Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1990, Blaðsíða 1
Sjónvarp á föstudögum:
Leyniskjöl Piglets
- framhaldsmyndaflokkur um njósnastarfsemi
Þeir eru orðnir allnokkrir fram-
haldsmyndaflokkarnir þar sem
skyggnst hefur verið inn í heim al-
þjóðlegrar njósnastarfsemi og eink-
um hafa sjónvarpsáhorfendur fengið
nasaþef af starfsháttum bresku
Nicholas Lyndhurst leikur aðalhlut-
verkið í Leyniskjölum Piglets.
leyniþjónustunnar. Flest hefur þetta
efni verið þrungið alvöru enda svo
sem ekki ástæða til að hafa slík al-
vörumál í flimtingum, eða hvað? Á
morgun kl. 19.20 hefst í Sjónvarpinu
framhaldsmyndaflokkur þar sem
reynt er að hta á spaugilegu hhðarn-
ar á njósnastarfseminni og þykir tak-
ast býsna vel.
Hér segir frá Peter nokkrum Chap-
man, háskólakennara í rafeinda-
fræði, sem bresku leyniþjónustunni
MI5 tekst að fá til liðs við sig með
eftirgangsmunum í því skyni að
kenna njósnurum sínum að með-
höndla hátæknibúnað. Næsti yfir-
maður Chapmans, Maurice Drumm-
ond, og forstöðumaður deildarinnar
fullvissa hann um að ekki þurfi að
tefla á tvær hættur í þessu starfi. En
annað reynist koma á daginn. Með
hverjum deginum sem líður færist
Chapman nær hringiðu njósnastarf-
seminnar. Til að bæta gráu ofan á
svart er Chapman með öllu óheimilt
að trúa nokkrum fyrir því sem hann
fæst við, þar með talinni eiginkonu
sinni, Söru, og það er ekki til þess
fallið að bæta heimilislífið.
-GRS
Stöð 2 á föstudag:
Sjálfstæði
Önnur bíómynda Stöðvar 2 á fóstu-
dagskvöldið ber heitiö Sjálfstæði (In-
dépendence) og er hér á ferð banda-
rísk sjónvarpsmynd.
Sam Hatch er gerður að lögreglu-
stjóra í bæ einum í villta vestrinu
eftir að hafa sallað niður nokkra
bófa. íbúar bæjarins standa í þakkar-
skuld við Hatch og þeir telja reyndar
að lögreglumerkið sé best komið á
brjósti hans. Hatch hafði nokkru áð-
ur komið til bæjarins en áður ýmis-
legt á daga hans drifið. Megnið af
fyrri fjölskyldu hans hafði verið
þurrkað út af bófagengi. Hatch er
kominn með nýja konu og hefur haf-
ið nýtt líf en minningarnar naga
hann stöðugt. Eftir að Hatch er gerð-
ur að lögreglustjóra virðist allt ætla
að ganga eins og í sögu en þá birtast
skúrkarnir sem sök áttu á dauða
nokkurra fjölskyldumeðhma Hatch
og hann sér sig knúinn til að ríða
móti þeim einn síns liðs til að jafna
gamla reikninga.
Aðalhlutverk leika John Bennett
Perry, Isabella Hoffman og Sandy
McPeak. Leikstjóri er John Patter-
son.
-GRS
Sam Hatch á eftir aö jafna gamla reikninga úr fortiðinni
Sjónvarp á sunnudag:
Debra Vanderlinde
Á sunnudag kl. 22.35 verður sýnd
upptaka sem Sjónvarpið gerði á
Listahátíð í Reykjavik 1988 þegar
sópransöngkonan Debra Vander-
hnde söng á tónleikum með Sinfóníu-
hljómsveit íslands í Háskólabíó und-
ir stjórn Gilberts Levine. Á efnis-
skránni var m.a. Exultate. Jubilate
eftir Wolfgang Amadeus Mozart og
aría Ófelíu úr óperunni Hamlet eftir
Abroise Thomas.
Debra Vanderhnde býr í New York,
hún stundaði nám við Denison há-
skólann og Eastman tónhstarháskól-
ann. Hún söng fyrst á sviði árið 1979
en hefur síðan sungið í óperuhúsum
og haldið hljómleika víða um heim.
Af þekktustu hlutverkum hennar
má nefna Papagenu í Töfraflautunni
eftir Mozart og Frasquita í Carmen
eftir Bizet. Debra Vanderlinde hefur
sungið inn á fjölmargar hljómplötur
og komið fram í útvarpi og sjónvarpi
víðaumheim. -GRS
ÍA og Valur leika til úrslita I bikarkeppni KSI.
Sjónvarp á sunnudag:
ÍAogValurí
úrslitum bikar-
keppni KSÍ
Sunnudaginn 19. ágúst leika IA
og Valur til úrslita í kvennaflokki
í bikarkeppni KSÍ og hefst leikur-
inn klukkan 14.00. Leikurinn fer
fram á Laugardalsvelh og mun
Sjónvarpið sýna leikinn í beinni
útsendingu og að viku hðinni verða
sjónvarpsmenn aftur á ferðinni
þegar úrslitaleikurinn í karaflokki
fer fram en þá mætast erkifjend-
urnir KR og Valur. Þetta er jafn-
framt í fyrsta skipti sem báðir úr-
-bein útsending
shtaleikirnir í bikarkeppninni eru
sýndir beint.
í kvennaflokki eru það Skaga-
stúlkurnar sem eru handhafar bik-
arsins en þær sigruðu Þór frá Ak-
ureyri í fyrra, 2-1, en það eru Vals-
stúlkur sem hafa oftast sigraði í
bikarkeppninni eða ahs fimm sinn-
um frá því keppnin var sett á lag-
girnar árið 1981. Fyrstu þijú árin
vann Breiðablik en þá tóku Vals-
stúlkumar við og unnu keppnina
fimm ár í röð. I fyrra náöu Skaga-
stúlkurnar síðan að brjóta á bak
aftur einveldi Valsara. ÍÁ og Valur
hafa fjórum sinnum áður mæst í
úrshtaleik þessarar keppni og Vals-
stúlkur hafa ávaht farið með sigur
af hólmi. í undanúrshtum léku fé-
lögin við Akureyrarhðin KA og
Þór. ÍA vann KA, 2-1, og Valur
vann Þór, 1-0.
-GRS