Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1990, Blaðsíða 4
20
FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 1990.
FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 1990..
21
Messur
Guðsþjónustur
Árbæjarprestakall: Guðsþjónusta
fellur miður vegna safnaðarferðar
Árbæjarsafnaðar um Rangárvelli.
Brottfór frá Árbæjarkirkju kl. 9.
Leiðsögumaður í ferðinni verður Jón
Böðvarsson. Messað verður að
Breiðabólstað í Fljótshlíð kl. 14. Sr.
Sváfnir Sveinbjarnarson prédikar.
Kirkjukórar Árbæjarkirkju og
Breiðabólstaðarkirkju syngja Sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
Ásprestakall: Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Árni Bergur Sigurbjömsson.
Breiðholtskirkja: Guðsþjónusta kl.
11. Organisti Daníel Jónasson. Sr.
Gísli Jónasson
Bústaðakirkja: Guðsþjónusta kl. 11.
Fermdar verða systurnar Eva Dís og
Anna María Jóhannesdætur frá Lúx-
emborg, Teigageröi 1, Reykjavík. Alt-
arisganga. Organisti Guðni Þ. Guð-
mundsson. Sr. Pálmi Matthíasson.
Dómkirkjan: Messa kl. 11. Organ-
leikari Marteinn Hunger Friðriks-
son. Sr. Hjalti Guðmundsson.
Fríkirkjan 1 Reykjavík: Guðsþjón-
usta kl. 14. Miðvikudagur 5. sept.: kl.
7.30 morgunandakt. Cesil Haralds-
son
Landakotsspitali: Messa kl. 13. Org-
anleikari Birgir Ás Guðmundsson.
Sr. Hjalti Guðmundsson.
Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl.
10. Sr. Magnús Bjömsson.
Fella- og Hólakirkja: Guðsþjónusta
kl. 20.30 í umsjón Ragnheiðar Sverr-
isdóttur djákna. Organisti Guðný M.
Magnúsdóttir.
Grensáskirkja: Messa kl. 11. Organ-
isti Árni Arinbjarnarson. Sr. Halldór
S. Gröndal.
Hallgrímskirkja: Messa kl. 11. Bæn
fyrir friði. Altarisganga. Sr. Karl Sig-
urbjörnsson. Þriðjudagur: Fyrirbæ-
naguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum. Föstudagur: Indlandsvinir,
fundur kl. 20.30 í safnaðarsal.
Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Jón
Bjarman.
Háteigskirkja: Messa kl. 11. Tómas
Sveinsson. Kvöldbænir og fyrirbæn-
ir em í kirkjunni á miðvikudögum
ki. 18. Prestamir.
Hjallaprestakall: Guðsþjónusta í
messuheimili Hjallasóknar í Digra-
nesskóla kl. 11. Sr. Ólafur Jóhanns-
son.
Kópavogskirkja: Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 11. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
Langholtskirkja, Kirkja Guðbrands
biskups. Guðsþjónusta kl. 11. Prestur
sr. Sigurður Haukur Guðjónsson.
Organisti Jón Stefánsson. Kór kirkj-
unnar syngur. Molakaffi eftir stund-
ina. Sóknarprestur.
Laugarneskirkja: Guðsþjónusta kl.
11. Heitt á könnunni eftir guðsþjón-
ustuna. Orgelleikari Ronald V. Turn-
er. Fimmtudagur 6. sept. Kyrrðar-
stund í hádeginu. Orgelleikur, fyrir-
bænir, altarisganga. Léttur hádegis-
veröur eftir stundina. Sóknarprest-
ur.
Neskirkja: Messa kl. 11. Orgel- og
kórstjórn Reynir Jónasson. Sr. Guð-
mundur Óskar Ólafsson. Miðviku-
dagur: Fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson
Seljakirkja: Guðsþjónusta kl. 20.
Svala Nielsen syngur einsöng. Org-
anisti Marteinn Hunger Friðriksson.
