26. maí 1943, maður hennar er Steinn Þorgeirsson, tæknifræðingur í Hafnarfirði, og böm þeirra eru Guðbjöm, Sveinn Amar og Ragnar Páll. Foreldrar Hilmars vom Sveinn Hjörleifsson, f. 14. september 1904, d. febrúar 1978, fyrrverandi múrarameistari á Selfossi, og kona hans, Ehn Arndís Sigurðardóttir, f. 12. maí 1904, d. mars 1969. Þau hófu búskap í Bræðratungu í Biskups- tungum en bjuggu síðar á Drumb- oddsstöðum í Biskupstungum. Síðar fluttu þau th Selfoss og bjuggu þar thævUoka. Sveinn var sonur Hjörleifs, söðla- smiðs á Eyrarbakka, Hjörleifssonar, b. á Efri-Steinsmýri, Ásmundsson- ar, b. á Efri-Steinsmýri, Ásmunds- sonar, h. á Svínafelh, Jónssonar. Móðir Sveins var Margrét Eyjólfs- dóttir, b. á Efri-Steinsmýri, Eiríks- sonar, b. í Fjósakoti, Einarssonar. Hilmar Leifur Sveinsson. Móðir Margrétar var Guðrún Giss- urardóttir, b. á Syðri-Steinsmýri, Pálsspnar, b. og hreppstjóra á Skála- felli, Árnasonar. Foreldrar Elínar vom Sigurður Erlendsson, b. á Vatnsleysu í Bisk- upstungum, og kona hans, Sigriður Þorsteinsdóttir, b. og smiðs á Reykj- um á Skeiðum, Þorsteinssonar, b. á Laug, Dlugasonar Skálholtssmiðs Jónssonar. HUmar tekur á móti gestum á heimUi sínu þann 11. ágúst eftir klukkan 18.00. Björn Björnsson verslunarstjóri, Álftamýri 34, Reykjavík, er sextug- urídag. Björn fæddist á Siglufirði og ólst þar upp. Hann er lærður stýrimaður og var sjómaður allt til ársins 1970. Þann 21. október 1960 giftist Björn Önnu Guðmundsdóttur, f. 16. febrú- ar 1928. Foreldrar Önnu voru Nikó- hna Þorláksdóttir og Guðmundur Guðmundsson en þau eru bæði lát- in. Böm Björns og Önnu eru tvö: Hrönn, f. 24. júh 1963, félagsráðgjaft í Borgarnesi, gift Jóni Pálssyni iðn- ráðgjafa og eiga þau tvö börn, og Katrín, f. 17. maí 1966, húsmóðir, sambýhsmaður hennar er Gunn- laugur Kristjánsson bakarameistari og eiga þau eina dóttur. Systkini Bjöms voru níu og þar af eru sjö á lífi. Systkinin eru: Sig- urður, f. 27. maí 1917, d. 1944; Ás- björg Una, f. 19. maí 1919, hún er látin; Hahdóra, f. 5. júlí 1921; Sveinn, f. 26. júh 1924; Asgrímur, f. 22. febrú- ar 1927; Þorsteinn, f. 30. maí 1929; María, f. 13. september 1931; Svava, f. 10. nóvember 1932, og Sigríður, f. 17. ágúst 1934. Björn Björnsson. Foreldrar Björns vora Björn Sig- urðsson, f. 14. nóvember 1894, d. 30. ágúst 1974, sjómaður, ogEiríksína Ásgrímsdóttir, f. 11. apríl 1897, d. 1960. Þau voru búsett á Siglufirði. Björn og Anna kona hans taka á móti gestum í Drangey, húsi Skag- firðingafélagsins, Síðumúla 35, Reykjavík, föstudaginn 10. ágúst milli klukkan 20.00 og 24.00. 90 ára 50ára Kristín Ástgeirsdóttir, Skjólvangi, Hrafnistu, Hafnarfirði. 80 ára Jenný J. Levy, Hrísakoti 1, Þverárhreppi. 75 ára Ingibjörg Einarsdóttir, Furagerði 1, Reykjavík. Lára Ólafsdóttir, Álfafelh, Hveragerði. Sveinborg Símonardóttir, Háteigsvegi 13, Reykjavík. Aldis Guðmundsdóttir, Vesturbergi 2, Reykjavík. Áslaug Magnúsdóttir, Þórufelli 16, Reykjavík. Emil Gíslason, VesturhúsumS, Reykjavík. Einar Einarsson, Brú viö Suöurgötu, Reykjavík. SnjólaugE. Hermannsdóttir, Hlíðarvegi 62, Njarðvik. Sævar Guðmundsson, Vííilsgötu 15, Reykjavík. Ragnheiður Jósefsdóttir, Sólbergi, Tálknafirði. Ævar Þorgeirsson, Kambsvegi 6, Reykjavík. Svava Finnbogadóttir, Esjubraut 15, Akranesi. 70 ára 40 ára Sigurveig Sigurðardóttir, Kirkjuvegi3, Selfossi. Gerður Petra Ásgeirsdóttir, Brekkustíg 35B, Njarövik. ErUng Adolf Ágústsson, Borgarvegi 24, Njarðvik. Svanbjörg S vanbergsdóttir, Hamragerði 26, Akureyri. Valdimar Hergeirsson, Grenimel 10, Reykjavík. Markús Jónsson, Háaleitisbraut 30, Reykjavik. Ari Ólafsson, Barónsstig 43, Reykjavík. Ingólfur Þ. Jónsson, Austurbergi20, Reykjavík. Magnús Rafnsson, Bakka, Hólmavík. Guðrún Ólafsdóttir, Strýtuseli 10, Reykjavík. Steinunn Björk Ólafsdóttir, Marbakkabraut 17, Kópavogi. Sigurbjörg Jónsdóttir, Hofgerði4,Vogum. Magnús Hilmarsson, Austurbergi 16, Reykjavík. Kristján Hauksson, Brannstíg 1, Hafnarfirði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.