Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1990, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1990, Blaðsíða 1
 Hrif IVf frumsýnir í Háskólabíói: Ævintýri Pappírs-Pésa -ný íslenskbama- og fjölskyldumynd Á laugardag frumsýnir Hrif h/f nýja íslenska bama- og fjölskyldu- mynd Ævintýri Pappírs-Pésa eftir Ara Kristinsson en hann er bæði leikstjóri og höfundur handrits. Framleiðandi myndarinnar er Vii- hjálmur Ragnarsson. Hrif h/f hefur áður framleitt bama- myndir fyrir íslenskar og erlendar sjónvarpsstöðvar, m.a. tvær myndir um Pappírs-Pésa og myndina Enginn venjulegur drengur sem hafa verið sýndar í RÚV og á Norðurlöndum og auk þess seldar til þýskra og hol- lenskrar sjónvarpsstöðva. Hrif h/f framleiddi 7 hálftímaþætti, Bítla og blómaböm, sem fjölluðu um sjöunda áratuginn og vora sýndir á Stöð 2. Ævintýri Pappírs-Pésa er fyrsta kvikmyndin í fuilri lengd sem fyrir- tækið framleiðir. Ný ævintýri og uppátæki Pappírs-Pési er teikning sem lifnaði við. í myndinni segir frá nýjum æv- intýrum og uppátækjum krakkanna og Pésa. Meðal annars má nefna óvænta flugferð Pésa, hörkuspenn- andi kassabílarall, prakkarastrik í stórmarkaði, útistöður við geðstirð- an nágranna og geimfar sem lendir í garðinum hjá honum. Myndin er tekin upp í Hafnarfirði sumrin 1989 og 1990. Leikarar eru flestir börn en í helstu hlutverkum eru Kristmann óskarsson, Högni Snær Hauksson, Rannveig Jónsdótt- ir, Ingólfur Guðvarðarson, Rajeev Muru Kesvan og Magnús Olafsson. Brúðunni er stjórnað af Bemd Ogrodnik og Katrínu Þorvaldsdótt- ur. Kvikmyndatakan var í höndum Tonys Forsberg (Hrafninn flýgur, Nonni og Manni og Hvíti víkingur- inn, nýjasta mynd Hrafns Gunn- laugssonar) og Jóns Karls Helgason- ar sem hefur unnið viö flestallar ís- lenskar kvikmyndir. Tónlist er eftir Valgeir Guðjónsson en gefið hefur verið út myndaband með aðallagi myndarinnar, Allt í plati. Geir Ottarr er aðalleikmynda- hönnuður myndarinnar en hann hef- ur áður gert leikmyndir við íslenskar Rannveig Jónsdóttir, Ingólfur Guóvarðarson, Kristmann Pappirs-Pési tekur m.a. þátt í hörkuspennandi kassa- Óskarsson og Högni Snær Hauksson ásamt Pappírs- bilaralli. Pésa. Pappirs-Pési lendir i ýmsum ævintýrum. kvikmyndir og sjónvarpsauglýsing- ar. Kostnaðurinn 50 milljónir Ævintýri Pappírs-Pésa kostaði tæpar 50 milljónir króna en Kvik- myndasjóður íslands hefur styrkt framleiðslu myndarinnar. Hrif h/f hefur einnig stjórnað fram- leiðslu á myndum fyrir aðra íslenska leikstjóra, s.s. Magnúsi, mynd Þráins Bertelssonar, og núna á nýrri kvik- mynd Friðrik Þórs Friðrikssonar, Börn náttúrunnar. Að upptökum á þeirri mynd lokinni tekur við 20 mín- útna barnamynd eftir handriti Her- ílísar Egilsdóttur en hún átti hug- myndina að Pappírs-Pésa. Af heimildarmyndum fyrir erlend- ar sjónvarpsstöðvar má nefna þriggja stunda dagskrá um ísland og 45 mínútna mynd um mannlíf á Snæ- fellsnesi fyrir