Molasopi eftir guðsþjónustuná.
Sóknarprestur.
Seltjarnarneskirkja: Messa kl. 11.
Organisti Gyða Halldórsdóttir. Sr.
Guðmundur Örn Ragnarsson. Mið-
Efnt verður til píanótónleika í Dillonshúsi á sunnudag.
Árbæjarsafn:
Píanótónleikar
- tónlist frá stríðsárunum
í tilefni sýningarinnar um mann-
líf á stríðsárunum í prófessors-
bústaðnum frá Kleppi verður efnt
til píanótónleika í DUlonshúsi á
sunnudag kl. 14.30.
Hafliði Jónsson mun leika hina
vinsælu og skemmtilegu píanótón-
list stríðsáranna. Gestum er síðan
bent á að skoða sýninguna „.. .og
svo kom blessað stríðið“ þar sem
greint er frá mannlífi stríðsáranna,
litið inn í bragga um 1950 og sagt
frá tilurð lífsgæðakapphlaups ís-
lendinga sem hófst einmitt á þess-
um árum. Á sýningunni er til sýnis
kaffihús frá stríðsárunum og eld-
hús íslenskrar konu í Bretaþvotti.
í Árbænum verður unnið við tó-
vinnu og bakaðar grautarlummur
sem gestum verður boðið að
smakka á. í safnkirkjunni messar
sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson kl.
14.00. í Dillonshúsi verða veitingar
á boðstólum og Krambúðin verður
opin. Prentsmiðja aldamótahand-
verksmannanna verður starfandi
og þá mun hinn landsþekkti harm-
óníkuleikari Karl Jónatansson
leika á nikkuna.
í september verður safnið opið
allar helgar en lokað virka daga.
Dillonshús verður einnig opið um
helgar og messað verður í safn-
kirkjunni alla sunnudaga.
Sumarsýningin í FÍM-salnum, sem Ijúka átti 28. ágúst, hefur veriö fram-
lengd til 18. september. Á sýningunni eru verk eftir 43 myndlistarmenn,
eldri og yngri. Þar er aö finna höggmyndir, olíumálverk, vatnslitamynd-
ir, grafík o.fl.
Norræna húsið:
Grafík-
verk
ICaljo
Pollu
Á sunnudag verður opnuð
sýning í anddyri Norræna
hússins á grafíkverkum eftir
eistneska listamanninn Kaljo
Pollu. Hér er um að ræða 25
myndir úr tveimur myndaröð-
um: „Kodalased" (Tjaldfólkið)
og „Kalivagi" (Kalifólkið), en
Kalivági þýðir mikill kraftur
eða orka. Sýningin ber yfir-
skriftina Barn vatns og vinda
og er hún farandsýning. Það er
„Stiftelsen Stockholms láns
museum", sem hefur sett sam-
an sýninguna í samvinnu við
Baltísku stofnunina og listasaf-
nið í Södertálje.
Kaljo Pollu er fæddur 1934.
Hann stundaði nám í glerlist
við Listastofnunina í Tallin.
Hann hélt þó ekki áfram á þeirri
braut heldur sneri sér að grafík.
Hann hefur unnið sér sess í
Eistlandi sem grafíklistamaðúr
með sterka þjóðernisvitund.
Hann hefur kynnt sér sérstak-
lega eistneska alþýðulist,
menningu og sagnaarf og leitað
fanga í fínnsk-úgrískri þjóð-
fræði og þjóðháttum í Síberíu
og Norður-Rússlandi. Þangað
sækir hann myndefnið. Átrún-
aður fólksins, hugmyndir
þeirra um heiminn og skoðun
hans, lifnaðarhættir og sérstök
birta heimskautasvæðisins eru
grunntóninn í myndaröð Kaljo
Pollus.
