Alþýðublaðið - 13.07.1921, Qupperneq 4
4
ALÞYÐUBL AÐIÐ
Nýkomið:
Niðursuðuvörur:
Lax, Sardínnr, Síld, Pernr og Ápricots.
Sérlega ódýrt í
Kaupfélagi Reykvlkinga
Laugaveg 22 A. S í m I 7 2 8,
Rftfmagnsleiðslu?.
Straumnum hefir þegar verið
hleypt á götuæðarnar og menn
ættu ekki að draga lengur að
láta okkur leggja rafleiðslur um
hús sín. Við skoðum húsin og
segjum um kostnað ókeypis. —
Komið í tíma, meðan hægt er
að afgreiða pantanir yðar. —
H.f. Hiti & LJós.
Laugaveg 20 B. Sími 830.
Skrijstoja alnentngs,
Skólavörðustíg 5,
tekur að sér innheimtu, annast
um kaup og sölu, gerir samn-
inga, skrifar stefnur og kærur,
ræður fólk í allskonar vinnu
eftir því sem hægt er. Fljót af-
greiðsla. Sanngjörn ómakslaun.
Hálfflðskur kaupir Jón Sn.
Jónsson, Bjargarstíg 17.
5kófatriaður
í dag og næstu viku selja
Kaupfélögin á Laugav. 22
og í Gamla bankanum skó-
fatnað með 20% afslætti:
/
Kvenstigvél, Karimannastíg-
vél, Verkamannastigvél,
Drengjastígvél, Barnaskór.
Alt er þetta mjög góður varn-
ingur og með betra verði en
menn eiga að venjast hér. —
Themosflöskuf í hulstr-
um fást ódýrar í verzl. Símonar
Jónssonar, Laugaveg 12
Alþýdubla Öiö
er ódýrasia, Ijölbreyttasta og
aezta d&ghlaö landsins. Kanp-
ið það og lesið, getið
aldrei áa þesa verið.
Kitstjórí og ábyrgðarmaðu.-:
ólafur Friðriksson.
Prentsmiðjan Gutenbeiir.
fmck Lðudm: JEIlntýrl.
Slóðin lá nú til hægri, eins og flóttamennirnir ætluðu
sér til Balesuna. En það sveigðist meira og meira til
hægri og stefndi alt í einu þangað sem hestarnir höfðu
verið skildir eftir.
Skyndilega heyrðust skot.
„Átta,“ taldi Jóhanna. „En það var sama byssan. Það
hlýtur að hafa verið Papehara sem skaut.“
Þau hertu á sér, en þegar þau komu á vettvang, voru
þau í vafa um að nokkuð hefði skeð. Hestarnir stóðu
kyrrir þar sem þeir voru bundnir, og Papehare sat
á hækjum sér reykjandi. En áður en Sheldon kom til
hans hrasaði hann um líkama, sem lá í grasinu. Jó-
hanna þekti að þar var Gosse kominn, einn af ættingj-
um Gogoomy, sá sem lofað hafði að veiða grísinn.
„Óheppinn, ungfrú,“ sagði Papehare og hristi höfuðið
vandræðalega. „Eg hitti aðeins tvo. Miðaði á Gogoomy
en hitti ekki.“
„En þú hefir drepið þá,“ sagði Jóhanna ásakandi.
„Þú áttir að ná þeim lifandi."
Tahitimaðurinn hló.
„Hvernig átti það öðruvísi að vera? Eg sit hér
reykjandi. Eg hugsa um Tahiti, um brauðaldini og
góða daga í Bora Boa. Alt í einu stökkva tíu menn að
mér út úr skóginum. Allir eru þeir með langa hnlfa.
Gogoomy er með langan hníf í annari hendi og haús-
inn af Kwaque 1 hinni. Eg gat ekki beðið þess, áð ná
þeim lifandi. Eg skaut. Hvernig átti eg öðru vísi að
fara að. Tíu menn, tíu hnífar og höfuð Kvaquel"
Sporin dreifðust eftir þessa mishepnuðu tilraun til
að koma Tahitimanninum að óvörum, en þau láu brátt
saman aftur. Þau röktu þau nú til Beranda, sem flótta-
mennirnir höfðu farið um til þess að komast inn í háa
grasið.
„Það er gagnslaust að elta þá lengur," sagði Sheldon.
„Sllí mun reka alla menn sína af stað til þess að ná
þeim. þeir komast aldrei hjá honum. Það sem við eig-
um að gera, er að gæta strandarinnar og láta þá ekki
komast inn á ekruna til að myrða. — Jú, vissi eg ekki.“
Lítinn eintrjáning bar við dökkan bakkann hinum
megin árinnar og færðist upp eftir ánni. Hann fór svo
hljóðlega — að hann hefði vel getað verið skuggi. Þrjár
naktar, svartar verur réru, og heyrðist ekkert áraglam.
Langs eftir bátnum láu löng skotspjót með beinoddum,
og á baki mannanna hékk fullur örvamælir. Þessir
mannaveiðarar ráku augun í alt. Þeir höfðu tekið eftir
Sheldon og Jóhönnu, en létu ekkert á því bera. Ein-
trjáningurinn stansaði skyndilega, þar sem Gogoomy
og felagar hans höfðu fyrst komið fram á bakkann, því
næst snéri hann við og hvarf i skugga sefsins; annar
og þriðji eintrjáningurinn kom á eftir, rann draugalega
þangað sem flóttamennirnir höfðu sést og hvarf.
„Eg vona að fleiri verði ekki drepnir," sagði Jó-
hanna á heimleiðinni.
„Það kemur varla fyrir," fullvissaði Sheldon. „Eg hefi
íalað svo um við Sílí gamla, að hann fái að eins borg-
un fyrir þá, sem hann færir mér lifandi, svo hann
verður vafalaust varkár."
XXIII. KAFLI.
Aldrei höfðu flóttamenn frá Beranda verið eltir eins
miskunnarlaust og 1 þetta sinn. Gogoomy og félagar
hans höfðu verið slæm fyrirmynd fyrir hálft annað
hundrað nýrra verkamanna. Þeir höfðu ráðgert morð,
höfðu drepið verkstjóra og brotið samning sinn með
því áð flýja ínn í skógana. Sheldon sá, hve nauðsynlegt
það var, að sýna þeim nýkomnu, að slíkt framferði
Æ íintýrið
eftir Jack London, sagan sem hefir verið að
koma hér í blaðinu, kemur út sérprentuð á ágæt-
um pappír með mynd höfundarins. — Hún verður
yfir 200 stður og kostar aðeins i kr. send frítt
hvert á land sem er gegn póstkröfu. Upplagið
lítið. — Sendið pantanir sem fyrst til blaðsins.