þýska sjónvarpið. Á laugardag flytur Caput-hópurinn tónverk eftir Finn Torfa Stefánsson. Verkin samdi Finnur á siðustu 3-4 árum en þau verða flutt á litla sviði Borgarleikhússins og hefjast tónleikarnir klukkan 16.00. Ævintýraferðir á Hvolsvelli Hafnarfjörður: Ný tónleikaröð á vegum Hafnar- borgar og Tríós Reykjavíkur Guðný Guðmundsdóttir, Halldór Haraldsson og Gunnar Kvaran. Hótel Hvolsvöllur hefur í samráði við heimamenn skipulagt sérstaka fimm daga ferö nú í september sem kölluð er „útrás fyrir ævintýraþörf- ina“. í þessari ferð er boðið upp á ýmis- legt og má þar nefna fjallaferðir þar m.a. er farið að Emstmm og í Tind- fjöll. Markarfljótsgljúfur em skoðuð. Einnig er stangaveiði í Rangá, hesta- ferð, grillveisla í Þórsmörk og ferð um söguslóðir Njálu. Þeim sem kjósa heldur að láta fyrir berast á hótelinu er boðið upp á öll þægindi, svo sem sánu, Ijós og nuddpott. Einnig er stutt í golfvöllinn. Frekari upplýsingar um ævintýra- ferðina er að fá hjá Hótel Hvolsvelli eða hjá Ferðaskrifstofu íslands. Á sunnudag kl. 20.00 hefur göngu sína ný tónleikaröð á vegum Hafnar- borgar, menningar- og listastofnunar Hafnaríjarðar, og Tríós ReyKjavíkur. Fyrirhugaöir em fernir tónleikar fyrsta starfsárið. Efnisskrá tónleik- anna verður mjög fjölbreytt. Auk verka gömlu meistaranna verður lögð áhersla á frumflutning nýrra verka, bæði íslenskra og erlendra. Tríó Reykjavíkur var stofnaö árið 1988. Meðlimir þess eru Halldór Har- aldsson píanóleikari, Guðný Guð- mundsdóttir fiðluleikari og Gunnar Kvaran sellóleikari. Þau eru öll þjóð- kunnir listamenn sem hafa haldið einleiks- og kammertónleika hér heima og erlendis. Tríóið hefur hald- ið tónleika vítt og breitt um ísland og komið fram í Þýskalandi. í nóv- ember á þessu ári er fyrirhuguð ferð til Norðurlanda. Tríóið hefur fengið til hðs við sig ágæta listamenn, bæði íslenska og erlenda. Á fyrstu tónleikunum koma fram auk tríósins, Ronald Neal fiðlu- leikari, konsertmeistari í Kammer- sveit Dallasborgar, Gayane Mana- sjan, 1. sellóleikari í sömu hljóm- sveit, og Unnur Sveinbjarnardóttir lágfiöluleikari sem starfað hefur í Vestur-Þýskalandi á undanfórnum árum. Framíluttur verður kvartett fyrir tvær fiðlur og tvö selló eftir Þorkel Sigurbjömsson, Hafnarborgarkvart- ettinn, en kvartettinn var saminn fyrir og tileinkaður hinni nýju tón- leikaröð. Þá mun Halldór Haraldsson leika ásamt erlendu gestunum tríó í d-moll op. 49 eftir Felix Mendelsohn og að lokum verður fluttur kvintett í C-dúr op. 163 fyrir strengi eftir Franz Schubert. Þessir fyrstu tónleikar em tileink- aðir minningu dr. Sverris Magnús- sonar er lést í júni sl. Sverrir var ásamt konu sinni, Ingibjörgu Sigur- jónsdóttur, sem einnig er látin, frum- kvöðull að stofnun Hafnarborgar. Hótel Hvolsvöllur býður upp á ferð fyrir þá sem vilja fá útrás fyrir ævintýra- þörfina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.