Með sýningunni fylgir sýn-
ingarskrá á sænsku, og hefur
eistneska ljóðskáldið Jaan
Kaplinski (f. 1941) skrifað text-
ann í formi prósaljóðs. Geft
hefur verið myndband sem
fylgir sýningunni. Þar er fléttað
saman myndum Pollus, prósa-
ljóði Kaplinskis og tónlist. Eist-
neska tónskáldið Eduard Tubin
hefur samið sónötu fyrir píanó
með myndir Pollus í huga. Heit-
ir verkið Norðurljósasónata og
er leikið af eistneska píanóleik-
aranum Vardo Rumessen.
Myndbandið verður sýnt við
opnun sýningarinnar á sunnu-
dag kl. 16.00.
Marta Guðrún fiytur verk eftir Schubert, Brahms, Mendelssohn og Strauss.
DV-mynd JAK
Garöabær:
Tónleikar Mörtu
Guðrúnar Halldórs-
dóttur og Gísla
Magnússonar
Marta Guðrún Halldórsdóttir sóprcm og
Gísli Magnússon píanóleikari halda tón-
leika í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli í
Garðabæ á sunnudag.
Marta Guðrún Halldórsdóttir hóf söngn-
ám hjá Sieglinde Kahmann árið 1984 en var
jafnframt nemandi Gísla Magnússonar í
píanóleik við Tónlistarskóla Garðabæjar
og lauk þaðan burtfararprófi árið 1987. Ári
síðar tók Marta einsöngvarapróf frá Tón-
listarskólanum í Reykjavík. Hún stundar
nú nám við Tónlistarskólann í Múnchen
undir leiðsögn prófessoranna Adalbert
Kraus og Daphne Evangelatos. Hún hefur
sótt námskeið í ljóðatúlkun hjá Elly Amel-
ing, Dalton Baldwin og Helmut Deutsch.
Fimmtán ára að aldri söng Marta hlutverk
Silju í Litla sótaranum eftir Benjamin
Britten í íslensku óperunni og tveim árum
síðar í Nóaflóðinu eftir sama höfund. Hún
hefur komið víða fram sem einsöngvari og
syngur auk þess í sönghópnum Hljómeyki.
Gísli Magnússon á langan og gifturíkan
tónlistarferil að baki. Ungur að árum hóf
hann nám hjá Rögnvaldi Sigurjónssyni.
Aö loknu prófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík hélt hann utan til náms og var
lengst í Sviss. Gísli hefur oft komið fram á
tónleikum, jafnt sem einleikari og með Sin-
fóníuhljómsveit íslands. Nýlega kom út
hljómplata með leik hans, Sónata op. 110
eftir Beethoven og Hándel-tilbrigðin eftir
Brahms. Gísli er skólastjóri Tónlistarskóla
Garðabæjar.
Á efnisskrá tónleikanna í Kirkjuhvoli eru
sönglög eftir Schubert, Brahms, Mend-
elssohn og Strauss. Tónleikarnir eru
haldnir fyrir Listasjóð Tónlistarskóla
Garðabæjar.
Kári og Úlrik flytja m.a. lög eftir Sigfús Halldórsson og Sigvalda Kaldalóns.
Norðurland:
Söngtónleikar
I liststofu Bókasafns Kópavogs
stendur yfir sýning á 11 vatnslita-
myndum ívars Magnússonar. ívar
hefur sótt námskeið hjá Rúnu
Gísladóttur og notið leiðsagnar
Hrings Jóhannessonar. Sýningin
er opin á sama tima og bókasaf-
nið.
Akureyri:
Tónleikar
í Gamla
Lundi
Á sunnudag verða haldnir ein-
leikstónleikar á gítar í Gamla
Lundi á Akureyri. Þar mun Uwe
Eschner gitarleikari flytja verk eft-
ir J.S. Bach, Mauro Giuliani, F.M.
Torroba og fleiri.
Uwe Eschner er fæddur í Ham-
borg og stundaði fyrst nám í Kons-
ervatorium þar í borg og seinna við
tónlistarháskólann í Freiburg,
undir leiðsögn prófessors Sonju
Prunnbauer. Hann hefur einnig
sótt námskeið hjá nokkrum þekkt-
um gítarleikurum, þ.á m. David
Russel og Roberto Aussel.
