Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1990, Síða 21
LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1990.
21
Nýtt íslenskt teiknimyndablað lítur dagsins ljós:
Ekki bara fyrir stráka
„Viö vorum þrír kunningjar sem
vorum aö velta fyrir okkur aö
skemmtilegt væri aö gefa út íslenskt
teiknimyndasögublaö. Hugmyndin
varð til í febrúar. Ég hafði heyrt af
öðrum sem höföu sama áhugamál og
við settum okkur í samband viö þá.
Viö héldum fund og ákváöum aö slá
til meö útgáfuna nú í haust. Það var
um mitt sumar sem viö byrjuðum
að teikna en þaö var enginn grund-
völlur fyrir útgáfu nema nokkrir
ynnu viö blaöiö,“ segir Bjarni Hin-
riksson, einn sjömenninga sem eru
aö senda frá sér nýtt blað, Gisp, sem
leit dagsins ljós í gærdag.
Aðrir teiknarar eru Bragi Hall-
dórsson, Þórarinn Leifsson, Jóhann
Torfason, Ólafur Engilbertsson,
Þorri Hringsson og Halldór Baldurs-
son. Alhr eru þeir útskrifaöir úr
Myndlista- og handíðaskólanum.
„Það er auövitaö engin leið að lifa
af teiknimyndasögum en upp á fjöl-
breytni er mun betra aö viö séum
nokkrir sem framleiðum efni,“ segir
Bjarni. Þeir strákar eru allir viö önn-
ur störf, Bjarni og Ólafur starfa hjá
Sjónvarpinu, Þorri er við nám í Holl-
andi, Halldór er húsfaðir í Frakk-
landi og hinir starfa „free lance“ við
auglýsingagerð og fleira hér á landi.
„Við vorum með nokkrar sögur til-
búnar í upphafi og fórum aö kanna
markaðinn. Til dæmis athuguðum
viö hvort Smekkleysi vildi gefa blað-
iö út og fjármagna dæmiö. Síðan
sáum viö aö eðlilegast væri aö viö
stæöum sjálfir aö útgáfunni,“ segir
Bjarni.
í blaöinu, sem er svart-hvítt, eru
stakar sögur frá hverjum höfundi.
„Sögupersónumar verða ekki endi-
lega áfram í næstu blööum, þaö verö-
ur bara sitt á hvað,“ segir Bjarni.
Blaöið telja þeir vera fyrir fullorðiö
fólk. „Við erum á aldrinum frá tví-
tugu til þrítugs og erum ekki aö búa
til myndasögur fyrir börn.“
Bjarni segir blaöið ekki vera klass-
ískt hasarblaö þó finna megi ein-
hvern hasar í sumum sögunum.
„Þetta eru fjölbreyttar sögur úr öll-
um áttum og stíllinn er það líka.
Stefna okkar er aö hafa blaðiö fjöl-
breytt en um leið aö skapa einhvern
sérstakan anda sem veröur til meö
útgáfunni. Höfundar verða alltaf þeir
sömu en sögupersónurnar og sögu-
svið breytast," segir Bjarni ennfrem-
ur.
Sögusviöið er yfirleitt ísland. Meira
aö segja auglýsingar í blaðinu eru
hannaöar af höfundum teiknimynd-
anna, enda í sama stílnum. Gisp er
fyrsta íslenska teiknimyndasögu-
blaöiö en áöur hafa verið gefin út
teiknimyndablöð í skólum, þá gjarn-
an fjölrituð. Hér er því um brautryðj-
endastarf aö ræða.
- En er þetta bara strákablað?
„Að því leyti aö engar stelpur vinna
viö blaöið. Það er oft sagt aö teikni-
myndasögur séu fyrir stráka en ég
held aö þaö sé rangt,“ segir Bjarni.
„Þetta blaö er fyrir bæði kynin.“
-ELA
Siöa úr nýja teiknimyndablaóinu.
KVIK KLÆÐASKÁPAR
ÓTRÚLEGA ÓDÝRIR
r
Gerð 50-hvítur
50 x 210 x 60 sm
m/hattahillu, slá fyrir
herðatré og höldum.
AÐEINSKR. 9.478,-
Fimm af sjö höfundum nýja íslenska teiknimyndasögublaðsins, Bjarni Hinriksson, Bragi Halldórsson, Þórarinn
Leifsson, Jóhann Torfason og Ólafur Engilbertsson. DV-mynd BGS
XdJ
Gerð 100
tvöfaldur, hvítur
100 x 210 x 60 sm
m/skilrúmi, hattahillu,
3 hillum, slá fyrir
herðatré og höldum.
feoBfc
AÐEINS KR. 14.760,-
UU
BÆJARHRAUNI 8 • HAFNARFIRÐI
SlMI 651499
Jólamatur og -kökur:
SENDIÐ JÓLAUPPSKRIFTIR
ALLRA SÍÐASTI SKILADAGUR A MÁNUDAG
ann 28. nóvember mun DV gefa
út aukablað um mat og kökur til
jólanna. Að þessu sinni verður sér-
staklega leitað til lesenda um uppskriftir,
enda vitað að fólk lumar á alls konar góð-
um og sniðugum uppskriftum að jólamat
og ekki síður kökum, sælgæti og öðru
góðgæti sem tilheyrir jólum. Einnig eru
smáfrásagnir af tilurð uppskrifta, íslenskra
og erlendra, og jólahaldi á íslandi og úti
í heimi skemmtileg viðbót.
Hér er ekki um verðlaunasamkeppni að
ræða heldur verður dregið úr öllum inn-
sendum bréfum. Hinir fimm heppnu fá
senda nýja og glæsilega Matreiðslubók
Iðunnar en hún kostar 7.400 krónur.
Sendið uppskrift eða
uppskriftir að alls konar
jólamat til DV fyrir 12.
nóvember.
Uppsetning þarf að
vera skýr og engu má
skeika með mál og vog.
Best væri að fá upp-
skriftirnar vélritaðar en
skýr rithönd getur
gengið. Ef mikið efni berst verður að velja uppskrift-
ir til birtingar en allir eiga jafna möguleika á mat-
reiðslubók.
Munið að skrifa undir með fullu nafni, heimilisfangi
og síma. Merkið umslagið:
Dagblaðið-Vísir
Matur og kökur
pósthólf 5380
125 Reykjavík
IÐUNN
Brœðraborgarstíg 16