I Þrastarlundi stendur yfir sýning
á landslagsmálverkum eftir Magn-
ús Ingvarsson úr Mosfellsbæ.
Magnús hefur starfað undir hand-
leiðslu Jóns Gunnarssonar mynd-
listarmanns úr Hafnarfirði í
myndalistarklúbbi Mosfellsbæjar.
Sýningunni lýkur 10. september.
Kári Friðriksson og Úlrik Ólafs-
son halda söngtónleika á laugardag
í barnaskólanum á Húsavík og á
sunnudag í sal Tónlistarskólans á
Akureyri. Á efnisskrá eru meðal
annars lög eftir Árna Thorsteins-
son, Sigfús Halldórsson og Sigvalda
Kaldalóns. Einnig eru lög eftir ít-
ölsku tónskáldin Francesko Cliea
og Giacomo Puccini.
Úlrik Ólafsson er 37 ára gamall.
Hann hlaut menntun á Akranesi
og í Reykjavík og framhaldsnámi
lauk hann í Reginsburg í V-Þýska-
landi. Aðalnámsgreinarnar voru
orgelleikur, kór- og hljómsveitar-
stjórn með sérstakri áherslu á
kirkjulegar tónbókmenntir. Að
námi loknu starfaði Úlrik á Akra-
nesi og á Húsavík þar sem hann
var organisti við Húsavíkurkirkju,
skólastjóri tónlistarskólans og
stjórnandi blandaðs kórs og karla-
kórs. Úlrik er nú organisti við
Kristskirkju í Landakoti og kennir
orgelleik og kórstjórn við tónlistar-
skóla Þjóðkirkjunnar og er jafn-
framt stjórnandi söngsveitarinnar
Fílharmóníu.
Kári Friðriksson er 29 ára gam-
all. Hann hefur stundað söngnám
um margra ára skeið. Meðal kenn-
ara hans voru Magnús Jónsson og
Sigurður Demets. Kári útskrifaðist
sem tónmenntakennari frá Tónlist-
arskólanum í Reykjavík og tók
einnig 8. stigs söngpróf úr sama
skóla. Söngkennari hans þar var
Halldór Vilhelmsson. Síðastliðinn
vetur var Kári á Ítalíu hjá Pier
Miranda Ferraro í Mílanó í frekara
framhaldsnámi í söng. Þetta eru
fyrstu einsöngstónleikar hans.
Undanfarnar vikur hefur staðið yfir sýning á myndum eftir Katrínu
Ágústsdóttur í húsakynnum Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis í útibú-
inu að Álfabakka 14. Mýndefnið er úr Breiðholtshverfinu, m.a. húsaþyrp-
ingar og nokkrar landslagsstemmur. Sýningunni lýkur 7. september en
hún er opin á afgreiðslutíma sparisjóðsins.
miðvikudaga og fimintudaga í tvær vik-
ur, frá kl. 20 til 22.30. Þátttökugjald er
3000 krónur. Nánari upplýsingar fást hjá
formanni kórsins og gjaldkera í símum
39119 og 611165 á kvöldin og skráning á
námskeiðiö er í sömu símum.
Kórinn getur bætt við sig góðu söng-
fólki, sérstaklega í karlaraddir. Æfmgar
hefjast á C-Moll messu að loknu nám-
skeiðinu í Melaskóla mánudaginn 17.
september, kl. 20.30, og verður æft tvisvar
í viku á þeim stað, mánudaga og miðviku-
daga, í vetur.
Að loknum tónleikum í janúar mun
kórinn hefla æfmgar á verkefni til flutn-
ings vorið 1991 en ekki hefur endanlega
verið ákveðið hvert verkefnið verður eða
hvar flutningur fer fram.
Tónleikar í Garðabæ
Lokatónleikar þeirra Sigurðar Haíldórs-
sonar sellóleikara og Daníels Þorsteins-
sonar píanóleikara á hringferð þeirra um
landið verða haldnir í Safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli í Garðabæ í kvöld, 31. ágúst
kl. 20.30.
Fundir
JC Nes
Fyrsti félagsfundur JC Nes á þessu
starfsári verður haldin í JC-heimilinu að
Laugavegi 178 mánudaginn 3. september
kl. 20.30.
Tilkyimingar
Húnvetningafélagið
spilar félagsvist laugardaginn 1. sept-
ember kl. 14 í Húnabúö, Skeifunni 17.
Allir velkomnir.
ilberts, Gunnlaug Blöndal, Þórarin B.
Þorláksson, Svavar Guðnason og Snorra
Arinbjamar. Uppboðið fer fram í Súlna-
sal Hótel Sögu og hefst kl. 20.30. Upp-
boðsverkin verða sýnd í Gallerí Borg við
Austurvöll fostudag, laugardag og
sunnudag frá kl. 14-18.
Ferðalög
Ferðafélag íslands
Sunnudagsferðir 2. september.
1. Kl. 08 Þórsmörk - Langidalur. Verð
kr. 2.000. (7-15 ára með foreldrum sínum
greiða 1.000 kr). Kynnist Þórsmörkinni
með Ferðafélaginu, stansað 3-4 klst.
2. Kl. 09 Þórisdalur. Áhugaverð göngu-
ferð í þennan fræga útilegumannadal í
skjóli þriggja jökla. Verð 1.500 kr.
3. Kl. 10.30 Hengill - Nesjavellir. Gengið
frá Kolviðarhóli yfir hæsta hluta Hengils
(803 m.y.s.) um dali norðan hans að
NesjavaUavirkjun. Ekið heim um Nesja-
vallaveg. Verð 1.000 kr.
4. Kl. 13 Jórukleif - Nesjavallavegur.
Skemmtileg og auðveld ganga í Grafn-
ingnum. Nesjavallavirkjun skoðuð að
lokinni göngu qg ekið heim um hina fall-
egu útsýnisleið, Nesjavallaveginn. Verð
1.000 kr., frítt f. börn 15 ára og yngri í
fylgd foreldra sinna. Brottfór frá Um-
ferðarmiðstöðinni, austanmegin.
Ný ferð á miðvikudagskvöldið 5. sept. kl.
20. Kvöldganga og blysför á fullu tungh
í Búrfellsgjá, fallegustu hrauntröö Suð-
vestanlands.
Fjölskylduferð i Álftavatn verður helg-
ina 7.-9. sept. Gönguferðir, ratleikur,
leiðbeint í ljósmyndun og fl., pylsugrill
og kvöldvaka. Eitthvað fyrir alla. Sér-
stakur fjölskylduafsláttur, m.a. frítt fyrir
böm 9 ára og yngri í fylgd foreldra sinna.
Gist í skála FI meðan pláss leyfir, annars
í tjöldum.
Fyrirlestrar
Sunnudaginn 2. september nk. kl. 14 flyt-
ur sænski læknirinn Christian Osika fyr-
irlestur í Norræna húsinu um antrópósó-
físk læknavísindi en það er stefna innan
vestrænnar læknisfræði er leggur
áherslu á að meðhöndla sjúklinga í heild
sinni og að nota við lækningar einungis
lyf úr ríki náttúrunnar. Christian Osika
hefur starfað sem lækrúr í Svíþjóð í 25
ár. Undanfarin ár hefur hann unnið við
Vidarkliniken í Jama en það er antró-
Finnskir rithöfundar
í Norræna húsinu
Hér á landi em nú staddir 9 fmnskir rit-
höfímdar 1 stuttri heimsókn til að kynna
sér land og þjóð. Meðan á heimsókn
þeirra stendur, nánar tiltekið laugardag-
inn 1. september kl. 16, munu þeir efna
til u.þ.b. klukkustundar langrar dagskrár
í Norræna húsinu. Jarkko Laine, formað-
ur finnska rithöfundasambandsins, mun
segja frá starfsemi þess og auk þess lesa
nokkrir rithöfundanna úr verkum sín-
um. Dagskráin fer fram á fmnsku og
sænsku og verður túlkur til aðstoðar ef
tungumálaerfiðleikar skyldu gera vart
við sig. Rithöfundamir, sem eru með í
fórinni, em: Jarkko Laine, Anni Lah-
tinen, Jukka Parkkinen, Arto Seppálá,
Keijo Siekkinen, Anneli Toijala, Kaarina
Toijanniemi, Kaari Utrio og Kaarina
Valoaalto. Allir em velkomnir.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður á morgun, lagt af stað
frá Digranesvegi 12 kl. 10. Nú fara fyrstu
haustlægðimar yfir landið og náttúran
undirbýr sig fyrir vetrardvalann. Haust-
litimir skarta í trjám og mnnum. Laug-
ardagsgangan býr sig líka undir haustið.
Verið með í skemmtilegum félagsskap.
Nýlagað molakaffi.
Flóamarkaður Félags
einstæðra foreldra
verður haldinn í Skeljahelli, Skeljanesi
6, næstu laugardaga, 1., 8., 15. og 22. sept-
ember, kl. 14-17. Hitt og þetta á góðu
verði. Leið fimm að húsinu.
Bakstur í örbylgjuofni
Frá Oetker em komriar á markað hér 4
tegundir af kökudufti í pökkum til bakst-
urs í örbylgjuofnum. Þetta em ljúfiengar
formkökur í eftirtöldum tegundum:
aúkkulaðikaka, appelsinukaka, hnetu-
kaka og súkkulaðibitakaka. Næstum allt
sem til þarf er í pökkunum. Deigblanda,
glassúrblanda, hnetu- eða appelsínubit-
ar, skraut og bakstursform. Deigblandan
er hrærð með 2 eggjum, svolitlu smjörlíki
og vatni. Eftir aðeins 6-7 mínútur í ör-
bylgjuofni er kakan tilbúin. Með Oetker
„kökupakka" er fljótlegt og þægilegt að
gleðja alla fjölskylduna með nýbakaðri
köku og óvæntir gestir em ekkert vanda-
mál.
Málverkauppboð
Sunnudaginn 2. september fer fram mál-
verkauppboð á vegum Gallerí Borgar.
Boðinn verður upp fjöldi mynda gömlu
meistaranna. má þar nefna verk eftir
Ásgrím Jónsson, Kjarval, Mugg, Þorvald
Skúlason, Kristinu Jónsdóttur, Jón Eng-
UPPBOÐ
Á HÓTEL SÖGU
SUNNUÐAGINN 2, SEPTEMBER 1990
KL. 20.30
íhm;
vikudagur 5. sept.: Samkoma kl. 8.30.
Sönghópurinn Án skilyrða, stjóm-
andi Þorvaldur Halldórsson.
Óháði söfnuðurinn: Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Jónas Þórir. Kaffi eftir
messu í Kirkjubæ. Þórsteinn Ragn-
arsson safnaðarprestur
Safnkirkjan Árbæ: Guösþjónusta kl.
14. Sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson.
Fríkirkjan í Hafnarfirði: Guðsþjón-
usta kl. 11. Kaffi í safnaðarheimilinu
að lokinni guðsþjónustu. Einar Ey-
jólfsson.
Stokkseyrarkirkja: Messa kl. 14.
Sóknarprestur
Keflavíkurkirkja: Guðsþjónusta kl.
11 árd. Kór Keflavíkurkirkju syngur.
Organisti og söngstjóri Einar Órn
Einarsson. Sóknarprestur.
Hafnarfjarðarkirkja: Guðsþjónusta
kl. 14. Ath. breyttan tíma. Fyrsta
guðsþjónusta eftir sumarfrí starfs-
manna. Guðsþjónusta á Sólvangi á
mánudagskvöld kl. 20. Organisti
Helgi Bragason. Gunnþór Ingason.
pósófískt sjúkrahús sem opnað var í okt-
óber 1985 og er eina náttúrulækninga-
sjúkrahúsið á Norðurlöndum. Christian
Osika mun flytja fyrirlestur sinn á ensku
og að fyrirlestrinum loknum mun hann
svara fyrirspumum. Aðgangur er öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.
Tónleikar
C-Moll messa eftir Mozart og
söngnámskeið hjá Söngsveit-
inni Fílharmóníu
Söngsveitin Fílharmónía hefur 31. starfs-
ár sitt 3. september næstkomandi. Aðal-
verkefni vetrarins verður flutningur á
C-moll messu eftir Wolfgang Amadeus
Mozart, K 427, sem flutt verður í Háskóla-
bíói með Sinfóníuhljómsveit íslands 10.
janúar 1991. Jólatónieikar verða í Krists-
kirkju snemma á jólaföstunni.
Ákveðið hefur veriö að gangast fyrir
námskeiði til imdirbúnings og til að
hvetja ungt fólk til inngöngu í kórinn. Á
námskeiðinu verður kennd raddbeiting,
nótnalestur og undirstöðuatriði í tón-
fræði.
Með námskeiðinu vill Söngsveitin gefa
ungu söngfólki tækifæri til að kynnast
kórstarfinu og auka kunnáttu sína um
leið. Raddprófun fer fram í lok nám-
skeiðsins og gefst þá þátttakendum kost-
ur á að ganga til liðs við kórinn.
Kórstjóri Fílharmóníu er Úlrik Ólason
og verður harm kenhari á námskeiðinu
ásamt Margréti Pálmadóttur, aðalradd-
þjálfara kórsins, og Elísabetu Erlings-
dóttur óperusöngkonu.
Námskeiðið hefst mánudaginn 3. segt-
ember, kl. 20, og verður kennt í húsi FÍH
að Rauðagerði 27 í Reykjavík mánudaga,
Hársnyrtisýning á
Hótel Islandi
Sunnudaginn 2. september verður haldin
hársnyrtisýning á Hótel íslandi og hefst
hún kl. 20. Á sýningunni mun íslenskt
hársnyrtifólk sýna hausttískuna í hár-
greiðslu. Þá munu landsliöin í hár-
greiðslu og hárskurði sýna en þau munu
keppa fyrir íslands hönd á heimsmeist-
arakeppninni í Rotterdam 23. september
nk. Landsliðin skipa: Hárgreiðsla: Dórót-
hea Magnúsdóttir, Helga Bjarnadóttir,
Þórdis Helgadóttir og Sólveig Leifsdóttir.
Dómari Elsa Haraldsdóttir. Hárskurður:
íris Sveinsdóttir, Jón Guðmundsson,
Viktoría Guðnadóttir og Guðjón Þór Guð-
jónsson. Dómari Torfi Geirmundsson.
Hársnyrtisýningin á sunnudaginn verð-
ur án efa fróðleg og skemmtileg. Þar
munu meðlimir landsliðsins sýna það
sem þeir hafa lært af erlendum þjálfurum
það sem liðið er af þessu ári. Helstu stof-
ur landsins munu einnig sýna það nýj-
asta í tísku haustsins.
Útivistarferðir
Sunnudaginn 2. september heldur Útivist
áfram í hinni vinsælu Þórsmerkur-rað-
göngu sem endar í Básum á Goðalandi
22. september nk. Áfanginn, sem farinn
verður nk. sunnudag, er sá 15. í röðinni
og verður farið-inn með Giljum. Þar verö-
ur gefinn góður timi til að skoða Bæjar-
gil, Nauthúsagil, Merkurker/Illagil og
fleira. Lagt er af stað kl. 8. Þetta er ein-
stakt tækifæri til að kynnast hinni stór-
brotnu náttúru sem hliðar Eyjafjallajök-
uls hafa að geyma. Staðfróðir Eyfellingar
verða fylgdarmenn. Fólk getur slegist í
hópinn á Selfossi og Hellu. Að venju er
helgarferð í Bása á Goðalandi á vegum
Útivistar. Farið er frá BSÍ, bensínsölu,
kl. 20 í kvöld.
Leikhús
Ferðaleikhúsið
Sýningar Ferðaleikhússins á Light
Nights eru í Tjarnarbíói viö Tjörnina í
Reykjavík (T/jamargötu lOe). Sýningar-
kvöld eru tjögur í viku, fimmtudags- ,
föstudags-, laugardags- og sunnudags-
kvöld. Sýningar hefiast kl. 21 og lýkur
kl. 23. Light Nights sýningamar em sér-
staklega færðar upp til skemmtunar og
fróðleiks enskumælandi ferðamönnum.
Efnið er allt íslenskt en flutt á ensku.
Meðal efnis má nefna: þjóðsögur af
huldufólki, tröllum og draugum, gamlar
gamanfrásagnir og einnig er atriði úr
Egilssögu sviðsett. Þetta er síðasta sýn-
ingarhelgi Ferðaleikhússins á þessu ári.
Sýningar
Art-Hún
Stangarhyl 7
Art-Hún-hópurinn sýnir skúlptúrverk,
grafik og myndir, unnar í kol, pastel og
olíu, í sýningarsal sínum að Stangarhyl 7.
Árbæjarsafn
sími 84412
Safniö er opið alla daga nema mánudaga
kl. 10-18. Kaffihús safnsins. Dillonshús,
er opið á sama tíma og safnið.
Ásgrímssafn
Bergstaðastræti 74
í safni Ásgrims Jónssonar em nú sýnd
26 verk. Mörg verkanna, sem bæði em
unnin í olíu og með vatnslitum, em frá
ámnum 1905-1930 og em þau einkum frá
Suðurlandi. Sumarsýningin í safni Ás-
gríms Jónssonar stendur til ágústloka og
er opin alla daga nema mánudaga kl.
13.30 til 16.
Djúpið
Hafnarstræti
Þar stendur yfir sýning á verkum Þorra
Hringssonar. Á sýningunni eru klippi-
myndir sem allar em unnar á þessu ári.
Þorri Hringsson er fæddur í Reykjavík
1966. Hann lauk námi frá málaradeild
Myndlista- og handíðaskóla íslands 1989
og stundar nú nám við Jan Van Eyck-
akademíuna í Maastricht í Hollandi. Sýn-
ingunni lýkur sunnudaginn 9. september.
FÍM-salurinn
Garðastræti 6
Sumarsýningin, sem tjúka átti 28 þ.m.,
hefur verið framlengd til 18. september.
Á sýningunni em verk eftir 43 myndlist-
armenn, eldri og yngri. Þar er að finna
höggmyndir, olíumálverk, vatnslita-
myndir, grafík og fl. Öll verkin em til
sölu. Opið er frá kl. 14-18 virka daga en
lokað um helgar.
Gallerí 8
Austurstræti 8
Þar em sýnd og seld verk eftir um það
bil 60 höfunda, olíu-, vatnslita- og grafík-
verk, teikningar, keramik, glerverk, silf-
urskartgripir, höggmyndir, vefnaður og
bækur um íslenska list. Opiö alla daga
kl. 10-18 nema sunnudaga kl. 14-18.
Gallerí Borg
Pósthússtræti 9
Sýning á verkum í eigu safnsins. Opiö
daglega kl. 14-18.
Galleri 11
Þar stendur yfir sýning á verkum Dani-
elle Lescot frá Frakklandi. Á sýningunni
em olíumálverk og skúlptúrar. Sýningin
verður opin alla daga kl. 14-18. Sýningin
stendur til 6. september.